Morgunblaðið - 22.09.1983, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983
31
Jóhanna E. Sveinsdóttir.
„ ... ef tekin yrði upp
allsherjar leynileg at-
kvæðagreiðsla um boð-
un verkfalla, myndir þú
auka áhrifamátt þinn
og réttindi innan verka-
lýðsfélaganna, í stað
þess að vera leiksoppur
vilja duttlungagjarnra
leiðtoga eða fulltrúa-
ráða, sem sjá eitt í dag
en annað á morgun.“
um með atkvæði sínu hvort grípa
skuli til verkfallsaðgerða eður ei.
Ég hef orðið vör við það, að fólk
hafi misskilið tilgang fyrrnefnds
greinarkorns míns, og lagt það
eingöngu út á þann veg að ég væri
á móti verkföllum. Ég mun ekki
Síðasta rall-
keppni ársins
Bifreiöaíþróttaklúbbur Reykjavík-
ur gengst fyrir svonefndu Bridge-
stone-ralli ’83 dagana 14. og 15.
október nk. og er þetta síðasta
rall-keppni ársins. Lagt verður af
stað að kvöldi föstudagsins 14.
október, frá Hjólbarðahöllinni við
Fellsmúla, en þar verða bílarnir
ræstir kl. 22.00, en Bridgestone-
ralli ’83 lýkur um kl. 13.00 á laug-
ardag, 15. október, við Bílaborg,
Smiðshöfða.
Heildarvegalengd keppninnar
er 500 km og þar af verða 265 km
eknir á sérleiðum eða yfir 50%.
Keppnin gefur stig til íslands-
meistara í ralli, en sú keppni er
tvöföld að þessu sinni, bæði fyrir
ökumenn og aðstoðarökumenn.
Efstir að stigum í keppni öku-
manna eftir keppnir ársins eru:
Halldór Úlfarsson á Toyota Cor-
olla með 65 stig, í öðru sæti er
Ómar Ragnarsson á Renault með
52 stig, í þriðja sæti er Hafsteinn
Hauksson á Ford Escort með 26
stig og í fjórða sæti er Rfkharður
Kristinsson á Lada með 25 stig.
í keppni aðstoðarökumanna um
íslandsmeistaratitilinn er Jón R.
Ragnarsson efstur að stigum eða
með 52, í öðru sæti er Tryggvi Að-
alsteinsson með 45 stig, i þriðja
sæti er Birgir Viðar Halldórsson
með 26 stig og í fjórða sæti Atli
Vilhjálmsson með 25 stig.
Væntanlegir þátttakendur í
Bridgestone-ralli ’83 eru beðnir að
skrá sig til keppni fyrir 1. október
nk. hjá keppnisstjóra, Birgi Þór
Bragasyni, eða á skrifstofu BÍKR í
Hafnarstræti 18, Reykjavík.
Athugasemd
Jóhannes Helgi óskar þess getið,
að myndin af Sigurhæðum, sem
birtist með samnefndri grein hans
í gær, er frá þeim tíma er allt var
í sómanum með húsið.
neita því að það er ég, og hef jafn-
an verið. Ég mun aldrei sjá neinn
ávinning í því, nema sem algjört
örþrifaráð, að stöðva allt atvinnu-
líf landsins, sem þýðir að tekjur
þjóðarbúsins hætta að koma inn
ef talað er um þjóðarheimilið,
ásamt því um leið að tekjur laun-
þeganna stöðvast. — Nei, það sem
vakti fyrir mér með greinarkorni
mínu var að vekja athygli laun-
þega á því, að eins og lög kveða á
um í dag, gefst þeim ekki kostur á
því að fá að taka sjálfir þátt í
ákvörðun um það hvort verkfall
skuli hafið — á sama tíma og laun-
þegum er gert að skyldu að vera
meölimir í verkalýðsfélögum. Þar
erum við ekki spurð. Það hlýtur
því að vera skylda verkalýðsfélaga
að tryggja að ekki sé gengið í ber-
högg við vilja meirihluta meðlima
sinna. Eins og málið lftur út í dag,
er fólki ekki gefinn kostur á að
taka þátt í þessari mikilvægu
ákvörðun, sem boðun verkfalls er,
með allsherjaratkvæðagreiðslu.
Þótt ég sé mjög á móti verkföll-
um, breytir það engu um það að ég
yrði að sjálfsögðu að sætta mig við
að fara í verkfall, þar sem meiri-
hluti meðlima í viðkomandi verka-
lýðsfélagi hefði greitt þvf atkvæði
sitt. — Sú er hinsvegar ekki raun-
in í dag.
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Mér hefur verið sagt af ýmsum
aðilum, að það sé alveg bráðnauð-
synlegt að hafa heimild um verk-
fallsboðun í höndunum, ef nokk-
urn tíma eigi að nást einhver
hækkun á launum. Atvinnurek-
endur hlusti einfaldlega ekki á
verkalýðsleiðtogana, nema hægt
sé að veifa verkfallsboðun framan
í þá. Það er mjög miður ef þetta er
satt. Ekki ætla ég að leggja neinn
dóm á það mál hér, en ekki er úr
vegi að gera því máli skil síðar f
sjálfstæðu greinarkorni. Ég mun
þó aldrei fallast á að verkalýðsfé-
lög leyfi sér í raun að höndla tekj-
ur meðlima sinna og stöðva þær,
án þess að meirihluti meðlimanna
hafi fengið tækifæri til þess að
taka afstöðu til þess hvað skuli að
hafst. Það ætti þá alveg eins að
gefa fólki kost á að velja sjálft,
hvort það vilji vera í verkalýðs-
eða launþegafélagi, og ríkir spurn-
ing í huga mínum um hvort allir
myndu velja slíkt, ekki síst á með-
an þeir fá engu ráðið í svo miklu
réttlætismáli.
Til eru í raun tvær leiðir til þess
að innleiða lýðræðið í þessu máli:
1. Að verkalýðsfélög breyti lögum
sínum í þá átt að trúnaðar-
mannaráð hafi ekki lengur vald
til að taka ákvörðun um að
boða verkföll, og sé það vald þá
fært til meðlimanna sjálfra í
formi allsherjaratkvæða-
greiðslu.
2. Að breyta þeim hluta vinnu-
löggjafarinnar sem snýr að
boðun verkfalla þannig að verk-
föll megi því aðeins boða að
viðhöfð sé leynileg allsherjar-
atkvæðagreiðsla.
Aukinn áhrifa-
máttur þinn
Því miður vill það svo oft
brenna við að réttlætismál séu
þöguð í hel, þar sem það er svo
algengt, því miður, að fólk láti sig
málið engu skipta, og sé ekki
reiðubúið til að vinna að því aí
það nái fram að ganga. Baráttan
kostar nefnilega meiri tíma en
fólk er reiðubúið að láta í té.
Hversu margir mætti ekki ætla að
séu sammála mér úm að liklega
yrði það til. bóta að staðið yrði aí
boðun verkfalla á lýðræðislegri
hátt en við búum við í dag. Er
viljann til þess að berjast fyrir þv:
vantar, — fólk er samdauné
ástandinu og hreinlega nennir
ekki að gefa sér tíma til að leggja
málinu lið. Slíkt er mjög miður —
ekki síst þar sem þetta fólk sér oft
eftir því að hafa ekki lagt eitthvað
af mörkum til framgangs málsins,
á meðan það var ekki of seint, en
getur síðan ekkert að gert, þegar
það horfist í augu við að nú sé
engu hægt að breyta.
Það væri verðugt íhugunarefni
fyrir þig, lesandi minn, að minn-
ast þess, að ef tekin yrði upp alls-
herjar leynileg atkvæðagreiðsla
um boðun verkfalla, myndir þú
auka áhrifamátt þinn og réttindi
innan verkalýðsfélaganna, í stað
þess að vera leiksoppur vilja duttl-
ungagjarnra leiðtoga eða full-
trúaráða, sem sjá eitt I dag en
annað á morgun allt eftir því
hvaða stjórnmálaflokkar sitja í
ríkisstjórn. Þess vegna hvet ég
alla hugsandi menn og konur,
hvar sem þau standa í pólitík, að
ljá þessu máli lið sitt, láta álit sitt
í ljós hvar sem þau geta, og vinna
að því að koma þessu réttlætis-
máli í farsæla höfn.
Jóhanna E. Sveinsdóttir er einka-
ritari hjá Eimskipafélagi íslands og
stjórnarformaður í Verzlunar-
mannafélagi Reykjavíkur.
FIGGJO
NORWAY
Figgjó hótelpostulín
er fínlegra,
sterkara og fallegra
Figgjó hótelpostulín er þéttbrennt meö stálhöröum glerungi. Mjög
hreinlegt í allri notkun.
í postulínsmassann er blandaö „korund", sem er áloxíö sem gerir
postulíniö sérlega sterkt og óbrotgjarnt.
Figgjó hótelpostulíni er hægt aö stafla vel og tekur minna pláss,
enda teiknaö af hönnuöum meö kunnáttu og þekkingu á hótel-
rekstri.
Figgjó hótelpostulín er nútímalegt í hönnun og til í ótal litum og
mynstrum. Hvitt postulín er ávallt til á lager.
Figgjó postulín er hægt aö fá sérmerkt gegn litlum aukakostnaöi
og lítilsháttar biötíma.
Figgjo-Stavanger
Figgjo Fajanse Stavangerflint as
RK_
UMBOÐS OG HEILDVERSLUN
A. Kairlssoin In. If.
P 0. BOX 167, GRÓFIN 1, 121 REYKJAVÍK, ICELAND. SÍMI 27444
í staðinn fyrlr tvlst og grisju
Tork á
vinnustað
Tork þurrkurnar eru
sérstaklega íramleiddar
tyrir atvinnulífið, hvort
sem um er að rœða
olíuþurrkur, þurrkur fyrir
elektrónisk tœki, þurrkur
fyrir eldhús og mötu-
neyti, verkstœðisþurrkur
eða aírafmagnaðar
þurrkur fyrir tölvur, ljós-
nœma hluti og ljós-
myndatœki.
Hafðu samband við
söludeild okkar og fáðu
upplýsingar um Tork
þurrkur, sem hœfa
þínum vinnustað.
?
dfc asiaco ht
Vesturgötu 2, P.O.
Box 826, 101 Reykjavík
sími 26733