Morgunblaðið - 22.09.1983, Page 36
8861 H38M3’rag ,2S flU0ACIUTMMI3 ,QIQAvI8V!UDflOM
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1983
ert hafi átt hug hans í jafn ríkum
mæli og baráttumál Sjómanna-
dagssamtakanna í Reykjavík og
Hafnarfirði. Við vorum þar nánir
samstarfsmenn í nær aldarfjórð-
ung og þekki ég því vel til fórnfýsi
hans og elju á þessu sviði.
Guðmundur H. Oddsson var
einn þeirra sem strax gekk til
leiks, þegar fyrsta kallið að stofn-
un þessara samtaka kom frá
Henrý Hálfdanarsyni og félögum
hans. Guðmundur vann við undir-
búning að stofnun Fulltrúaráðs
Sjómannadagsins í Reykjavík og
Hafnarfirði og var kjörinn fyrsti
gjaldkeri þess. Að undanskildum
stríðsárunum og næstu árum þar
á eftir var hann fulltrúi í ráðinu
og orðinn meðstjórnandi á
sjöunda áratugnum og kjörinn
gjaldkeri á aðalfundi 1960 og
endurkjörinn æ síðan og því starfi
gegndi hann til síðustu stundar,
en hann var endurkjörinn enn
einu sinni til næstu þriggja ára á
aðalfundi samtakanna í maí sl.
Á því tímabili sem við Guð-
mundur höfum setið saman í
stjórn þessara samtaka hefur ver-
ið tekið í notkun húsnæði fyrir um
300 aldraða vistmenn að Hrafn-
istu í Reykjavík og eru þ.ám.
hjónaíbúðirnar við Jökulgrunn, en
sú gata liggur um lóð Hrafnistu.
Hrafnista í Hafnarfirði með
vernduðum íbúðum og hjúkrun-
ardeild hefur verið komið upp og
eru þar um 200 vistmenn. Barna-
heimili var reist og rekið á jörð
samtakanna í Grímsnesi. Þar hef-
ur verið byggður fjöldi orlofshúsa,
bæði einstakra sjómannafélaga og
samtakanna sjálfra, jörðin girt,
skipulögð og vegir lagðir. Á sl. ári
var þar tekið í notkun stórt og
vandað félagsheimili sjómanna.
Þá hefur stjórnin staðið fyrir
allri fjáröflun samtakanna, séð
um rekstur fyrirtækja og stofnana
auk þess sem unnið hefur verið að
fjölda annarra verkefna, svo sem
sjávarútvegssýningunni „íslend-
ingar og hafið" 1968. Auk þess
hafði Guðmundur veg og vanda af
ritstjórn og útgáfu Sjómanna-
dagsblaðsins um langt árabil.
Oll þessi ár hefur Guðmundur
séð um allar greiðslur til verktaka
og lánastofnana vegna fram-
kvæmda samtakanna, auk marg-
háttaðrar fyrirgreiðslustarfsemi
hjá sömu aðilum vegna þeirra.
Traustari og betri samstarfsmann
en Guðmund H. Oddsson gat ég
ekki hugsað mér og hafa þó marg-
ir afburðamenn myndað hlekki
þeirrar traustu keðju sem velferð-
arsamtök þessi eru nú.
Fyrir störf sín hlaut Guðmund-
ur margskonar viðurkenningu um
ævina. Hann var sæmdur fálka-
orðunni 1968 og einnig hlaut hann
gullheiðursmerki sjómannadags-
ins um líkt leyti.
Nokkru fyrir síðasta sjómanna-
dag var einróma samþykkt í
stjórn okkar að óska eftir því við
Guðmund að hann tæki fyrstu
skóflustunguna að nýframkvæmd-
um samtakanna í Garðabæ. Þetta
gerði hann við athöfn sem fór
fram laugardaginn 4. júní. Með
þessu var formlega hafist handa
um byggingu fyrsta áfanga þeirra
vernduðu þjónustuíbúða aldraðra,
sem þar á að byggja og njóta eiga
öryggis og þjónustu frá Hrafnistu
í Hafnarfirði. Með þessari fram-
kvæmd er að rætast nær 30 ára
gamall draumur Sjómannadags-
samtakanna um skipulagt hverfi
einstakra íbúðarhúsa aldraðra,
sem ættu þaðan aðgang í næsta
nágrenni að stigvaxandi þjónustu
og umönnun, þegar heilsu hrakaði.
Þessari stefnu vildi Guðmundur
hrinda í framkvæmd. Hann sá í
sínu táknræna verki, skóflustung-
unni, hilla undir að þessi gamla
framtíðarsýn væri að rætast.
Hinn 6. september 1936 kvænt-
ist Guðmundur Laufeyju Hall-
dórsdóttur, ættaðri frá Jörfa á
Kjalarnesi. Ung að árum fluttist
hún með foreldrum sínum og
systkinum að Austurkoti við
Kaplaskjólsveg og við þann stað
voru þau Iengi kennd.
Þegar Guðmundur varð sextug-
ur komst ég svo að orði í stuttri
afmælisgrein, að margháttuð og
tímafrek störf eins og hann hefði
unnið væru ekki framkvæmanleg
nema með góðum samstarfs-
t
Maöurinn minn, faöir, tengdafaöir og afi,
KRISTJÁN ARNLJÓTSSON,
fyrrv. rafveitustjóri á Húaavík,
lést 20. september.
Geröur Björnsdóttir,
Björn Kristjánsson,
Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Elfas Þorsteinason,
Hulda Kristjánsdóttir, Sveinbjörn Sigurösson
og barnabörn.
t
SIGRÍDUR BJARNADÓTTIR,
fyrrv. aöalgjaldkeri Ríkisútvarpsins,
andaöist í Sunnuhlíö, hjúkrunarheimili aldraöra í Kópavogi, 20.
september.
Útför hennar veröur gerö frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 27.
september kl. 15.00.
Árni Guðjónsson.
t
Útför frænku minnar,
PÁLÍNU PÁLSDÓTTUR
frá Hraungeröi á Eyrarbakka,
veröur gerö frá Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 24. sept. 1983, kl.
14.
Fyrir hönd skyldmenna,
Haukur Guölaugsson.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
JÓHANN ÓLAFSSON,
Björk v/ Freyjugötu, Sauöárkróki,
sem lést 14. september sl., veröur jarösunginn frá Sauðárkróks-
kirkju, laugardaginn 24. september kl. 14.00.
Álfheióur Ástvaldsdóttur,
Ólafur Jóhannsaon, Alda Valgarösdóttir,
Ástvaldur Guömundsson, Þórdís Einarsdóttir
og barnabörn.
t
Bálför fööur okkar.
KETILS GUOMUNDSSONAR,
frá ísafiröi,
fer fram frá Fossvogskirkju, föstudaginn 23. september kl. 10.30.
Unnur Ketilsdóttir,
Guömundur Ketilsson,
Dóra Ketilsdóttir,
Ása Ketilsdóttir.
Guðmundur H. Oddsson
af frábærum myndar- og skör-
ungsskap.
Samhliða störfum sínum í öld-
unni starfaði Guðmundur sem
fulltrúi félags síns í Farmanna- og
fiskimannasambandi íslands.
Hann átti sæti í stjórn þess um
langt árabil, var forseti sam-
bandsins í tvö kjörtímabil, eða um
fjögurra ára skeið.
Hann átti aðild að og flutti
fjölda tillaga um öryggis- og hags-
munamál sjómanna og var einn
þeirra þriggja manna sem stóðu
fyrir undirbúningi og útgáfu á
Sjómannablaðinu Víkingi, sem
hefur æ síðan verið málgagn FFSÍ
og sjómannastéttarinnar í heild.
Hann var einlægur stuðnings-
maður að stofnun Sparisjóðs vél-
stjóra og sýndi það í verki, öðrum
fremur, að hann vildi gera hann
að öflugri stofnun, allri sjómanna-
stéttinni til hagsbóta.
Þegar Verðlagsráð sjávarút-
vegsins hóf sitt starf, tók Guð-
mundur þar sæti sem fulltrúi
FFSÍ og sat þar um árabil.
Hann lét sig miklu varða
menntunarmál sjómanna, átti
sæti í skólanefnd síns gamla
skóla, Stýrimannaskólans í
Reykjavík, var einn hinna dug-
miklu áhugamanna sem beittu sér
fyrir byggingu skólahússins og
átti sæti í milliþinganefnd sem
endurskoðaði lög hans fyrir
nokkrum árum. Fleiri trúnaðar-
störfum hefur Guðmundur gegnt
og staðið að margþættum fram-
faramálum á sviði útgerðar- og
sjávarútvegsmála.
Þrátt fyrir það sem hér hefur
verið upptalið, finnst mér að ekk-
Jarðarför t STEINUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR
fer fram frá Borgarneskirkju, laugardaginn 24. september kl. 14.00. Rúta fer frá Umferðarmiöstööinni kl. 10.00 f.h.
Systkini hinnar látnu.
t
Eiginmaöur minn, faöir, sonur, tengdafaðir og afi,
HINRIK ELBERGSSON,
Hjallabraut 35, Hafnarfiröi,
veröur jarösunginn frá Grundarfjaröarkirkju laugardaginn 24.
september kl. 2.
Bílferð verður frá BSÍ kl. 9 árdegis.
Ragnheiður Ásgeiradóttir,
Ágústa Hinriksdóttir, Ragnheiöur Berg,
Ásdís Hinriksdóttir, Ásgeir Jónasson,
Ása Hinriksdóttir,
Þór Hinriksson,
Ásgeröur Guðmundsdóttir, Elberg Guömundsson.
Bróðir okkar, t ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, Snorrabraut 30, Reykjavik,
verður jarösettur frá Fossvogskirkju kl. 15.00, fimmtudaginn 22. september. Blóm og krans^r afbeöið. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á minningarkort Félags heyrnarlausra, Klapparstíg 28.
Kristín Guömundsdóttir, Siguröur Guömundsson, Gytha Guömundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
t Útför mannsins míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, GUNNARS VALBERGS PÉTURSSONAR, fyrrv. bílamálara, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavik, föstudaginn 23. september kl. 13.30. Guömunda Þorgeirsdóttir, Þórdís Gunnarsdóttir, Gunnar Birgir Gunnarsson, Guöríöur Valgeirsdóttir, Pétur Gunnarsson, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir, Bjarni G. Bjarnason, Ásdís Gunnarsdóttir, Guölaugur Hermannsson, Þorgeir Gunnarsson, Sigurjón Gunnarsson, Edda Kjartansdóttir og barnabörn.
t Sonur okkar, faöir og bróöir, PÁLLARNARRAGNARSSON, rennismiöur, Otrateig 20, verður jarösunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 23. septem- ber kl. 13.30. Sigríóur E. Jónsdóttir, Ragnar B. Henryson, Bryndís Erla Pálsdóttir, Gylfi Þór Pálsson, Jón Ingi Ragnarsson, Ingibjört Torfadóttir, Arnheiöur Ragnarsdóttir.
t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, t Þökkum af alhug auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
GUÐMUNDUR H. ODDSSON, eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
skipstjóri, ÁSTU MARGRÉTAR GUÐLAUGSDÓTTUR,
er lést 12. september, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni Miklubraut 42.
fimmtudaginn 22. september kl. 1.30. Sérstakar þakkir færum við Ásgeiri Jónssyni hjartalækni og starfs-
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Heilsugæslusjóö Hrafnlstu. fólki gjörgæsludeildar Landakotsspítala.
Laufey Halldórsdóttir, Björgvin K. Grímsson,
Helga Guómundsdóttir, Finnbjörn Hjartarson, Jóhann S. Björgvinsson, Klara Sjöfn Kristjánsdóttir,
Halldór Guómundsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir, Guörún Erla Björgvinsdóttir, Jón Böövarsson,
Gunnar Guðmundsson, Sigrún Einarsdóttir Guðlaugur Björgvinsson, Þórunn Hafstein
og barnabörn. f : \ r', og barnabörn.