Morgunblaðið - 20.10.1983, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983
Heidursmennirnir Sigurður Ólafsson, apótekari, dr. Gylfí Þ. Gíslason, prófessor, Erlendur Stofnfélagar sýndu mikla gjafmildi, er þeir greiddu félagsgjöld sín. Félagsgjöldin roru ákveðin
Einarsson, forstjóri SÍS, og Gunnar Guðjónsson, skipamiðlari og stjórnarformaður SH, voru kr. 200 á ári, en margir greiddu 500—1000 krónur til samtakanna.
meðal fundargesta.
Stofiiftindur samtaka um
byggingu tónlistarhúss
STOFNFUNDUR samtaka um bygg-
ingu tónlistarhúss á íslandi var hald-
inn síðastliðinn sunnudag í Súlnasal
Hótel Sögu. Blásarakvintett Reykja-
víkur lék nokkur lög áður en fundur-
inn var settur. Stofnfélagar samtak-
anna eru um 2000 og þar af mættu
um 700 á fundinn. Undirbúnings-
nefnd var stofnuð í júnímánuði síð-
astliðnum og hefur hún unnið að
undirbúningsstarfi í sumar. Formað-
ur undirbúningsnefndar, Ármann Ö.
Ármannsson, flutti skýrslu nefndar-
innar, félagsgjöld voru ákveðin kr.
200. Kosið var í fulltrúaráð og Gunn-
ar Guðjónsson lýsti yfir áhuga sínum
á því að sjóður, stofnaður í minningu
föður síns, yrði látinn renna til sam-
„Tónlistin er
heilög list“
„Ég er mjög ánægður, að nú
skuli loksins vera farið að hugsa
til þess að byggja hús, þar sem
drottning listanna, tónlistin, hef-
ur aðsetur.
“Þetta mælti Sigurður
Björnsson, framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Sigurður sagði ennfremur:
„Tónlistin er heilög list eins og
segir í óperunni Ariadne auf
Naxos og því ber að hlúa að
henni. Starfsemi Sinfóníu-
hljómsveitar íslands sem nú er
í Háskólabíói, mun nú fara
fram í þessu húsi og gjörbreyt-
ir það auðvitað allri aðstöðu til
tónleikahalds. Auk þess verða
skrifstofur hljómsveitarinnar
þar, sem þýðir að öll starfsem-
in verður undir sama þaki.
takanna. Fundarstjóri var Sigurður
Helgason, Finnur Torfi Stefánsson
var fundarritari.
„Áhugi og ást á tónlist sameinar
okkur sem hér erum samankom-
in,“ mælti Ármann ö. Ármanns-
ion, formaður undirbúningsnefnd-
ar um samtök um byggingu tón-
listarhúss, er hann ávarpaði fund-
argesti og bauð þá velkomna. í
ræðu sinni sagði Ármann m.a. að
ef uppvaxandi kynslóðir ættu að
finna gleði í tónlist og tónlistar-
menn og tónskáld ættu að hafa
fastan punkt í tilveru sinni í fram-
tíðinni, yrði bygging tónlistarhúss
að koma til.
„Rísi helst í
gamla bænum"
„Mér finnst það fjarskalega
spennandi að stofnun sam-
takanna skuli vera orðin að
veruleika," sagði Gunnar
Kvaran, sellóleikari. “Há-
skólabíó er langt frá því að
fullnægja kröfum tónlistar-
innar, bæði hvað varðar
hljómburð og aðstöðu hljóð-
færaleikara bak við sviðið. Ég
á sæti í fulltrúaráði og er
ánægður yfir því að fá að
starfa að og stuðla á þann
hátt að byggingu tónlistar-
húss fyrir okkur íslendinga.
Persónulega fyndist mér
skemmtilegast ef húsið fengi
að rísa í gamla miðbænum,
eða sem næst honum."
20 fundir hjá
undirbúningsnefnd
í framhaldi af tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar íslands og
söngsveitarinnar Fílharmóníu,
þann 4. júní sl. var haldinn fundur
um undirbúning stofnunar sam-
taka um byggingu tónlistarhúss.
Eftirtaldir aðilar voru valdir í
undirbúningsnefnd: Ármann ö.
Ármannsson, Björgvin Vilmund-
arson, Einar Jóhannesson, Finnur
Torfi Stefánsson, Gunnar Egils-
son, Hákon Sigurgrímsson, Ingi R.
Helgason, Jón Nordal, Jón Þórar-
insson, Karolína Eiríksdóttir, Rut
Magnússon og Sigurður Helgason.
Hinn 5. júní síðastliðinn var fyrsti
fundur nefndarinnar haldinn, en
samtals voru haldnir 20 fundir áð-
ur en samtökin voru formlega
stofnuð á sunnudaginn var. Vann
nefndin aðallega að athugunum á
staðar- og lóðarvali, leiðum til
fjáröflunar, hvers konar starfsemi
gæti farið fram í tónlistarhúsinu,
auk þess sem nokkrir nefndarmeð-
limir fóru utan í sumarfríum sín-
um og kynntu sér rekstrarstarf-
semi tónleikahúsa erlendis.
Staðarval: Arnarhóll
og Hljómskálagarður
koma til greina
Undirbúningsnefnd kannaði
„Mikil viðbrigði að spila
aftur í Háskólabíói"
„Það er svo ótrúlega gaman
að spila í góðum sal,“ mæltu
Bernard Wilkinson, flautuleik-
ari, og Ágústa. Enda voru við-
brigðin mikil, að spila aftur í
Háskólabíói eftir að hafa haldið
tónleika í Musikveren í Vínar-
borg, en þar er hljómburðurinn
til dæmis alveg frábær.
Bygging tónlistarhúss á Is-
landi er nauðsynleg og best
væri ef húsið yrði hannað með
það fyrir augum að fámennari
tónlistarhópar gætu einnig
haldið tónleika þar, þ.e. að
einnig yrði 1 lítill salur í hús-
inu, en það stendur víst líka til
að þannig verði fyrirkomulag-
ið. Annars er hæpið að tala
um stærð hússins á þessu stigi
málsins.
Við erum örugglega ekki ein
þeirrar skoðunar að Háskóla-
bíó sé alls ekki heppilegt til
tónlistarflutnings. Áðstaðan
bak við svið er ófullkomin, þar
er til dæmis ekki aðstaða fyrir
einleikara að hita sig upp fyrir
tónleika. Einnig er hávaði frá
flugvellinum mjög óæskilegur
og hindrar möguleika á upp-
töku. Sem sagt: Tónlistarhús á
íslandi!"
Gunnar Guðjónsson tilkynnir um
áhuga sinn á að minningarsjóður
föður hans renni til samtakanna.
margar lóðir, þar sem tónlistar-
húsið gæti risið. Helstu staðir,
sem nefndir voru, eru Arnarhóll,
Skúlatorg/Borgartún, Laugarnes,
Laugardalur, Sigtún, Miklatún,
Öskjuhlíð, Hljómskálagarður og
Nýr Miðbær. Allir þessir staðir
koma vel til greina að mati undir-
búningsnefndar, sem telur mjög
brýnt að húsinu verði valinn stað-
ur hið bráðasta.
Kostnaður skv. áætlun
um 167 milljónir
„Lauslega áætlaður hönnunar-
og undirbúningskostnaður vegna
byggingar tónlistarhúss í Reykja-
vík nemur allt að 10 milljónum
króna og þarf það fjármagn að
safnast áður en byggingarfram-
kvæmdir hefjast," sagði Ármann
Ö. Ármannsson. „Heildarkostnað-
ur á núverandi verðgildi er áætl-
aður um 167 milljónir, en ég legg
áherslu á mikilvægi undirbúnings
þess, er bygging tónlistarhúss
kostar. Sá undirbúningur tekur
töluverðan tíma, þannig að til
verulegra fjárútláta þarf ekki að
koma fyrr en að u.þ.b. 2 árum liðn-
um.“
2 salir með tónlistarflutn-
ingi, danssýningum, ráð-
stefnum o.fl.
— Ekki miöað við ákveðna
tegund tónlistar
Ármann Ö.Ármannsson sagði
að bygging tónlistarhúss hlyti að