Morgunblaðið - 20.10.1983, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983
Hrunamannahreppur
Það hefur löngum verið íbyrgðarstarf að gegna stöðu fjallkóngs í haustleitum en hreppsnefndir skipa í þær
trúnaðarstöður. Á þessari mynd eru þrír menn er gegnt hafa því starfi í Hrunamannahreppi hjá minnisvarða um
þann fjórða, Eirík Jónasson í Efra-Langholti. Hann var fjallkóngur frá 1906 til 1951. Næstur varðanum er
Gestur Guðmundsson frá Syðra-Seli sem var eftirmaður Eiríks frá 1953 til 1963, þá Helgi Jónsson, ísabakka,
fjallkóngur 1964 til 1982 og síðan Ásgeir Gestsson, Kaldbak, sem varð fjallkóngur í haust. Myndin er tekin við
Hrepparéttir á réttardaginn 15. september.
Ljósm.: Sig. Sigm.
Haustleitir gengu vel
.Syira-Laagholli um veturnKtur.
SÚ GÓÐA veðrátta sem verið hef-
ur í haust hefur komið bændum og
búfénaði vel og bætt að nokkru
endemis ótíðina í sumar. Kýr hafa
verið úti fram undir þetta þar sem
grænfóður er til handa þeim en
víðast hvar spratt það illa í sumar,
áburðurinn hreinlega skolaðist
burt og hitastigið var nú ekki hátt.
Þegar loks birti upp á höfuðdaginn
áttu flestir allmikið eftir óheyjað.
Segja má að náðst hafi sæmilegt
heymagn en heyið er misjafnt að
gæðum.
Á allmörgum bæjum hér í
sveit er súgþurrkunarblásturinn
hitaður upp með jarðvarma og
stóðu þeir bændur mun betur að
vígi við heyöflunina i rosanum.
Kartöfluuppskera var léleg og
sumstaðar svo að ekki var upp
tekin. Nokkrir bændur hafa á
undanförnum árum byggt af-
komu sína að verulegu og sumir
nær öllu leyti á kartöfluræktinni
og hafa því lagt í dýrar fjárfest-
ingar við þá búgrein. Afkomu
þessara bænda er nú stefnt í
voða nema til komi aðstoð fljót-
lega en Bjargráðasjóður er sagð-
ur tómur eins og vera mun um
flesta sjóði er viðkoma atvinnu-
vegunum. Sama má segja um
uppskeru grænmetis, hún varð
léleg, einkum er kálið varðar, en
rættist nokkuð úr með gulrætur,
gróðurhúsaafurðir urðu hinsveg-
ar þokkalegar.
Allar haustleitir gengu vel á
Hrunamannaafrétti í haust.
Nýlega eru 5 menn komnir úr
þriðju og síðustu leit og fundu
þeir þrjár kindur. Grunur er um
að fé sé enn eftir í afréttinum og
verður vafalaust farið að venju
til að leita af sér gruninn.
Sauðfjárslátrun er að ljúka, end-
anlegar tölur um fallþunga dilka
liggja ekki fyrir en hann er mis-
jafn að venju en telja má að
skorist hafi eftir vonum miðað
við þetta árferði. En það eru dýr
lömb sem lögð hafa verið inn í
haust því sjaldan eða aldrei hef-
ur þurft að gefa lambám jafn
lengi inni og á sl. vori.
Sig. Sigm.
Janúar—ágúst:
Tóbaksinnflutning-
ur jókst um 13%
INNFLUTNINGUR á vindlingum og tóbaki jókst um liðlega 13% fyrstu átU
mánuði ársins, í magni Ulið, þegar inn voru flutt samUls 411,3 tonn, borið
saman við 363,8 tonn á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukning innflutn-
ingsins fyrstu átta mánuði ársins
var um 177,9%, eða liðlega 148,5
milljónir króna í ár, borið saman
við liðlega 53,4 milljónir króna á
sama tímabili í fyrra.
Innflutningur á vindlingum
jókst um 14,7% milli ára, en
fyrstu átta mánuði ársins voru
flutt inn samtals 331,6 tonn, borið
saman við 289,1 tonn á sama tíma
í fyrra. Verðmætaaukningin milli
ára er um 190%, eða 125,7 milljón-
ir króna á móti 43,6 milljónum
króna á sama tíma í fyrra.
Innflutningur á öðru tóbaki
jókst um 6,7% milli ára, þegar inn
voru flutt 79,7 tonn, borið saman
við 74,7 tonn á sama tíma í fyrra.
Verðmætaaukning þess innflutn-
ings var um 127% eða um 22,77
milljónir króna á móti liðlega 10
milljónum króna.
ísafjörður:
Samkeppni um hönn-
un stjórnsýsluhúss
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
samkeppni um hönnun stjórnsýslu-
húss á ísafirði. Er þetta í fyrsta sinn
sem efnt er til samkeppni um upp-
drætti af stjórnsýsluhúsi hér á landi,
segir í fréttatilkynningu sem Morg-
unblaðinu hefur borist
Þar segir ennfremur að hugmyndin
að smíði stjórnsýsluhúss sé ekki ný
og að oft hafi komið til tals að ísa-
fjarðarkaupstaður léti byggja ráðhús í
bænum. f maí sl. voru undirritaðir
samvinnusamningar um hönnun,
smíði og rekstur stjórnsýsluhúss á
ísafirði. Aðilar að samningnum eru:
ísafjarðarkaupstaður, Útvegsbanki
íslands, ríkissjóður, Fjórðungssam-
band Vestfjarða, Brunabótafélag ís-
lands, Endurskoðunar- og bókhalds-
stofa GEK, Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen og Tryggvi Guðmunds-
son lögfræðingur.
Byggingunni hefur verið valinn
staður miðsvæðis í bænum við
Hafnarstræti og er lóðin á milli
Silfurtorgs og Pollsins. Hús þetta,
sem áætlað er að verði um 12.000
m3 að stærð, kemur til með að hafa
veruleg áhrif á svipmót bæjarins.
Heimild til þátttöku hafa allir
félagar í Arkitektafélagi fslands og
aðrir þeir, sem uppfylla ákvæði
byggingarreglugerðar og hafa ieyfi
til að leggja aðaluppdrætti fyrir
byggingarnefnd ísafjarðarkaup-
staðar.
Keppnisgögn fást afhent hjá
trúnaðarmanni dómnefndar, ólafi
Jenssyni framkvæmdastjóra Bygg-
ingaþjónustunnar, Hallveigarstíg
1, Reykjavík og skal tillögum skilað
þangað eigi síðar en 20. des. 1983
kl. 18.
Verðlaunafé er kr. 420.000, þar af
eru 1. verðlaun ekki lægri en
200.000 kr. Auk þess er dómnefnd
heimilt að kaupa tillögur fyrir allt
að kr. 80.000. í dómnefnd eiga sæti
Brynjólfur Sigurðsson dósent,
formaður, Dagný Helgadóttir arki-
tekt, ritari, Manfreð Vilhjálmsson
arkitekt, Reynir Jónasson banka-
stjóri og Vilhjálmur Hjálmarsson
arkitekt.
Verðlagsstofnun varar
við villandi auglýsingu
VERÐLAGSSTOFNUN hefur sent
út viðvörun til neytenda gegn vill-
andi auglýsingu. Auglýsingin er frá
dönsku fyrirtæki um auglýsinga-
bækling og kaupendura heitið 6.000
krónum íslenskum á viku með auð-
veldri heimavinnu.
Fréttatilkynning Verðlags-
stofnunar um þetta efni fer hér á
eftir: „Auglýsing sem ber yfir-
skriftina „Aukatekjur" hefur
birst í dagblöðum undanfarnar
vikur. í texta auglýsingarinnar,
sem er frá danska fyrirtækinu
Daugaard Trading, Claus Cort-
ensgade 1, DK 8700 Horsens, er
þeim sem kaupa auglýsingabækl-
ing fyrirtækisins í pósti á ísl. kr.
200 heitið dönskum kr. 2.000 eða
um 6.000 ísl. kr. á viku með auð-
veldri heimavinnu.
í skýrslu umboðsmanns neyt-
enda í Danmörku frá síðastliðn-
um vetri segir að ofangreint
fyrirtæki selji bæklinga með fá-
nýtum hugmyndum. Kaupendur
bæklinganna geti ekki búist við
þeim aukatekjum, sem heitið er í
auglýsingunni, þótt þeir hagnýti
sér þær hugmyndir sem í bækl-
ingnum eru birtar. Þeir eru því
seldir á röngum forsendum.
Fyrirtækið var dæmt til að
greiða danskar kr. 20.000 (ísl. kr.
u.þ.b. 60.000) fyrir að brjóta
ákvæði laga um viðskiptahætti.
Samkvæmt þeim lögum er óheim-
ilt að veita rangar, ófullnægjandi
eða villandi upplýsingar í auglýs-
ingum. Ennfremur var hagnaður
fyrirtækisins vegna sölu bækl-
ingsins gerður upptækur. Þá var
fyrirtækinu gert að greiða þeim
neytendum skaðabætur, sem
kvartað höfðu til umboðsmanns-
ins.
íslenskir neytendur eru hér
með varaðir við að festa kaup á
þessum auglýsta bæklingi."
Horft til norðurs upp Hafnarstræti. Á auða svæðinu við Pollinn sést lóðin sem ætluð er undir stjórnsýsluhúsið.
Viö minnum á
gíróreikning Hjálparstofnunar kirkjunnar
nr. 20005-0.
Búnaðarbanki íslands.