Morgunblaðið - 20.10.1983, Side 20

Morgunblaðið - 20.10.1983, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir SIGURÐ SVERRISSON Uppskerubrestur ofan á efnahagsörðugleika — ástandið í Brasilíu gæti leitt til kreppu á alþjóðlegum lánamörkuðum Efnahagsástandið í Brasilíu fer stöðugt versnandi. Nú á sfðustu vikum hafa það hins vegar ekki einvörðungu verið fjárhagsáhyggjur, sem íþyngt hafa stjórnvöldum. í norðausturhluta landsins hefur orðið uppskerubrest- ur af völdum þurrka og hungrið er tekið að sverfa að á þeim slóðum. En hungur er ekki neitt nýtt fyrirbæri í fátækari hverf- um stórborgarinnar Rio de Jan- eiro. Um nokkurra mánaða skeið hafa íbúar þeirra barist í bökk- um við að halda í sér lífinu með öllum tiltækum ráðum. Þegar launin hækka ekki nema um 90% á sama tíma og nauðsynja- vörur hækka um 250% er erfitt að láta enda mætast. Það hófst allt saman þriðju- dagskvöld eitt í september í út- hverfinu Vila Kennedy. Um leið og myrkrið færðist yfir bárust skilaboðin frá manni til manns. Áður en klukkustund var liðin heyrðust fyrstu brothljóðin þeg- ar verslunargluggar létu undan grjóthnullungum, sem að þeim var varpað. Brothljóðunum fjölgaði og þau heyrðust víðar. Þarna voru ekki skipulagðir óaldarflokkar á ferð, heldur fá- tæk alþýðan knúin áfram af sulti. Þótt þarna opnaðist leið til stórfelldra gripdeilda létu flestir sér nægja að hafa á brott með sér 5 kílógramma poka af hrísgrjónum eða svörtum mat- arbaunum til þess eins að seðja sárasta hungrið. Daginn eftir voru vopnaðir verðir á vappi fyrir utan flesta stórmarkaði hverfisins. Stór hópur fólks, um 1.000 manns, safnaðist saman fyrir utan eina verslunina, þar sem voru til varnar 150 hermenn. Þar sem þeir stóðu gráir fyrir járnum og gættu verslunarinnar hrópaði fólkið: „Við erum svöng." Innbrotaalda Þessar aðgerðir alþýðunnar voru aðeins upphafið. Fjórum dögum eftir fyrsta innbrotið höfðu 17 stórmarkaðir orðið fyrir barðinu á sveltandi almúg- anum. Að mánuði liðnum var þessi tala komin upp í 85. Þá voru innbrotin heldur ekki leng- ur bundin við Rio de Janeiro, heldur var svipaða sögu að segja frá flestum stærri borgum landsins. Þessar gripdeildir þykja sýna betur en nokkuð annað þá óánægju, sem ríkir á meðal al- mennings. Frá því í september- byrjun hafa 225 verslanir og stórmarkaðir orðið fyrir barðinu á svöngum almenningi. Einkum hafa innbrotin verið í Rio de Janeiro, Sao Paulo, svo og í norðausturhluta landsins, þar sem uppskerubresturinn varð. Stjórnvöld og kaupsýslumenn hafa rætt orsakir þessarar öldu gripdeilda fram og aftur án þess að komast að nokkurri annarri niðurstöðu en þeirri, að hún verði ekki stöðvuð. Eftir að inn- brotunum fór ört fjölgandi hefur herinn að mestu gefist upp við að verja verslanir og eigendur hafa því sjálfir orðið að stilla sér upp með byssu i hönd nótt eftir nótt til þess eins að verja eigur sínar. Þetta neyðarástand í landinu kemur á sama tíma og brasilíska stjórnin reynir sem ákafast að sannfæra lánardrottna sína um að henni muni að endingu takast að standa í skilum. Lánin, sem um ræðir, eru engir smáaurar og lætur nærri að þau nemi 90 milljörðum dollara (um 2500 milljörðum íslenskra króna). Þrátt fyrir loforðaflaum stjórn- valda eru forráðamenn stærstu bankastofnana heimsins orðnir sannfærðir um að ekkert fái bjargað Brasilíu úr þvi skulda- feni, sem landið er nú komið í. Afleiðingar Umræðan snýst eiginlega ekki lengur um hvernig og hvenær Brasilíumönnum tekst að greiða upp skuldir sínar við alþjóða- banka og stofnanir, heldur hvernig þær bregðast við því að þurfa að afskrifa þær gífurlegu upphæðir, sem lánaðar hafa ver- ið. og hvaða afleiðingar þetta kann að hafa í för með sér. Hugsanlegt er talið, að önnur ríki, sem eru skuldum vafin og eiga í erfiðleikum með að borga af lánum sínum, kunni að fara að dæmi Brasilíu og gefast hreinlega upp. Slíkt myndi vafa- lítið leiða til kreppuástands á al- þjóðlegum lánamörkuðum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Sérfræðingar í alþjóðlegum lánamálum setja þá skoðun sína, að Brasilíumenn geti aldrei stað- ið í skiium með núverandi lána- byrði, ekki fram að óathuguðu máli. Brasilía hefur tvívegis á tiltölulega skömmum tfma brugðist trausti lánardrottna sinna og þrátt fyrir aðhaldsað- gerðir, sem reyndar hafa reynst óskaplega óvinsælar á meðal launþega, gengur hvorki né rek- ur. óvinsælasta reglugerðin geng- ur undir nafninu 2045. Hún kveður á um, að laun skuli ekki hækka nema sem svarar 80% af hækkun nauðsynjavara. Þessari ákvörðun stjórnvalda er að sjálfsögðu ætlað að draga úr verðbólgu, sem nú er rúm 160%. Atvinnuleysi eykst hröðum skrefum og í hverri viku leggur fjöldi fyrirtækja upp laupana. Miklar umræður hafa farið fram að undanförnu um þessa reglugerð, 2045, og hafa stjórn- arsinnar nú gengið i lið með stjórnarandstæðingum og deilt hart á hana. Hefur því verið haldið fram, að með henni sé beinlínis verið að koma fátæk- ustu fjölskyldum landsins á vergang. Á bláþræði Líf stjórnarinnar virðist hanga á bláþræði og þegar Figu- eiredo, forvígismaður stjórnar- innar, kom fram í sjónvarpsvið- tali fyrir skemmstu fór vart framhjá nokkrum, að óánægja almennings er tekin að setja mark sitt á stjórnarstarfið. Lof- aði Figueiredo endurskoðun á reglugerð 2045 ef það mætti verða til þess að draga úr ólgunni. Þrátt fyrir yfirlýsingu hans efast jafnvel hörðustu stuðningsmenn stjórnarinnar um að nokkru verði breytt til batnaðar úr því sem komið er. Segja má með sanni, að Bras- ilía megi muna tímana tvenna. Ekki eru nema 12 ár síðan efna- hagsástandinu í landinu var lýst sem undri. Brasilísku þjóðinni var talin trú um að hennar biði paradís á jörðu við byltingu hersins 1964. Nú standa milljón- ir landsmanna frammi fyrir því að þurfa að svelta. Þær hljóta jafnframt að spyrja sig að þvl hvers virði það sé að herða sult- arólina enn frekar til þess eins að sjá afraksturinn hafna í höndum erlendra lánardrottna. (Heimildir: Herald Tribune Internat- ional og Tbe Obaerrer - Newa Service.) VÉLTAK Fassi-vökvakranar Eigum fyririiggjandi 9 tm. 4 tonna bílkrana. 9 tm. 4 tonna sjókrana. Hagstæö greiðslu- kjör. Nú eru i notkun 110 FASSI- kranar á skipum, bílum og bryggjum hér á landi. FASSI framleiöir krana frá 3 tm.—42 tm. Véltak hf. Hvaleyrarbraut 3, Hafnarfiröi, sími 52160, 50236. Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Borgarfulltrúar Sjálfstæöisflokksins veröa til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö viö hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö notfæra sér viðtals- tíma þessa. Laugardaginn 22. október veröa til viðtals Markús Örn Antonsson og Vil- hjálmur G. Vil- hjálmsson. Hamar og sög er ekki nóg NEMA ÞÚ VEUIR RÉTTA EFNIÐ** Vegg- og loftklæðning ^ í glæsilegu úrvali l#j úr eik, aski, beiki, gullálmi, furu, antikeik, mahogany, palesander og 10 tegundir til viðbótar. Verö frá aöelns kr. 75 pr m’. BJORNINN HF Skúlatúni 4 - Simi 25150 - Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.