Morgunblaðið - 20.10.1983, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983
nmmrn
Æ) T, VAg - ^ J f | l y 'CtfaA ~~ Ij |jfc|i|§.Mi,TH«*T 1 _ S i-J
ást er ...
... aö verma á
hvort öðru tærn-
ar.
TM Rm U.S Pat. Oft -all rights reserved
® 1980 Los Angeles Tlmes Syndkate
K7
ans, þá gáið þið að harð-
soðnu cggjunum, sem voru
hér áðan.
I'ú ættir að vera hér lagsi,
þegar hvirfilbyljirnir ganga
hér yfir.
HÖGNI HREKKVÍSI
Avarp til allra
Þórarinn Jónsson skrifar:
„Að biðja fyrir alheimsfriði ætti
öllum að vera ljúft og skylt að
gera. Nú á tímum bera fjölmiðlar
þjóðarinnar okkur dag hvern öm-
urlegar fréttir. Víða um plánetu
vora, jörð, geisa styrjaldir þjóða í
milli. Margs konar ofbeldi er beitt
og misþyrmingum. ófriðaraðilar
þykjast allir hafa á réttu að
standa og vilja hreinsa til fyrir
dyrum sínum. En innrás í ríki
annarra þjóða sýnir glögglega, að
þeir, sem beita slíkri aðferð máli
sínu til framgangs, starfa ekki í
þágu friðarins.
En hvers konar friðar?
Þess friðar, sem eftirfarandi orð
vísa til: „Frið skil ég eftir hjá yð-
ur. Minn frið gef ég yður. Eg gef
ekki eins og heimurinn gefur yður.
Hjörtu yðar hræðist ekki né skelf-
ist.“
Það er friðarhöfðinginn mikli,
Jesús Kristur, sem sagði fram-
anskráð orð 1 jarðvist sinni fyrir
nær 2000 árum. Hann gerði meira
en tala. Hann lét verkin sýna
hvers konar frið hann væri að tala
um. Lesið fjallræðuna.
Hinn varanlegi friður fæst ekki
með mótmælagöngum, öskrum
eða hávaða. Það sýna dæmin ljós-
lega. Benda má á Mahatma
Gandhi, hinn indverska. Hann
vann að hugðarmálum sínum með
hógværð, sýndi samlöndum sínum
breytni sína í verki. Þessi maður
lifði og starfaði að lausn allra
mála með einbeitni og af festu, og
hans er minnst með virðingu.
Gandhi hræddist ekki, lét ekki
skelfast, þótt hart væri að honum
sótt. Hann brynjaði sig þolinmæði
og vann í anda Jesú Krists, þó að
hann væri annarrar trúar en við
sem kristna trú játum.
Hvers má þá vænta af okkur?
Hvernig tökum við á málefnum
daglegs lífs? Sýnum við hógværð í
verki og þolgæði í hugsun? Störf-
um við í anda Jesú Krists? Nei,
þar skortir mikið á.
„Það sem þér viljið að mennirn-
ir gjöri yður, það skuluð þér og
þeim gjöra.“ Höfum við þessa göf-
ugu reglu að leiðarljósi? Svarið
verður því miður neikvætt. Það
skortir mikið á að svo sé.
í ávarpi þessu, sem hér er skráð,
eru allir beðnir um samhug og
samhjálp I bæn fyrir alheimsfriði.
Hugtakið „alheimsfriður" er víð-
tækt, víðtækara en svo, að það
verði skilgreint í fáum orðum.
Það, sem felst í þessu ávarpi til
íslensku þjóðarinnar, er samein-
ing að biðja fyrir friði í anda Jesú
Krists.
„Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð
lykill er hún að drottins náð*
Hallgrímur Pétursson.,
Þessir hringdu . . .
Austurlanda-
ferd um jól
og áramót
Haraldur Jóhannsson hjá
Ferðaskrifstofunni Faranda
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Ég hringi út af fyrir-
spurn lesanda í Velvakanda i
morgun (18. okt.). Hann spyr,
hvort ekki sé von til þess, að
farnar verði hópferðir til útlanda
um jólaleytið.
Ferðaskrifstofan Farandi
verður með hópferð til Austur-
landa, og er brottfarardagur 23.
desember. Þetta er þriðja árið í
röð, sem við erum með þessar
ferðir, og þær hafa verið mjög
vel sóttar, ekki síst af eldra fólki.
Þar gefst því tækifæri til að
komast á framandi slóðir og upp-
lifa ýmislegt skemmtilegt, eins
og lesandinn biður um. Það er
ekki fullbókað í þessa ferð og
nokkur sæti laus ennþá. Flogið er
til Lundúna og beint áfram til
Filippseyja, Taiwan og Hong
Kong. Og þetta er ekki erfið ferð
fyrir fullorðið fólk, því að það fer
ákaflega vel um alla í þessum
langferðavélum og hótelin sem
við gistum á eru mjög góð. Með
okkur hefur farið fólk alveg upp
undir áttrætt og líkað vel.
Hópferðir
um hátfðirnar
Ásgeir Sigurjónsson, bílstjóri á
BSR, hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Það var lesandi
að mælast til þess að farin yrði
hópferð um jól og áramót, sem
hentað gæti fólki yfir sextugt. Ég
var að enda við að festa mér
pláss í einni slíkri, hjá Útsýn, og
ætla mér að vera á Costa del Sol
um hátíðarnar. Þar að auki hefur
Ferðaskrifstofan Farandi staðið
fyrir Austurlandaferðum á þess-
um tíma undanfarin þrjú ár.
Sjálfur fór ég í fyrstu ferðina
með Faranda og verður hún
ævinlega ógleymanleg. Haraldur
Jóhannsson, forstjóri ferða-
skrifstofunnar, fer sjálfur með
fólkinu og sér alveg um það. Og
það er ekki hægt að gera það bet-
ur. í þeirri ferð sem ég fór var
bæði fullorðið og miðaldra fólk.
Flogið var á milli allra ákvörðun-
arstaða, alls 16 flugferðir minnir
mig, og það er eiginlega ekki
hægt að lýsa móttökunum, þær
voru svo dýrlegar á öllum svið-
um. Maður kynnist þarna nýjum
og framandi heimi og náttúru-
fegurðin er stórkostleg. Það
verður enginn svikinn af að fara
í svona ferð.
Morgunblaðið
birti yfirlit yfir
peningamálin
IJ. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Á baksíðu Mbl.
í dag (18. okt) er haft eftir Tóm-
asi Tómassyni, sparisjóðsstjóra í
Keflavík, að verðtryggðir reikn-
ingar séu dottnir niður í það að
vera versta ávöxtunarleiðin eftir
að vaxtabreytingin komst í fram-
kvæmd. í framhaldi af þessari
fullyrðingu, skora ég á Morgun-
blaðið að birta yfirlit yfir þessi
mál, eins og það hefur gert ein-
um tvisvar sinnum, til að útskýra
fyrir okkur almennum borgur-
um, hvernig peningamál standa
nú. Ég hugsa, að margur þægi, að
það yrði gert. Þá kæmi væntan-
lega í ljós, hvort þerra er rétt hjá
Tómasi, að breytingin hafi orðið
nú, sem hann telur.
- O -
f fyrstu atrennu leyfir Velvak-
andi sér að benda á svar Bjarna
Braga Jónssonar, hagfræðings
Seðlabankans, á bls. 21 í Mbl.
miðvikudag 19. okt.
Gaman að sjá
Guðmund J. á
nýjan leik
Skúli Óskarsson, Grindavík,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar til að koma
því á framfæri, hvað það var
gaman að sjá Guðmund J. á nýj-
an leik í sjónvarpinu; og gaman
að sjá, hvað hann hefur breyst
lítið á öllum þessum tíma. Mér
fannst líka vel til fundið hjá hon-
um að vera með stírurnar í aug-
unum, því að það var alveg
greinilegt, að hann var nývakn-
aður. Samt fannst mér þetta ekki
nógu vel stílfært hjá honum.
A.m.k. misskildi ég þetta með
sáttahöndina, hélt hann ætti við