Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
250. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Haförn SH-122 fórst í foráttubrimi við Bjarneyjar í gær;
„Bjargaði mér að ég var
fastur í gúmmíbátnumu
— segir einn þriggja skipverja, sem bjargað var — Þriggja skipverja er enn saknað
ÞREMUR skipverjum af vélbátnum
Hafcrninum SH 122 frá Stykkis-
hólmi var bjargað eftir að báturinn
fórst við Bjarneyjar á Breiðafirði
laust eftir klukkan 14 í gær. Þeim
var bjargað um borð í þyrlu skömmu
eftir slysið, tveimur af einu Lóns-
skerja, þeim þriðja af smáeynni
Lóni. Þriggja skipverja er enn sakn-
að. Þeir sem björguðust heita Gunn-
ar Víkingsson, skipstjóri, Ragnar
Berg Gíslason, stýrimaður, og Pétur
Sigurðsson, háseti. Skipverjarnir
sem saknað er heita Kristrún
Óskarsdóttir, 36 ára, matsveinn,
Pétur Jack, 33 ára, vélstjóri, og Ing-
ólfur Kristinsson, 20 ára, háseti.
Foráttubrim, hvöss vestanátt og
éljagangur var þegar slysið varð.
Haförninn var einn fjögurra báta
á skelfiskveiðum norðan við
Bjarneyjar og var á heimleið þeg-
ar hann fékk skyndilega á sig brot
í beygjunni vestan við eyjarnar.
Tókst skipverjum ekki að rétta af
halla, sem kom á bátinn, og fór
hann á hliðina þegar annað brot
reið yfir. Þremur skipverjanna,
sem voru afturá, tókst að komast í
gúmmíbát án þess að hafa ráðrúm
til að senda út neyðarkall. Hinum
þremur, sem voru í lúkar, tókst
ekki að komast í bátinn. Tveimur
þeirra tókst þó að hlaupa eftir
skipshliðinni aftur að brú og kom-
ast þar í bjarghring en félögum
þeirra lánaðist ekki að ná á þeim
taki. Báturinn sökk skömmu síðar.
Einn þeirra, sem bjargað var
um borð í gæsluþyrluna, Ragnar
Berg Gíslason, stýrimaður, sagði í
samtali við blm. Morgunblaðsins á
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi um
kvöldmatarleytið i gær, að þre-
menningarnir í gúmmíbátnum
hefðu skotið upp neyðarblysi, sem
sést hefði á Þórsnesinu. „Þeir gátu
ekkert gert, við vorum komnir það
nálægt klettunum," sagði Ragnar.
„Félagar mínir tveir komust upp á
fyrsta skerið en ég komst ekki
upp. Báturinn rann meðfram sker-
inu og hvolfdi og það hefur senni-
lega bjargað mér að ég festist í
bátnum en varð ekki viðskila við
hann og gat kraflað mig upp á
botn hans. Bátinn rak upp fjöruna
á Lóni. Öllu hafði þá skolað úr
honum, til dæmis varmapokum,
sem í honum voru. Ég dró bátinn
ofar, velti honum við og skreið
undir hann...“
Tveir bátar voru í næsta ná-
grenni við Haförninn þegar slysið
varð. Sáu skipverjar á fyrri bátn-
um, Þórsnesi SH, neyðarblys og
síðan gúmmíbátinn. Kölluðu þeir
þegar á næsta bát, Gretti SH, og
létu jafnframt vita um slysið til
lands. Slysavarnafélaginu barst
tilkynning um bátstapann kl.
14.40.
Rán, þyrla varnarliðsins, Þór-
snesið, Grettir og fleiri bátar, auk
björgunarsveitarmanna frá
Stykkishólmi, leituðu áfram á
slysstaðnum fram í myrkur. Þá
var leit hætt í bili en henni átti að
halda áfram strax í birtingu.
Sjá viðtöl við aðra skipverja af
Haferninum, sjónarvotta og björg-
unarmenn á baksíðu og miðopnu.
Skipverjarnir þrír sem björguðust af Haferninum á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi um kvöldmatarleytið í gær. Taldir frá vinstri: Gunnar Víkingsson skipstjóri,
Ragnar Berg Gíslason stýrimaður og Pétur Sigurðsson háseti. Morjtunbltóió RAX
Rússar ætluðu að senda
margt vopna tíl Grenada
dgetowi
SOVETMENN, Kúbumenn og Norður-Kóreumenn voru búnir að semja um
að sjá Grenadastjórn fyrir miklu magni af vopnum, samkvæmt skjölum, sem
fundist hafa í miklu magni á Grenada. Búist er við að innihald skjalanna
verði birt í vikunni, en þar kemur m.a. fram að Rússar voru búnir að semja
um að senda marxistastjórninni á Grenada mikið af vopnum gegnum Kúbu.
Um helgina uppgötvaðist að
Kúbumenn hefðu komið sér fyrir á
smáeynni Carriacou rétt norður af
Grenada. Höfðu þeir komið upp
loftvarnarbyssum við flugvöll.
Kúbumönnunum hefur verið veitt-
ur frestur til uppgjafar að sögn
heimilda i Pentagon. Ekki er vitað
hversu margir Kúbumenn eru á
eynni, en uppgötvunin tefur
brottför 1.900 landgönguliða, sem
hafast við í herskipum undan
Grenada, til Líbanon.
Talsmaður Hvíta hússins stað-
festi fregnir um að landgönguliðar
hefðu af misgáningi skotið á
Kúbumenn, sem teknir voru fastir í innrásinni á Grenada, rýna í gegnum
gaddavírsgirðingu í fangabúðunum við flugvöllinn í Point Salinas. Komið er
í Ijós að Kúbumenn hafa einnig hreiðrað um sig á lítilli eyju skammt frá
Grenada. AP/Hímamynd.
geðsjúkrahús á fyrsta degi land-
göngunnar á Grenada. Kanadískt
tímarit sagði 47 sjúklinga hafa
fallið, en talsmaður Pentagon
sagði mannfallið „miklu minna“.
Mistökin eru sögð liggja í því að
svæðið, þar sem sjúkrahúsið er,
var merkt sem hernaðarsvæði.
Talsmaður vestur-þýsku stjórn-
arinnar sagði stjórnina telja inn-
rásina á Grenada lýðræði til
framdráttar. Gagnrýni á innrás-
ina í síðustu viku hefði byggst á
þeim upplýsingum sem þá hefðu
legið fyrir hendi, en nýjar upplýs-
ingar hefðu breytt myndinni.
Yfirmaður byltingarstjórnar-
innar, Hudson Austin, hershöfð-
ingi, sem var við völd í Grenada er
iandganga Bandaríkjamanna og
fleiri þjóða hófst, var tekinn fast-
ur í gær og er í haldi um borð í
herskipinu Guam við strendur
Grenada.
Sir Paul Scoon, landstjóri á
Grenada, lýsti fögnuði sínum í dag
með viðbrögð landgönguliðsins við
bón sinni um að skerast í leikinn á
Grenada vegna umsvifa Kúbu-
manna og Rússa þar. Sir Paul
undirbýr nú myndun borgaralegr-
ar stjórnar á Grenada.
Sir Geoffrey Howe, fyrrverandi
utanríkisráðherra Breta, bar til
baka fregnir um að fyrir dyrum
stæðu viðræður um myndun
gæsluliðs á vegum samveldisríkj-
anna, sem tæki að sér eftirlit á
Grenada þegar Bandaríkjamenn
væru farnir þaðan.
Leslie A. Janka, blaðafulltrúi í
Hvíta húsinu, sagði af sér í dag
vegna óánægju með fréttaflutning
af gangi mála varðandi innrásina
á Grenada. Janka sérhæfði sig í
utanríkismálum.
Engar fregnir fara af bardögum
á Grenada frá því á föstudag.
Samtals hafa 16 Bandaríkjamenn
fallið í bardögum þar, 77 særst og
þriggja er saknað.
Erlent
Jarðskjálftarnir í Tyrk-
landi ......... bls. 19
Kosningaúrslit í Argen-
tínu .......... bls. 19
Þjóðarsáttarfundur Líb-
anon .......... bls. 19
Grenada ....... bls. 18
Sjá einnig aðrar erlendar
fréttirá 18/19 og 30/31.