Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 13 Þórarinn Eldjám Iðurm Kyrr kjör Ný saga eftir Þórarin Eldjárn ÚT ER komin hjá Iðunni bókin Kyrr kjör, saga eftir Þórarin Eldjárn. Þetta er fyrsta langa saga Þórarins, en áður eru komnar frá hans hendi þrjár bækur með kveðskap, Kvæði, Disneyrímur og Erindi, svo og smá- sagnasafnið Ofsögum sagt. Af bók- um Þórarins hafa þrjár komið út oftar en einu sinni, Kvæði fjórum sinnum, Disneyrímur og Ofsögum sagt tvisvar. Kveikja sögunnar er ævi skálds- ins Guðmundar Bergþórssonar, sem uppi var á ofanverðri 17. öld og er eitt stórvirkasta rímnaskáld íslendinga. Einnig kemur hann nokkuð við þjóðsagnir. Sá Guð- mundur, sem Þórarinn Eldjárn hefur vakið til lífs í sögu sinni, er hvergi frjáls maður nema í draumum sínum og skáldskap. í veruleikanum liggur hann mátt- vana og bjargarlaus. En hann eignast vin — brennimerktan þjóf — er verður honum sem fætur hans nýir. Báða dreymir skáldið og þjófinn um að finna frelsið með hjálp þeirra vina sem í steinum búa og forn fræði vísa þeim loks veginn til Sjálfs Pálma Purkólíns. Eða er það ekki vegurinn? Það er ein þeirra áleitnu spurninga sem saga þessi vekur. í kynningu forlagsins segir m.a.: „Frásögnin leiftrar af fjöri og gáska sem lesendur Þórarins þekkja af fyrri verkum hans. En undir býr djúp alvara og birtist skýrast í myndum niðurlægingar- innar sem höfundur bregður upp frá horfinni tíð. í eymdinni lifir draumurinn um frelsið og tekur á sig margvíslegar myndir í hugum þeirra sem ekki una kyrrum kjör- um.“ Kyrr kjör er 153 bls. Oddi prent- aði, Auglýsingastofa Krístínar/- Erlingur Ingvarsson hannaði kápu. (KrétUtilkvnning.) Mest fyrir peningana! Frá því að hinn nýi framdrifni MAZDA 626 kom á markaðinn þá hefur hann hlotið geysilega lofsamlegar umsagnir og dóma um víða veröld, ekki síst fyrir gott rými og þægindi. Við skulum bera saman tölur um rými í nokkrum tegundum bíla: MAZDA 626 SAAB 900 VOLVO 240 BMW 520 I CRESSIDA 1—-O* ~ Breidd aftursætissetu cm 140 133 140 138 134 Lengd farþegarýmis 11 — 186 176 187 183 179 Höfuðrými fram í 2) — 94 93 95 94 92.5 Höfuðrými aftur í 2) — 87 90 88 88 87.5 Framhjóladrif Já Já Nei Nei Nei Mælt frá miðjum bensínpedala að neðstu brún aftursætisbaks 2> Mælt með 13° -15° bakhalla Um vandaða smíð og góða aksturseiginleika MAZDA 626 þarf ekki að efast. Hann er hannaður með nýjustu tölvutækni og framleiddur í fullkomnustu bílaverksmiðju í heiminum í dag. Hann bar meðal annars sigurorð af hinum nýja MERCEDES BENZ 190 í keppni vestur-þýska bílatímaritsins AUTO ZEITUNG um Evrópubikarinn og segir það ekki svo lítið. MAZDA 626 árgerð 1984 ernú kominn til landsins og er til sýnis í sýningarsal okkar. Og verðið? Það er ótrúlega hagstætt: Kr. 332.330 626 4 dyra Saloon Hvað kosta hinir? Kannaðu það. mazDa BlLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99 {rfiW/L / BRunnBóT -AFÖRYGGISÁSTÆEXJM —— BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055 essemm/octavo 05.01

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.