Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 Menntamálaráöherra breytir reglugerð um Ríkisútvarp: Aðeins greitt af einu sjónvarpstæki á hverju heimili BREYTT hefur verið reglum um greiðslur afnotagjalda af sjónvarps- tækjum í það horf að nú er heimilt að greiða aðeins af einu sjónvarps- tæki á hverju heimili. Menntamála- ráðherra undirritaði breytingu þess efnis nýlega, að því er segir í frétt frá ráðuneytinu. Er breytingin gerð á 24. grein reglugerðarinnar um ríkisútvarp frá 1972. Samkvæmt breytingunni verður það áfram aðalreglan að greiða skal afnotagjald af hverju einstöku sjónvarpstæki, svo sem verið hefur, en breytingin sem gerð hefur verið felur það í sér að nú er gerð undantekning frá aðal- reglunni. Undantekningin er gerð hvað varðar heimili, þannig að nú geta þeir sem eiga gömul svart/- hvít sjónvarpstæki, sem innsigluð hafa verið, tekið þau aftur í notk- un, án þess að greiða sérstakt af- notagjald af þeim. Því munu þeir aðilar sem nú greiða afnotagjald af tveimur tækjum aðeins fá kröfu vegna annars tækisins á næsta gjald- daga. Bók um dulræna hæfileika Bjargar S. Ólafsdóttur ÁRNESÚTGÁFAN hefur sent frá sér bók um dulræna hæfileika Bjargar S. Ólafsdóttur og miöilsstarf í 43 ár. En um hana hefur fátt eitt verið ritað áður. Bókin er samin og skrásett af Guðmundi Kristinssyni og er hún í sjö köflum. í fyrsta kaflanum, sem ber heitið „Sex landa sýn“, eru 20 frásagnir af skyggni Bjargar og dulheyrn í skemmtiferð með dönsku ferða- skrifstofunni Tjæreborg um sex Evr- ópulönd sumarið 1976. Þá er sagt frá uppvexti hennar á Þingeyri við Dýrafjörð og miðils- þjálfun hennar hjá Guðrúnu Guð- mundsdóttur frá Berjanesi. Lýst er tilhögun fundanna og gerð grein fyrir stjórnendum hennar að handan og sambandi hennar við þá. Guðtmmdur KrisHtmm Bjarþar- S. ÓtafadMtvr Þá er kafli sem heitir „Sýnir við dánarbeð". Þar eru sex frásagnir af sýnum Bjargar og dulheyrn og brottför af þessum heimi. Síðustu fjórir kaflarnir eru byggðir á 14 miðilsfundum, sem Björg hélt á Selfossi sumarið 1980 og 1981. Þar koma fram þrír þjóð- kunnir menn, löngu látnir, ásamt aðalstjórnanda hennar og veita svör við því, hver örlög mönnum eru búin við líkamsdauðann, hvað við taki og lýsa hinum nýju heim- kynnum. Fyrst er frásögn séra Kristins Daníelssonar, þá frásögn séra Jó- hanns Þorkelssonar og loks frá- sögn Einars Loftssonar. Er hún mest að vöxtum eða helmingur bókarinnar. Hann lýsir þar and- láti sínu og hvað við tók, segir frá för sinni um lægri sviðin og hærri sviðin og samræðum við fjölda fólks, sem hann hitti þar. Frásögn hans lýkur með skemmtisiglingu í heimi framliðinna. Bókin er 236 blaðsiður að stærð og var prentuð í Prentsmiðju Suð- urlands, en káputeikningu gerði Gísli Sigurðsson. (FrétUtilkynning.) 33 Meinatæknarnir sem útskrifuðust í haust: Fremri röð frá vinstri: Þuríður Steinarsdóttir, Oddný Ólafsdóttir, Kristjana Helgadóttir, Guðrún Yngvadóttir, deildarstjóri, Kolbeinn Sigurðsson, Helga Björg Stefánsdóttir, Sigríður Claessen og Sigríður Á. Þórarinsdóttir. Aftari röð: Valborg Þorleifsdóttir, Björg Friðmarsdóttir, Steinunn Matthíasdóttir, Guðrún Linda Þorvaldsdóttir, Ólöf Oddsdóttir, Soffía Björnsdóttir, Sigrún Þórisdóttir, Hadda Björk Gísladóttir, Aldís B. Arnardóttir, Drífa H. Kristjáns- dóttir og Ingibjörg Kjartansdóttir. Tækniskóli íslands: Átján meinatæknar brautskráðir ÁTJÁN meinatæknar voru brautskráðir frá Tækniskóla Is- lands i lok síðasta mánaðar. Er þetta í 16. sinn sem meinatæknar brautskrást frá skólanum, en alls hafa 266 lokið prófi í þessum fræð- um frá upphafi. Hópurinn nú var sá síðasti sem lýkur námi sam- kvæmt eldri námsskipan, en námstíminn hefur nú verið lengd- ur úr tveimur árum í þrjú ár. Grundarfjörður: Að slökkva eld á tunglinu GrundarfjörAur, 28. október. KLUKKAN að ganga átta sl. fimmtudag varð fréttaritara Mbl. litið út um glugga á svefnherbergi sínu og sýndist honum sem mikill eldur væri uppi í stefnu á sveita- bæi austanvert við fjörðinn. Brá hann kíki fyrir augu sér og kall- aði konu sína á vettvang og þótti þeira báðum sem ekki færi á milli mála, að eldur væri laus í hlöðu eða öðru byggðu bóli. Hringdi nú fréttaritari þar frammi í sveitinni og spurði um eldsvoða fram frá þar. Grein- argóð húsfreyja í sveitinni kom í símann og bað fréttaritara að bíða á meðan hún gengi í kring- um bæ sinn og gætti betur að. Kom hún í símann að vörmu spori og kvaðst engan eld sjá. Minntist þá fréttaritari þess að hafa lesið sögu af Bakkabræðr- um, þar sem máninn hafði eitthvað villt um fyrir þeim, og taldi líklegt að svo væri einnig í þessu tilviki. En eftir örfáar mínútur, tvær eða þrjár, heyrir fréttarit- ari að brunalúður bæjarins byrjar að gjalla og rétt í sömu andrá hringir síminn og er kon- an sem áður um getur komin í símann og tjáir fréttaritara að illu heilli hafi ekki verið um missýningu hans að ræða, því eldur sé laus á næsta bæ, þar sem búi sonur hennar og tengdadóttur, en þau séu ekki heima. Hafi bóndi hennar brugðið við ásamt manni á næsta bæ til bjargar bæjarhús- um, en áður hafi þeir gert brunaliðinu viðvart. Og slökkviliðið brá hart við og var komið á fulla ferð fram í sveit innan fárra augnablika. Góðu heilli fyrir fannst enginn eldur, og hélt hver til síns heima, en spurning dagsins er þessi: Vita menn þess dæmi úr öðrum sóknum, að slökkviliðið hafi verið kallað út á kyrrlátu haustkvöldi til þess að slökkva eld á mánanum? Menn hafa nú komist í heimsmetabók af minna tilefni. Emil. smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Ljóömæli Herdísar og Ólínu og Litla skinnið tíl sölu á Hagamel 42. Síml 15688. Teppasalan Laugavegi 5 Laus teppi og mottur í glæsilegu úrvali. Teppasalan, Laugavegi 5. -4 4 i Li 4. □ EDDA 598311017 — 1 Frl. ATKV. □ Helgatell 59831117 IV/V — 2 IOOF Rb.4 = 133111814 — ET — 9 II □ HAMAR 59831117 — H 4 V □ Gimll 59832117 — H 4 V IOOF 8 = 16511028% = 9.0 Reykvíkingar! Gerist félagar í ykkar félagi. Hringiö bara í síma 12371 eöa 18822. Reykvíkingafélaglö Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Almennur bibliulestur í kvöld kl. 20.30. Ræöurmaöur Einar J. Gíslason. Hilmar Foss Lögg. skjalaþýö. og dómtúlkur, Hafnarstræti 11, simi 14824. Víxlar og skulabréf í umboðssölu. Fyrirgreiösluskrifstofan, Vestur- götu 17, simi 16223. Þorleifur Guömundsson, heima 12469. ^ >* Sálarrannsóknarfélag íslands Félagsfundur veröur haldin aö Hótel Heklu, fimmtudaglnn 3. nóv. k. 8.30. Fundarefni: Breski miöillnn Eileen Roberts, heldur erindi, um hæfileika til skynjunar og gerir tilraunir á fundinum. Stjórnin. HEIMILISI0NADARSK0LINN Laufisvegur 2 — simi 17800 Jólaföndur Innritun stendur yflr á hln vin- sælu jólaföndurnámskeió Heimilisiönaöarskólans. önnur námskeiö fyrir áramót: Tóvinna hefst 8. nóv. Innritun og upplýs- ingar aö Laufásvegi 2, siml 17800. Heimatrúboöió Hverfisgötu 90 Muniö vakningarsamkomuna í kvöld og næstu kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Ósk Guömundsdóttir svarar í sima félagslns 92—3348. alla virka daga frá kl. 9—10 og 11.30—12.00. Sálarrannsóknarfélag Suöurnesja Ódýrar músikkassettur og hljómplötur íslenskar og erlendar. Tökum vel meö farnar notaöar hljómplötur og kassettur i skipt- um. Radíóverslunin, Bergþórugötu 2, sími 23889. KFUM og KFUK Amtmannsstíg 2B í kvötd kl. 20.30, er samkoma meö Haraldi Ölafssyni, krlstnl- boöa. Fundur Ad KFUK fellur Inn i samkomuna. Allir velkomnlr. Heildsöluútsalan selur ódýrar sængurgjafir o.fl. Freyjugötu 9. Opiö frá kl. 13—18 handmenntaskólinn 91 - 2 76 44 I FÁIO KYWIIN6ARRIT ’tMMMB SEWT HEIMl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.