Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 41 félk í fréttum Mireille Mathieu vildi ekki afklæðast í Dallas + „Non, non,“ sagöi franska söng- konan, Mireille Mathieu eöa „nei, nei", þegar henni var boöiö að fara meö smáhlutverk í „Dallas“-þáttun- um. Þaö átti nefnilega aö fylgja meö í kaupunum, aö hún yröi aö ber- hátta sig einu sinni eöa oftar. Patrick Duffy eöa Bobby í Dallas söng inn á stóra plötu meö Mireille Mathieu í París í fyrra og gat þá komið því til leiðar, aö henni var boðiö hlutverk í Dallas-þáttunum. Þá var hins vegar ekkert talaö um neinar nektarsenur. „Viö verðum aö fylgjast meö tím- anum,“ segir Robert Crutchfield, framleiöandi Dallas-þáttanna. „Dollars“-þættirnir hafa stööugt veriö aö sækja sig á okkar kostnaö og þar er nóg af djörfum atriöum í hverjum þætti. Viö höfum kannaö þetta meöal áhorfenda og þaö er einmitt þetta, sem þeir vilja." í Dallas átti Mireille aö leika söngkonu, sem Bobby yröi hrifinn af, og þau voru ánægö meö þaö, en líka jafn sammála um aö nektarsen- an kæmi ekki til greina. Duffy segist aldrei mundu hafa boöiö Mireille hlutverkiö ef hann heföi vitaö hvaö til stóö. Þaö er ekki bara Duffy eöa „Bobby", sem er óánægöur. Charl- ene Tilton eöa „Lucy“ segist vera oröin hundleiö á sínu hlutverki. „Ég hef andstyggö á „Lucy”. mér finnst hún óþolandi og allt aö því klúr sem persóna.“ Patrick Duffy og Mireille Mathieu eru góöir vinir, jafnvel pínulítiö meira en það aö sumra sögn. Sonur þeirra færði þau saman aftur + Bandaríski kvikmyndaleikar- inn Sylvester Stallone hefur marga hildi háö og unniö glæsi- lega sigra á hvíta tjaldinu, en mestu baráttuna heyr hann innan veggja heimilisins. Hann og kona hans, Sasha, eiga fjögurra ára gamlan son, Sage, sem er ein- hverfur, lokaöur inni í sjálfum sér, talar helst ekkert og vill ekki horfast í augu viö fólk. Fyrst framan af héldu þau, að Sage væri bara óvenjulega rólegt barn, en smám saman rann þaö upp fyrir þeim, að hann var ekki eins og önnur börn. Þau fóru með hann til margra lækna, og aö lok- um var þeim ráölagt aö setja hann á hæli. Þá ákváöu þau aö taka málin i eigin hendur. Þau leika sér viö hann hverja lausa stund, tala við hann og reyna aö komast inn fyrir múrinn, sem umlykur vitund litla drengsins þeirra. Sage hefur líka tekiö miklum framförum og er nú farinn aö sýna umhverfinu meiri áhuga en hann áöur geröi. Erfiöleikarnir hafa bundiö þau Sylvester og Sasha enn traustari böndum en fyrr, en áöur haföi litiö út fyrir aö hjónabandiö væri aö fara í vaskinn. Það var eftir að Sylvester varö frægur fyrir fyrstu „Rocky“-myndina, en frægöin steig honum svo til höfuös, aö hann yfirgaf Sasha til aö geta lifaö og leikiö sér eins og hann vildi. „Mér fannst allur heimurinn eitt veisluborö og ætlaöi svo sannar- lega að gæða mér á réttunum. Nú veit ég þó betur. Viö þurfum öll á ást og umhyggju aö halda og ég veit nú hvaö ást er. Hún er tryggö- in. Fólk kemur og fer en tryggöin bregst aldrei," segir Sylvester. Þaö eru ekki mörg ár síöan Sylvester og Sasha hiröust í her- bergiskytru í New York og gátu ekki komiö sjónvarpinu fyrir ann- ars staðar en inni á baði. Þá náöi Sylvester ekki upp í nef sér fyrir hneykslun þegar hann heyröi um fræga leikara, sem hlupu frá húsi og heimili til aö leika sér meö öör- um, en „svo henti þaö mig líka“, segir hann fullur iörunar. Sage litli færöi þau saman á ný og Sylvester notar hvert tækifæri sem gefst til aö vinna aö hags- munamálum barna, sem eiga viö sömu erfiöleika aö stríöa og hann. SIEMENS Einvala liö: Siemens- heimilistækin Úrval v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem hvert tæki leggur þér liö við heimilisstörfin. Öll tæki á heimiliö frá sama aðila er trygging þín fyrir góðri þjónustu og samræmdu útliti. SMITH & NORLAND HF. NÓATÚNI 4, SÍMi 28300. áf/% KRISTJÁn f A\WSIGGGIRSSOn HF. ^ J LAUGAVEGI 13. REYKJAVIK. SIMI 25870 Opið á fimmtudögum til kl. 21, a föstudögum til kl. 19 og til hádegis á laugardögum. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.