Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 29 MorgunbUAið/RAX d brim- aðhafst - : Viss- sagð- KEE „Boðaföllin gengu yfir skip- brotsmennina á skerinu“ * — segir Friðgeir Olgeirsson, stýrimaður á þyrlunni RAN „BOÐAFÖLLIN gengu yfir skip- brotsmennina tvo á Lónssker þeg- ar við koraum yfir skerið klukkan 16.10. Það er Ijóst að við komum á elleftu stundu, því þeir voru þjak- aðir af bleytu og kulda. Við send- um körfu niður til þeirra og hífð- um þá upp. Björgunarbátinn hafði rekið upp í eyjuna skammt frá og í honum var þriðji skipbrotsmaður- inn. Við lentum skammt frá bátn- um og ég fór við annan mann til hans. Hann var þjakaður af kulda og gat ekki gengið óstuddur. Við studdum hann í þyrluna og hófum okkur til lofts,“ sagði Friðgeir Olgeirsson, stýrimaður á RAN, þyrlu Landhelgisgæzlunnar í sam- tali við Mbl. „Við hófum síðan leit á svæðinu. Töldum ekki aðkallandi að fara með þá strax í sjúkrahús — vild- um halda áfram leit í von um að finna fleiri skipverja. Þyrla varn- arliðsins kom um þetta leyti á vettvang, en henni seinkaði vegna bilunar í tækjum. Þá sáum við hvar olíubrák kom upp á yfirborðið og hálfuppblás- Áhöfn TF Ránar við komuna til Reykjavfkur í gærkvöldi. Til vinstri eru stýrimennirnir Friðgeir Olgeirsson og Kristján Jónsson og næstur þeim er Páll Halldórsson, flugstjóri og Benóný Ásgrímsson, flugmaður, lengst til hægri. inn björgunarbátur — Haförninn hafði greinilega farið þar niður. Björgunarbátinn rak beint upp í eyjuna skammt frá hinum fyrri. Einn varnarliðsmanna seig niður til þess að kanna hvort einhver væri í bátnum, en svo reyndist ekki vera. Þá komum við auga á tvo björgunarhringi uppi í fjöru skammt frá björgunarbátunum — en því miður mannlausa. Skip- brotsmenn kváðust hafa séð fé- laga sína í björgunarhringjum skömmu eftir að báturinn sökk, en ekkert séð til þriðja mannsins. Allt bendir til þess að um sömu björgunarhringi hafi verið að ræða. Sívalningur flaut upp á sama stað, líklega hefur það verið matarpakki sem fylgir gúmmí- björgunarbátum. Við fórum með skipbrotsmenn til til Stykkishólms eftir um klukkustundarleit á svæðinu — lentum klukkan 17.20. Skyggni var gott til ieitar, en hvasst — um 8 vindstig af vestan og mikill sjó- gangur," sagði Friðgeir Olgeirs- son, stýrimaðurá RÁN. „Þessi ferð gekk vel, þótt veðrið væri erfitt, en við áttum ekki mik- ið eldsneyti eftir, þegar við kom- um til baka,“ sagði Páll Halldórs- son, flugstjóri á TF RÁN, m.a. í samtali við Mbl. í gær. „Við héld- um leit áfram eins lengi og við þorðum eldsneytisins vegna." þeir bíða í um það bil tvo tíma þangað til þyrlan kom og náði þeim upp.“ Páll Guðmundsson sagði að sér hefði þótt verst að þurfa að bíða fyrir utan brimgarðinn og geta ekkert aðhafst. „Við sáum ekkert til Hafarnarins eftir að hann lagði af stað heim, þá áttum við eftir tvö höl,“ sagði hann. „Við á Gretti vissum ekkert fyrr en Þórsnesið kallaði og sagðist sjá blys og gúmmíbát. Þá var farið að kalla í Haförninn og þegar ekk- ert svar kom þóttumst við vita hvað hefði gerst. Við vorum svo að lóna þarna fyrir utan þar til mönn- unum hafði verið bjárgað og eins á eftir til að vita hvört við finndum eitthvað, en það var alveg árang- urslaust. Brak úr bátnum fór að koma mjög fljótlega og eftir að bú- ið var að bjarga mönnunum þrem- ur skaut allt í einu upp úr sjónum hinum gúmmíbátnum af Hafernin- um. Hann rak strax upp í Lónið, þar sem fyrri bátinn hafði rekið með mennina. Þá fór að sjást meira brak, svo maður gat ekki haldið í vonina lengur." Þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF Rán, leitar við eyna Lón. MorgnnblaAiA/RAX. Þyrlur sendar því bátar gátu enga aðstoð yeitt Rætt við Hannes Hafstein, framkvæmdastjóra Slysavarnafélags íslands „Slysavarnafélagi íslands barst til- kynning klukkan 14.40 um að Haf- SH 122, sem er 88 tonna orninn !S11 122, sem er stálbátur frá Stykkishólmi, hefði far- ist við Bjarneyjar þegar báturinn var á leið til heimahafnar úr skeljaróðri og aðstoð þyrfti eins og skot, því að áhafnir báta, sem væru á heimleið og hefðu komið á slysstað, sæju tvo menn á skeri og gúmmíbát með ein- um manni upp í Bjarney," sagði Hannes Hafstein, framkvæmdastjóri Slysavarnafélags fslands, í samtali við Mbl. „Á þessum slóðum var vestanátt, 7 til 8 vindstig, og foráttubrim við sker og eyjar. Bátar gátu enga að- stoð veitt. Ekki var hægt að láta gúmmíbáta reka til þeirra né held- ur að skjóta til þeirra línu. Við höfðum strax samband við Land- helgisgæsluna um að senda þyrlu og fiýta því eins og hægt væri og klukkan 14.55 leituðum við til varn- arliðsins um að senda þyrlu. Þá fór vélbáturinn Sigurður Sveinsson frá Hólminum með lækni og slysa- varnasveitina Berserki. Áhafnir báta á slysstað leituðu að skipverjum og flóabáturinn Baldur, sem hætti við fyrirhugaða för til Flateyjar. Klukkan 16.10 var Rán yfir slysstað og klukkan 16.20 tilkynnti áhöfn þyrlunnar að þrem- ur skipverjum hefði verið bjargað en þriggja væri saknað. Áhöfn Ránar og þyrla varnarliðsins hófu skipulega leit á svæðinu en án árangurs. Klukkan 17.10 fór TF Rán til Stykkishólms með skip- brotsmennina og jafnframt var til- kynnt að annar gúmmíbáturinn, sem átti að vera um borð, væri fundinn en mannlaus. Klukkan 18.15 óskaði þyrla varnarliðsins að yfirgefa svæðið, en þá fór veður versnandi. Rán lenti í Reykjavík um klukkan 19 og þyrla varnarliðs- ins lenti í Keflavík um 19.20. Ein klukkustund og 40 mínútur liðu frá því að kallið barst til Slysavarnafélags íslands þar til skipbrotsmönnum hafði verið bjargað," sagði Hannes Hafstein.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.