Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
17
Nýja strengjasveitin
Tónlist
Jón Þórarinsson
Nýja strengjasveitin er ein af
þeim hljómsveitum sem nú á
seinni árum hafa staðið fyrir
hljómleikahaldi hér á landi. Það
er í raun og veru eðlilegt, að með
vaxandi tónmennt í landinu
spretti upp hópar, sem leiti eftir
átökum við önnur viðfangsefni, en
þau sem eru til meðferðar hjá
þeim tónlistarstofnunum sem
fyrir eru. Nýja strengjasveitin,
sem og aðrar sambærilegar
hljómsveitir, er bæði mönnuð
þeim tónlistarmönnum er starfa í
Sinfóníuhljómsveit Islands og
fólki sem ekki vill taka þar sæti,
þó mjög sé þar skörðótt og
skakkstætt í skjaldarskipan og fá
verði erlenda tónlistarmenn í
mörg og nauðsynleg rúm. Hvað
varðar strengjaleikara, vantar þá
mjög tilfinnanlega í Sinfóníu-
hljómsveit íslands og meðan þar
er ekki skipað í hvert rúm er tæp-
leg rétt að ríkið leggi til með fleiri
hljómsveitum.
Vilji menn ekki þau störf, sem í
boði eru, er það einfaldlega þeirra
einkamál og ríkinu óviðkomandi.
Þeir hljómsveitahópar, sem í
nokkur ár hafa staðið fyrir tón-
leikahaldi, hafa unnið verk sín af
þörf og reynt að samhæfa leikþörf
sína hugsanlegri hlustunarþörf al-
mennings. Þannig er eðlilegt að
sjálfboðaliðavinna leiði smám
saman til skipulagðrar starfsemi
og frá sjálfboðaliðavinnu til laun-
aðra starfa. í dag eru starfandi
áhugamannahópar, og að verulegu
leyti eru þeir samansettir af tón-
listarmönnum, sem þegar eru at-
vinnumenn í sinni grein, oftast er
hnðtminni hluti hópsins sem kosið
iMfur að vera frjáls, þrátt fyrir að
þörf sé fyrir þá í atvinnumanna-
sæti. Ekki er vitað til þess að Nýja
strengjasveitin hafi staðið fyrir
kröfugerð um stóra styrki, en í
þeim hópi hefur þó ýmislegt verið
vel unnið. Síðustu tónleikar sveit-
arinnar voru mjög góðir, en þar
var flutt tónlist samin á 18. öld-
inni, eftir Haydn, Nardini og Carl
Philipp Emanuel Bach. Tónleik-
arnir hófust á fyrstu sinfóniunni
eftir Haydn. Verkið er samið um
1759, er Haydn var í starfi hjá
Morzin greifa. Á fimm ára tíma-
Námskeið fyrir
foreldra þroska-
heftra barna
Dr. CLIFF Cunningham frá Man-
chester í Englandi mun halda fyrir-
lestra fyrir foreldra þroskaheftra
barna í Reykjavík í næstu viku.
Verða fyrirlestrarnir haldnir á veg-
um JC-hreyingarinnar í Reykjavík,
en Dr. Cunningham hefur undanfar-
in ár fengizt við kennslu þroska-
heftra barna og rannsóknir á
þroskaferli þeirra.
Fyrir tæplega ári sá JC-hreyf-
ingin í Reykjavík um frumsýningu
kvikmyndarinnar ET hér á landi
og hefur ágóðinn af sýningum
myndarinnar verið notaður til
þess að kosta ferð og fyrirlestra
Dr. Cunninghams hér á landi. Hér
mun hann halda námskeið fyrir
fólk, sem starfar með þroskaheft-
um börnum, einnig opna fyrir-
lestra fyrir foreldra þroskaheftra
barna.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í
Borgartúni 6, dagana 1. til 3. nóv-
ember og hefjast öll kvöldin
klukkan 20.00. Þó fyrirlestrarnir
séu einkum ætlaðir foreldrum
þroskaheftra barna eru allir
áhugamenn velkomnir, segir með-
al annars í frétt frá JC-hreyfing-
unni í Reykjavík.
bili samdi Haydn þrjátíu sinfóní-
ur og er sú sjöunda fyrsta sinfóní-
an er hann semur í þjónustu Est-
erházy-fjölskyldunnar. Margar af
fyrstu sinfóníum Haydns eru
varla meira en serenöður eða di-
vertimentó og með því að bera þær
saman við síðustu sinfóníur hans,
má greina sérstæða þróun sinfóní-
unnar, er nær hámarki hjá Mozart
og Beethoven. Annað verkið í tón-
leikunum var fiðiukonsert eftir
Nardini, er var nemandi Tartini
og samdi áferðarfalleg verk, mest
fyrir fiðlu. Einleikari var Laufey
Sigurðardóttir. Verkið er ekki
viðamikið og var leikur Laufeyjar
samkvæmt því, látlaus og hvergi
yfirdrifinn. Þriðja verkið var
þriðja sinfónían eftir CPE Bach,
en hann samdi nítján sinfóníur og
fimmtíu píanókonserta, svo vel má
taka til hendi og reyndar þörf á,
að kynna þessa gömlu meistara.
Tónleikunum lauk svo með sin-
fóníu nr. 51 eftir Haydn.
Skemmtilegu verki sem ekki er
óeðlilegt að kalla eins konar
hljóðfærakynningu. Nýja
strengjasveitin fékk til liðs við sig
fjóra blásara úr Sinfóníuhljóm-
sveit íslands við uppfærsluna á
verkum Haydns, en sinfónía Carls
Phillips var fyrir strengi. Leikur
hljómsveitarinnar var mjög góður,
enda vel mönnuð og auðheyrt að
konsertmeistarinn Michael Shelt-
on er býsna drjúgur stjórnandi.
Ártúnsholt og
Selás (suður)
Skráning þeirra barna og unglinga á grunnskóla-
aldri sem áformað er að flytji í hverfin á árinu 1984
eöa fyrr fer fram í fræðsluskrifstofu borgarinnar
þessa viku og lýkur föstudaginn 4. nóvember nk.
Vegna skiþulagningar skólasóknar er mikilvægt
aö foreldrar eöa forráöamenn barna og unglinga
er flytja munu í hin nýju byggðahverfi geri viðvart
til:
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur,
Tjarnargötu 12, sími 28544.
nýþjónusta /
Umboðsmaður
í Chicago
lceland Steamship Company Ltd.
c/o Lyons Inc.
1 st Joliet Road
McCook, III. 60525
Tel.: (312) 442-6410
í kjölfar góörar reynslu af
nýjum þjónustuhöfnum víöa í
Evrópu hefur Eimskip nú
opnaö fyrstu þjónustuhöfnina í
Bandaríkjunum. Hún er staðsett í
hinni miklu flutningaborg Chicago,
þar sem daglega koma og fara vörur
fráog til landa um allan heim.
Um leið höfum viö bætt þjónustuna í
Ameríkusiglingum enn frekar. Nú förum við
reglulega til New York, Portsmouth og
Halifax og aukum hagræðinguna enn frekar
með greiðara vörustreymi innan úr landi til sjávar.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100