Morgunblaðið - 01.11.1983, Blaðsíða 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
Erfiður vetur
fyrir Pólveria
Varsjá, 31. október. AP.
Ernahagssérfrædingar pólsku
stjórnarinnar spá erfiðum vetri fyrir
pólska alþýðu. Kjötframleiðslan í
landinu hefur minnkað, dregið hefur
úr aukningu iðnframleiðslunnar og
verðbólgan er yfir 15%.
Samkvæmt efnahagsáætlunum
fyrir næsta ár, sem greint hefur
Olíuborunarskipið:
Leitað án
árangurs
llong Kong, 31. oklóber. AP.
MIKIL leit að bandaríska olíubor-
unarskipinu Glomar Java Sea, sem
hvarf fyrir fimm dögum á Kínahafi
meö 81 mann innanborðs, hefur
engan árangur borið enn.
Bandarísk og kínversk skip
hafa tekið þátt í leitinni að skip-
inu en áhöfn þess var að mestu
skipuð Bandarikjamönnum og
Kínverjum. Á sunnudag komu
flugmenn auga á björgunarbát,
sem var talinn geta verið af skip-
inu, en hans hefur ekki orðið vart
aftur.
verið frá í ríkisfjölmiðlunum, mun
iðnframleiðslan vaxa um
4,5—5,5%, sem er nokkru minna
en á síðasta ári þegar hún jókst
um 6%. Hins vegar er gert ráð
fyrir, að vöruskiptajöfnuðurinn
við Vesturlönd verði Pólverjum
hagstæður um tvo milljarða doll-
ara á næsta ári eða um 800 milljón
dollurum hagstæðari en í ár.
í skýrslum efnahagssérfræð-
inganna kemur fram, að kjötfram-
leiðsla í Póllandi er enn á niður-
leið og á að bregðast við því með
því að minnka kjötútflutning og
það kjötmagn, sem selt er „utan
við markaðinn". Þá er átt við sér-
verslanirnar, sem ætlaðar eru öðr-
um en almenningi, flokksbrodd-
unum og útlendingum. Það var
ekki síst óánægja með þessi for-
réttindi hinna útvöldu, sem olli
þjóðfélagsólgunni, undanfara að
stofnun Samstöðu.
Skýrsla efnahagssérfræð-
inganna, se’.i er óvenju hreinskil-
in miðað við það, sem gerist í
Austur-Evrópu, virðist eiga að
búa Pólverja undir harðan vetur
og hugsanlegar verðhækkanir í
janúar um allt að 20%.
Símamynd AP.
Eftirlíkingar flutningabfla kjarnorkuflauga á Westminsterbrúnni í Lundúnum í gær, og Big Ben í baksýn. Liður í
mótmælaaðgerðum friðarsinna.
Friðarkonur jusu
málningu á flugbraut
Lundúnum, Monkvu, Haag og víðar,
30. og 31. október. AP.
TÍU KONUR beittu snemma í
gærmorgun vírklippum til að komast
Góður
koddi
góóursvefn -góöheilsa
Góöur svefn er háöur réttri hvíldarstööu eins og allir vita.
Of fáir gera sér þó grein fyrir mikilvægi þess að höfuðið hvíli þannig aö
hálsliðir, taugar og vöðvar fái nauðsynlegan slaka og hvíld.
Og enginn veit með vissu hve oft má rekja höfuðverk, þreytu og vanlíðan til
þessarar vanrækslu. Úr henni er aðeins hægt að bæta með einu móti:
fá sér góðan kodda.
LATTOKISS koddinn er hannaður í framhaldi af vinnu lækna og sérfræðinga
við Lattoflexrúmbotna, dýnur og sængur. Hann er einn mikilvægasti
hluti fullkominnar hvílu - heilnæmrar hvíldar í svefni.
LATTOKISS koddinn er þrískipturog veitir því góðan stuðning. Miðhlutinn er
stillanlegur. Fyllingin er sérstök blanda af dún og trefjaefni.
Breiddin tryggir að koddinn vöðlast ekki eða færist úr stað.
LATTOKISS koddann má auðveldlega þvo.
Láttu þér annt um heilsu og líðan — hvíldu á LATTOKISS kodda.
l'Jsi'wf ')
W
Siícclaíru
i
Síðumúla 34. Sími 84161
inn á bandaríska herflugvöllinn við
Greenham Common. Þustu þær inn
á flugbraut og helltu „miklu magni“
af málningu á hana, eins og talsmaö-
ur bandaríska flughersins sagði.
Konurnar sögðu að flugvélar
þær sem sagðar eru á leiðinni til
Greenham Common með fyrstu
meðaldrægu kjarnorkueidflaug-
arnar sem setja á niður í Bret-
landi, gætu ekki lent vegna þess að
eldfimt efni væri í málningunni og
það myndi kveikna í þegar vélarn-
ar lentu. Þetta reyndust ósann-
indi. Miklar aðgerðir voru við
Greenham Common um helgina,
nokkur þúsund konur freistuðu
þess að komast inn í flugstöðina
til að vinna spjöll og lögreglu- og
hermenn höfðu í nógu að snúast
að koma í veg fyrir það. Voru á
annað hundrað manns handtekin.
Aðgerðir voru einnig víða í
Vestur-Evrópu og alls tóku um
70.000 manns þátt í friðargöngum
í Hollandi og Danmörku og nokk-
ur þúsund manns tóku þátt í sams
konar göngum í sjö borgum í
Portúgal, en allt fór friðsamlega
fram á þeim stöðum.
Sovéska fréttastofan TASS
ræddi mikið um yfirvofandi kjarn-
orkuvígbúnað Vesturveldanna um
helgina. Voru snarpar árásir á
Ronald Reagan, forseta Banda-
ríkjanna, hann sagður ósanninda-
maður og fleira í þeim dúr. Juri
Andropov, forseti Sovétríkjanna
og aðalritari flokksins, sagði í síð-
ustu viku að Sovétmenn væru
reiðubúnir að fækka SS-20 flaug-
um sínum í Evrópu í 140 gegn því
að NATO-löndin hættu við allar
572 flaugar sínar. Hans Dietrich
Genscher, utanríkisráðherra
Vestur-Þýskalands, sagði í gær að
tilboðið væri „spor í rétta átt“, en
betur mætti ef duga skyldi.
Sr. Jessy Jackson
f forsetaframboð
New York, 31. október. AP.
SÉRA JESSE Jackson tilkynnti í
gær, að hann myndi sækjast eftir
útnefningu sem forsetaframbjóð-
andi Demókrataflokksins fyrir for-
setakosningarnar í Bandaríkjun-
um 1984 og hann myndi freista
þess að fá kvenmann með sér til
varaforsetaembættisins.
Jackson, sem er mannrétt-
indaleiðtogi, sagði i samtali við
CBS-sjónvarpsstöðina að hann
stefndi að því að verða fyrsti
hörundsdökki forsetaframbjóð-
andinn sem annar tveggja
stjórnmálaflokka Bandaríkj-
anna teflir fram. Ýmsir af helstu
stjórnmálaleiðtogum blökku-
manna í Bandaríkjunum hafa
lýst því yfir að þeir muni ekki
styðja Jackson, en hann setur
það ekki fyrir sig. „Ég tel mig
höfða til unga fólksins og vegna
þess að valkostirnir hafa oftast
ekki höfðað til ungu kjósend-
anna, hafa þeir látið vera að
kjósa svo milljónum skiptir. Nú
verður breyting á því,“ sagði
Jackson.
Kveðjukaffi
Hlýleg salarkynni fyrir erfisdrykkju
og ætlarmót.
Upplýsingar og pantanir í eíma 11633.
/ Kuoóttvri
Caté Rosanbarg.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
1%.