Morgunblaðið - 01.11.1983, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
Akranes:
í kvöldverðarboði borgarstjórans í Reykjavfk: Aristides Maria Pereira, forseti Grænhöfðaeyja, Davíð Oddsson
borgarstjóri, og forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir. MorgunblaJið/ Friðþjófur
Forseti Grænhöfðaeyja
fer til Akureyrar í dag
í GÆRKVELDI sneddi forseti
Grænhöfðaeyja, Aristides Maria
Pereira, kvöldverð í boði borgar-
stjórans í Reykjavík á Kjarvals-
stöðum, en í gær komust hinir er-
lendu gestir ekki til Akureyrar
eins og áætlað hafði verið. Þess í
stað fóru gestirnir í Fiskeldistöð
ríkisins í Kollafirði, Þingvellir
voru heimsóttir og farið var til
Hveragerðis.
í dag er hins vegar áformað að
fara til Akureyrar og verður þar
m.a. sjósett skip sem smíðað hef-
ur verið fyrir Capo Verde í
Slippstöðinni á Akureyri.
Forseti Grænhöfðaeyja kom
hingað til lands ásamt fylgdar-
liði á sunnudag og sat þá kvöld-
verðarboð forseta Islands á
Bessastöðum. I kvöld heldur
Pereira forseti kvöldverðarboð,
en hinir erlendu gestir halda
utan í fyrramálið.
Með forsetanum, Aristides
Maria Pereira og eiginkonu
hans, frú Carlina Pereira, eru
m.a. Silvino da Luz utanríkis-
ráðherra, Miguel Lima sjávarút-
vegsráðherra, H. Bettencourt
Santos sendiherra, Timoteo Ta-
vares höfuðsmaður, aðstoðar-
maður forsetans, og Daniel
Sousa protokollfulltrúi.
Um 125 manns
sagt upp störfum
TVÖ FYRIRTÆKI á Akranesi,
hraðfrystihús Hafarnar hf. og Þórð-
ar Oskarssonar, hafa sagt upp starfs-
mönnum sínum frá og með 1. nóv-
ember og hefur félagsmálaráðu-
neytinu verið tilkynnt um uppsagnir
annars fyrirtækisins.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mbl. fékk hjá óskari Halldórssyni
í félagsmálaráðuneytinu, munu
um 80 manns missa atvinnuna í
öðru fyrirtækinu, en í hinu er um
40—50 manns að ræða. Ástæða
uppsagnanna er sú, að skipið sem
aflar einkum hráefnis til fyrir-
tækjanna, Óskar Magnússon AK-
177, verður að líkindum boðið upp
að kröfu Fiskveiðasjóðs á næst-
Ráðherra mælir fyr-
ir stjórnarfrumvarpi
— og leggur til að það verði fellt
ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem
ráðherra mælir fyrir frumvarpi og
leggur jafnframt til að það verði
fellt. Þessi varð þó raunin í efri deild
Alþingis í gær.
Sverri Hermannssyni, orku-
ráðherra, bar, samkvæmt stjórn-
arskrárákvæðum, að leggja fram á
Alþingi frumvarp til staðfestingar
á bráðabirgðalögum, sem Hjör-
leifur Guttormsson forveri hans
setti í apríl sl., þess efnis, að
„breytingar á verðákvæðum í
gjaldskrám orkufyrirtækja skuli
háðar samþykki ráðherra orku-
mála“.
Það er ekki stefna núverandi
ríkisstjórnar að hafa þennan hátt
á, sagði ráðherra, og „þess vegna
er lagt til að frumvarpið verði
fellt".
Sjá nánar á þingsíðu Mbl. bls. 47
í dag.
*
Utgerðarmenn loðnuskipa:
Hefja ekki veiðar fyrr en
verð hefur verið áKveðið
Breytingar á kvótaskiptingu samþykktar
Líkur á 375.000 lesta afla fram í marz
FIINDUR eigenda loðnuskipa sam-
þykkti á fundi sínum í gær að breyta
fyrri aflakvótaskiptingu á vertíðinni,
sem nú fer í hönd. Ennfremur sam-
þykkti fundurinn að ekki skyldi hefja
veiðar fyrr en loðnuverð hefur verið
ákveðið. Endanleg ákvörðun um kvóta-
skiptingu, aflamagn og upphaf veiða
verður væntanlega tekin á morgun á
fundi íslendinga og Norðmanna I Osló,
en vinnunefnd Alþjóðahafrannsókna-
ráðsins hefur lagt til að veiddar verði
375.000 lestir frá upphafi vertíðar og
fram í marz. Sjávarútvegsráðherra
leggur áherzlu á, að sá afli komi allur í
hlut íslendinga.
Talsverður ágreiningur kom upp
meðal eigenda loðnuskipanna á
fundinum í gær. Á síðustu tveimur
loðnuvertíðum var kvótaskiptingu
þanmg háttað, að helmingi væntan-
legs afla var skipt jafnt milli allra
skipa, en hinum helmingnum skipt
milli skipa eftir burðargetu. Stjórn
LÍÚ lagði til að kvótaskiptingin yrði
óbreytt, en einnig var lagt til að öll-'~
um aflanum skyldi skipt jafnt milli
allra skipanna. Hvorug sú tillaga var
samþykkt, heldur var samþykkt, að
tveir þriðju hlutar aflans skyldu
skiptast jafnt á miili allra skipanna
en einn þriðji skiptast eftir burðar-
getu. Var þessi tillaga samþykkt
með 34 atkvæðum gegn 15. Hefur
þetta I för með sér tilfærslu á afla
frá stærri skipum til þeirra minni.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þann væri ekki til-
búinn til þess að taka ákvörðun um
kvótaskiptinguna nú þegar, en end-
anleg ákvörðun er í hans höndum.
Sagðist hann þurfa að kynna sér
þessi mál frekar.
Verðlagsráð sjávarútvegsins kom
saman til fundar í gær, en þar náðist
ekki samkomulag um loðnuverðið.
Var þvf vísað til yfirnefndar, sem
kemur saman til fundar í dag.
Síldar- og loðnuvinnslunefnd
Alþjóðahafrannsóknaráðsins hefur
nú komizt að þeirri niðurstöðu, að
þær rannsóknir, sem gerðar hafa
verið á loðnustofninum í október,
hafi verið gerðar við þær aðstæður,
að þær séu marktækar. Samkvæmt
þeim var hrygningastofninn nú tal-
inn um 970.000 lestir. Miðað við eðli-
leg afföll og að 400.000 lestir verði
eftir til hrygningar telur vinnu-
nefndin að veiða megi 375.000 lestir.
Að sögn Halldórs Ásgrímssonar,
sjávarútvegsráðherra, verður lögð á
það áherzla, að allur þessi afli komi f
hlut íslendinga. Í samningum milli
íslendinga og Norðmanna um veiðar
úr þessum loðnustofni er kveðið á
um að í hlut íslendinga komi 85% en
Norðmanna 15%. Á síðustu vertíð
fóru Norðmenn um 170.000 lestir
fram úr aflahlut sínum. Samkvæmt
því eiga þeir rétt á að fá um 30.000
lestir af 375.000, ef það magn verður
ákveðið. Hins vegar hefur sá háttur
verið hafður á, að þessir hlutir hafa
verið jafnaðir á næstu vertíð. Það
eru því allar Ifkur á því, að allur
þessi afli komi f hlut íslendinga enda
líkur á því, að loðnan haldi sig innan
íslenzku landhelginnar meðan á
veiðitímabilinu stendur.
Smyglaði
100 tölvu-
spilum
TOLLGÆZLAN hefur upplýst smygl á
tölvuspilum. Sjómaður hefur viður-
kennt að hafa smyglað um 100 leik-
tölvuspilum f nokkrum ferðum til
landsins og hefur verið lagt hald á um
80 spil. Sjómaðurinn hafði fengið versl-
unarmann til þess að dreifa tölvuspil-
unum og voru þau á boðstólum f verzl-
un í Reykjavík og hafði hluti spilanna
verið seldur.
Um er að ræða þrenns konar teg-
undir spila. Lítil leikspil, sem leggja
þá þraut fyrir viðkomandi að koma
apa í búr, svo dæmi sé tekið. Spilin
eru einföld og tvöföld og svo borð-
tölvuspil, en þau voru sjö talsins.
Einföldu leiktölvuspilin voru verð-
lögð á 1670 krónur og tvöföldu á 1900
krónur. Mismunur innkaupsverðs og
ætlaðs söluverðs var 1100 krónur á
einföldu tölvuspilunum og 1200
krónur á þeim tvöföldu. Þannig að
hagnaður hefði orðið yfir 120 þúsund
krónur, ef allt hefði farið eins og
stefnt var að.
Það þarf vart að taka fram, að það
er lögbrot að taka að sér dreifingu og
sölu á smyglaðri vöru.
Ruddaleg árás
á 11 ára stúlku
MAÐHR réðst á II ára gamla stúlku
ofarlega í Seljahverfi á laugardags-
kvöldið, skellti henni í jörðina og
reyndi að hafa samræði við hana.
Stúlkan náði að slíta sig lausa og kom-
ast heim til sín — korteri eftir að hún
lagði af stað að heiman. Arásarmaður-
inn mun ekki hafa náð að koma fram
vilja sínum.
Stúlkan var flutt í slysadeild
Borgarspítalans, en fékk að fara
heim eftir skoðun. Stúlkan gat gefið
nokkra lýsingu á árásarmanninum,
sem talinn er vera um eða yfir tví-
tugt. Þrátt fyrir ákafa leit tókst
ekki að hafa upp á honum. Rann-
sóknarlögregla ríkisins vinnur að
rannsókn málsins. Þeir sem kunna
að hafa orðið varir grunsamlegra
mannaferða á laugardagskvöldið
eru vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við RLR.
Peningaskápsstuldur í Víkurskálanum um helgina:
Kaupfélagsstjórinn fann
peningaskápinn í sandinum
Vík, Mýrdal, 31. október.
STARFSMENN Yíkurskálans urðu
þess varir, er þeir komu til vinnu
sinnar klukkan 9 í gærmorgun, að
peningaskápur sem þar átti að
vera, var horfinn. í skápnum, sem
er um 120 kg að þyngd, voru 150 til
200 þúsund krónur í pcningum.
Strax og þessa varð vart var
lögreglu gert viðvart og við eftir-
grennslan kom í ljós, að bifreiða-
stjóri sem var að koma að austan
um fimmleytið um morguninn,
hafði mætt hvítum fólksbíl með
opið skottlok rétt austan við Vík
og var hann þá á austurleið.
Þessi maður lét kaupfélagsstjór-
ann í Vík vita og mundi kaupfé-
lagsstjórinn þá eftir því að hann
hafði séð sams konar hvítan bíl
aka vestur um klukkan 10 um
morguninn.
Kaupfélagsstjórinn fór nú
ásamt gjaldkera kaupfélagsins
austur fyrir Vík og sáu brátt ný-
leg för eftir bíl utan vegar á
Mýrdalssandi og var sýnilegt að
bíll hafði festst þar í sandinum.
Ennfremur tók kaupfélagsstjór-
inn eftir ummerkjum í sandinum
eins og þar hafi verið nýgrafið.
Rótaði hann til með hendinni og
kom þá strax niður á peninga-
skápinn.
Lögreglunni á Selfossi var gert
viðvart, gefin lýsing á bílnum og
skömmu síðar stöðvaði lögreglan
hvíta bílinn við Þjórsárbrú. Kom
þá einnig í ljós, að maður sem
verið hafði á ferð eystra snemma
um morguninn hafði dregið bíl
upp úr sandinum, sem þar sat
fastur. Gaf hann lýsingu á
mönnum, sem kom heim við
mennina sem Selfosslögreglan
handtók. Annar mannanna ját-
aði innbrotið og var því málið í
raun upplýst á hádegi í gær,
þremur tímum eftir að innbrots-
ins varð vart í Víkurskálanum.
Hafa mennirnir, sem báðir eru
Reykvíkingar, líklegast ætlað að
geyma kassann grafinn í sandinn
og fara síðan í hann síðar.
Það má því segja að kaupfé-
lagsstjórinn og gjaldkeri kaupfé-
lagsins hafi runnið á peninga-
lyktina, fundið kassann og málið
upplýstst.
— Reynir.