Morgunblaðið - 01.11.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
19
Óvæntur meirihlutasigur
miðjumanna í Argentínu
Buenos Aires, 31. október. AP.
RAUL ALFONSIN leiðtogi Róttæka flokksins, sem er miðjuflokkur, hét
löndum sínum nýrri og betri tíð eftir sjö ára herstjórn í Argentínu, þegar Ijóst
var að í glæsilegan og óvæntan sigur flokks hans stefndi í þingkosningum,
sem fram fóru í gær í landinu. Flokkurinn hlaut einnig meirihluta kjör-
manna, sem kjósa munu forseta landsins í næsta mánuði, og því Ijóst að
Alfonsin verður næsti forseti Argentínu.
Þegar lokið var talningu 80%
atkvæða hafði flokkur Alfonsin
hlotið 53% atkvæða og meirihluta
í þingi. Perónistar, undir forystu
Italo Luder, höfðu 39% atkvæða,
og talið er að þau atkvæði sem
eftir er að telja hafi ekki áhrif á
hlutfallið milli flokkanna. Tíu
flokkar aðrir skipta milli sín af-
gangi atkvæða, þeirra stærstur
flokkur Oscars Alende með 2,4%
atkvæða.
Kosningar í Argentínu voru
hinar fyrstu í áratug, og tekur ný
stjórn við af herforingjastjórn-
inni, sem hrifsaði völdin 1976. Auk
þingkosninga var kosið til bæjar-
og sveitarstjórna og fylkisstjórna.
Lorenzo Miguel, einn af leiðtogum
Perónistaflokksins, sakaði kosn-
ingayfirvöld um svik og pretti við
birtingu kosningaúrslita.
Raul Alfonsin, sem er 56 ára, er
þrekvaxinn lögfræðingur með yf-
irvaraskegg, sem alizt hefur upp
við stjórnmálin frá blautu barns-
beini, en vart verið í sviðsljósi
stjórnmálanna í Argentínu á síð-
ustu 12 mánuðum. Hann er úr
vinstri armi Róttæka flokksins, en
hefur einbeitt sér að því að afla
sér fylgis meðal hófsamari afla
innan flokksins. Einnig hefur
hann óspart biðlað til unga fólks-
ins, sem nú kaus fyrsta sinni, og
óánægðra perónista.
Alfonsin er sonur spænskra inn-
flytjenda og rak faðir hans verzl-
un. Hann gekk i herskóla rikisins
og varð lautinant, en hætti síðar
við atvinnuhermennsku og hóf
laganám í Buenos Aires. Að námi
loknu sneri hann til heimabæjar-
ins, Chasomus, og hóf afskipti af
stjórnmálum. Var hann kosinn í
bæjarstjórn Chasomus 24 ára
gamall, og á þing var hann kosinn
1958, 31 árs að aldri.
Brezk yfirvöld eru þess vongóð
að ný stjórn í Argentínu fallist á
að vinna að eðlilegum samskiptum
ríkjanna tveggja, sem rofnuðu í
kjölfar innrásar Argentínumanna
á Falklandseyjar 2. apríl í fyrra.
Raul Alfonsin, forsetaefni Róttæka flokksins, fagnar sigri í kosningunum í
Argentínu á fundi með fréttamönnum í Buenos Aires í gær. s(m.mynd-AP
„Hingað komnir til
að sameina þjóðina“
— sagði Amin Gemayel við setningu þjóðarsáttarfundarins
Genf, 31. október. Frá önnu Bjarnadóttur fréttaritara Mbl.
„VIÐ ERUM hingað komnir til að ina, endurheimta sjálfstjórn okkar
bjarga Líbanon, til að sameina þjóð- og efla bræðrabönd milli Líbana
Frá jarðskjálftasvæðunum í austurhluta Tyrklands. Konur og börn híma við
rústir heimila sinna. AP/símamynd.
44 þorp hrundu til grunna í Tyrklandi:
Rúmlega 1.100
látnir en óttast
er að talan hækki
Krzumm, 31. oktéber. AP.
TALA ÞEIRRA sem týndu lífi i jarð-
skjálftanum mikla í austurhluta Tyrk-
lands í gærkvöldi er komin í a.m.k.
1.126. Hefur tala látinna farið stöðugt
hækkandi i dag, og er óttast að hún
eigi enn eftir að hækka, þar sem engar
upplýsingar hafa borizt frá hluta
skjálftasvæðanna. Vitað er um 534 al-
varlega slasaða, sem grafnir hafa verið
úr rústum, og er mörgum þeirra vart
hugað líf.
Um 25 þúsund manns eru heimil-
islausir eftir skjálftana, og eykur
það á erfiðleika fólksins að vetrar-
ríki er á skjálftasvæðunum. Mest
tjón varð í borgunum Horasan,
Narman og Pasinler og nærliggjandi
þorpum í Erzurum-héraðinu og í
Sarikamis í Kars-héraði. Vitað er
um 44 þorp þar sem hvert hús jafn-
aðist við jörðu, og gífurlegt tjón varð
í mörgum þorpum til viðbótar.
Einnig hafa fundist 3.400 dauðir
nautgripir og sauðir, en íbúar á
skjálftasvæðunum höfðu afkomu
sína fyrst og fremst af landbúnaði.
Kuldi og úrkoma hefur valdið
björgunarmönnum miklum erfið-
leikum og er talin hætta á að margir
hinna heimilislausu eigi eftir að
verða illa úti vegna vosbúðar.
Jarðskjálftinn reið yfir á sunnu-
dagsmorgun, klukkan 4.12 að is-
lenzkum tíma, eða 7.12 að staðar-
tíma. Fullorðnir voru því flestir á
fótum til að sinna skepnum og vegna
annarra verka. Börn voru hins vegar
enn í rekkjum og má rekja hátt
hlutfall barna meðal látinna til þess.
Jarðskjálftinn mældist 7,1 stig á
Richter-kvarða.
sjálfra, og milli Líbana annars vegar
og bræðra þeirra araba hins vegar.
Við viljum að þessi bönd grundvall-
ist á réttlæti, jafnrétti og mannlegri
reisn,“ sagði Amin Gemayel forseti
Líbanon í ræðu við formlega setn-
ingu þjóðarsáttarfundar Lfbanon á
Interrontinental-hótelinu í Genf í
dag.
Eftir fundarsetninguna, þar
sem Pierre Aubert forseti Sviss
hélt einnig ræðu, yfirgáfu fund-
armenn fundarsalinn, þar sem
viðræðum var frestað til fyrra-
máls. Öll helztu þjóðarbrotin í
Líbanon eiga fulltrúa á fundinum,
en auk þess sitja hann áheyrnar-
fulltrúar Sýrlendinga og Saudi-
Araba. í ræðu sinni þakkaði
Gemayel Sýrlendingum og Saudi-
Aröbum fyrir að gera fund þennan
mögulegan en minntist ekki á
Israel.
Hljóðið í fundarmönnum og
fréttamönnum frá Líbanon var
bæði neikvætt og vonlaust, og
hermt er að almenningur í Líban-
on búist ekki við miklu af fundin-
um. Kalt er milli allra fulltrúa
brotanna og stórt skref út af fyrir
sig að fá þá til að koma saman í
einu herbergi. Erfitt var að finna
sætaskipan sem allir gátu sætt sig
við, en vandinn var leystur með
því að koma fundarmönnum fyrir
á fimm borðum.
Tvö höfuðverkefni bíða fundar-
ins, að ná samkomulagi um veru
ísraelshers í Suður-Líbanon og
um nýja stjórnarskrá. Andstæð-
ingar Gemayels vilja að hann rifti
samningnum, sem gerður var um
dvöl Israelshers 17. maí sl., en
ísraelar vöruðu Gemayel um helg-
ina við því að hrófla við samn-
ingnum.
Sagt er að ísraelar, Sýrlend-
ingar og Bandaríkjamenn ræðist
við á bak við tjöldin og hafi óbeint
samband við fundinn. Óljóst er
hversu lengi fundurinn mun
standa, en fjórir til sjö dagar
nefndir.
SIEMENS
— vegna gæðanna
Vönduð ryksuga með still-
anlegum sogkrafti, 1000
watta mótor, sjálfinndreginni
' snúru og frábærum fylgi-
hlutum.
Siemens-SUPER
— öflug og fjölhæf.
SMITH & NORLAND HF.,
NÓATUNI 4, SIMI 28300.
Nú mælum við
barnaherbergió
og gefum barninu okkar vönduö og hentug húsgögn.
Hér er tegund 2024, bekkur með hillum yfir, til í furulit.
Stærð: hæð 167, lengd 197, breidd 75. Verö meö dýnu
og 3 púðum 9.930,-, útborgun 2.000,- og rest á 6 mán-
uðum. Bekkurinn stakur kostar 7.370,-.
Hér er gagnlegur hlutur þar sem vantar klæöaskápa í
herbergi. Teg. 2033, er til í furulit. Stæröir eru: hæð 167,
lengd 274, breidd 75. Verð með dýnu og þrem púðum:
14.390,-, útborgun 3.000,- og rest á 7 mánuðum.
Hringdu til okkar eða líttu inn, við höfum geysilegt
úrval húsgagna sem henta vel í lítil barnaherbergi.
Hagsýnn velur það besta
HUSGACNAHÖLLIN
BlLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410