Morgunblaðið - 01.11.1983, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
21
• Félagar Péturs Péturssonar fagna honum eftir aö hann hefur skorað glæsilegt mark með liði sínu Antwerp. Pótur skoraði
fyrsta mark Antwerp í 3—1 sigri liðsins í bikarkeppninni gegn Charleroi. Antwerp er þar með komið í 16 liða úrslitin.
Mark af
20 metra
löngu færi
— Við vorum betra liðið á
vellinum og áttum skilið að
sigra í leiknum. Þessir bikar-
leikir eru alltaf erfiðir og það
getur allt gerst í þeim. Ander-
lecht var til dæmist slegiö út.
Liðíð tapaði 1—2 fyrir FC
Briigge mjög óvænt, sagði Pét-
ur Péturson er Mbl. spjallaði við
hann í gær. En Antwerpen, lið
Péturs Péturssonar, sigraöi
Charleroi 3—1.
Charleroi náöi forystunni i
leiknum strax á 3. minútu og við
jöfnuðum ekki fyrr en á 30. mín-
útu. Ég fékk þá boltann vel fyrir
utan vítateiginn, náöi mjög góöu
skoti og skoraöi af í þaö minnsta
20 metra færi. Þetta var nokkuð
gott mark. Viö færöumst svo allir
í aukana og bættum tveimur viö.
Lið Lárusar Guömundssonar,
Waterschei, sigraöi Hasselt á úti-
velli 2—0. CS Brúgge tapaði
0—3 fyrir Beveren.
— ÞR.
Ásgeir Sigurvinsson:
„Þetta var slakt hja okkur“
— Mér fannst þetta slakt af
okkar hálfu, þaö koma svona
dagar þar sem ekkert gengur
upp. Við vorum sérstaklega slakir
í fyrri hálfleiknum. Vörnin var
slöpp og okkur gengur illa aö
skora, sagöi Ásgeir Sigurvinsson
þegar hann var inntur álits á leik
Stuttgart gegn OUsseldorf um
helgina.
— En þrátt fyrir þetta tap þá
þurfum viö ekki aö örvænta. Viö
erum eina liöiö í deildinni ásamt
Hamborg sem hefur aöeins tapaö
tveimur leikjum af þeim 12 sem
spilaöir hafa verið. Liö Dusseldorf
hefur leikiö vel t síöustu leikjum og
þeir eru mjög erfiöir heim aö
sækja. Þaö eru ekki mörg lið sem
fara meö sigur gegn þeim á heima-
velli þeirra. Þaö viröist allt ganga
upp hjá þeim.
Ásgeir sagöi aö mjög mikilvægt
væri aö sigra í næsta leik sem væri
gegn FC Núrnþerg á heimavelli. Þá
væri hugsanlegt aö Svíinn Cornel-
iusson yröi kominn í liöiö aftur eftlr
meiösli og myndi hann styrkja þaö.
— ÞR.
k
Þing skíðasambandsins:
Hreggviður endurkjörinn
ÞING skíðasambands fslands var
haldiö á Húsavík, og var Hregg-
viður Jónsson þar endurkjörinn
formaöur sambandsins. Þingið
tókst í alla staði mjög val og var
Húsvíkingum til sóma.
Fundað um ferðakostnað:
Mikill hagnaöur
af samningi
við Flugleiöir
Á FJÖLSÓTTUM fundi um ferðakostnað íþróttahreyfingarinnar,
sem framkvæmdastjórn ÍSÍ efndi til á Loftleiöahóteli sl. laugardag,
var upplýst, að meta mætti hagnað íþróttahreyfingarinnar af ferða-
samningi ÍSÍ og Flugleiða til 5—6 milljóna króna, það sem af er
þessu ári.
Kom þetta fram í erindi Alfreös Þorsteinssonar, ritara fSÍ, en auk
hans héldu framsöguerindi þeir Knútur Otterstedt, formaöur fþrótta-
bandalags Akureyrar, og Pétur Sveinbjarnarson, formaöur Vals.
Greindi Knútur frá mjög vaxandi feröakostnaöi utanbæjaraöila, sem
væri margfaldur á viö feröakostnaö íþróttafélaga á höfuöborgarsvæö-
inu. Sagöi hann m.a., aö nú væri svo komiö, aö íþróttafólk á Akureyri
væri fariö aö feröast meö langferöabifreiöum aftur til aö ná ferða-
kostnaöi niöur, en sá böggull fylgdi skammrifi, aö þaö orsakaði vinnu-
tap hjá íþróttafólkinu. Pétur Sveinbjarnarson lagöi fram mjög athygl-
isveröar tölur fram á fundinum um kostnað viö rekstur íþróttafélaga,
og sagöi, aö rekstrartekjur næmu aðeins 30% af kostnaði og væri þó
meötalin framlög opinberra aöila.
Miklar umræöur uröu á fundinum um feröakostnaö íþróttahreyf-
ingarinnar og tóku margir til máls. Kom fram áhugi á því aö halda
annan fund, þar sem rætt yröi um fjármál íþróttahreyfingarinnar á
breiöari grundvelli. __ pp_
„Það var talsvert rætt um
fræöslumál á þinginu og menn
voru ánægöir meö þaö sem gert
hefur verið i þeim málum undan-
farin ár,“ sagöi Hreggviöur Jóns-
son í samtali viö Mbl.
Hann sagöi aö lokiö heföi veriö
niöurrööun móta og mótaskráin
samþykkt. Skíöamótiö veröur á
Akureyri og unglingameistaramót-
iö á Siglufiröi.
„Þaö sem kom helst nýtt fram á
þinginu," sagöi Hreggviöur, „var
þaö aö menn minntust á þann
möguleika aö tala viö mennta-
málaráöherra um hvort ekki væri
hægt aö koma upp skíöabraut í
fjölbrauta- eöa menntaskóla, og
hafa menn Menntaskólann á Isa-
firöi í huga í þessu sambandi. Skíöi
yröú þá aöalgreinin á íþróttabraut-
inni, og byggöist námiö bæöi á
skíöaþjálfun og skíöakennslu.
Þetta er til á hinum Norðurlöndun-
um og gefur skíöafólki kost á því
aö eyða meiri tíma í íþrótt stna en
áöur.“
Fjórir nýjir voru kjörnir í stjórn
SKÍ, þar af fyrsta konan sem setiö
hefur í stjórn sambandsins.
Hreggviöur er formaöur, sem fyrr
segir, en auk hans eru í stjórninni:
Hermann Sigtryggsson, Ottó Leifs-
son, Ingólfur Jónsson, Guöný Ara-
dóttir, Hans Kristjánsson, Trausti
Rikharösson, Haukur Viktorsson
og Ingvar Eiríksson. Ottó, Ingólfur,
Guöný og Hans eru nýliöarnir.
— SH.
• Ingemar Stenmark, besti skíðamaður allra tíma, hefur miklar tekjur
af íþrótt sinni. Nú er hugsanlegt að hann veröi útilokaöur frá þátttöku
í Ólympíuleikunum í Sarajevo.
Fær Stenmark að
keppa í Sarajevo?
AP. Stokkhótmi.
EINS OG VIÐ skýrðum frá fyrir
helgina þá eru nú miklar líkur á
að Ingimar Stenmark fái ekki aö
keppa á Ólympíuleikunum sem
fram fara í Júgóslavíu á næsta
ári. Haft var eftir Serge Lang,
formanni heimsbikarkeppninnar,
að Stenmark fengi ekki að taka
þátt í ieikunum en nú hefur Marc
Holder, formaöur Alþjóðaskíða-
sambandsins, sagt aö ákvöröun
um þetta verði tekin á fundi sam-
bandsíns um næstu helgi og aö
það sé ekki í verkahring Lang aö
taka ákvarðanir um þessi mái.
Ástæöan fyrir þessu er sú aö
eftir leikana í Lake Placid fékk
Stenmark svonefnt B-keppnisleyfi
en þaö felur í sér aö hann má
þiggja tekjur vegna auglýsinga.
Siöan þetta geröist hefur Sten-
mark flutt heimili sitt frá Svíþjóö til
Monte Carlo vegna skattbyröar
þeirrar sem er í Svíþjóö, en hann
hefði þurft aö greiöa 90% af þess-
um tekjum í skatta ef hann heföi
búiö í Svíþjóö. Ef Stenmark leggur
þessa peninga inná reikning hjá
sænska skíöasambandinu núna,
þá eru miklar líkur á aö hann fái aö
keppa á ÓL, en þá þarf hann líka
að greiöa skatta og ólíklegt er taliö
aö hann hafi mikinn áhuga á því.
Hvernig sem niðurstööur fund-
arins um helgina veröa er vist aö
ekki veröa allir ánægöir. Phil
Mahre hefur neitaö aö taka
greiöslur fyrir auglýsingar til þess
aö mega keppa á ÓL, og því þykir
mörgum aö þaö væri ósanngjarnt
aö leyfa Stenmark aö keppa þrátt
fyrir aö hann hafi keppt á
B-keppnisleyfinu í þrjú ár.