Morgunblaðið - 01.11.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
31
Skoðanakannanir í Bandaríkjunum:
Meirihluti hlynntur
aðgerðum forsetans
New York, 30. október. AP.
ÚRSLIT þriggja skoðanakannana í
Bandaríkjunum benda til þess að
stefna Ronalds Reagan Banda-
ríkjaforseta í Líbanon og Grenada
eigi stuðning meirihluta Banda-
rfkjamanna. Það voru vikuritið
Newsweek, dagblaðið New York
Times og sjónvarpsstöðin CBS og
dagblaðið Washington Post í sam-
vinnu við sjónvarpsstöðina ABC
sem gengust fyrir viðamiklum
könnunum með miklu úrtaki.
Könnunin í Newsweek gaf til
kynna, að 49 prósent væru
hlynnt hlutverki bandaríska
hersins í Líbanon og 51 prósent
væri fylgjandi hernaðaríhlutun-
inni í Grenada. Hins vegar voru
aðeins 48 prósent aðspurðra
ánægð með störf forsetans í
heild. 47 prósent lýstu skoðun
sinni að Reagan væri heldur
fljótfær að grípa til hernaðar-
máttar Bandaríkjanna til að
leysa utanríkisvandamál, 43 pró-
sent voru hins vegar ánægð með
þá tilhneigingu forsetans. Um
dvöl bandarískra hermanna í
Líbanon voru tölur í svipuðum
dúr, en athyglisvert að talsverð-
ar breytingar höfðu orðið á töl-
unum á þeim tveimur mánuðum
sem liðnir eru síðan könnun var
síðast gerð. 48 prósent voru nú
fylgjandi miðað við 41 prósent
áður. Ekki fylgjandi voru nú 42
prósent miðað við 52 prósent áð-
ur. Niðurstöður hinna kannan-
anna tveggja bentu til hins
sama.
unofbrm
Eldhúsinnréttingar
Dönsk hágæöavara
Einfaldleikinn er eilífur
Gæöin í fyrirrúmi.
Höfum innanhúsarkitekt á staönum,
yöur aö kostnaöarlausu
Lítið við —
sýningarsalur Skeifunni 19
Timburverslunin
Völundur
Klapparstíg 1 sími 18430 — Skeifunni 19 sími 85244
TOYOTA-VARAHLUTAUMBOÐIÐ
ÁRMÚLA 23 — SIMI 81733
Geröu þaö
sjálfur
BJORNINN HF
Skúlatúni 4 - Simi 2SI50 - Reykjavík