Morgunblaðið - 01.11.1983, Síða 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
Minning:
Runólfur Péturs-
son iðnverkamaður
Fæddur 1. desember 1935
Dáinn 22. október 1983
Það er erfitt að sætta sig við það
þegar maður á besta aldri, fullur
starfsorku og lífsvilja, er hrifinn
burt héðan. Okkur sem eftir erum
finnst að hann hafi átt langt
lífsstarf fyrir höndum.
Ótrúlegt er það að hinn voðalegi
vágestur hafi lagt þennan duglega
og lífsglaða mann. Örlögin eru
undarleg.
Runólfur fæddist hinn 1. des-
ember 1935 í Reykjavík og hefði
því orðið 48 ára á þessu ári. Run-
SIÐAN
32
QGENN
AFULLU
VtNNUFÖT
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS.
REYKJAVÍK, SÍMI:16666
ólfur var sonur hjónann i Guð-
finnu Ármannsdóttur dá .1 1968,
aðeins 58 ára, og Péturs F. Run-
ólfssonar vélstjóra og síðar full-
trúa hjá tollstjóraembættinu þar
til hann lést um aldur fram árið
1960 aðeins 52 ára. Foreldrar Run-
ólfs eignuðust 7 böi .i 6 komust til
fullorðinsára, þ* . eru Ásgeir,
Ólöf, Runólfur, Armann, Helga og
Pétur.
Runni, eins og hann var ávallt
kallaður af fjölskyldunni og vin-
um, var sérstaklega glaðlegur
maður og hress í tali. Hann vann
lengst sem iðnverkamaður, var
SIÐAN
32
QGENN
AFULLU
I/INNUFÖT
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS.
REYKJAVÍK. SÍMI:166 66
lengi hjá Isaga hf. og síðustu árin
hjá Skorra hf. Hann tók virkan
þátt í félags og stjórnmálum og
hafði ákveðnar skoðanir í þjóð-
málum. Hann vann að málefnum
iðnverkafólks, var í stjórn Iðju í
mörg ár og formaður í nokkur ár.
Einnig vann hann ýmis trúnað-
arstörf fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
var varaborgarfulltrúi og til-
nefndur endurskoðandi í Sparisjóð
Reykjavíkur af hálfu Reykjavík-
urborgar um árabil.
En fyrst og fremst var Runni
mikill fjölskyldu- og heimilisfaðir.
Hann var kvæntur Rut Sörensen
og eignuðust þau 3 börn, Garðar
Björn sem er við Háskóla íslands,
kvæntur Herdísi Hauksdóttur,
þau eru búsett í Reykjavík, Kristí
sem stundar einnig nám við há-
skólann, gift Erni ðskarssyni líf-
fræðingi og kennara, þau eiga einn
son, Atla. Þau búa á Selfossi.
Yngst er Ásdís Lára, nemi við
Menntaskólann í Hamrahlíð, hún
býr í foreldrahúsum.
Það er sárt að sjá á bak elsku-
legum eiginmanni og föður, en
minningarnar lifa.
1 langri baráttu við erfiðan
sjúkdóm sýndi hann mikið æðru-
leysi og alltaf var stutt í brosið og
gamansemina þó að þjáður væri.
Það létti baráttuna að finna ástúð
og hlýju frá samheldri fjölskyldu.
Aldrei vék hún frá honum eigin-
konan fyrr en yfir lauk. Nú er
helstríðinu lokið.
Ég kveð mág minn og vin.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þokk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(V. Briem.)
Mágkona
Okkur setur ævinlega hljóð þeg-
ar einhver þeirra sem við þekkjum
og okkur hefur fundist eiga langa
dagleið framundan er kallaður
burt héðan. Við getum ekki skilið
hvers vegna dauðinn hafi komið
svo fljótt. f einstaka tilfellum get-
ur þó svo verið komið fyrir sár-
sjúku fólki, að hans er vænst sem
líknandi vinar. En hvern þann
sem hann hrífur til sín úr fjöl-
skyldu, vinahópi eða kunningja-
þá fyllist fólk klökkva vegna komu
hans. Minningin ein mun lifa í
brjóstum þeirra sem eftir standa.
Undarleg eru örlögin og ævinlega
erfitt að sætta sig við þau þegar
einhver er hrifinn burt á besta
aldri.
Runólfur Pétursson, fyrrver-
andi formaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks, verður í dag til mold-
ar borinn. Hann lést laugardaginn
22. október sl. eftir að hafa átt í
harðri baráttu við þann sjúkdóm
sem ekki varð við ráðið. Löngu og
erfiðu sjúkdómsstríði er lokið.
Runólfur fæddist 1. desember
1935. Hann stundaði sjómennsku
og önnur tilfallandi störf á yngri
árum. Árið 1962 gerðist hann fé-
lagi í Iðju. Sama ár var hann kos-
inn í trúnaðarmannaráð félagsins
og ári síðar varamaður í stjórn og
sinnti hann því starfi fram til árs-
ins 1966, er hann var kosinn ritari
félagsins. Um skeið var Runólfur
meðstjórnandi og síðar gjaldkeri,
eða þar til hann tók við formanns-
starfi árið 1970, sem hann gegndi
til ársins 1976. Runólfur var
starfsmaður Iðju um tíma árið
1965 og síðan aftur frá 1969—1976.
Runólfur var einn af stofnend-
um Landssambands iðnverkafólks
og var á stofnþingi þess árið 1973
kosinn gjaldkeri sambandsins.
Runólfur sýndi mikinn áhuga á
félags- og stjórnmálum. Hann átti
um langt árabil sæti í stjórn
Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks-
ins og um tíma varaborgarfulltrúi
flokksins. Þá var hann um skeið
endurskoðandi Sparisjóðs Reykja-
víkur og í stjórn Strætisvagna
Reykjavíkur.
Þegar horft er yfir farinn veg
má sjá að það hafa verið marg-
þætt störf sem Runólfur innti af
hendi á sinu lífshlaupi.
Þó hann sé horfinn af okkar
sjónarsviði, mun minningin um
hann sem samherja og sam-
starfsmann lifa í hugskoti okkar á
ókomnum árum. Við hörmum að
hinn voðalegi vágestur hafi náð að
leggja hann að velli. Við vissum að
hverju stefndi er heilsu hans
hrakaði sífellt, þó kemur það eigi
SMITWELD
rafsuóuvír
Rafsuöumenn um allan heim
þekkja SMITWELD merkið. í yfir
hálfa öld hefur SMITWELD
þjónað iðnaði og handverks-
mönnum um allan heim.
SMITWELD rafsuðurvírinn er
einn sá mest seldi í Evrópu.
Yfir 70% af rafsuðuvír fyrir ryð-
varið efni, sem selt er í Vestur-
Evrópu er frá SMITWELD.
Sannar það eitt gæði hans. Við
höfum fyrirliggjandi í birgðastöð
okkar allar algengustu gerðir
SMITWELDS rafsuðuvírs og
pöntum vír fyrir sérstök verkefni.
SMITWELD:
FYRSTA FLOKKS VÖRUR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
SINDRA
STALHF
Pósthólf 881, Borgartúni 31, 105 Reykjavlk, slmi: 27222, bein llna: 11711.
Kvöld og helgarslml: 77988.
að síður ævinlega á óvart þegar
allt er um garð gengið.
Við sendum konu hans og börn-
um og öllum ástvinum einlægustu
samúðarkveðjur.
Bjarni Jakobsson
Hinn 22. október sl. andaðist á
Landakotsspítala Runólfur Pét-
ursson, fyrrverandi formaður
Iðju, félags verksmiðjufólks í
Reykjavík, tæplega 48 ára að
aldri. Hafði hann átt við langvar-
andi veikindi að stríða. Banamein
hans var krabbamein.
Runólfur var fæddur í Reykja-
vík 1.12. 1935, þriðja barn hjón-
anna Guðfinnu Ármannsdóttur og
Péturs, sem starfaði á skrifstofu
tollstjóra í áratugi, Runólfssonar,
„pólití" í Reykjavík. Foreldrar
Guðfinnu voru Ármann Jóhanns-
son, ættaður af Kjalarnesi, og
Guðný dóttir Jóns Oddssonar,
tómthúsmanns, og Ólafar Hafliða-
dóttur í Mýrarholti í Reykjavík.
Önnur börn Guðfinnu og Péturs
eru Ásgeir, ólöf, Ármann, Helga
og Pétur.
Runólfur fór strax að loknu
skyldunámi að vinna fyrir sér og
fór til sjós, byrjaði hjálparkokkur
á farskipi, eins og svo margir, sem
fara í siglingar. Hann kvæntist
eftirlifandi konu sinni Ruth Sör-
ensen 28.3. 1959 og eignuðust þau
þrjú börn: Garðar, Kristínu og
Ásdísi, sem er enn í foreldrahús-
um, en Garðar og Kristín hafa
stofnað sín eigin heimili, Kristín á
Selfossi og Garðar hér í Reykja-
vík.
Árið 1961 hóf hann vélgæslu-
störf hjá Isaga á Rauðarárstígn-
um við framleiðslu á súrefni og
gasi. Þar var hann til 1968 er hann
fór um tíma í Umbúðaverksmiðj-
una, en varð svo starfsmaður Iðju
1969 til 1976. Hann rak verslun á
Snorrabraut í rúmlega tvö ár, en
þá kenndi hann þess meins, sem
varð honum að aldurtila. Gekkst
hann þá undir mikla aðgerð á spít-
ala, sem tókst vel, og héldum við
því vinir hans að hann myndi ná
sér. Hann vann síðustu 2 árin hjá
Skorra hf., en þar hafði hann
bestu húsbændur, sem hann hafði
unnið hjá um æfina og reyndust
honum mjög vel í veikindum hans.
Var hann hress þangað til í vor að
hann fór í rannsókn á Landa-
kotsspítala, og þaðan varð honum
ekki afturkomu auðið.
Runólfur var, einsog svo margir
í hans fjölskyldu, mjög félags-
málalega sinnaður. T.d. var Ásgeir
bróðir hans mörg ár í stjórn Iðju
og um tíma varaformaður og for-
maður Byggingasamvinnufélags
iðnverkafólks og Ólöf systir hans
árum saman í trúnaðarráði Iðju.
Ennfremur var Ármann bróðir
Runólfs formaður félags Slökkvi-
liðsmanna, Pétur í stjórn Farfugla
og fleiri dæmi mætti nefna um fé-
lagsmálastörf í fjölskyldunni.
Runólfur gekk snemma í Sjálf-
stæðisflokkinn. Hann var vara-
borgarfulltrúi í Reykjavík 1966—
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort ljóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.