Morgunblaðið - 01.11.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983
45
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
T1 TIL FÖSTUDAGS
Frá setningu prestastefnu í hátíðarsal Háskóla íslands í sumar.
Um upprisu mannsins
„Kæra Svanlaug Löve.
Ég þakka þér fyrir að hnippa í
mig í Mbl. í dag (30. okt. 1983).
Jafnframt biðst ég afsökunar á að
hafa ekki svarað, er þú barst fram
spurningu þína fyrra sinnið.
Tillagan, sem þú getur í spurn-
ingu þinni, er varðandi orðalag í
þriðju gein postullegu trúarjátn-
ingarinnar og gengur út á, að sagt
sé „upprisa mannsins" I stað „upp-
risa dauðra" eða „upprisa holds-
ins“. Á ég reyndar ekki heiðurinn
af þessum tillöguflutningi, heldur
er það Sigurbjörn Einarsson,
fyrrverandi biskup íslands. Þá er
það heldur ekki rétt, að þessi til-
laga hafi verið samþykkt á presta-
stefnunni. Hvorki prestastefna né
kirkjuþing vildu ákveða orðalag
trúarjátningarinnar með sam-
þykkt. Hins vegar var meirihluti
presta með því, að handbókin yrði
prentuð með hinu nýja orðalagi
„upprisa mannsins“, ef með því
mætti freista þess, að fá einhuga
orðalag á játninguna. Um orðalag-
ið hafa nefnilega staðið deilur á
Islandi allt frá árinu 1934, þegar
Helgisiðabókin, er út kom það ár,
breytti orðalaginu „upprisa holds-
ins“ I „upprisu dauðra".
Tillaga sem þessi, þótt sam-
þykkt væri, verður fyrir það ekki
Guðs orð. Prestar skulu lúta Guðs
orði og eru hátíðlega skuldbundnir
til að predika Guðs orð hreint og
ómengað. Játningar kirkjunnar
eru heldur ekki Guðs orð. Þær eru
líka útlegg þess. Tillaga biskups-
ins um orðalag á þriðju greininni,
sem ágreiningur er um, er spurn-
ing til kirkjunnar á Islandi um
það, hvort hún í þessu orðalagi
sjái útleggingu Guðs orðs, er sé
trúrri inntaki Bibliunnar en hið
fyrra orðalag.
Ég fyrir mitt leyti viðurkenni,
að svo sé og skal útskýra það fáum
orðum.
Að skilningi kirkju okkar dreg-
ur trúarjátningin saman í stuttu
máli inntakið í Biblíunni. Myndar
trúarjátningin nokkurs konar lyk-
il til skilnings á hinu fjölbreyti-
lega efni Biblíunnar og merkir
tvennt: Annars vegar er trúar-
játningin vitnisburður kristinna
manna um trú þeirra. Hins vegar
er trúarjátningin lofgjörð og bæn
kristinna manna, þar sem þeir
lofa Guð fyrir allar velgjörðir
hans við menn.
Postullega trúarjátningin, sem
hér er til umræðu, er til okkar
komin úr latínu. Þar standa í
þriðju greininni orð, sem orðrétt
þýða „upprisa holdsins" og hafa
lengst af verið þýdd þannig á ís-
lensku.
Þar eð postullega trúarjátningin
er ekki sjálfstæður texti, heldur
útiegg á erindi Biblíunnar, ber að
leita til Biblíunnar til þess að
finna merkingu hugtakanna er
hún notar. Svo er einnig um orðið
„hold“. I Biblíunni merkir orðið
„hold“ hinn skapaða veruleika í
mótsetningu við skaparann, Guð,
sem þá nefnist „andi“. Þá getur
orðið „hold“ merkt allan manninn
sem skapaða heild eða alla menn,
mannkyn allt. Biblíulegur hugsun-
arháttur er nefnilega að því leyti
frábrugðinn okkar hugsunarhætti
nútímamanna, að hann er heild-
stæður. í Biblíunni er ekki hugsað
aðgreint um hluti og fyrirbæri,
heldur er litið á þau í heild og þau
skilgreind út frá afstöðu þeirra
hverra til annarra.
Þannig er og um manninn. I
Biblíunni er litið á hann sem eina
heild líkama, sálar og anda. Þessi
heild er tjáð með því að kalla hana
„líkama" eða „hold“ og er þar með
ítrekað, að maðurinn er skapaður.
Þegar talað er um manninn í af-
stöðu hans til annarra manna eða
skapaðra hluta, þá er talað um
„hjarta", „sál“ eða „anda“. „Hold-
legur" er sá maður, sem reiðir sig
á mátt sinn og megin, þ.e. tilbiður
hið skapaða í stað skaparans.
„Andlegur" er á hinn bóginn sá er
treystir skapara sínum, tilbiður
hann og þjónar honum, svo að
andi guðs stýri gerðum hans, orð-
um og hugsun, þ.e.a.s. hjarta
mannsins eða anda. Er í þessu
sambandi upplýsandi að lesa
fimmta kapítulann I Galatabréf-
inu.
Þegar postullega trúarjátningin
notar i þriðju grein sinni orðalag,
sem orðrétt þýðir „upprisa holds-
ins“, vill hún standa vörð um
þennan biblíulega hugsunarhátt,
þar sem um manninn er talað sem
heild. fslenska orðið „hold“ sam-
svarar ekki fyllilega hinum biblíu-
lega veruleika og því hefur I bibl-
íuþýðingum oft þurft að hagræða
þýðingum þar sem frummálin tala
um „hold“, svo að lesendur skilji,
hvað við er átt. Og eins er það með
postullegu trúarjátninguna. Hún
er ekki að tala um hold mitt í
þeirri merkingu sem við leggjum í
það orð nú á dögum, heldur er hún
að tala um okkur sjálf sem heild
líkama, sálar og anda og fá okkur
til að játa, að við sjálf séum kölluð
til að rísa upp með Kristi til nýs
lífs í endurnýjun hugarfars og
breytni.
f þriðju grein postullegu trúar-
játningarinnar er ég nefnilega að
tala um mig I afstöðu til Guðs
nýskapandi máttar, heilags anda,
sem hefur kallað mig í kirkju sína.
Þar reisir hann mig daglega upp
sem nýjan mann, sem lifir af
fyrirgefningu syndanna og hefur
eilíft líf, þ.e. líf með Guði. Eilíft líf
er m.ö.o. nútímaveruleiki I lífi
þeirra sem trúa. Þess njótum við í
trúnni nú, én í framtíðinni augliti
til auglitis.
Til þeitrar framtíðar beini ég
líka sjónum mínum, er ég fer með
trúarjátninguna. Með orðunum
„upprisa mannsins" tjái ég þá von,
að Guð muni varpa af sköpun
sinni oki hégóma, þjáningar og
dauða og leiða hana fram sam-
kvæmt þeirri mynd, er hann skap-
aði hana til í öndverðu. Um þessa
von vitnar Biblían sterkt, t.d. I
jólatextanum hjá Jesaja spámanni
(9.1—7) og ennfremur í Opinber-
unarbókinni 21. kap. Og hvatning-
in til kristinna manna um að gera
þessa von lifandi í lífi sínu hljóm-
ar hvarvetna af síðum Biblíunnar
og nægir I því sambandi að vitna í
6. kapítula Rómverjabréfsins svo
og 12. kapítula sama bréfs.
Því merkja orðin „upprisa
mannsins" í fyrsta lagi „upprisu
mína“ til lífs í trú á endurskap-
andi mátt Guðs og í öðru lagi
„upprisu mannkyns" til lífs með
guði samkvæmt köllun sinni. Að
skilningi Biblíunnar stendur mað-
urinn, sem skapaður er í mynd
Guðs, ábyrgur fyrir ástandi sköp-
unarverksins. „í skuld er, Guð, þín
eigin mynd. Ó, mikla skuld, svo
skelfileg, því skemmd er hún af
minni synd“, segir sr. Matthías og
útleggur þannig réttileika Guðs
orðs. Upprisa mannsins merkir
því upprisu alls úr hégómleika og
þjáningu eins og Páll postuli segir
í Rómverjabréfinu, 8. kapítula:
„Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar
þessa tíma neitt í samanburði við
þá dýrð, sem á oss mun opinber-
ast. Því að sköpunin þráir, að
Guðs börn verði opinber. Sköpunin
var undirorpin fallvaltleikanum,
ekki sjálfviljug, heldur vegna
hans, sem varp henni undir hann í
von um að jafnvel sjálf sköpunin
muni verða leyst úr ánauð for-
gengileikans til dýrðarfrelsins
Guðs barna."
„Dýrðarfrelsi Guðs barna" bíður
sem sagt sköpunarinnar allrar,
sem undirorpin er fallvaltleikan-
um sakir mannsins, sem bregst
köllunn sinn í sífellu. Við, sem
kristin erum, trúum, að í Kristi
hafi okkur verið gefið þetta frelsi
„svo sem í skuggsjá", og orð post-
ullegu trúarjátningarinnar hvetja
okkur daglega til að treysa þessu
frelsi og vinna að framgangi þess,
ekki aðeins okkur til handa, held-
ur og dýrum og jurtum eða þeirri
náttúru, sem er sett undir okkar
vernd, uns við sjáum augliti til
auglitis og njótum friðar I ríkinu,
þar sem „úlfurinn mun búa hjá
lambinu ... og barnið nývanið af
brjósti stinga hendi sinni inn i
bæli höggormsins" (Jes. 11.6—8).
Eg vona, Svanlaug Löve, að
þetta svari spurningu þinni.
Bið ég þér allrar blessunar.
Þinn einlægur Einar Si(Jur-
björnsson.“
Árshátíð Gusts
veröur haldin í Fóstbræöraheimilinu, laug-
ardaginn 12. nóvember nk. Miöapantanir
í síma 46173. Nánar auglýst síöar.
Skemmtinefnd
HUGSAÐU
þig um tvisvar áður
en þú kaupir eldavél
Mikið var ég ánægð þegar við eignuðumst blásturs-
eldavélina frá Blomberg.
Blomberg EK 1044 er orkuspárandi og vönduð.
Þegar við ákváðum að kaupa eldavél urðum við
sammála um að vélin yrði að vera orkusparandi og stíl-
hrein og þægileg í notkun. Við duttum niður á Blomberg
EK 1044 blásturseldavélina og sáum strax að hún upp-
fyllti allar óskir okkar. _
Húnermeð:
• Stillanlega toppplötu svo
hún passar við borðbrúnina
• Barnalæsingu
• Lausri hurð *
• Höggheldri toppþlötu
og hliðum
• Blástursofni með mjög kröft-
ugum blæstri, svo góður
árangur næst í matseld
• 4 hellum. 1 termostathellu og
3 hraðsuðuhellum.
• Rafdrifinni kæliviftu sem
heldur ofnhurðinni kaldri.
Ef þig vantar eldavél í hæsta gæðaflokki, ódýra í
rekstri og fallega í útliti, þá er Blomberg EK 1044 sú
rétta.
Og það er tveggja áita ábyrgð á Blomberg, taktu
EINAR FARESTVEIT &, CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A Slmi 16995