Morgunblaðið - 01.11.1983, Síða 40

Morgunblaðið - 01.11.1983, Síða 40
BítlaæðiðV\u HOLLyWððDÍ plitjrinwMítP iiP ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 1983 Þyrla landhelgisgæzlunnar á eyjunni Lón, þar sem Ragnari Berg Gíslasyni, stýrimanni, var bjargað. Á rifínu til vinstri sést gúmbjörgunar- báturinn, sem Ragnar rak á í land og sem hann síðan velti við og skreið undir meðan hann beið björgunarmanna. Ljósmjnd/Heip sreinbjdni«on. Gat kraflað mig upp á botn björgunarbátsins — segir Ragnar Berg Gíslason, stýrimaður Reiknuð- um alltaf með því að hjálp bærist — sögðu Gunnar Víkingsson skipstjóri og Pétur Sigurðs- son háseti „Við vorum á heimleið, búnir að keyra í um það bil hálftíma, þegar velta kom á bátinn og fyllti skeljakass- ana, sem voru á dekki. Bát- urinn rétti sig ekki við aft- ur. Hann var dálítinn tíma á hliðinni og um leið og við vorum komnir í gúmmíbát- inn, þá hvarf hann,“ sögðu Gunnar Víkingsson, skip- stjóri á Haferninum, og Pétur Sigurðsson, háseti, þegar Morgunblaðið ræddi við þá á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi í gær. „Við reyndum að ná til tveggja félaga okkar, sem voru í sjónum, en bátinn rak svo hratt frá að það tókst ekki. Við skutum upp blysi og sáum Þórsnesið, sem hef- ur verið rétt á eftir okkur. Við vorum ekki lengi í sjón- um, það var stutt í land. Við tveir urðum viðskila við bát- inn, en sá þriðji festist í honum og rak áfram með honum upp að eyjunni og komst þar í land. Atburðurinn hefur átt sér stað um tvö leytið og þyrlan kom og hífði okkur upp rúm- lega fjögur. Við reiknuðum alltaf með því að hjálp bær- ist, þar sem vitað var um okkur á þessum stað. Við vissum að það hafði sést til okkar, en við vorum orðnir ansi kaldir þegar hjálpin barst," sögðu Gunnar og Pétur ennfremur. „Við vorum að koma fyrir Bjarn- eyjarnar, það er alltaf mikill sjór þar, þegar við fundum að bátur- inn kastaðist á bakborðshliðina. Hann rétti sig ekki nógu vel við og við slógum undan og þá lent- um við í að fá annað brot inn á hann. Eftir það rétti báturinn sig ekki við aftur,“ sagði Ragnar Berg Gíslason, stýrimaður í sam- tali við Morgunblaðið um kvöld- matarleytið í gær á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. „Við vorum þrír aftur á, en þrjú voru frammí. Tveir komust aftur á til okkar, með því að hlaupa eftir bátshliðinni. Við gátum blásið annan gummíbát- inn upp, en náðum ekki að kom- ast nema þrír í hann. Við sáum hina tvo í björgunarhringjum og reyndum að róa til þeirra, en það tókst ekki. Við vorum orðnir máttfarnir og kaldir og bátinn rak svo fljótt frá. Það var það ömurlegasta að ná ekki til þeirra," sagði Ragnar. „Við skutum upp blysum og þeir á Þórsnesinu sáu okkur, en gátu ekkert að gert, við vorum komnir það nálægt klettunum. Við sáum klettana og skerin framundan. Félagar mínur tveir komust upp á fyrsta skerið, en ég komst ekki upp. Báturinn rann meðfram skerinu og hvolfdi og það hefur sennilega bjargað mér að ég festist í bátn- um, en varð ekki viðskila við hann og gat kraflað mig upp á botn hans. Bátinn rak upp í fjör- una á eyjunni Lón. Öllu hafði skolað úr honum, til dæmis varmapokum sem í honum eru. Ég dró bátinn ofar, velti honum við og skreið undir hann. Ég sá bát fyrir utan og vissi að hann myndi koma boðum og það myndi berast hjálp, það væri bara tímaspursmál, hvenær það yrði. Síðan kom þyrlan og hífði félaga mína fyrst upp af sker- inu, þeir voru verr settir heldur en ég og hlýtur að hafa verið kaldara, því ég hafði skjól af bátnum. Þyrlan lenti síðan á eyjunni og tók mig einnig upp,“ sagði Ragnar Berg Gíslason. Þriggja skipverja saknað Þriggja skipverja af Haf- erninum er saknað. Þeir eru: Ingólfur Kristins- son, Sundabakka 14, Stykkis- hólmi, 20 ára gamall, fæddur 28. janúar 1963, trúlofaður en barnlaus, Kristrún Óskars- dóttir, Sundabakka 14, Stykk- ishólmi, 36 ára gömul, fædd 20. september 1947, gift og tveggja barna móðir og Pétur Jack, Lágholti 2, Stykkis- hólmi, 32 ára gamall, fæddur 21. desember 1950, kvæntur og þriggja barna faðir. Ekki tókst að útvega mynd af Ingólfi Kristinssyni í gær. Kristrún Óskarsdóttir Pétur Jack

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.