Morgunblaðið - 11.11.1983, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.11.1983, Qupperneq 1
56 SÍÐUR 259. tbl. 70. árg. FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins UNITA lýsir ábyrgð á flugslysinu í Angóla Uissabon, 10. nóvember. AP. Skæruliðahreyfingin UNITA í Ang- óla lýsti yfir í gær, að hún bæri ábyrgð á því að Boeing 737-farþegaþota flug- félags Angóla hrapaði skömmu eftir flugtak á þriðjudaginn með þeim af- leiðingum að allir sem f vélinni voru, 126 farþegar og áhafnarmeðlimir, létu lífið. I tilkynningu UNITA kom fram að „sérstakar" deildir hreyfingarinn- ar hefðu skipulagt verknaðinn og skotið þotuna niður. Undir tilkynninguna ritaði Dem- ostenes Chilingutila hershöfðingi og einn helsti leiðtogi skærulið- anna. Fullyrðir hann í tilkynning- unni að farþegarnir hafi allir verið hermenn stjórnarhersins og at- burðurinn mikill sigur fyrir UN- ITA, sem berst gegn vinstri sinn- aðri stjórn Jose Eduardo Dos Sant- os forseta. Hefur skæruhernaður- inn staðið í átta ár og ekkert lát í Reiner hæsta- réttardómari Stokkhólmi, 10. nóvember. AP. OLOV Palme, forsætisráðherra Sví- þjóðar, kom á óvart í gær með því að skipa Ove Reiner í embætti hæstarétt- ardómara, en Reiner er nýbúinn að segja af sér embætti dómsmálaráð- herra eftir mikið umtal um skattamál hans. Búist er fastlega við því að emb- ættisveitingin eigi eftir að vekja mikið umtal og draga dilk á eftir sér, en sænski seðlabankinn hafði tilkynnt að öll bankaviðskipti Rein- ers yrðu rannsökuð gaumgæfilega. GIOVANNI Spadolini, varnarmálaráðherra Ítalíu, sagði í gær, að ítalska friðargæsluliðið væri reiðubúið að flytja Yasser Arafat á brott frá Tripoli, óskaði hann þess. Ekki náði boðið til hermanna Arafats. Vopnahléi, sem staðið hafði í tæpan sólarhring milli stuðningsmanna Arafats annars vegar og andstæðinga hans innan PLO og Sýrlendinga hins vegar, lauk í gær er Sýrlendingar hófu mikla skothríð á átta hverfi í Tripoli þar sem menn Arafats hafast við. Studningsmaóur ArafaLs í Trípólí, grár fyrir járn- um, meó sovéska eldflaugavörpu og hríóskota- byssu. Nokkru áður en vopnahléið var rofið, spáði Arafat að svo myndi fara. Sagði hann jafnframt, að hann myndi ekki hverfa frá Trip- oli nema íbúar borgarinnar óskuðu þess, „ég er gestur hérna,“ Samkomulagi náð um „veigamikil mál“ in __u_t n (íenf, 10. nóvember. AP. FRAMKVÆMDANEFND skipuð fulltrúum hinna stríðandi fylkinga Líbanon, sem skipuð var í lok þjóð- arsáttarfundarins í Genf á dögunum, hefur náð samkomulagi um „mörg veigamikil mál“ og fulltrúarnir líta svo á að vel miði I samkomulagsátt þó enn sé hart deilt um ýmis mál- efni. Næsti leiðtogafundur hefst 21. nóvember. „Samkomulag hjá okkur þýðir ekki að samin hafi verið lög, við erum einungis framkvæmdanefnd, foringjar hvers hóps eiga eftir að leggja blessun sína yfir það sem við verðum sáttir um,“ sagði ónefndur fulltrúi kristinna manna á fundinum. Fulltrúarnir neituðu að mestu að tjá sig um hvað talað hafi verið um, en einn þeirra neitaði ekki að samkomulag hefði náðst um að múhameðstrúarmenn fengju meiri ítök og áhrif á líbanska þinginu, en áhrifaleysi þeirra þar hefur verið ein af mikilvægustu ástæðunum fyrir því að kristnir og múhameðstrúarmenn hafa ill- mögulega getað búið í sátt og sam- lyndi í landinu. Annar fulltrúi sagði að stjórnmál hefðu verið að- almál fundarins, en þjóðfélags- og efnahagsmál yrðu næst á dagskrá. í ísrael kom Yitzhak Shamir forsætisráðherra fram í sjón- varpsviðtali í gær og var óvenju- lega bjartsýnn. Sagði hann að hann sæi fram á endalok stríðsins í Líbanon og hann ætti von á því að hægt yrði að kalla ísraelska herinn burt frá landinu í mjög ná- inni framtíð. Sagði hann jafn- framt litlar líkur á stríði við Sýr- land og ísraelsmenn myndu verða síðastir til að kynda undir slíkt. Ekki færði Shamir rök fyrir máli sínu, en lét hlustendur geta í eyð- ur. sagði hann við fréttamenn. í gær bað svo Rashid Karami, fyrrum forsætisráðherra Líbanons og einn af virtustu stjórnmála- mönnum Tripoli, Yasser Arafat að hverfa frá Tripólí til þess að blóðbaðinu mætti linna. Seint í gærkvöldi fékk Arafat heimboð. Var það frá Moammar Khadafy leiðtoga Líbíu. Hvatti Khadafy Arafat til að koma og dvelja hjá sér. Hét hann Arafat fullkomnu öryggi. Khadafy hefur verið álitinn einn helsti andstæð- ingur Arafats. Líklegast er að fari Arafat nokkuð á annað borð, muni hann fara til Túnis og koma sér þar upp bækistöð. Abdel Halim Khaddam utanrík- isráðherra Sýrlands fór í gær skyndilega til Moskvu og þar tók Andrei Gromyko á móti honum. Sátu þeir langa fundi í gær, en ekki var upp gefið um hvað var rætt. Er það álit margra að Sov- étmenn séu ekki ánægðir með meðferðina á Arafat og stuðn- ingsliði hans, en þeir hafa aldrei afneitað Arafat. Sýrlendingar skutu í gær á fjór- ar bandarískar Tomcat-orrustu- þotur sem voru í eftirlitsflugi yfir miðhluta Líbanon, en hæfðu þær ekki. Frönsk þota var einnig hætt komin er skotið var á hana eid- flaug er eltist við hitaútstreymi hennar. St,óð eltingarleikur all- lengi yfir Beirút, en þotan komst undan. Einnig var skotið um hríð úr launsátri á bandarísku friðar- gæsluliðana og svöruðu þeir í sömu mynt. Manntjón varð þó ekki. sjónmáli. Stjórnvöld í Angóla hafa vísað yfirlýsingu UNITA á bug og sagt að vélarbilun hafi valdið slys- inu. Þá hafi aðeins verið tveir her- menn innanborðs, aðrir farþegar hafi verið óbreyttir borgarar. Sagði talsmaður stjórnvalda að UNITA- menn væru að nýta sér mikinn harmleik í áróðursskyni. Yasser Arafat heimsótti sjúkrahús í Trípólí í gær og heilsaöi þar upp á fólk sem særst hefur í átökunum þar síöustu dagana. Á myndinni kyssir hann hönd lítillar palestínskrar stúlku. símamynd ap. 117 desi- bela grátur Boston, 10. nóvember. AP. LÆKNIR einn í Boston, Bruce Bostrom að nafni, fékk merkilega útkomu úr könnun sem hann geröi nýverið. Sjúklingur hjá hon- um kvartaði sáran yfír heyrnar- deyfð. Var um unga konu að ræða og deyfðarköstin fékk hún yfirleitt eftir að hafa haldið á kornabarni sínu. Bostrom mældi hljómstyrk barnsins í desíbelum og kom í ljós að þegar barnið öskraði hvað hæst, mældist 100 til 117 desíbela styrkur. Var miðað við að munnur barnsins væri 15 sentimetra frá eyra móðurinn- ar, sem mun vera algengast. „Styrkurinn kom okkur geysi- lega á óvart, ég hefði varla trúað þessu að fyrra bragði," sagði Bostrom. Til samanburðar gat hann þess að hávær bílflauta í fimm metra fjarlægð næði mest 100 desíbelum. Níu myrtir í E1 Salvador Zaragoza, El Salvador. 10. nóvember. AP. BÖRN sem voru að leik í skurðgrefti skammt frá bænum Zaragoza nærri San Salvador, fundu Ifk níu manna sem numdir voru á brott með valdi á mánudag- inn. Hafði fólkið allt verið kyrkt og síðan stungið í svarta plastpoka. Meðal hinna myrtu voru tvær vanfærar konur. Enginn hópur eða hreyfing hafði lýst ábyrgð á morðunum á hendur sér í gær, en sjónarvottar að mannráninu töldu sig bera kennsl á nokkra af morðingjunum. Voru það hermenn og öryggisverðir úr röðum óbreyttra borgara. Aftökuaðferðin og viðskilnaður- inn við hina myrtu þótti benda til þess að dauðasveitir öfgasinnaðra hægri manna hafi verið að verki. Bardagar blossa upp á ný f Trípólí: ítalir bjóðast til að flytja Arafat á brott Skotið á bandarískar herþotur í fyrsta sinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.