Morgunblaðið - 11.11.1983, Page 3

Morgunblaðið - 11.11.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983 3 ■ Ástrós Gunnarsdóttir, íslandsmeistari í diskódansi, stóó sig mjög vel í heimsmeistarakeppninni í Lundúnum og hafnaði í fjórða sæti. Gott gengi íslandsmeistarans: f 4. sæti á HM í diskódansi ÁSTRÓS Gunnarsdóttir hafnaði í fjórða sæti í heimsmeistarakeppni í diskódansi, sem fram fór í Lund- únum í gær. Þátttakendur frá 36 löndum dönsuðu diskódansa af lífi og sál og varð ítaii hlutskarpastur. Undankeppni fór fram á miðviku- dag og komust 10 bestu í úrslit. Urslitakeppnin fór svo fram í gær og hafnaði Ástrós í fjórða sæti, sem áður sagði. Verðlaun voru veitt fyrir fimm efstu sæt- in. Heimsmeistarakeppni í diskódansi er haldin árlega og hafa íslenskir keppendur tekið þátt í keppninni, en hafa aldrei náð svo langt sem Ástrós. Ástrós, sem er 19 ára gömul, varð á dögunum Islandsmeistari í diskódansi og ávann sér þá rétt til þátttöku í HM í Lundúnum. Hún hefur æft dans í Dansstúd- íói Sólveigar. Kristína í úrslit módeikeppni Elite Frá Magnúsi Kagnartwyni, frétla- ritara Mbl. í New York. Kristína Haraldsdóttir, sem er aðeins 14 ára gömul, komst í úrslit módelsamkeppni, sem Elite-fyrirtækið hélt skömmu fyrir mánað- amótin. Kristína var meöal 79 stúlkna í keppninni og komust 30 þeirra í úrslit. Stúlkurn- ar 79 voru valdar úr hópi 63 þúsund stúlkna víðs vegar að úr Banda- ríkjunum. Kristína starfar í New York og því þurfti hún að taka þátt í undan- keppninni. Úrslita- keppnin fer fram í Aca- pulco í Mexíkó um miðj- an nóvember. Þar verða tvær íslenzkar stúlkur meðal þáttakenda, Kristína og Heiðdís Steinsdóttir, 'sem valin var hér fyrir skömmu. Kristína Haraldsdóttir komst í úrslit 30 stúlkna í Elite-keppninni. Núverandi stjórn Hreyfils. F.v.: Einar Magnússon formaður, Einar Geir Þor- steinsson framkvæmdastjóri, Ingimundur Ingimarsson varaformaður, Guðmund- ur Hjálmsson meðstjórnandi. Á mvndina vantar Magnús Eyjólfsson gjaldkera og Ólaf Magnússon meðstjórnanda. Samvinnufélagið Hreyfill 40 ára: Gaf 100 þúsund kr. til hjartalækninga SAMVINNUFÉLAGIÐ HREYFILL hefur nú starfað í 40 ár, en það stofnuðu 70 sjálfseignarbílstjórar í Reykjavík þann 11. nóvember 1943. Hreyfilsmenn minntust 40 ára afmælisins i gær með því að afhenda Ríkisspítölum að gjöf kr. 100.000 til styrktar hjartaskurðlækningum á íslandi. Einar Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, afhenti Davíð H. Gunnarssyni, forstjóra Ríkisspít- ala gjöfina. Þakkaði Davíð gjöfina og sagði hana ómetanlega, svo og góðan akstur Hreyfilsmanna fyrir Ríkisspítala á liðnum árum. Nú starfa á Hreyfli um 220 leigu- bílstjórar, auk 25 starfsmanna á skrifstofu, í símaþjónustu og við bensínafgreiðslu. Hafa starfshætt- ir í mörgu breyst á þeim 40 árum sem Hreyfill hefur starfað. Fyrstu 11 árin var stöðin til húsa við Arnhólstún, þar sem áður var bif- reiðastöðin Geysir, en þá festi fé- lagið kaup á Litlu bílastöðinni á Hlemmtorgi. Þar var stöðin til árs- ins 1970 þegar höfuðstöðvar Hreyf- ils voru fluttar í nýtt húsnæði fé- lagsins við Fellsmúla sem byrjað var að byggja árið 1960. Þar er einnig félagsheimili Hreyfils, en innan félagsins starfa einnig tafl- félag, bridgefélag og kvenfélag. Þá hafa ýmsar nýjungar verið teknar upp hjá Hreyfli í gegnum árin, til að mynda voru Hreyfilsmenn fyrstir til að taka upp símapósta, talstöðvar og að hafa opna af- greiðslu allan sólarhringinn. í stjórn Hreyfils sitja þeir Einar Magnússon, formaður, Einar G. Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, Ingimundur Ingimarsson, varafor- maður, Guðmundur Hjálmsson, meðstjórnandi, Magnús Eyjólfsson, ritari, og Ólafur Magnússon, með- stjórnandi. Ogri RE seldi fyrir rúmar fimm millj. kr. SKUTTOGARINN Ögri RE seldi í gær rúmar 215 lestir af karfa í Þýzkalandi fyrir rúmar 5 milljónir króna. Er það með því mesta, sem fengizt hefur fyrir einn farm í ís- lenzkum krónum. Ögri RE seldi alls 215,5 lestir í Bremerhaven. Heildarverð var 5.176.600 krónur, meðalverð 24,02. Þá seldi Fróði SH 46,8 lestir, mest þorsk í Grimsby. Heildarverð var 1.179.000 krónur, meðalverð 25,21. Eins og áður sagði er heildar- verð farmsins hjá Ögra með því mesta í íslenzkum krónum, sem fengizt hefur. Á þessu ári hefur einu sinni fengizt meira fyrir ein- stakan farm í Þýzkalandi. í síð- asta mánuði fékk Vigri RE alls 5.604.300 krónur fyrir einstakan farm og Ögri RE 5.146.000 krónur. I CAMEMBERT er einn hinna frægu frönsku hvítmyglu- osta. Mann er scrkennilegur á bragöiö og nýtur sin vel djúpsteiktur. Mér hefur hann fyrlr löngu unniö sér' sérstakan sess sem ábætisostur. Camembert-osturfnn er meö þéttum kjarna sem minnkar eftir þvf sem osturinn eldist og um leið verður bragöiö sterkara. Bragðgæöi ostsins njóta sin best sé hann látinn standa utan kælis i 1 — 2 klst. fyrir neyslu. Mangor Mikkelsen er ostameistari Camembert ostsins. Mangor hefur unniö aö iön sinni lengur en nokkur annar ostameistari hérlendis, eða frá því á 4. áratugnum og alla tíö hjá Mjólkurbúi Elóamanna á Selfossi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.