Morgunblaðið - 11.11.1983, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983
Steve og Caroel Occotegn.
Kevin Lee og Susan Cliff.
David Lee og Susan Preston.
*
Fyrsta alþjóðlega danskeppnin á Islandi:
Colin James og Lene Mikkelsen.
Úr enska blaðinu Dance News frá
28. október, þar sem sagt er frá
fyrstu alþjóðlegu danskeppninni á
Islandi.
Fjögur pör í fremstu röö áhugadansara keppa
EINS OG sagt hefur verið frá í
Morgunblaðinu verður haldin hér
á landi um næstu helgi fyrsta al-
þjóðlega danskeppnin sem hér hef-
ur verið haldinn. I»að eru Nýi
dansskólinn, Gildi hf. og enska
tímaritið Dance News, sem gang-
ast fyrir keppninni með stuðningi
Almennra líftrygginga hf. Keppt
verður í fimm suður-amerískum
dönsum: samba, jive, paso doble,
rumba og chak'ha cha og verða tvö
pör í einu á sviðinu í Súlnasalnum
á Hótel Sögu 'þar sem keppnin
verður haldin í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, og á laugardagskvöld-
ið.
Fjögur pör í fremstu röð
áhugadansara í heiminum, að
sögn þeirra sem að keppninni
standa, hafa verið fengin til að
keppa, en auk þeirra geta ís-
lenskir dansarar tekið þátt í
keppninni. Þessi pör eru: Colin
James og Lene Mikkelsen, frá
Danmörku, David Griffin og
Adele Preston, frá Englandi,
Kevin Lee og Susan Cliff, frá
Hong Kong, og Steve og Caroel
Octogen, frá Ástralíu. Sögðu
fyrirsvarsmenn keppninnar að
danska parið væri nú talið það
besta í heiminum í hópi áhuga-
dansara og öll hefðu pörin unnið
til fjölda alþjóðlegra verðlauna,
meðal annars á mótum sem hafa
verið sýnd í íslenska sjónvarpinu
á undanförnum mánuðum.
Fyrirkomulag keppninnar verð-
ur þannig að tvö pör verða í einu
á gólfinu, en gert er ráð fyrir að
keppnin standi í eina til eina og
hálfa klukkustund.
Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Rauða kross íslands, og Jón Hólm, sem nýkominn er frá Súdan, skýra frá
framkvæmd Afríkuhjálparinnar.
Afríkuhjálp Rauða kross íslands lokið:
Þróunarstarf í Mið-
Ameríku að hefjast
íslandsdeild Rauða krossins,
RKÍ, er nú, í samvinnu við Norður-
landadeildir Rauða krossins, að
hefja þróunarstarf í Mið-Ameríku.
Kn nú er lokið stærsta verkefni RKÍ
til þessa, Afríkuhjálpinni sem hófst
árið 1980 með mikilli landssöfnun. Á
blaðamannafundi sem nýlega var
haldinn skýrði Jón Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins hér-
lendis, frá ráðstöfun söfnunarfjárins
sem nam um kr. 8.221.000,00 á nú-
gildandi gengi.
Afríkuhjálpin skiptist í þrjá
hluta. Var kr. 3.375.400 varið til
neyðarhjálpar í Uganda, Sómalíu,
Zimbabwe og Kenya á árunum
1980 og 1981. Annar hluti fór í
þróunaraðstoð í Austur-Afríku,
þ.e. þjálfun hjálparliðs í Súdan
1981, þróunaraðstoðar í Eþíópíu
1982 og í önnur verkefni á þessu
ári. Nam sú upphæð alls kr.
2.249.150. Þriðja hluta söfnunar-
fjárins var síðan varið til ráðn-
inga og launa starfsmanna, en á
Ólafsvík:
JC-fundur um neytendamál
Olafsvík, 9. nóvemher.
JC-FÉLAGAR í Ólafsvík gengust ný-
lega fjrir fundi hér um neytenda-
mál. Á fundinum komu og héldu
framsöguræður Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtak-
anna, og Jón Magnússon, varafor-
maður þeirra.
Miklar og fjörugar umræður
urðu og margar upplýsingar komu
fram um rétt neytenda og neyt-
endamál yfirleitt. í JC-félaginu í
Ólafsvík eru 25—30 félagar og
starfar félagið af krafti og stór-
hug.
Nú þegar er búið að ákveða
mörg verkefni næsta fyrir starfs-
ár. Núverandi forseti JC í Ólafsvik
er Ingveldur Björgvinsdóttir.
HelRÍ
þessum þremur árum fóru átta
manns á vegum RKÍ til Afríku.
Lengst þar af dvaldi Jón Hólm í
Súdan.
Þróunarstarfið í Mið-Ameríku
felur í sér neyðarvarnir og blóð-
gjafastarf. Er áætlun fyrir fyrsta
hluta starfsins tilbúin, en hann
nær til ársloka 1984. Kostnaður er
áætlaður 559.160.00 Bandaríkja-
dalir og kemur í hlut RKÍ að
greiða 6000 dali af þeirri upphæð.
Rauði kross Finnlands stjórnar
þróunarstarfinu í Mið-Ameríku
fyrsta árið.
Brýnasta verkefnið er uppbygg-
ing neyðarvarna í E1 Salvador og
er ráðgert að reisa sex hjálpar-
stöðvar á helstu átakasvæðunum í
fyrsta hluta verkefnisins. Þá er
fimm ára áætlun fyrir Honduras
sem felur í sér bæði uppbyggingu
Rauða krossins þar og uppbygg-
ingu neyðarvarnakerfis, m.a.
vegna hins mikla flóttamanna-
vandamáls sem þar ríkir. Þriðji
liðurinn er síðan blóðgjafastarf í
öllum ríkjum Mið-Ameríku, þ.e. í
E1 Salvador, Guatemala, Hondur-
as, Nicaragua og Panama.
Uppboð á stóðhestastöðinni:
Fjórir folar stöðv-
arinnar boðnir upp
— hrossabændur úr nágrenninu koma með
fola sem boðnir verða upp
Á laugardaginn næstkomandi verður haldið á Stóðhestastöðinni í Gunn-
arsholti árlegt uppboð á folum sem ekki þykja æskilegir til undaneldis. Að
þessu sinni verða fjórir folar frá stöðinni boðnir upp en auk þess verða
nokkrir folar frá bæjum í Rangárvallasýslu boðnir upp.
Uppboð þessi hafa ávallt verið
vinsæl og fjöldi manns mætt á
staðinn. Folarnir sem boðnir
verða upp eru á aldrinum tveggja
til fimm vetra, sá fimm vetra er
Torfi frá Torfastöðum, faðir er
Sörli 653 og móðir Tíbrá frá
Ólafsvöllum. Hinir eru Forkur frá
Fornustekkum, tveggja vetra, fað-
ir Faxi frá Árnanesi og móðir
Nótt frá Fornustekkum. Léttir frá
Djúpadal, Skagafirði, tveggja
vetra, faðir Freyr 881 frá Flugu-
mýri og móðir Fluga frá Djúpadal.
Sá fjórði er einnig tveggja vetra
og heitir Grímar frá Grímstungu,
hann er undan Háfeta 804 frá
Krossanesi og Mósu frá Gríms-
tungu, en hún er undan Héðni frá
Vatnagörðum.
Nokkrir hrossabændur í ná-
grenni stöðvarinnar munu koma
með fola sem boðnir verða upp.
Albert Jónsson, Stóra-Hofi, kem-
ur með tvo fola þriggja og fjög-
urra vetra. Sá eldri er frá Litla-
Dal í Eyjafirði og unda Ringo frá
Ásgeirsbrekku en sá yngri er frá
Litlu-Tungu, stór og myndarlegur
að sögn. Báðir eru folarnir band-
vanir. Guðni í Skarði sagði í sam-
tali að sennilega kæmi hann með
tvo fola og væri annar þeirra und-
an Gáska frá Hofsstöðum. Einnig
hafði komið til tals að Sigurður í
Kirkjubæ kæmi með eitthvað en
ekki var það endanlega ákveðið
þegar þetta er skrifað.
Basar á Hallveigarstöðum
KVENFÉLAG Fríkirkjunnar heldur jólahasar á Hallveigarstöðum (við
Túngötu), laugardaginn 12. nóvember og hefst hann kl. 14. Aðallega verða á
boðstólum ýmiss konar handunnir munir, jólakort, jólastjörnur o.fl. Þá
verður einnig seldur jólapappír, útsaumur og postulínsvasar, með mynd
Baltasars af kirkjunni, sem framleiddir voru 1 tilefni af 80 ára afmæli
hcnnar. Lukkupakkar verða seldir og að endingu verður efnt til happdrættis.
Tekið verður á móti gjöfum á basarinn, á Hallveigarstöðum, föstu-
daginn 11. nóvember og er hvaðeina vel þegið frá safnaðarfólkinu,
velunnurum kirkjunnar og öllum, sem vilja koma stuðningi á framfæri.
(Úr rréttatilkynningu)