Morgunblaðið - 12.11.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
3
Skreiðarsalan til Nígeríu:
Morgunblaðið/KÖE
Sigurvegarar danskeppninnar á fimmtudagskvöldið, danska parið Colin
James og Lene Mikkelsen.
Alþjóðlega danskeppnin á Sögu:
Danska parið sigraði
— önnur keppni í kvöld
FYRSTA aiþjóðlega danskeppnin sem haldin hefur verið hér á landi fór
fram á Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Fjögur pör í fremstu röð
áhugadansara í heiminum kepptu í fimm suður-amerískum dönskum:
samba, jive, paso doble, rumba og cha-cha-cha.
Danska parið, Colin James og var á Sögu og var dönsurunum
Lene Mikkelsen, unnu keppnina, óspart klappað lof í lófa.
en þau voru fyrirfram álitin sig- Önnur samskonar keppni með
urstranglegust. í öðru sæti varð sömu þátttakendum fer fram í
breska parið David Griffin og Súlnasal Hótel Sögu í kvöld. Tvö
Adele Preston, en par frá Hong pör verða á gólfinu í einu og er
Kong, Kevin Lee og Susan Cliff, búist við að keppnin standi í eina
hafnaði í þriðja sæti. Húsfyllir til eina og háifa klukkustund.
Kristján Jóhannsson
framkvæmdastjóri AB
STJORN Almenna bókafélagsins
samþykkti á fundi í gær að ráða
Kristján Jóhannsson framkvæmda-
stjóra AB frá og með 1. janúar nk.
Kristján tekur þá við starfi Brynjólfs
Bjarnasonar, sem ráðinn hefur ver-
ið framkvæmdastjóri Bæjarútgerð-
ar Reykjavíkur. Brynjólfur hefur
verið framkvæmdastjóri AB frá
aprfi 1976.
Kristján Jóhannson er fæddur
i Reykjavík 4. janúar 1951. Lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskóla
íslands 1972. HA-prófi í hag-
fræði frá Viðskiptaháskólanum í
Kaupmannahöfn 1978 og cand.
merc. prófi frá sama skóla 1981.
Starfaði með námi hjá Dan-
marks Statistik og Privatbanken
í Kaupmannahöfn. Hagfræðing-
ur Félags íslenskra iðnrekenda
frá 1981. Kennari í rekstrar-
hagfræði við viðskiptadeild Há-
skóla íslands og á fjármálanám-
skeiðum Stjórnunarfélags ís-
lands frá 1982. Á sæti í stjórn
Félags Viðskiptafræðinga og
Kristján Jóhannsson
hagfræðinga, sem formaður
fræðslunefndar. Kvæntur Ingi-
björgu Sigurðardóttur, meina-
tækni. Eiga þau tvö börn.
Talið að afslátturinn
fjármagni leyfiskaup
— segir Ólafur Björnsson, stjórnarformaður Skreiðarsamlagsins
„ÉG HELD að þau leyfi, sem veitt hafa verið fyrir innflutningi á skreið til
Nígeríu, hefðu öll verið notuð burtséð frá afslætti. Stjórnvöld í Nígeríu hafa sett
hámarksverð á innflutta skreið, en markaðsverð þar er nánast frjálst. Því hafi
hvorki verið þörf á því að gefa afslátt né lækka verð. Þetta sýnir einfaldlega að
skreiðarsalan er bezt komin á sem fæstum höndum," sagði Ólafur Björnsson,
stjórnarformaður Skreiðarsamlagsins, er Morgunblaðið innti hann álits á full-
yrðingum nígerska skreiðarkaupmannsins Koiki um það, að afsláttur á skreið
kæmi ekki fram í Nígeríu og nær hefði verið að lækka verðið opinberlega en
gefa afsláttinn. Það hefði fremur aukið skreiðarkaup Nígeríumanna.
„Afslátturinn hefur hins vegar
ráðið mestum um, hver hefur náð
sölu hverju sinni. Hefði skreiðin
verið hér öll á hendi einna heildar-
samtaka eða tveggja, held ég að af-
sláttur hefði orðið lítill sem enginn.
Slík samtök myndu einnig vera í
aðstöðu til þess að leita samstöðu
við Norðmenn, en Noregur er nán-
ast eina landið, sem keppir við
okkur á þessum markaði. Mér er
ekki kunnugt um það hvort afslátt-
urinn kemur fram á vörureikningi
eða ekki, en væntanlega veit Koiki
hvernig þessum málum er háttað,
þar sem hann hefur keypt mikið af
skreið sjálfur.
Markaðslega séð held ég að engin
þörf hefði verið á því að lækka verð
á skreið, það er umfram eftirspurn
eftir skreið enda staðfestir Koiki að
afslátturinn hafi ekki komið fram í
markaðsverði. Ég veit ekki fyrir
víst til hvers afslátturinn hefur
verið notaður, en talað er um að
hann sé notaður til að kaupa inn-
flutningsleyfi. Sé það rétt, sýnist
mér að eins og afslátturinn hefur
ráðið mestu um það hver hafi selt
hverju sinni, hefur hann einnig ráð-
ið því, hverjir hafi endanlega náð
leyfunum, hafi verið uppboð á þeim
og hefur þá afslátturinn væntan-
lega hækkað verð leyfanna, en ekki
haft neitt að segja til um endanlegt
markaðsverð.
Við höfum rekið okkur á það einu
sinni enn, að þetta frjálsræði í út-
flutningi er algjörlega út í hött og
eingöngu til þess að að skaða selj-
endur alveg eins og það væntanlega
verður til þess, að bæta hag kaup-
enda, eða þeirra, sem verzla fyrir
þá.
Við getum tekið dæmið um
eggjaeinokunina hér, sem er til þess
að tryggja hag framleiðenda sem
heildar en þar með að ganga á hag
kaupenda. I þessu tilfelli eigum við
sem mesta hagsmuni í því að kom-
ast sem lengst með kaupendurna,"
sagði Ólafur Björnsson.
DAIHATSU 850
háþekjusendibíll
Nýr og frábær valkostur fyrir þá sem þurfa lítinn, sparneytinn en
rúmgóöan sendibíl vegna eigin atvinnureksturs eöa annarra nota.
Verð aðeins kr. 199.800,- með öllu
Þetta er DAIHATSU 850
3 heleðsludyr
3 strokka 850cc 41 hö din vél
(hin frábæra DAIHATSU CHARADE vél
í nýrri útfærslu)
Eigin þyngd 740 kg
Burðarþol 680 kg
12“ hjólbarðar
Snúningsradíus 4,0 m
Lengd 3,20 m
Breidd 1,40 m
Hæð 1,90 m
Hæð undir lægsta punkt 17,5 cm
Til afgreióslu
strax
Viöurkennd gæði, viðurkennd þjónusta.
DAIHATSU-umboðió,
Ármúla 23, 85870 — 81733.