Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 Veljum íslenskt Veljum íslenskt Kaupið beint af framleiðanda Sedrus - húsgögn Súdavogi 32 - Sími 30585 & 84047 Úrval af íslenskum bólstruðum húsgögnum á hag- stæöu veröi, meö hagkvæmum greiöslukjörum. Dæmi: 25% út og rest á 6—8 mánuöum eöa umtals- veröur staögreiösluafsláttur. Svo er þaö okkar sérgrein: Viö tökum notuö sett upp í ný, ef um semst. Opiö laugardag til kl. 4 og sunnudag 1—4. Notið tækifærið meðan birgöir endast. Pólland: Andstaða gegn yerðhækkunum Varajá, II. nóvember. AP. YFIRVÖLD í Póllandi hafa loks hafið umræður, sem fyrir löngu hafði verið lofað, um fyrirhugaðar verðhækkanir á matvöru í byrjun næsta árs. Var talið, að nauðsynja- vörur myndu hækka um 20 af hundraði að meðaltali. Ekki er hins vegar enn vitað á hvern hátt yfir- völd hyggjast bregðast við and- stöðu almennings gegn þessum verðhækkunum. Að því er best er vitað munu málgögn stjórnvalda víðs vegar um landið greina frá hækkunum á þremur vöruflokkum, annaðhvort á morgun eða á mánudag. Leiðtog- um hinna nýju verkalýðsfélaga stjórnvalda voru kynntar tillögur um þessar verðhækkanir á fimmtudag, en viðbrögð þeirra eru ekki kunn. Aðeins 3,3 milljónir þeirra, sem voru innan vébanda Samstöðu, eru í hinum nýju verkalýðsfélögum. Þeir leiðtogar Samstöðu, sem enn hafast við í felum, hafa á hinn bóginn hvatt verkafólk til þess að efna til skipulegra skæruverkfalla á vinnustöðum verði ekki hætt við fyrirhugaðar hækkanir. Jaruzelski, leiðtogi Póliands, hitti í gær ritara miðstjórnar sov- éska kommúnistaflokksins, Konst- antin Rusakov, að máli í Varsjá. Jafn háttsettur embættismaður Sovétstjórnarinnar og Rusakov hefur ekki heimsótt Pólland í meira en tvö ár. Ekkert var vitað um komu Rus- akov til Póllands fyrr en birtar voru myndir og fréttir af fundi hans og Jaruzelski í dag. Að sögn blaða ræddu þeir um ástandið í Póllandi. Lítið hefur verið minnst á Pólland í sovéskum fjölmiðlum að undanförnu, en vitað er til þess að þarlendir ráðamenn eru ekki fyllilega sáttir við vinnubrögð kollega þeirra hinu megin landa- mæranna. Afsögn Reiners tilkynnt Kins og frá var greint í fréttum í gær, var Ove Reiner, fyrrum dómsmálaráðherra Svíþjóðar skipaður í embætti hæstaréttardómara í fyrradag, en aðeins 25 slíkir eru í landinu. Reiner neyddist til að segja af sér vegna umtals í fjölmiölum um skattamál hans. Mynd þessi var tekin er Olof Palme, forsætisráðherra, tilkynnti að Reiner hefði sagt af sér og gat Reiner ekki stillt sig. Felldi hann nokkur tár er Palme lýsti málavöxtum. Aukum velmegun í landinu og kaupum íslenskt. Kristniboðs- dagurinn 1983 Eins og undanfarin ár verður annar sunnudagur í nóvember (13. nóvember) sérslaklega helgaður kristinboðinu og þess minnst í ýmsum kirkjum og á samkomum á morgun. Á eftirfar- andi samkomum viljum viö vekja athygli: Akranes: Kristniboðssamkoma í húsi KFUM og K kl. 8.30 e.h. Jó- hannes Tómasson og Sigurjón Gunnarsson tala. Akureyri: Kristniboössamkoma í kristniboðshúsinu Zíon kl. 8.30 e.h. Arni Sigurjónsson talar. Einsöngur. Hafnarfjörður: Kristniboössamkoma í húsi KFUM og K við Hverfisgötu kl. 8.30 e.h. Benedikt Arnkelsson talar. Reykjavik: Kristniboðssamkoma í húsi KFUM og K við Amtmannstíg kl. 8.30 e.h. Skúli Svavarsson talar. Æskulýðskór KFUM og K syngur. A ofangreindum stöðum og eins og áður sagði í ýmsum kirkjum landsins veröur íslenzka kristniboðsstarfsins minnst og gjöfum til þess veitt móttaka. Kristniboösvinum og velunnurum eru færðar beztu þakkir fyrir trúfesti og stuðning við kristniboöiö á liðnum árum og því treyst, aö liðsinni þeirra bregöist eigi heldur nu Samband íslenzkra kristniboðsfélaga. Aðalskrifstofa Amtmannsstíg 2B. Pósthólf 651. Gíróreikningur 65100-1. Reykjavík. Afvopnunarviðræður 35 landa: Möltumenn tefja undirbúningsfund lleLsinki, II. nóvember. AP. FULLTRIII Möltu á undirbún- ingsfundi 35 þjóða fyrir afvopnun- arviðræður sömu þjóða, hefur taf- ið fyrir því að undirbúningi Ijúki, en afvopnunarfundurinn hefst í Stokkhólmi 17. janúar næstkom- andi. Fulltrúi Möltu krefst þess að þau Miðjarðarhafslönd sem ekki eru í hópi landanna 35, fái tæki- færi til að tala máli sínu á fundin- um. Þessu hafa aðrir fulltrúar ekki viljað una og óvíst er hver nióurstaða verður. Fulltrúi Möltu hefur þegar neit- að með öllu að ganga að einni málamiðlun og hinir fulltrúarnir sitja í mörgum hornum í smáhóp- um og ræða með sér möguleika á sáttum. Fundinum í Helsinki átti að ljúka í gær, en nú er óvíst hve- nær honum lýkur, því samþykkja verður einróma ályktun og undir- FELIPE Gonzales, forsætisráðherra Spánar, kom í gær í opinbera heim- sókn til Portúgals. Hófust fundahnld strax með Mario Soares. forsætis- ráðherra Portúgals, og verður þeim fram haldið í dag. Með spænska forsætisráðherr- anum í förum eru fjórir af ráð- búning fundarins fyrir aðalfund- inn í Stokkhólmi. Malta og Kýpur eru einu Miðjarðarhafslöndin fyrir utan meginland Evrópu, sem sæti eiga á fundinum. Ef gengið ÖRYGGISRAÐ tyrkneska hersins hefur framlengt herlögum í landinu um fjóra mánuði, aðeins fjórum dögum eftir fyrstu kosningarnar í landinu síðan árið 1977. herrum hans og munu þeir allir ræða við portúgalska starfsbræð- ur sína. í dag mun Gonzales ávarpa portúgalska þingið. Við komuna til Lissabon sagði Gonzal- es að erindið væri að efla enn náin tengsl þjóðanna. verður að kröfu Möltumanna, munu lönd á borð við Líbíu eiga rétt á fulltrúa. Er lítil hrifning meðal margra Evrópulandanna á þeim möguleika. Herlög voru sett í stærstu borgum landsins í desember 1979, er 111 manns týndu lífi í óeirðum. í september 1980, er Kenan Evr- en hershöfðingi tók völdin í land- inu, var Tyrkland allt síðan hneppt í herlögin. Hið nýkjörna þing mun koma saman 19. nóv- ember og þá verður skorið úr hvort herlagaframlenging örygg- isráðsins verði haldin eða numin úr gildi. Búist er við því að Turg- ut Ozal, formaður Föðurlands- flokksins, sem vann stórsigur í kosningunum, fái í hendurnar umboð til stjórnarmyndunar í næstu viku. Öryggisráðið mun starfa áfram sem nokkurs konar eftirlitssveit. Gonzales til Portúgals I.Lssabon, II. nóvember. AP. Tyrkland: Herlög framlengd um fjóra mánuði Ankara, 11. nóvember. AP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.