Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 5 Síldarsöltun lauk í gær: 25.000 tunnur salt- aðar á fimmtudag 34.000 lestir komnar á land SÍLDARSÖLTUN lauk í gær og hefur þá verið saltað upp í alla gerða samn- inga alls um 210.000 tunnur. Örlítið mun þó eftir að salta af flökum. Sam- svarar þetta tæpum 30.000 lestum sfldar upp úr sjó, en alls gætu veiðzt tæplega 60.000 lestir á vertíðinni. Ekki hafa tekizt samningar um frek- ari sölu á saltsfld. Á fimmtudag höfðu alls veiðzt um 34.000 lestir. Lítil veiði var í gær og helgarleyfi framundan. Söltunin náði hámarki á fimmtu- dag en þá voru saltaðar um 25.000 tunnur. Ekki hefur verið saltað meira á einum sólarhring síðan síldarsöltun hófst að nýju 1975. Söltun var einnig mikil fyrri hluta vikunnar og undir lok hennar var saltað allt frá Siglufirði réttsælis um landið til Akraness. Að sögn Gunnars Flóvenz, fram- kvæmdastjóra Síldarútvegsnefnd- ar, hefur mikið verið unnið að því að ná frekari sölusamningum, þrátt Hætt við að selja Hafþór? SVO virðist sem afturkippur sé kom- inn í sölu Hafþórs, sem nýlega var auglýstur til sölu og sagði Jón L. Arn- alds, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs- ráðuneytinu, að ráðuneytið væri nú að meta það hvort rétt væri að bæta við fiskiskipaflotann eins og málum væri nú háttað, með tilliti til ástands þorskstofnsins. Ekki sagði Jón að tekin hefði ver- ið ákvörðun í máli þessu, en því hefði verið seinkað og hugsanlegt væri að hætt yrði við sölu Hafþórs, vegna ástands mála. Ekki sagði hann ljóst hvenær ákvörðun lægi fyrir um í hvorn fótinn yrði stigið. Ef ákveðið væri að halda sig við fyrri ákvörðun og selja Hafþór, þyrfti að fara í viðræður við alla tilboðsgjafa, en eins og kunngt er buðu nokkur fyrirtæki í skipið. Einnig sagði Jón hugsanlegt að sölu skipsins yrði reynt að tengja við það að annað skip væri tekið úr um- ferð. ’HVflR ER SULIRROLIN MIN.KONH?" Raufarhöfn: Loðnubræðsla hefst um hádegi UM 2.500 lestir af loónu hafa nú bor izt á land á Raufarhöfn á yfirstand andi vertíð. Raufarhöfn er enn sem komið er eini staðurinn þar sem loðnu hefur verið landað og mun bræðsla hefjast um hádegisbilið í dag. Fyrstu skipin til að landa loðnu á vertíðinni voru Hrafn GK og Súlan, en í gær lönduðu þrjú skip til við- bótar á Raufarhöfn; Hákon ÞH með 820 lestir, Albert GK með 600 og Kap II VE með 520, samkvæmt upp- lýsingum Loðnunefndar. Að sögn fréttaritara Morgun- blaðsins á Raufarhöfn sögðu sjó- menn talsvert af loðnu út af Langa- nesi og virtist hún á leið austur. Erfitt væri að ná henni vegna þess hve djúpt hún stæði, niður fyrir 100 faðma í björtu en á um 40 föðmum í myrkri. Auk þess væri hún fremur stygg. Sjómenn urðu varir við tals- verðar lóðningar á leið sinni af mið- unum inn til Raufarhafnar. Loðnan sem veiðzt hefur er mjög blönduð og hefur enn ekki verið fitumæld. Afkastageta fiskimjölsverk- smiðjunnar á Raufarhöfn er 600 til 700 lestir á sólarhring og geymslu- rými í tönkum 8.000 til 10.000 lestir auk rýmis í þróm. Happdrætti Sjálfstæðisflokksins: Dregid í kvöld f kvöld verður dregið í Haust- happdrætti Sjálfstæðisflokksins og eru því í dag síðustu forvöð að tryKKÍa sér miða í happdrættinu. Vinningar eru stórglæsilegir, fullbúinn sumarbústaður, svo og tíu myndarlegar vöruúttektir. Hin fjölþætta og þróttmikla starfsemi Sjálfstæðisflokksins þarfnast og nýtur góðs af ávinn- ingi happdrættisins og því eru þeir, sem enn eiga ógerð skil á heimsendum happdrættismið- um, beðnir að gera það í dag. Afgreiðsla happdrættisins í Reykjavík er í Valhöll, Háaleit- isbraut 1 — síminn er 82900 — og verður hún opin í dag fram að kveldi. Þeir, sem ekki eiga heimangengt, eiga kost á að greiðsla á miðum verði sótt til þeirra, óski þeir þess. (FrétUtilkynning) fyrir að þegar hafi tekizt að ná samningum um óvenju mikið magn. Gunnar sagði ennfremur, að hér á landi væri meira saltað af síld en I nokkru öðru framleiðslulandi. Mjög erfitt væri um þessar mundir að selja saltsíld á hinum ýmsu mörk- uðum. Sem dæmi mætti nefna, að Norðmenn ættu mjög erfitt með að selja hana. Þeir hefðu nú veitt um 35.000 lestir af Norðursjávarsíld, en aðeins saltað innan við 1.000 lestir, sem væri innan við 3% aflans. Þeir hefðu fryst um 13.000 lestir og brætt um 8.000. Mest af því, sem á milli bæri hefðu þeir selt ferskt um borð í verksmiðjuskip frá Austur- Evrópu. Aflinn, sem kominn er á land, skiptist þannig milli veiðarfæra; hringnót 22.000 lestir, reknet 11.000 og lagnet 1.000. I nótina má veiða 34.500 lestir, 16.500 í reknetin og 1.500 í lagnetin. Til viðbótar þessu getur svo komið nokkur aukning vegna verðmætamarks og viðbótar- aflamarks vegna löndunar síldar til frystingar. lurju Morgunblaftið/ól.K.M. Örlygur Kristfinnsson með sýningu sína í farteskinu. • • Orlygur Kristfinnsson opnar sýningu: Manneskjur og fuglar leita á mig — segir listamaðurinn Myndmenntakennari frá Siglu- firði, Örlygur Kristfínnsson, opnar sýningu á 22 olíumálverkum sínum í Gallerí Langbrók klukkan tvö í dag, laugardag. Örlygur hefur áður haldið þrjár einkasýningar á Siglu- fírði og tekið þátt i þremur sam- sýningum á Norðurlandi. „Þetta eru fremur smáar myndir,“ sagði Örlygur, „mest af manneskjum og fuglum. Ég mála beint á dúkinn án umhugs- unar eða undirbúnings og það er eins og manneskjurnar og fugl- arnir leiti sífellt á mig, hvað sem veldur." Sýningin stendur til 27. nóv- ember og er opin á virkum dög- um frá 12 til 18 og um helgar frá 14 til 18. Allar myndirnar eru til sölu. KOMDU KRÖKKUNUM Á OVART! Faróu til þeirru umjólin Mömmur, pabbar, systur, bræður, afar, ömmur, frændur, frænkur, synir, dætur og vinir geta nú brugðið undir sig betri fætinum og farið sjálf með jólapakkana og hangikjötið til útlanda. Ástæðan er auðvitað hin hagstæðu jólafargjöld sem Flug- leiðir bjóða til Norðurlandanna. Fargjöld báðar leiðir eru sem hér segir: Kaupmannahöfn kr. 8.430.00 Osló kr. 7.688.00 Stokkhólmur kr. 9.611.00 Að auki er í boði sérstök jólaferð til Gautaborgar. Bjóðum við einnig jólafargjald til Gautaborgar í þessa ferð kr. 8.333.00. Brottför frá Reykjavík er 21. des. og heimkoma 8. janúar. Barnaafsláttur er 50%. Fargjöldin taka gildi 1. des. Upplýsingar um skilmála og ferðamöguleika veita söluskrif- stofur Flugleiða , umboðsmenn og ferðaskrifstofurnar. FLUGLEIDIR Gott fólk hjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.