Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 35 Edda Jónsdóttir vid tvœr Hringrásarmyndir sínar, vinstra megin er framhlió- in, en bakhliðin hægra megin. Edda Jónsdóttir: Manneskjan sem skotskífa lífsins Edda Jónsdottir á sex myndir á sýningunni, Hringrás nefnir hún þær, fra eitt til sex, og eni þetta ætingar unnar á zinkplötur. Þessar myndir eru annar helmingurinn af myndröð sem Edda hefur unnið og verða allar myndirnar tólf sýndar á íslenskum menningardögum í Berlín og Bonn seinni part mánaðarins, ásamt verkum fimm annarra grafíklistamanna. „Þessar sex myndir í Norræna húsinu eru framhliðin á plötum sem ég vinn báðum megin,“ út- skýrir Edda. „Hringformið er alls- ráðandi, eins og nöfn myndanna gefa til kynna, og þessi framhlið getur verið manneskjan sem skotskífa lífsins, eða hringhugsun konunnar og listamannsins. Relíf- ið, eða það sem er upphleypt í myndunum, er það sem maður gefur frá sér eða verður fyrir. Hinn hluti myndraðarinnar, sá sem ekki er hér á sýningunni, er bakhliðin á tilverunni, sem ekki er eins ljós og ekki eins fínpússuð. Ég nota bakhliðina af sömu plötun- um, relífið er orðið innhverft og í stað mynda eru rispur, minniskrot og annað sem komið hafði á plöt- una á meðan ég var að vinna framhliðina. Framhliðin er þannig unnin, að ég tók fyrst ljósmyndir af sjálfri mér, raðaði þeim saman og bjó til eins konar klippimynd, sem síðan er yfirfærð með ljósmyndatækni á zinkplötu. Relífið er til komið i framhaldi af vinnu minni með blindraletur, sem ég byrjaði að nota í myndum mínum árið 1979. Annars held ég að ekki borgi sig að segja meira um myndirnar, áhorfandinn verður að hafa eitthvað eftir fyrir eigið ímyndun- arafl," sagði Edda að lokum. KjarUn Guðjónsson á heimili sínu. Kjartan Guðjónsson: Grafíkin aukageta „GRAFÍKIN hjá mér er eiginlega aukageta. Ég byrjaði fyrst á þessu 1978, en hafði þá lengst af stundað málverkið. Þessar myndir mínar á sýningunni eru hluti af myndröð sem ég kalla „Reykjavík“, svona nokkurs konar Vestur- bæjarrómantík,“ sagði Kjartan Guðjónsson kennari við Myndlista- og hand- íðaskóla íslands um langt árabil, en Kjartan á sjö dúkristur á sýningunni. „Dúkristan er sennilega tækni- lega einfaldasta grafíkformið og hana þekkja flestir af eigin reynslu úr barnaskóla. Það er skorið með sérstöku járni í dúk, valsað á prentsvertunni og þá verða skurðlínurnar eftir hvítar. Myndin verður því negatíf, ef svo má segja.“ — Skera menn fríhendis í dúk- inn, eða er teiknað fyrst? „Það er sjálfsagt einstaklings- bundið. Sjálfur teikna ég mikið áður en ég tek til við að skera. Mér finnst ég verða að vera klár á því fyrirfram í stórum dráttum hvað ég ætla að gera. Og svo verður að gæta að því að það er lítið hægt að leiðrétta, eða breyta sjálfum skurðinum. Það er því mikilvægt að hafa skýra hugmynd um það fyrirfram hvernig myndin á að verða.“ — Ertu lengi með eina dúk- ristu? „Ég er þrjá til fjóra daga að skera, en þá er eftir að þrykkja, sem getur verið mikið verk ef tæknin er ekki fullkomin. Fyrst í stað notaði ég matskeið og það er ansi seinlegt. En nú hef ég eignast pressu, sem átti að fara í brota- járn, og það er mikill munur." Kristniboðsvika á Akureyri Akureyri, 11. nÓTember. ÞESSA viku hefur staðið yfir kristniboðsvika á Akureyri á veg- um KFUM, KFUK og kristniboðs- félaganna. Samkomur hafa verið haldnar daglega og verður svo fram til sunnudags, sem er kristniboðsdagur íslensku Þjóð- kirkjunnar, en þá lýkur kristni- boðsvikunni. Samkomur þessar eru haldnar í Kristniboðshúsinu Zion og er þar auk ræðumanna boðið upp á mikinn almennan söng, einsöng og tvísöng. Sam- komurnar hefjast kl. 20.30. GBerg. © <I> © (9) o © Ö Ö Zffi ( Z7 Evolux kastarar og kastarabrautir í miklu úrvali. Einnig nýkomin loftljós, borðlampar og fleira. Opiö í dag frá kl. 10—16. Mlf Sýning sunnudag frá ki. 13—17. SÍÐUMÚLA 21 (GENGIÐ INN FRÁ SELMÚLA) SÍMAR: 84019 - 38191 Fyrívtiyggja í feröamálum Þú getur byrjaö strax í SLferöaveltunni SL-ferðaveltan gerir (arþegum okkar kleltt að búa nú þegar í haginn (yrir nœsta sumar, safna á auðveldan hátl álitlegum larareyri og skapa sér þannig ánœgjulegt sumarleyli. laust við hvimleið- ar (járhagsáhyggjur SL-ferðaveltunni svipar til venjulegrar spariveltu. - nema í einu grundvallaratriði - sem einmitt gerir gœtumuninn. Líkt og í spariveltunni legsrur þú mánaðarlega inn ákveðna upphœð á Ferðaveltureikning í Samvinnu- bankanum og fœrð upphœðina síðan endurgreidda í einu lagi að 3ja til 10 mánaða sparnaði loknum, asamt láni fra bankanum jafnháu sparnaðarupphœð- inní. Þú hefur þannig tvófalda upphœð til ráðstöfunar að ógleymdum vöxtunum. Sérstaða SL-ferðaveltunnar er siðan fólgin 1 þvi að þu greiðir lanið á 5-12 mánuðum, 2 mánuðum lengri tima en venja er til. Samvinnuferðir-Landsýn fjármagnar framlengingu endurgreiðslu tímans, hver greiðsla verður léttari og sumarleylið greiðist upp an fyrirhafnar Þökk sé SL-ferðarveltunni og fyrirhyggju þinnl. Þú þarft ekki að hugsa þig tvisvar um, -tryggðu þér tvöfaldan ferðasjóð strax. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTR/ETI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 SL-ferðavelta Sparnaðar- timabil Manaðarlegur sparnaður Sparnaður í loktímabils Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfá með vöxtum Mánaðarleg endurgreiðsla Endurgreiðslu- tfmi 3 mánuðir 2 000,00 4.000,00 6.000,00 6.000,00 12.000.00 18.000,00 6000,00 12 000,00 18.000,00 12.004,00 24.216,00 36.428,00 1.333,30 2.646,60 3.960,00 5 mánuðir ö mánuðir 2 000,00 4 000,00 6.000.00 12.000.00 24.000,00 36.000,00 12.000,00 24 00000 36 000,00 24W41.00 49.690,00 74.639,00 1 **5,60 3.451.30 5.166.90 8 mánuðir 8 mánuðir 2.000,00 4 000,00 6.000,00 16.000,00 32.000,00 48 000,00 16.000,00 32000,00 48.000,00 33.524,00 67 256.00 100.988,00 1 908,90 3.787,70 5.671,60 10 mánuðir 10 mánuðir 2.000.00 4.000,00 6.000.00 20.000.00 40 000,00 60 000.00 20.000.00 40.000,00 60.000,00 42 540,30 85.288,70 128.037.00 2.039,50 4.059,00 6.078,50 12 mánuðir Gert er rað fyrir 35% innlansvöxtum og 37.024% utlánsvöxtum og lántökukostnaöi (stimpil-. lantöku- og greiðslugjaldi). Vaxtakjör eru háð ákvörðun Seðlabankans. Framangreind vaxtakjör gilda frá 21.9. 1983.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.