Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 13 Fræðsluþættir frá Geðhjálp: Geðræn vandamál - hlut- verk heimilislækna Andlegt álag og vandamál eru mjög algeng í nútíma þjóðfélagi. Telja má víst að flestir einstakl- ingar verði einu sinni eða oftar fyrir einhverju andlegu áfalli á lífsleiðinni. í yfirgnæfandi tilvika er hér ekki um sjúklegt ástand að ræða eða svokallaða geðsjúkdóma. Fólki tekst í flestum tilvikum að komast út úr þessari kreppu af eigin rammleik eða með hjálp vina, ættingja eða kunningja. 1 einstaka tilvikum geta þó vanda- mál hrúgast svo upp, að viðkom- andi treystir sér ekki til að leysa úr þeim sjálfur eða með aðstoð sinna nánustu. Þá liggur beinast við að leita aðstoðar þeirra fagað- ila, sem vinna við félags- og heil- brigðismál. Heimilislæknirinn Stór hluti af þeim vandamálum, sem einstaklingar koma með til heimilislækna, eru nátengd geð- heilsu þeirra. Þetta er mjög eðli- legt, þar eð eftir langvarandi kynni við einstaklinga og fjöl- skyldur þeirra hafa heimilislækn- ar oft fengið allgóða heildarmynd af högum fólksins og hinum marg- breytilegu vandamálum, sem glíma þarf við hverju sinni. Oft hafa skapast góð tengsl milli heimilislækna og skjólstæðinga þeirra, nokkurs konar vináttu- tengsl, þar sem þessir aðilar hjálpast að við að leysa úr vanda- málunum. Auk þess eru heimilis- læknar við á stofu að minnsta kosti nokkra klukkutíma á dag, eða þá að hægt er að ná til þeirra í síma. Þetta atriði er geysilega mikilvægt, þar eð geðræn vanda- mál eða „krísur" ber oft mjög brátt að og þola í fyrstu enga bið. Heimilislæknar áætla að jafn- aði 10—15 mín. fyrir hvern ein- stakling, sem til þeirra leitar á stofu. Augljóst er, að slíkur tími nægir ekki til að leysa úr flóknum andlegum vandamálum. Hins veg- ar eru yfirleitt engir biðlistar á stofum heimilislækna og því auð- velt að ákveða framhaldsmeðferð, ef þess gerist þörf. írlausnir • Það að kynna vandamálið fyrir heimilisiækni getur út af fyrir sig verið afgerandi varðandi framhaldið. Þetta er oft upp- hafið að nánari tengslum, auk þess sem einstaklingurinn hef- ur þá stigið fyrsta skrefið til þess að leitar hjálpar. Þannig fá fjölmargir einstaklingar að- stoð við að átta sig á vandamál- unum og leysa úr þeim. • Oft á tíðum verða heimilis- læknar að fá aðstoð við með- ferðina hjá öðrum aðilum, svo sem félagsráðgjöfum, sálfræð- ingum eða geðlæknum. Enda þótt ljóst sé í upphafi, að leita verður aðstoðar slíkra aðila, er Kerlingarfjallaskólinn: Skemmtun fyr- ir nemendur Á laugardagskvöldið, þann 12. nóv., heldur Skíðaskólinn í Kerl- ingarfjöllum skemmtun fyrir nem- endur skólans, sem voru of ungir til þess að vera með á Kerlingarfjalla- ballinu á Sögu um daginn. Skemmtunin verður á Hótel Esju á annarri hæð og hefst kl. 20.30. Sýndar verða kvikmyndir frá sumrinu og sungnir Kerl- ingarfjallabragir undir stjórn skíðakennaranna. Og svo verður dansað til miðnættis. Nemendur fyrr og síðar og vinir þeirra eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. (KrélUtilkynning.) nauðsynlegt að heimilislæknir- inn kynni sér vel vandamál ein- staklinganna áður en þessi ákvörðun er tekin. Með því móti sýnir heimilislæknirinn, að hann hefur áhuga á einstakl- ingnum sem persónu og vill gera sitt besta til að aðstoða hann. Þá verður einnig auðveld- ara fyrir báða aðila að taka upp málið síðar meir eða fylgja því eftir í samvinnu við aðra með- ferðaraðila. Auk þess ber að hafa í huga, að sá sem lendir í „krísu" gerir sér oft ekki grein fyrir hversu alvarlegt ástandið er og er e.t.v. ekki í fyrstu til- búinn til að leita hjálpar sér- hæfðari aðila. • Leitast er við að leysa þessi vandamál í því umhverfi, sem einstaklingurinn lifir og hrær- ist í, það er utan sjúkrahúsa eða stofnana. í einstaka tilvikum verða málin þó svo alvarleg, að leggja verður viðkomandi inn á sjúkrahús. I neyðartilvikum þarf stundum að grípa til sjálfræðissviptingar, það er dómsúrskurðar um að halda megi viðkomandi inni á lokaðri deild á geðsjúkrahúsi, þar eð hann sé af læknisfræðilegum ástæðum talinn hættulegur sjálfum sér eða umhverfi sínu. Þessi ráðstöfun getur oft spillt hinu góða sambandi læknis og sjúklings, en þótt hún sé alltaf mjög sársaukafull fyrir alla að- ila, er hún gerð í þeirri góðu trú, að hún sé sjúklingi fyrir bestu. Vinur þinn Eins og fyrr segir skapast oft náin tengsl milli heimilislækna og skjólstæðinga þeirra. 1 samfelldri heimilislæknisþjónustu er hægt að rækta þetta samband í ár eða áratugi. Ef til dæmis leita þarf læknis vegna kvefs eða annarra smákvilla er alltaf hægt að nota tækifærið og bera upp þau vanda- mál, sem valda viðkomandi hugar- angri, hvort sem þau eru ný eða í framhaldi fyrri áfalla. Ég legg því áherslu á, að þú sem þetta lest, gerir þér grein fyrir hversu mikilvægt er að leggja rækt við sambandið við heimilis- lækni þinn. Ef vel tekst til skaltu muna, að þú ert ekki bara að leita hjálpar hjá fagmanni heldur einn- ig vini þínum. Dr. Jóhann Ágúst Sigurðsson Heilræði vikunnar: Verum þakklát. ARMULA 1a EOSTORG111 Kynnum skrifstofulínuna frá SHARP í dag frá kl. 10—16 Sharp Örbylgjuofna- kynnlng: Frú Ólöf Guönadóttir hússtjórn- arkennari kynnir möguleika SHARP-örbylgjuofna kl. 16—18 i dag (kl. 13—16 á laugardag) og gefur aö smakka smárétti og kök- ur beint úr ofninum. Og nú er bara aö drífa sig ... SF-780 Ljðsritunarvél meö tveimur smækkun- armöguleikum (A3-A4 og A3-B4). SF-481 „Matari- SF-410 „Raðari” SF-815 Ljóaritunarvél 25 Ijósrit á min. A4 og A3. SF-755 Ljóaritunarvél Létt og tyrlrferðarlítll. 10 Ijósrit á mín. Skammtar frá 1—99 eintök í elnu. SF-771 Ljóaritunarvél 15 Ijósrit á min. Skammtar allt aö 99 eint. ZX-400 og ZX-500 Hljóðlátar vélar meö 112 stafa leturhjóli. Meö leiöréttingarminni. Reiknivélar, fleiri gerölr og SHARP-búðar- kaaaar. Viö bjóöum í kaffi Viö bjóöum áhugasömu fólki í kaffi og Nýja kökuhúsiö kynnir jólasmá- kökurnar. Full búð af nýju Pioneer- hljómtækjunum KÖkúhúsió HLJDMBÆffC!lZ HUOM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI SiMI 25999

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.