Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 fHwgMiiÞlfifrtfr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö. Ríkisstjórnin og verkalýðshreyfingin Um þetta leyti árs fyrir 20 árum ríkti mikil spenna milli þáverandi rík- isstjórnar og verkalýðs- hreyfingarinnar og benti allt til, að mikil og alvarleg átök væru þá yfirvofandi í þjóðfélaginu. Persónulegt samband milli Ólafs Thors, þáverandi forsætisráð- herra, og Eðvarðs Sigurðs- sonar, sem þá var formaður Dagsbrúnar, varð til þess að átökum var afstýrt. í kjölfarið fylgdi næstu mán- uði á eftir friður á vinnu- markaði og aukið traust milli Viðreisnarstjórnar og verkalýðshreyfingar, sem stóð til loka viðreisnar- tímabilsins. Það traust átti m.a. verulegan þátt í, að þjóðin komst klakklaust út úr þrengingunum, sem að steðjuðu 1967—1969. í febrúarmánuði 1978 — 15 árum eftir þennan at- burð — greip ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar til alvarlegra efnahagsað- gerða, sem m.a. skertu þá kjarasamninga, sem í gildi voru. Verkalýðshreyfingin brást harkalega við og urðu viðbrögð hennar til þess, að þáverandi ríkisstjórn rétti fram sáttahönd í maí 1978 með því að setja bráða- birgðalög, sem milduðu mjög þær aðgerðir, sem febrúarlögin gerðu ráð fyrir. Maí-lög Geirs Hallgríms- sonar höfðu hins vegar ekki sömu áhrif og sáttaboð Ólafs Thors í nóvember 1963. Þvert á móti herti verkalýðshreyfingin róður- inn gegn ríkisstjórninni með eftirminnilegum ár- angri. Innan Sjálfstæðis- flokksins var ríkisstjórnin gagnrýnd harðlega fyrir það, að standa ekki við fyrri aðgerðir og maí-lögin voru lögð henni mjög til lasts. í viðræðum um myndun núverandi ríkisstjórnar í maí sl. fór ekki á milli mála, að það var Fram- sóknarflokkurinn, sem krafðist þess, að samn- ingsrétturinn yrði skertur en Sjálfstæðisflokkurinn var því andvígur. Mála- miðlun tókst á milli flokk- anna sem verkalýðshreyf- ingin snerist gegn af mik- illi hörku. Nú hefur ríkisstjórnin lýst því yfir, að hún falli frá þessu undeilda ákvæði bráðabirgðalaganna. Rök hennar eru þau, að efna- hagsaðgerðirnar hafi nú þegar borið verulegan árangur og þess vegna sé óhætt að falla frá þessu ákvæði. Ef árangurinn af þessari ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar verður sá, að í kjölfarið fylgi friður á vinnumarkaði og traust á milli forystu- manna ríkisstjórnarinnar og verkalýðshreyfingarinn- ar er það af hinu góða. Verði niðurstaðan hins veg- ar svipuð og 1978, að verka- lýðssamtökin líti á þessa ákvörðun stjórnarinnar sem veikleikamerki, er mikil hætta á ferðum. Hitt fer ekki á milli mála, að rökin, sem ríkisstjórnin færir fyrir ákvörðun sinni eru hæpin. Það er alltof snemmt að kveða upp úr með það, að aðgerðir ríkis- stjórnarinnar hafi borið árangur. Við lifum enn í svipaðri blekkingu og vet- urinn og vorið 1981, þegar gengisstöðvun þáverandi ríkisstjórnarinnar hægði á verðbólgunni um skeið. Þegar sýnt verður, hvort ríkisstjórnin finnur lausn á stórfelldum vanda útgerð- arinnar án gengislækkunar er hægt að tala um raun- verulegan árangur en fyrr ekki. Að undanförnu hafa ein- stakir þingmenn stjórnar- flokkanna gefið yfirlýs- ingar hingað og þangað um nauðsyn þess að afnema skerðingarákvæði bráða- birgðalaganna. Þær yfir- lýsingar hafa gefið vís- bendingu um, að stjórnin hafi ekki meirihluta á þingi fyrir samþykkt bráða- birgðalaganna í óbreyttu formi. Það er ekki styrk- leikamerki hjá núverandi ríkisstjórn að afnema skerðingarákvæði bráða- birgðalaganna við slíkar aðstæður. Vinnubrögðin nú og fyrir 20 árum að þessu leyti eru mjög lærdómsrík. Vonandi verður framvinda þessara mála sú, að friður ríki á vinnumarkaðnum næstu misseri og verka- lýðshreyfingin og vinnu- veitendur beri gæfu til að finna kjaradeilum þann farveg, sem samræmist þeirri erfiðu stöðu, sem þjóðarbúskapur okkar er í. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JOHN C. AUSLAND í Osló Ákafar umræður um öryggismál í Noregi LÍKLEGA hafa aldrei verið jafn ákafar umraeður um norsk öryggismál en um þessar mundir. Athyglin beinist einkum að bandarísku kjarnorku- eldflaugunum sem komið verður fyrir í Vestur-Evrópu á næstunni en Norðmenn líta einnig í eigin barm og velta því fyrir sér, hvort varnir þeirra sjálfra séu eins góðar og almennt er talið. Þessi mál eru mikið rædd í fjölmiðlum. Á stórþinginu búa menn sig undir að greiða atkvæði um Evrópueldflaugarnar 21. nóvember næstkomandi og 8. desember koma fjárveitingar til varnarmála á næsta ári til atkvæða. Evrópueldflaugarnar pphafið að umræðunum um Evrópueldflaugarnar má rekja til ákvörðunar utan- ríkisráðherra NATO-ríkjanna í desember 1979. Vegna ótta við nýjar sovéskar kjarnorkueld- flaugar af gerðinni SS-20 tóku ráðherrarnir tvíþætta ákvörðun. í fyrsta lagi skyldu hafnar af- vopnunarviðræður milli Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. í öðru lagi skyldi bandarískum Pershing II eldflaugum og stýri- flaugum komið fyrir í Vestur- Evrópu og fjöldi þeirra ráðast af niðurstöðu afvopnunarviðræðn- anna. Ríkisstjórn Verkamanna- flokksins undir forsæti Odvar Nordli stóð að þessari ákvörðun á vettvangi NATO, þótt and- staða væri við hana innan flokksins. Eftir að Verkamanna- flokkurinn lenti í stjórnarand- stöðu eftir kosningar síðla árs 1981 ákvað forysta hans á hinn bóginn að nauðsynlegt væri að breyta um afstöðu til eldflaug- anna ef takast ætti að viðhalda einingu í flokknum. Á þessum grundvelli var síðan mótuð stefna sem svipaði mjög til af- stöðu Sovétmanna. Þessi stefnubreyting olli óánægju hjá ríkisstjórnum flestra NATO-landa en kom Verkamannaflokknum til góða í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í Noregi í september síðastliðnum. Verkamannaflokk- urinn jók verulega fylgi sitt, og ýmsum þykir margt benda til þess að flokkurinn geti myndað ríkisstjórn að loknum þingkosn- ingum sem efnt verður til 1985. Káre Willoch, forsætisráð- herra úr Hægriflokknum, á í nokkrum erfiðleikum vegna af- stöðu samstarfsflokka í ríkis- stjórninni, Kristilega þjóðar- flokksins og Miðflokksins. Þótt forystumenn flokkanna séu hlynntir því að hafist verði handa við að koma bandarísku eldflaugunum fyrir í desember næstkomandi takist ekki sam- komulag við Sovétmenn, er ekki einhugur um málið innan flokk- anna. Af þessum ástæðum hefur Willoch-stjórnin aðeins eins at- kvæðis meirihluta á Stórþinginu í eldflaugamálinu. Flestir telja að ríkisstjórnin muni merja það í atkvæða- greiðslunni 21. nóvember. Þess vegna kemur tæplega til þess að forsætisráðherrann þurfi að standa við fyrri heitstrengingar um að segja af sér ef atkvæði falla honum í óhag. Gro Harlem Brundtland, formanni Verka- mannaflokksins, er ekkert kappsmál að fella ríkisstjórnina. Hana langar ekki að axla stjórn- arforystu nú á tímum verulegs atvinnuleysis. Auk þess getur hún varla vænst þess að innan NATO fallist menn á afstöðu John C. Ausland, höfundur með- fylgjandi greinar, er fyrrum starfs- maður í bandarísku utanríkisþjón- ustunni. Hann er nú búsettur í Noregi og hefur fyrir fáeinum vik- um sent frá sér bók, „Norge i en tredje verdens krig“, þar sem hann ræðir um varnir Noregs. Hef- ur bókin orðið hvati að umræðum um öryggismál í Noregi, enda telur höfundurinn að ekki sé nóg að gert til að tryggja varnir Noregs. Verkamannaflokksins til Evr- ópueldflauganna. Varnir Noregs Káre Willoch og Gro Harlem Brundtland hafa sem sé hvort um sig reynt að snúa eldflauga- málinu sér í vil en samhliða þeirri keppni hefur athygli Norðmanna í vaxandi mæli beinst að því, hvort ekki sé ástæða til að huga að nærtækari vanda í varnarmálum. Þegar rætt er um norsk varn- armál þarf að huga að tvennu: stöðu norska hersins og liðsauka frá bandamönnum Noregs. Undirrót vandans að því er norska herinn varðar er sú, að aldrei hefur verið brugðist við því sem skyldi að Bandaríkja- menn hættu að veita Norðmönn- um hernaðaraðstoð 1969. Til að komast hjá þessum vanda hefði annaðhvort þurft að stórauka fjárvejtingar til varnarmála eða skera norska herinn niður. Hvorugt var gert. Hverfa verður lengra aftur til að komast að rótum vandans vegna liðsauka frá banda- mönnum Noregs. Þegar Norð- menn gerðust aðilar að NATO ákváðu þeir að erlendur her yrði ekki í Noregi á friðartímum. Hins vegar gerðu þeir ráð fyrir því að taka á móti liðsauka á hættutímum. Þeir gerðu þó ekki ráðstafanir sem eru nauðsynleg- ar til að þessar erlendu liðssveit- ir geti barist í Noregi. Þess vegna lá ekki ljóst fyrir hve mik- ill liðsstyrkur yrði sendur, ef lit- ið er framhjá nokkrum banda- rískum flugvélum en ráðstafanir voru gerðar til að taka á móti þeim. Á síðari hluta áttunda áratug- arins var gripið til aðgerða sem áttu að bæta úr þessum skorti á nauðsynlegri aðstöðu liðsaukans. Norsk varnarmálanefnd skil- aði skýrslu á árinu 1978 þar sem hvatt er til þess að her landsins verði verulega endurbættur. Sameiginleg rannsókn Banda- ríkjamanna og Norðmanna leiddi til ákvörðunar um að í Mið-Noregi skyldu verða birgðir fyrir stórfylki bandarískra land- gönguliða. Á vettvangi NATO var ákveðið að á nokkrum norsk- um flugvöllum skyldi verða við- búnaður til að taka á móti nokk- ur hundruð flugvéla frá banda- lagsríkjunum á hættutímum. Bandaríski flotinn setti upp birgðastöðvar í Mið-Noregi fyrir flugvélar frá flugmóðurskipum, sem nota á ef móðurskipið lask- ast eða því er sökkt. En allt kostar þetta stórfé. Þótt samaðilarnir að NATO hlaupi undir bagga vegna kostn- aðarins við liðsaukann verða Norðmenn að borga sinn hluta. Ríkisstjórn Willochs glímdi við þetta dæmi á síðasta vetri, þegar hafist var handa við að velja og hafna vegna nýrrar fimm ára áætlunar í varnarmálum. Þegar skjalið var kynnt á nýliðnu vori hafði ekki verið tekið af skarið um alla þætti málsins. Megin- stefnan var þó skýr: það er ekki unnt að halda öllu áfram sem byrjað hefur verið á til að styrkja varninar. Samkvæmt útreikningum varnarmálaráðuneytisins þyrfti að auka hernaðarútgjöld um 7% árlega næstu fimm ár aðeins til að framkvæma hugmyndir varn- armálanefndarinnar frá 1978. í þessu dæmi er ekki tekið tillit til kostnaðarins sem Norðmenn verða að bera vegna liðsaukans, ekki liggur enn fyrir hve mikill hann verður. Talað er um 7% en í raun gert ráð fyrir 3,5% vexti á útgjöldunum. Vegna alls þessa hefur ríkis- stjórn Káre Willoch ákveðið: (1) að lengja þann tíma sem þarf til að framkvæma tillögur varn- armálanefndarinnar um norska herinn og miða við að þær kom- ist til framkvæmda fyrir alda- mót, og (2) að minnka styrk og viðbragðsflýti norska hersins. Norðmenn hafa eins og aðrir vaxandi áhyggjur af þróun al- þjóðamála, en flestir þeirra treysta þó á það að ekkert al- varlegt gerist í þessum heims- hluta. Af þeim sökum má telja fullvíst að stefna Willoch- stjórnarinnar verði samþykkt 8. desember næstkomandi að lokn- um umræðum í stórþinginu um fjárveitingar til varnarmála. Allt er á huldu um hvernig umræðurnar um varnarmál þró- ast á árinu 1984. Ég sé það alls ekki fyrir eins og málum er nú háttað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.