Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 17 Andropov á fundi í vor með Sandinistaleiðtoganum Daniel Ortega frá Nicaragua. Chernenko: tekur hann við? embættismönnum, sem hafa mis- notað aðstöðu sína. Nú síðast hef- ur hann reynt þetta í yfirstand- andi flokkskosningum í sovétlýð- veldunum. En þetta hefur ekki verið auðvelt verk og á þessu sviði sem öðrum hefur hann farið með gát. Hann hefur tekið undir kröf- ur um að leiðtogum, sem verða á mistök, verði refsað, en þær kröf- ur virðast hafa mætt andstöðu innan valdastéttarinnar. Orðrómur er t.d. uppi um óánægju ýmissa valdamanna með herferð, sem hafin hefur verið í því skyni að neyða þá til að selja ríkinu einkasumarhús, sem þeir hafa byggt, þrátt fyrir það að rík- ið sjái þeim bæði fyrir íbúð og sumarhúsi. Fréttir um bágborna heilsu Andropovs, sem hefur ekki komið fram opinberlega síðan í ágúst, styrkja stöðu þessara valda- manna, sem áttu Brezhnev frama sinn og völd að þakka og voru hliðhollir honum. Þar við bætist að ieiðtogi þessara manna og aðal- keppinautur Andropovs, Chern- enko, virðist enn hafa mikil völd, þrátt fyrir fréttir um að hann hafi verið sviptur stöðu einnar mikil- vægustu deildar miðstjórnarinn- ar. Því er talið vafasamt að breyt- ingar, sem kunna að verða gerðar í flokksdeildunum í sovétlýðveld- unum, verði víðtækar. Fréttir herma að Chernenko hafi reynt að koma í veg fyrir til- raunir Andropovs til að koma stuðningsmönnum sínum í áhrifa- stöður í flokksdeildunum á lands- byggðinni. Andropov á því erfitt um vik, því að hann hefur ekki boðað byltingarkenndar ráðstaf- anir og verður því að styðjast við rétta menn á réttum stöðum. Hann virðist ekki geta efnt til hreinsunar til að losna við van- hæfa og spillta áhrifamenn, sem Brezhnev hlóð undir og gegna enn mikilsverðum embættum þrátt fyrir ásakanir á hendur þeim, og það veikir þann boðskap hans að ef allir stundi störf sín af meiri kostgæfni og samvizkusemi muni kerfið dafna. Til þess að efla kerfið hefur Andropov barizt fyrir auknum vinnuaga, en sú herferð virðist hafa runnið út í sandinn á skömm- um tíma vegna allsherjar tregðu- lögmáls, sem einkennir sovézkt samfélag, og viljaskorts sumra ráðamanna. Sama máli virðist gegna með baráttu gegn drykkju- skap og þrátt fyrir baráttu Vitaly Fedorchuks, hins gamla sam- starfsmanns Andropovs í KGB, gegn spillingu í lögreglunni, virð- ist lítið hafa dregið úr spillingu meðal þjóðarinnar. Hreinsanir í innanríkisráðuneytinu og KGB hafa hins vegar tryggt Andropov stuðning þessara tveggja áhrifa- miklu valdastofnana. Táknrænt þótti að þegar Andro- pov skar upp herör gegn drykkju- skap á fundi með flokksstarfs- mönnum í ágúst (þegar hann kom síðast fram opinberlega) sátu hon- um hvor á sína hönd þeir Mikhail Gorbachov, sem er 53 ára, og Grigory Romanov, sem er sextug- ur. Þessir „ungu“ valdamenn, sem báðir eru metnaðargjarnir og kænir, munu taka við arfinum eft- ir Andropov, hver sem hann verð- ur, ásamt þriðja „Ung-Tyrkjan- um“, Geidar Aliyev. Gorbachov fer með landbúnað- armál í miðstjórninni og virðist ætla að njóta góðs af sæmilegri uppskeru í ár, eftir uppskerubrest fjögur ár í röð, og kornsamningi við Bandaríkjamenn. Romanov, sem hefur lengi verið flokksleið- togi í Leníngrad, en tók við starfi miðstjórnarritara í Moskvu í sumar, hefur notað tímann til að afla sér bandamanna í höfuðborg- inni og vinna gegn því áliti að hann sé hrokafullur leiðindagaur. Á einu sviði hefur Andropov engan bilbug látið á sér finna, í baráttunni gegn uppsetningu með- aldrægra, bandarískra eldflauga í Vestur-Evrópu. Hann hefur notað þetta mál til þess að reyna að kljúfa Atlantshafsbandalagið og virðist reiðubúinn að slíta Genf- arviðræðunum um eldflaugatak- markanir, þegar eldflaugunum hefur verið komið fyrir. í þessu sambandi er mikilvægt að ýmislegt bendir til þess að áhrif sovézka heraflans hafi auk- izt, þar sem Andropov geti að miklu leyti þakkað Dimitri Ust- inov landvarnaráðherra hve fljótt honum tókst að treysta sig í sessi. Því virðist verða að taka aukið til- lit til heraflans. Síðustu yfirlýsingar Andropovs gætu bent til þess að hann búi sig undir uppgjör við Bandaríkja- stjórn. Sovézkum borgurum hefur verið sagt að þeir verði að herða ólina vegna „gagnráðstafana", sem nauðsynlegt verði að gera til að svara uppsetningu bandarísku flauganna. I opinberum yfirlýs- ingum hefur verið talað um „óeig- ingjarnt" átak alþýðunnar til að efla hernaðar- og efnahagsmátt landsins. Bjartsýnustu sérfræðingar ef- ast um að Rússar grípi til rót- tækra ráða þegar bandarísku eld- flaugunum hefur verið komið upp í Vestur-Evrópu. Þeir telja að þeir komi aðeins nokkrum eldflaugum fyrir í Tékkóslóvakíu og Austur- Þýzkalandi og í kafbátum úti fyrir strönd Bandaríkjanna. Þeir segja að Rússar hefji ekki alvarlega samninga í Genf fyrr en eldflaug- unum hefur verið komið fyrir. Hinir svartsýnni telja að Rúss- ar muni líta svo á að þeir hafi verið settir upp við vegg og muni vísa öllum tillögum Bandaríkja- manna algerlega á bug. Eftir harðar, gagnkvæmar ásakanir risaveldanna að undanförnu sé al- gert sambandsleysi á milli þeirra. Þessir sérfræðingar segja að Rússar muni telja sig tilneydda að koma áf stað neyðarástandi í heimsmálum til að réttlæta harð- ar gagnráðstafanir. Hins vegar er mikið komið und- ir heilsufari og valdaaðstöðu Andropovs og á það er bent að hann hafi alltaf mildað hótanir sínar með áskorunum um bætt samskipti. Spurningin er hve lengi hann verður við völd og hvað tek- ur við af honum. GH Lloyd Herman Fyrirlestur um bandaríska handíð sem listgrein BANDARÍSKI listfræðingurinn Lloyd Herraan, forstjóri Renwick- safnsins við Smithsonian Institut- ion í Washington D.C., sem er jafnframt einn fremsti listiðnfræð- ingur Bandaríkjanna mun flytja fyrirlestur á Kjarvalsstöðum laug- ardaginn 12. nóvember kl. 17.00 og sýna litskyggnur. Efni fyrirlestrar hans mun verða: „Bandarísk handíð sem listgrein". Fræðsluerindi í Hafnarfjarð- arkirkju Dr. Einar Sigurbjörnsson pró- fessor mun flytja fræðsluerindi í Hafnarfjarðarkirkju um hina postullegu trúarjátningu í dag, laugardag, klukkan 10.30. Á eftir erindi dr. Einars verður kaffihlé og síðan fyrirspurnir. Dr. Einar mun flytja fræðsluerindi í kirkj- unni næstu fjóra laugardags- morgna. Harrison Ford mundar byssuna Blade Runner í Austurbæjarbíói AUSTIJRB/EJARBÍÓ hefur nú hafið sýningar á kvikmyndinni Blade Runn- er með Harrison Ford í aðalhlutverki. Leikstjóri er Ridley Scott, framleið- andi Michael Deely og kemur myndin frá The Ladd Company og Warner Bros. Myndin gerist árið 2020 eftir Krist og fjallar um baráttu lögreglu- mannsins Decards (Harrison Ford) við vélmenni, sem losnað hafa úr viðjum manna. Þau eru ákaflega lík venjulegum mönnum og því erfitt að greina þar á milli. Sex vélmenni gerðu uppreisn á geimfari og héldu til jarðar. Decard er falið að hafa upp á vélmennunum og komast að því hvers vegna þau héldu til jarðar. Það er ekki fyrr en eftir langa og stranga baráttu Dec- ards við vélmennin, sem sannleikur- inn kemur í ljós. Kökubasar f Verzlunarskóla SJÖTTI bekkur Verzlunarskóla ís- lands heldur kökubasar sunnudag- inn 13. nóvember í húsakynnum skólans, Grundarstíg 24, á tíma- bilinu frá klukkan 13—16. Stórútsalan Markaðshúsinu Sigtúni 3, 2. hssð sr,":r* Mjög þekkt fyrirtæki eru nú meö við opnum s.s.: KARNABÆR BELGJAGERÐIN (Vinnuföt) SPORTVAL (Sportfatnaöur) BIKARINN (Sportfatnaður) HENSON (íþróttafatnaöur) ÚTILÍF (Sportfatnaöur) ÆSA (Skartgripir) ASSA (Tískuföt, barnaföt) S.K. (Sængurfatnaður) LIBRA (Fatnaöur) GALLERÍ LÆKJARTORG (Hljómplötur) RAFTAK (Rafmagnsvörur) LAGERINN (Fatn. á alla fjölskylduna) TINDASTÓLL (S.H. gluggatjaldaefni) G.M. PRJÓNAGARN PRJÓNASTOFAN KATLA (ísl. prjónapeysur) K. HELGASON (Sælgæti) M. BERGMANN (Sængurfatnaöur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.