Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 12
Gísli J. Ástþórsson 12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 Einsog raér sýnist .... Finnst þér ég ekki fínn, Ólafur? Ekki færri en þrír vatnskembdir ráöherrar birtust á skjánum auk for- seta vors, þegar sjónvarp- iö sýndi okkur sem heima sátum tilstandiö viö opnun bandarísku listiönaöar- sýningarinnar á laugar- daginn var, og eiginlega fannst mér þetta hálf svona kátbroslegt þegar ég fór aö velta því fyrir mér seinna um kvöldiö. Viö höfum á undanförn- um áratugum í síauknum mæli verið aö rembast viö aö tileinka okkur allskonar stórþjóöatakta sem aö sumra dómi aö minnsta kosti falla ekki nema svona og svona aö ís- lenskri skapgerö og jafn- vel íslenskum staöháttum, svosem til dæmis hjarta- þukliö sem upphófst hér uppúr stríöi á tyllidögum á borö viö 17. júní þegar fyrirmenn okkar hættu allt í einu aö láta sér nægja aö taka ofan fyrir þjóösöngn- um einsog sjálfsagt er og byrjuöu þar að auki aö pota hramminum marflöt- um á hjartastaö aö hættl Bandaríkjamanna, einsog þeir heföu álpast inní al- ræmt þjófabæli og þætti vissara aö ríghalda í vesk- iö sitt. Þá má nefna rallakstur- inn í mótorhjólaþvarginu sem áöur hefur veriö vikiö aö í þessum þáttum og sem nú er orðinn fastur liöur í dagskránni í hvert sinn sem viö þurfum aö fjarlægja erlendan stórlax úr kokteilnum hjá borgar- stjóranum og hífa hann í graflaxinn suörá Bessa- stöðum. Meira aö segja forseti Grænhöföaeyja, þaö meinleysisskinn, fékk ekki aö vera í friöi: hann var drifinn skjálfandi úr kulda uppí þríbónaöa glæsikerru oft á dag og sendur einsog þeytispjald hér um göturnar á kafi í löggum, einsog allir djöflar veraldar væru á hælunum á honum. Hættan viö aöfengnar stórþjóöakúnstir af þessu tagi er einkum fólgin í því, aö sá sem lætur freistast til þess aö apa kónginn, hann kann sér einatt ekki hóf í ákafa sínum. Hann verður jafnvel sperrtari en kóngsi. Ég leyfi mér til dæmis aö fullyröa aö ef viö Islendingar mættum einn góöan veöurdag vestur í Washington meö svipaöa sýningu i far- angrinum og Kaninn mætti meö hér, þá tækist okkur ekki þóaö viö reyndum í hundraö ár aö skrapa saman vænan fjóröung af stjórninni í Washington til þess aö hjálpa okkur aö hleypa fyrirtækinu af stokkunum. Viö uppskærum í mesta lagi svosem eitt stykki aö- stoðarráöherra af billeg- ustu sort og einn til tvo ráöuneytisstjóra sem heföu ekki verið nógu snöggir aö foröa sér úr bænum. Þetta þyrfti samt engan veginn aö stafa af því aö Reagan og kompaní vildu sýna okkur tómlæti og væru jafnvel aö reyna aö vera meö snúö, né heldur þyrfti sýningin aö vera eitthvert úrkast eöa eitt- hvaö þvíumlíkt. Ég hef þaö eftir fróöum mönnum aö sýningin á Kjarvalsstööum sé vel þess viröi aö menn skondri á hana, þóaö hundraö króna aögangs- eyrir geri skondriö dálítiö dýrt á þessum sultaróla- tímum. Þaö þætti einfald- lega einum of mikið og jaöra viö spaug þarna vestanhafs ef fjóröi hver ráöherra í ríkinu teldi sér skylt aö skreyta svona far- andsýningu meö nærveru sinni. Ég hjó eftir því að okkar menn voru auk þess allir í blankskóm og smóking og meö forláta silkislaufu á stærö viö hrafnsvængi út- undan kjálkaböröunum. Bandaríski ambassador- inn var þaö aö sjálfsögöu Itka, en samt vaknar sú spurning óneitanlega hjá manni eöa dormar innra meö manni og hrekkur upp annaö slagiö, hvort siöameistari sendiráösins hafi ekki veriö eitthvað viöutan þegar hann sendi út boöskortin. Samkvæmt hirösiöabók minni, sem er evrópsk að vísu, fara menn ekki í svona múndéringu um há- bjartan dag, nema þá þjónar ef svo ber undir og rúllettustjórar og útkastar- ar í meiriháttar spilavítum. Ég var einu sinni sem ung- ur blaöamaður nánast í kallfæri viö Ólaf Thors þegar einn af þingmönn- um Sjálfstæöisflokksins, sem var vænsti kall, kom blaöskellandi í kjól og hvitt niörí Sjálfstæöishús viö Austurvöll þarsem flokksforystan var aö búa sig undir aö boröa hádeg- isverð meö norska kóng- inum. Kallinn var eitt sól- skinsbros þegar hann stillti sér upp fyrir framan Ólaf og spuröi iðandi af til- hlökkun: „Finnst þér ég ekki helvíti fínn?“ Og Ólaf- ur klappaði vingjarnlega á öxlina á honum og sneri honum við og sendi hann heim aö hafa fataskipti. Ólafur kunni sína etik- ettu. Þaö er kannski óþarfa bölsýni aö hafa af því áhyggjur aö viö höldum áfram að herma eftir lima- buröi risanna uns okkur veröi fótaskortur á þeirri hálu braut og dettum kylli- flatir á magann. Hvaö er þaö annaö en hégóma- skapur aö geta ekki skák- aö gesti frá Grænhöföa- eyjum á milli húsa án þess aö láta einsog haugar af hryöjuverkamönnum liggi hér á bakviö hverja þúfu meö fingurinn á gikknum? Fyrir skemmstu birtust í fjölmiölum náttfatamyndir af Reagan forseta þarsem hann haföi veriö rifinn upp um miöja nótt til þess aö stjórna veröldinni, og skömmu áöur höföu okkur veriö sýndar myndir af Bush varaforseta, sem rallaöi hér í sumar einsog menn muna kannski, í skotheldu hermannavesti og meö hjálm á hausnum. Manni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds þegar maður sér svona fordæmi. Eigum viö eftir aö sjá forsætisráöherrann okkar í mosagrænum náttfötum aö láta gamm- inn geysa um járnblendiö eöa jafnvel utanríkisráö- herrann okkar aö vísitera á Vellinum í hraösaumuö- um aömírálsbúningi? Þetta vindur nefnilega uppá sig og ein vitleysan býöur annarri heim. Þess er skemmst aö minnast að þegar hin heföbundna skóflustunga var tekin aö nýju flugstöövarbygging- unni þarna suöurfrá, þá var þaö sem kom uppá skófluna sett í poka til geymslu. Þetta var nýjung. Hingaötil hafa menn látiö sér nægja aö geyma skófl- una sem síöan hefur vit- anlega týnst. Nú veröa menn að hafa fyrir því aö týna pokanum líka. Ég veit ekki gjörla hvaö þaö er einkanlega viö þessar skóflustunguseri- móníur sem vekur alltaf kátínu mína; kannski er þaö lófatakiö, þvíaö þaö er alltaf klappaö i lokin einsog þaö veki almenna aðdáun aö stungumaöur- inn skuli yfirleitt hafa loft- aö skóflunni. Þaö er eins meö boröa- klippinguna: ég á alltaf hálf bágt meö mig þegar menn byrja aö hakka í sundur silkiboröa til hátíöabrigöa. Enginn óbrjálaöur maöur héldi uppá hjúskapardaginn sinn með því aö stífa neö- anaf stofugardínunum. Ennfremur minnist ég gjarnan skopmyndarinnar sem ég sá endur fyrir löngu í bíó, þarsem klipp- arinn, sem á aö sníöa í sundur silkiö, klippir óvilj- andi niörum heiöursgest- inn. Viö fyrrgreinda opnun- arathöfn á Kjarvalsstööum var vitanlega búiö aö strengja silkiborða þvert fyrir dyrnar á sýningar- salnum sem Davíö minn borgarstjóri og frúin amb- assadorsins klipptu síöan í sundur meö viöeigandi hátíöarsvip. Þetta var lika nýjung aö ég hygg: eins- konar tvíliöaleikur þar- sem boröinn var yfirbug- aöur meö tvennum skær- um. Síðan kom klappiö, einsog Samson heföi ver- iö aö kála musterinu. Davíö var eftir á aö hyggja einn af sárafáum kallmönnum þarna um borö sem var ekki í smók- ing. Mér fannst hann líka hálfpartinn einsog á nál- um. Ég er aö velta því fyrir mér hvort hann hafi kannski líka séö fyrr- nefnda bíómynd. Bókaklúbburinn Veröld: Plata Kristjáns Jóhannssonar komin út Hljómleikar haldnir hérlendis í tilefni þess F.v.: Jón Karlsson, framkvæmdastjóri Bókaklúbbsins Veraldar, Björgvin Halldórsson, sem stjórnaói hljóðritun hljómplötunnar, Helga Hauksdóttir, starfsmannafélagi Sinfóníuhljómsveitarinnar, Páll P. Pálsson stjórnandi og Jón Sigurösson. Ný hljómplata Kristjáns Jó- hannssonar, óperusöngvara, er komin út hjá Bókaklúbbnum Veröld. Og efnir klúbburinn í því tilefni til hátíðarhljómleika með Kristjáni og Sinfóníu- hljómsveit Islands 19. nóvem- ber. I»ar syngur hann lögin af plötunni en þau eru fjórtán. Gll- efu ítölsk lög útsett af breska tónskáldinu og stjórnandanum Ed Welch og þrjú íslensk lög sem þeir Jón Þórarinsson og Jón Sigurðsson hafa útsett. „Á blaðamannafundi sem Bókaklúbburinn Veröld hélt á miðvikudag sagði Jón Karls- son framkvæmdastjóri klúbbsins m.a.: „Við gerð þessarar hljómplötu höfum við ekkert til sparað til að fá bestu möguleg gæði. Undir- leik annaðist Sinfóníu- hljómsveit Lundúna undir stjórn Maurizio Barbachine, sem jafnframt annaðist æf- ingar með Kristjáni. Upptak- an er digital, sem er það besta fáanlegt, og útsetningarnar á lögunum voru allar gerðar sérstaklega fyrir þessa hljómplötu. Vegna þess hve útgáfan er umfangsmikil hef- ur alþjóðlegur markaður ver- ið hafður í huga en platan er þó fyrst og fremst gerð fyrir íslenskan markað og félaga í Bókaklúbbnum Veröld. Góðar undirtektir þeirra hafa ekki látið á sér standa, stax á fyrsta degi eftir að fréttabréf okkar kom út voru pöntuð nær þúsund eintök af plöt- unni auk þess sem seldist upp á hljómleikana. Þegar ákveð- ið var að halda hljómleikanna var ljóst að það að ráða heila sinfóníuhljómsveit til undir- leiks var meira fyrirtæki en hægt var að ráðast í fyrir einkaaðila ef miðaverð ætti að verða á viðráðanlegu verði. En vegna áhuga og velvildar Starfsmannafélags Sinfóníu- hljómsveitarinnar mun þetta verða mögulegt og Flugleiðir bjóða ítalska hljómsveitar- stjóranum hingað. Það er í at- hugun að endurtaka tónleik- ana en óvíst er hvort það verður mögulegt." Tölvuorðasafn komið út hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi HIÐ íslenska bókmenntafélag hefur gefið út tölvuorðasafn sem inniheldur í senn íslensk-ensk og ensk-íslensk orðasöfn sem lúta að tölvum og tölvu- vinnslu. Tölvuorðasafnið er fyrsta orða- bókin, sem tölva hefir verið látin gera hér á landi. Til þess var notað orðabókarkerfi íslenskrar mál- nefndar og efnið tölvuskráð í sam- ræmi við það á vegum Máltölvunar Háskólans. Vélin var síðan látin búa til íslensk-enska og ensk- íslenska orðaskrá upp úr þeim færslum. Það verk var unnið með aðstoð frá Reiknistofnun Háskól- ans. Þannig var meginhluti verks- ins afhentur útgefanda, Hinu ís- lenzka bókmenntafélagi. Að því búnu var orðasafnið flutt úr há- skólatölvunni í tölvustýrða setn- ingarvél Prentsmiðjunnar Odda. Verk- og kerfisfræðistofan hf. sá um tæknivinnslu þess hluta verks- ins. Orðasafnið var aldrei skrifað á seðla, né heldur handskrifað eða vélritað á venjulegan hátt. Bókin er því ekki til í handriti, heldur geymd í tölvutækri mynd á segulböndum. Tölvuorðasafn er fyrsta ritið í fyrirhugaðri ritröð Islenskrar mál- nefndar og markar einnig tímamót að því leyti. Það er 70 bls. að stærð. Úr fríiuelkynnintru.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.