Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 Sveinn Egilsson hf, SKEIFUNNI 17 — SIMI 85100 ViÖ sýnum í dag 1984 árgeröina af Ford Escort Escort 1,3 I og hinn stórglæsilegi sportbíll Escort XR3i Opiö í dag frá kl. 10—16. Hvað tekur við af Andropov YURI Andropov hefur reynt að hleypa nýju lífi í sovézk efnahagsmál síðan hann kom til valda fyrir einu ári, en barátta hans hefur að mestu leyti runnið út í sandinn, og á sama tíma hafa samskipti Rússa við Vesturveldin, sem hann kvaðst vilja bæta, sjaldan verið verri. Enn bendir ekkert til þess að „hallarbylting" sé yfirvofandi, þðtt Andropov mætti ekki við há- tíðarhöldin á byltingarafmælinu. Hins vegar var það athyglisvert að aðalkeppinautur Andropovs, Konstantin Chernenko, tók sæti hans á fundi í Kreml. Sjálfur hef- ur Chernenko oft verið fjarver- andi á undanförnum rnánuðum og stuðningsmenn Andropovs hafa gefið pólitíska skýringu á því. Vegna bágrar heilsu sinnar hefur Andropov greinilega ákveðið að koma sem sjaldnast fram opinber- lega, en líta má á það sem skyldu æðsta leiðtoga Sovétríkjanna að mæta á byltingarafmælinu. Heilsufar hans virðist slæmt. Andropov hefur lagt áherzlu á efnahagsmálin síðan hann tók við völdunum fyrir ári. Gífurleg sóun á sér stað í sovézkum efnahags- málum vegna uppbyggingar kerf- isins og ef engar breytingar verða gerðar á því telja margir Rússa dæmda til að vera annars flokks iðnríki og háða vestrænni tækni- þekkingu. Andropov vildi ráða bót á þessu þegar hann kom til valda og minnti menn á að áhrif Rússa í heiminum grundvölluðust á frammistöðu þeirra í efnahags- málum. Hann tók skýrt fram að risaveldi í hermálum, sem verði gífurlegum fjármunum til her- mála, mætti ekki við því að búa við efnahagskerfi, er hefði yfir frumstæðri tækni að ráða og gæti ekki dafnað vegna stórfelldra annmarka í framleiðslu og dreif- ingu. En Andropov hefur farið hægt í sakirnar og ákveðið hefur verið að móta enga umbótastefnu í efna- hagsmálum fyrr en tilraunir hafi farið fram og niðurstöður þeirra metnar. Það mun taka tvö ár. Þangað til verður komið á tak- mörkuðum umbótum, en sú stefna hefur verið gagnrýnd á þeirri for- sendu að hún sé ófullnægjandi, hálfkák, einkum vegna þess að laun verði ekki nánar tengd fram- leiðni. f sumar sagði Andropov sjálfur: „Við höfum ekki verið nógu þróttmiklir. Við höfum ekki ósjaldan gripið til hálfkáks og höfum ekki getað sigrazt á doða, sem grafið hefur um sig í langan tíma. Nú verðum við að bæta upp það sem við höfum glatað.“ En ljóst er að nýstárlegar hugmyndir um markaðssósíalisma eiga ekki upp á pallborðið hjá honum og að hann heldur í gamlar hugmyndir um áætlunarbúskap. Þótt lítillega hafi verið reynt að sníða af mestu agnúana virðist þaö hafa borið sáralítinn árangur. Andropov hefur reynt að víkja gömlum stjórnmálamönnum og DREGIÐ19. NOVEMBER, í byggingarhappdrætti SÁÁ Vegna /^Qám afmœlis okkurvenÖurstöðin bkuðfrá kl T7dsunnudagl3.nóv. til kl.5ú mmudagsmorgun \ HREVFILL 7 »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.