Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.11.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983 smáauglýsingar — smáauglýsingar húsnæöi óskast Söiuturn Óska ettir hentugu húsnseöi fyrlr söluturn. Upplýsingar f sfma 22761. t húsnæði : l l boöi | Eignamiölun Suöur- nesja auglýsir Grindavfk: Glæsilegt 137 fm elnbýlishús viö Staöarhraun ásamt bílskúr. Ræktuö lóö meö heitum potti o.fl. Verö 2.5 millj. Góö 100 fm raöhús viö Leyn- isbraut Verö 1.050—1250 þús. Gott 100 fm einbvýlishús viö Hafnargötu ásamt 55 fm bílskúr. Verö 1200 þús. Opiö á laugardögum Eignamiölun Suöurnesja, Hafnargötu 57, Keflavík, símar 92-1700 og 3868. r IsÉiSii: þjónusta . JlA A A K k 1 ^ T1 | VEROBRÉFAMARKAOUR HUSI VERSLUNARINNAR SfMI 8 33 20 KAUP OG SALA VEOSKUL DA BRÉFA Pípulagnir — Viögeröir önnumst allar smærri viögeröir á bööum, eldhúsum, þvottahús- um. Vanir fagmenn. Síml 31760. Frímerkjaskipti Óska eftir aö komast í samband viö islending til aö skipta á frí- merkjum frá þýzka sambands- lýöveldinu og íslenzkum. Skrifa á ensku eöa þýzku. Axel Starke, Hinterstr. 14, D-4924, Barntrup-Alverdissen. □ Gimli 598314117— 1. I.O.O.F.3 = 16511148 = B'/i II smáauglýsingar — smáauglýsingar FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR 11798 og 19533. Sunnudagur 13. nóv. kl. 13.00 Gönguferð á Grimmannsfell. Létt ganga sem allir í fjölskyld- unni geta tekiö þátt f. Veriö vel búin. Allir velkomnir, bæöi fé- lagsmenn og aörir. Verö kr. 200, gr. v/ bílinn. Fariö frá Umferö- armiöstööinni aö austanveröu. Feröafélag islands. UTIVISTARFERÐIR Sunnudagur 13. nóv. 1. Kl. 13: Rjúpnadalir — Latkj- arbotnar — Tröllabörn. Létt láglendisganga. Fararstj. Gunn- ar Hauksson. 2. Kl. 13: Bláfjöll — Rauöuhnúk- ar. Fyrsta skíöaganga vetrarins. Fararstj. Gunnar Gunnarsson. Brottför frá bensfnsölu BSl. 3. Kl. 20: Aöalfundur Útivistar ' fyrir áriö 1982 veröur haldinn aö Borgartúni 18. Venjuleg aðal- fundarstörf. Kaffiveitingar. Nán- ari uppl. f simaavara: 14606. Sjáumst! Utivist Krossinn Samkoma f kvöld kl. 20.30 aö Alfhólsvegi 32, Kópavogi. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Almenn samkoma aö Völvufelli 11 kl. 16.00.1 Fíladelfíu kl. 20.30. Ræöumaöur: Bertll Olingdal. Heimatrúboðió, Hverfisgötu 90 Almenn samkoma á morgun, sunnudag, kl. 20.30. Allir vel- komnir. Elím, Grettisgötu 62, Reykjavík A morgun, sunnudag, veröur sunnudagaskóli kl. 11.00 og al- menn samkoma kl. 17.00. At- hugiö breyttan samkomutíma. Veriö velkomin. Kópavogsdeild heldur námskeiö f almennri skyndihjálp. Þaö hefst 15. nóv. kl. 20 í Kópavogsskóla, vestur- álmu. Þátttökutilkynningar í sfma 41382 frá kl. 14—18 dag- ana 14. og 15. nóv. Félagió Anglia heldur kaffikvöld aö Aragötu 14. þriöjudaginn 15. nóv. kl. 20.00. Leynigestur kem- ur og segir frá. Félagar fjöl- menniö. Stjórnin. raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar Heilsugæslustöð á Akranesi Tilboö óskast í gerð undirstaöa og botnplötu heilsugæslustöðvar á Akranesi. Húsiö veröur 562 m2. Verkinu skal aö fullu lokið 15. apríl 1984. Útboösgögn veröa afhent á skrifstofu vorri og á Verkfræði- og teiknistofunni á Akranesi gegn 2.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuö á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkis- ins, föstudaginn 25. nóv. 1983 kl. 14.00. INNKAUPAStOFNUN RÍKISINS Borgartúni 7, sími 26844. nauöungaruppboö Nauðungaruppboð 2. og sföasta á Hlíöarvegi 12, Grundarfiröi, fer fram eftir kröfu Ævars Guömundssonar, hdl., á eignlnni sjálfri mánudaginn 21. nóvember 1983 kl. 11.00. SýslumaOur Snæfellsness- og Hnappadalssyslu, 9/11 '83. Akranes Sjálfstaaöisfólag Akraness heldur aöalfund mánudaginn 14. nóvem- ber kl. 20.30 i Sjálfstæóishúsinu aó Heiöargerði 20. Fundarefni: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Guöjón Guömundsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæöisflokksins ræöir málefni bæjarins. 3. Önnur mál. Stlórnln. Hvöt UmraBöuhópur um friöar- og öryggismál. Hittist mánudaginn 14. nóvember kl. 8—10 í Valhöll, Háaleitisbraut 1. 2. hæö. Umræöuefni Utanrikisstefnan i Ijósi sög- unnar — Sérstaöa islands. Umsjón: Sólrún B. Jensdóttir sagnfræö- ingur. Nýir þátttakendur velkomnir. Kaffi. Stjórnin. Sjálfstæðiskvenfélag Árnessýslu 20 ára Sjálfstæöiskvenfélag Arnessýslu heldur upp á 20 ára afmæli félagsins 12. nóvember nk. i Eden i Hverageröi. Dagskráin hefst kl. 21, en húsiö opnaö kl. 20.30. Halldóra Rafnar, formaöur Landssambands sjállstæöiskvenna og Þorsteinn Pálsson, alþingismaöur, formaöur Sjálfstæöisflokksins. munu flytja ávörp, Dagfríöur Finnsdóttir og Aöalheiöur Jónasdóttir syngja tvisöng viö undirleik Glúins Gylfasonar, en hljómsveit Þor- steins Guömundssonar leikur fyrir dansi. Sætaferöir veröa frá Stokkseyri, Eyrarbakka, Selfossi og Þorlákshöfn. Miöaöverö er 450 kr. og innifaliö er jafnframt kaffi og brauö, en miðapantanir eru í simum: 1307 — 1608 — 2085 og 1140 á Selfossi, 3840 og 3848 í Þorlákshöfn, 3246 á Stokkseyri, 3117 á Eyrarbakka og 4212 i Hverageröi. Heilsugæslustöð í Hafnarfirði Tilboö óskast í aö gera fokhelda viðbyggingu viö Sólvang í Hafnarfiröi fyrir heilsugæslu- stöð o.fl. Húsiö, sem er ein hæð, 1440 m2, auk 587 m2 kjallara, skal fullgera aö utan. Greftri fyrir húsinu er lokið. Verkinu skal aö fullu lokiö 1. okt. 1984. Útboðsgögn veröa afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboö veröa opnuð á sama stað föstud. 2. des. 1983 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Borgartúni 7, sími 26844. Akranes — Akranes Sjálfstæöiskvennatélagiö „Bara" Akranesi heldur aóalfund sinn í Sjálfstæöishúsinu aó Heiöarbraut 20 þriöjudaglnn 15. nóv. kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Sljórnin. Kópavogur — Kópavogur Dregiö veröur í happdrætti Sjálfstæöisflokksins i kvöld. Geriö skil á skrifstofu Sjálfstæöisflokksins, Hamraborg 1, 3. hæö. kl. 10—12 eöa 1 —5 í dag, sími 40708. Sjálfstæóisfélögin i Kópavogi. FUS Þór Akranesi heldur aöalfund fyrir áriö 1983 sunnudaginn 13. nóvember kl. 15.00 í Sjálfstæölshúsinu Heiðargeröi. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. önnur mál. .... , Stjómin. MwVi Hádegisveröarfundur um umhverfismál Valhöll hádegisveröarfundur um umhverfismál Ræöumenn: Elín Pálmadóttir blaöamaöur fjallar um fólkvanga Reykvíkinga og útivist. Hulda Valtýsdóttir formaöur umhverfis- málaráös fjallar um störf ráösins. Hafliöi Jónaaon garöyrkjustjóri fjallar um umhverfi i borg. Fundarstjóri: Erna Hauksdóttir, viöskipta- fræöinemi. Léttur málsveröur á boóstólum, barna- gæsla á staðnum. Stjórnin. Minning: Guðmundur Þorsteins- son Klafastöðum Guðmundur Þorsteinsson fæddist 30. apríl, aldamótaárið, á Klafa- stöðum í Skilmannahreppi og þar eyddi hann langri ævi. Mikill vandi er á höndum að klæða minningu þessa manns orðum, sem gera hvorttveggja í senn að lýsa mannleg- um kostum og koma jafnframt til skila þeirri hógværð og lftillæti, sem einkenndi allt hans líf. Guðmundur var sonur hjónanna Ragnheiðar Þorkelsdóttur og Þor- steins Narfasonar, sem voru bæði ættuð úr Þingvallasveit. Foreldrar hans hófu búskap á Klafastöðum og þar fæddust ellefu systkini. Af systkinahópnum er Kristmundur einn á lífi. Guðmundur átti við líkamlega fötlun að búa allt frá fæðingu en honum var gefinn andlegur styrkur, sem gerði honum kleift að lifa með fötlun sinni. Alla tíð gekk hann til sömu verka og heilbrigðir menn og skilaði síst minna dagsverki. Guðmundur naut takmarkaðrar kennslu í barnaskóla eins og títt var í upphafi aldar. Á honum sannaðist, eins og mörgum öðrum, að fleiri ieið- ir liggja til þroska en formleg skóla- ganga. Frá barnæsku þurfti hann að beita sjálfan sig mikilli ögun til að yfirvinna fötlun sína og verða einsk- is eftirbátur í harðri lífsbaráttu. Sú ögun tók einnig til hugans. Fáum hefi ég kynnst, sem gátu rætt um menn og málefni af álíka nærgætni, og allt viðhorf hans mótaðist af mannúð og mildi. Sterkar rætur í máli og sögu, mik- ill lestur bóka og lifandi áhugi á málefnum líðandi stundar ein- kenndu heimilið á Klafastöðum. Guðmundur átti drjúgan þátt í að hlúa að þeirri hefð. En hann hlúði að fleiru. Um árabil var hann stoð nágranna sinna ef skepnur lentu í nauð og ekki náðist í dýralækni. Lagni hans og natni við dýrin var viðbrugðið. Skógrækt var áhugamál hans. Hann var einn af frumkvöðl- um skógræktar í sveit sinni og heið- ursfélagi í Skógræktarfélagi Skil- mannahrepps. Ekki verður skilið við áhugamál Guðmundar Þorsteinssonar án þess að nefna kenningar Helga Péturss. Hann gerðist virkur stuðningsmaður Nýalssinna og fann á þeim vettvangi nokkurn farveg fyrir hugleiðingar sínar um aðra og vonandi betri til- veru. Túnið á Klafastöðum teygist inn með Hvalfjarðarströndinni að litlum tanga, sem heitir Grundartangi. Eitt af mörgum örnefnum í Klafastaða- landi dróst allt í einu inn í hringiðu þjóðmála þegar ákveðið var að þar skyldi rísa mikil verksmiðja. Heimil- isfólkið á Klafastöðum stóð frammi fyrir þeirri staðreynd að landið, sem því var kærast yrði vettvangur mik- illa umsvifa. Á slíkri stundu reynir á andlegt jafnvægi og þeim mun harð- ari verður sú áraun ef tilfinningar til lands og umhverfis eru heitar og einlægar. Höfundur þessara orða fylgdist með viðræðum um sölu lands til Grundartangaverksmiðju, og þar fór ekki á milli mála að um- hyggjan fyrir landinu var þyngst á metunum hjá Klafastaðafólki. Samningar tókust með þeirri hóg- værð og skynsemi, sem ætíð ein- kenndi þetta fólk. Af þeirra hálfu var þyngst áhersla lögð á það að landspjöll, sem verksmiðjan ylli, skyldi að nokkru bætt með um- fangsmikilli skógrækt í Klafastaða- landi. Sú gæfa fylgdi þessu máli að þeir menn, sem vil verks voru kvadd- ir sýnu nærfærni og varúð. Fyrir það eiga allir forráðamenn þessara framkvæmda þakkir skildar. Guðmundur andaðist 7. nóvember 1983 á sjúkrahúsinu á Akranesi eftir langa og erfiða legu. Enn eru trén smávaxin sem hafa fest rætur í Klafastaðalandi. Vonandi tekst þeim að vaxa til þess þroska, sem Guð- mundur sá í draumum sínum. Guðmundur E. Sigvaldason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.