Morgunblaðið - 12.11.1983, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
Nokkrar félagskonur með basarmunina, sem seldir verða á morgun, sunnu-
dag.
Basar Húsmæðrafélagsins á morgun
HÚSMÆÐRAFÉLAG Reykjavíkur heldur árlegan basar sinn að Hallveig-
arstöðum sunnudaginn 13. nóvember. Húsmaeðrafélagið er eitt af elztu
félögum borgarinnar, sem um árabil hefur lagt áherzlu á margs konar
fræðslu fyrir húsmæður.
Félagið rekur eigið félagsheimili að Baldursgötu 9 og er þar opið hús
hvern mánudag. Hittast félagskonur þar með handavinnu sína og vinna
saman að gerð basarmuna. A basarnum á morgun verður margt rauna,
en einnig verða seldir lukkupokar. Einnig verður flóamarkaður. Ágóði
rennur til góðgerðarstarfsemi félagsins.
«-----
QP9
Olympíuleikar 1984
Þeir sem ætla að tryggja sér miða
á hinarýmsu greinar leikanna
vinsamlega hafi samband við
Ferðaskrifstofu ríkisins fyrir
20. nóvember n.k.
þegar lokafrestur rennur út.
f.h. Olympíu nefndar íslands
FERDASKRIFSTOFA RtKISIHS
Reykjanesbraut 6 Reykjavík Iceland Tel. 25855
Morgunblaðið/ Kristján Einarsson
Á sýningunni „Skrifstofa framtíðarinnar" kynnir IBM á fslandi hina nýju einkatölvu fyrirtækisins, sem nýverið
var kynnt í Evrópu. IBM hefur fram til þessa aðallega framleitt stærri tölvur og tölvukerfi.
„Skrifstofa
framtíðarinnar“
— Yfirskrift tölvusýningar Stjórnunarfélagsins og Skýrslutækni-
félagsins, sem stendur yfir í Húsgagnahöllinni við Bfldshöfða
Tölvusýningin „Skrifstofa fram-
tíðarinnar“ var opnuð í fyrrakvöld
í Húsgagnahöllinni við Bfldshöfða,
í kjölfar námsstefnu Stjórnunarfé-
lags íslands og Skýrsiutæknifélags
íslands fyrr um daginn um sama
efni. Alls taka 21 fyrirtæki og
stofnanir þátt í sýningunni, sem
gefur gott þversnið af því, sem er
að gerast í tölvumálum hér á landi.
Við opnun sýningarinnar kom
fram, að talið er, að árið 1985
muni tölvunotkun ná til 75%
allra starfa í atvinnulífinu, á
einn eða annan hátt. Það er því
augljóst, að tölvan verður hluti
af daglegu lífi þorra manna á
næstu árum.
Á sýningunni er að finna allar
helztu nýjungar á sviði tölvu-
tækni, frá smátölvum til stærri
véla. Áherzla er lögð á að sýna
hvernig skrifstofusjálfvirkni
gengur fyrir sig með samteng-
ingu ólíkra kerfa og verkþátta.
Samtenging tölva og notkun al-
menningsgagnaneta eru nýjung-
ar sem auka notagildi tölvanna.
Hvort tveggja er kynnt á sýning-
unni. Einnig er lögð áherzla á að
sýna önnur hjálpartæki á
skrifstofum svo sem skjalaskápa
fyrir tölvugögn, ljósritunarvelar
og fleira.
Niðurstaða námsstefnu félag-
anna tveggja, sem haldin var á
Hótel Loftleiðum á fimmtudag,
var sú að hér á landi værum við
í raun aðeins búin að stíga
fyrstu skrefin í tölvuvæðing-
unni. Mikið starf væri framund-
an. Þá var það skoðun manna, að
leggja yrði sívaxandi áherzlu á
uppfræðslu starfsfólks í fyrir-
tækjum um tölvumál og reyndar
þyrfti sú uppfræðsla að færast
meira til hins almenna borgara.
Tölvudeild Kristjáns Ó. Skagfjörö er með stóran sýn-
ingarbás, þar sem aðallega eru kynntar tölvur frá
Digital-tölvufyrirtækinu.
Hjá Radíóbúðinni er lögð aðaiáherzla á hina nýju
LISA-tölvu, sem kynnt var hér á landi í síðustu viku.
Menn hafa veríð að fá botn í hlutina
í Borgarnesi.
HELQARTILBOÐ: Qisting í tveggja
manna herbergi m/baði í tvær nætur ásamt
morgunverði og ferðum fram og til baka
frá Reykjavík með Sæmundi eða Akraborg.
Verð frá kr. 970.00 á mann. Leitið upplýs-
inga hjá Hótel Borgarnesi eða Ferðaskrif-
stofu ríkisins.
Það var haft eftir Bakkabræðrum, að
botninn væri suður í Borgarfirði. Þetta
orðtak hefur verið að rætast á óvæntan hátt
fyrir marga, sem átt hafa í fióknari málum
en bræðurnir á Bakka. Menn kannast orðið
við það úr fréttum, að þegar mikið liggur
við og ekkert má trufla fara nefndir og ráð
stundum upp í Borgarnes til þess að fá
botn í hlutina. Þar finna menn frið til að
hugsa og tala saman. Þar er líka að finna
þá tilbreytingu frá daglegu umhverfi, sem
oft nægir til þess að sjá hlutina í samhengi.
Frið og tilbreytingu má víða finna á íslandi
en í Borgarnesi hefur verið byggð upp að-
staða rétt utan við höfuðborgarsvæðið fyrir
fólk sem vill vera í friii án þess að missa í
leiðinni af þægindum nútímans. Hótelið er
tilvalið fyrir ráðstefnur, fundi og námskeið
en ekki síður fyrir einstaklinga, sem vilja
finna frið og ró rétt við bæjardyrnar hjá sér
án þess að leggja á sig mikil ferðalög
kostnað.
FERDASHRIFSIOFA HÓTEL
RIKISINS BORdiARNES