Morgunblaðið - 12.11.1983, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
19
vandasta fólk gæti ekki hneyksl-
ast. Myndir hennar hafa fyrir dul-
úðuga áferð sérstöðu á sýningunni
og þyrftu að koma fyrir augu er-
lendra á sem flestum sýningum
ytra. Dúkristur Kjartans Guðjóns-
sonar eru mjög fjörlega unnar og
hann virðist bæta við sig með
hverri sýningu. Skurðurinn er
mun fjölbreyttari og fínlegri en
áður og myndefnið margbreytilegt
þótt af svipuðum stofni sé.
Björg Þorsteinsdóttir glímir við
erfiða þraut í myndum sínum og
ferst það vel úr hendi þótt slík
myndgerð höfði ekki til mín. Ing-
unn Eydal hefur tekið út mikinn
þroska undanfarið, myndefnið er
annað og verður áhugavert að
fylgjast með framhaldinu.
Ingiberg Magnússon er samur
sér í dúkskurðarmyndum sínum
— mætti gjarnan víkka út mynd-
sviðið. Sigrid Valtingojer er með
hárnákvæmt útfærðar ætingar og
hefur aldrei verið sterkari að mín-
um dómi. Á óvart kemur Margrét
Zófóníasdóttir með tvær litlar en
litríkar dúkristur sem bera sterkri
skapgerð vitni, — myndir hennar
eru ólíkar flestu öðru á sýning-
unni fyrir vinnubrögðin. Akureyr-
ingurinn Guðmundur Ármann á að-
eins tvær myndir á sýningunni, en
virðist í sókn, einkum í mynd sinni
„Blindur leiðir blindan". Dúk-
skurðarmyndir Valgerðar Bergs-
dóttur eru mjög sérkennilegar í
fíniegum vinnubrögðum en stund-
um finnst manni þó að hún mætti
gefa skapinu lausan tauminn.
Mezzótintur Sigrúnar Eldjárn virka
á mig meira sem skreytingar í bók
en sjálfstæð verk og eru eftirtekt-
arverðar sem slíkar. Af hlut utan-
félagsmanna er framlag Gunnars
Arnar sórum áhugaverðast.
I heild er þetta mjög menning-
arleg og áhugaverð sýning en hún
skilur ekki nægilega mikið eftir
sig í huga undirritaðs eftir nokkr-
ar heimsóknir því að hér skortir
sviptingarnar. Eftirminnileg
slagsmál við myndefni og tækni.
En sýningin er sannarlega
heimsóknar virði og minnt skal á
að nú fer í hönd síðasta sýn-
ingarhelgin. Og þetta er sýning
sem sómi er að í Norræna húsinu.
I»orgeir Þorgeirsson
Sjáið vinir, grasið grænkar,
kuldinn bítur, vindur næðir,
snjórinn þyrlast
en grasið grænkar,
mikil, mikil og græn er velsæla mín.
Þannig verður Ódauðleiki
lofsöngur til lífsins, þess sem
skiptir meira máli en öll heims-
ins frægð.
Flutningur Ódauðleika var í
anda dæmisögunnar hljóðlátur,
minnti á köflum meira á sam-
lestur en leikið verk. Leikhljóð
skiptu miklu máli í verkinu og
einnig kínversk tónlist. Tranan
lætur líka að sér kveða. Það
komst allt vel til skila hjá
Hreini Valdimarssyni. Leikar-
arnir voru einnig starfi sínu
vaxnir: Árni Tryggvason, Bald-
vin Halldórsson, Erlingur Gísla-
son, Sólveig Halldórsdóttir og
Valur Gíslason.
Nýbylgjumálverk
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Undanfarið hafa þrír fulltrúar
hins svokallaða nýja málverks
eða nýbylgjunnar, sem það er
einnig nefnt, verið með sýningu
á ferskustu framleiðslu sinni.
Eru þetta þeir Gunnar Örn Gunn-
arsson, Jón Axel Björnsson og
Vignir Jóhannsson. Allir hafa
þeir vakið athygli á sér áður,
sem framsæknir fulltrúar þess-
arar listastefnu sem fer eins og
logi yfir akur í listaheiminum.
Víst er að þetta eru atkvæða-
miklir fulltrúar nýrrar kynslóð-
ar málara er nú ryðst fram með
mikilli málunar- og sýninga-
gleði.
Gunnar Örn er þekktastur
þeirra þremenninga enda þeirra
elstur og sjóaðastur í listinni.
Hann hafði þegar fyrir löngu
markað sér ákveðin stílbrögð,
sem hann virtist eiga eftir að
þróa til hlítar er nýja málverkið
tók hug hans allan, — svo al-
gjörlega að maður sér næsta
ekkert af fyrri vinnubrögðum í
þessum málverkum hans. Nema
ef vera skyldi hraðinn en hann
er einkennandi fyrir þessa teg-
und málverks. Jafnvel hefur það
komið fyrir að einn frægasti
fulltrúi og upphafsmaður þess-
arar stefnu málaði eitt sinn á
eina sýningu á fáeinum dögum.
Að stofni til hafa myndir
Gunnars lítið breyst frá sýningu
hans í Listmunahúsinu nú í vor,
myndefnið er svo til það sama en
myndirnar sumar hverjar
stærri. Einhvern veginn finnst
mér myndir Gunnars ekki nægi-
lega unnar né upplifaðar, nokk-
uð lausar í sér og hrjúfar. Það er
helst í myndunum „Mynd“ (4) og
„Græninginn frændi minn“ (6)
sem fram koma vinnubrögð, sem
ég er sáttur við frá hendi Gunn-
ars Arnar. Sjálfur er hann á því,
að myndir sínar eigi að vera
spurning. Að málinu sé ekki lok-
ið. Spurning til áhorfandans.
Þetta er að vissu marki hárrétt
en myndinni sjálfri þarf að vera
lokið, form og litir þurfa að
smella saman hve lítið eða mikið
sem borið er í verkið.
Jón Axel Björnsson hefur vak-
ið mikla athygli fyrir ferska
málaragáfu og mér finnst enda
kenna mestrar málaragleði og
sannfæringar í myndum hans á
þessari sýningu. Þær eru upplif-
aðar með tilfinningu æsku-
mannsins, ferskari en þó furð-
anlega mótaðri. Myndir hans
„Nafnlaus" (15) og „Nafnlaus"
(17) orkuðu sterkt á mig og þó
veit ég að hann getur miklu bet-
ur og á enda eftir að gera
sterkari hluti ef að líkum lætur.
Myndir hans eru mjög stórar og
kraftmiklar. í þennan mann er
F.v. Vignir Jóhannsson, Gunnar
Örn Gunnarsson og Jónas Axel
Björnsson vinna að uppsetningu
sýningar sinnar.
mikið spunnið.
Vignir Jóhannsson kemur frá
sjálfri listaborginni New York,
með rosastórar myndir í far-
angrinum. Af myndunum að
ráða er hann á góðri leið með að
mála sig frá Vladimir Velicko-
vic, sem var áður mikill áhrifa-
valdur í list hans. í myndum
hans er ennþá mikill hraði og
kraftur — þær eru tæknilega vel
úr garði gerðar og á það atriði
leggur hann sýnu meiri áherslu
en félagar hans. Einhver glans
er yfir áferð myndanna sem ég -
kann einhvern veginn ekki við
ennþá — máski er það fernisinn.
Vignir er stórhuga og vílar ekki
fyrir sér að berjast fyrir lífi sínu
í heimsborginni þar sem sam-
keppnin er gífurlega hörð. Langt
er síðan ég hef komið til New
York svo ég þekki ekki af eigin
raun listalífið eins og það er
núna — einungis af blöðum og
bókum en þau segja aldrei alla
söguna heldur einungis skoðanir
skrifendanna.
Hvort myndir hans eigi að tjá
ragnarök og heimsendi er ekki
gott að segja því að myndirnar
eru nafnlausar en það er einmitt
mjög í móð nú um stundir.
Fram hefur komið að lítill
áhugi og markaður er fyrir þessa
tegund myndlistar hérlendis
eins og alls staðar þar sem stóru
galleríin eru ekki með í leiknum.
Allt nýtt vekur vissa tortryggni,
það vita allir þeir er reynt hafa
en þó hefur nýbylgjumálverkið
verið meira auglýst en nokkur
annar nýr myndstíll á öldinni.
Nauðsynlegt er að gera eitt-
hvað fyrir þann fjölmenna hóp
ungra listamanna er nú ryðst
fram, fjölmennari en nokkru
sinni áður. Það verður einungis
gert með þátttöku fjölmiðla og
myndarlegri auglýsingu í formi
bókaútgáfu. Hér verða menn að
vera stórhuga svo að unga fólkið
nái að þroskast og dafna á þeim
vettvangi er það kýs. Það er
einnig stuðningur að því einu að
koma og skoða sýningar, — mik-
ill stuðningur...
Basar Styrktar-
félags lamaöra
og fatlaðra
Árlegur basar kvennadeiidar
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra verður í Sigtúni sunnudaginn
13. nóvember klukkan 14. Á bas-
arnum verður mikið af jóla-
skrauti, handunnar vörur og mikið
af íþróttavörum. í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu segir að það heiti
á velunnara sína að koma og
styrkja gott málefni.
O
Tvær góðar í Háskólabíói
OFFICER
AJVDA
Foringi
og
fyrirmaður
Whatafeeling.