Morgunblaðið - 12.11.1983, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
Annað bindi af
Skrifað í skýin
Bókin Skrifart í skýin, önnur
minningahók Jóhannesar R. Snorra-
sonar fyrrv. yfirflugstjóra, er komin
út.
Þessi nýja bók ber sama heiti og
fyrri bókin, Skrifað í skýin, og tek-
ur efni hennar við þar sem frá var
horfið í fyrri bókinni árið 1946, en
lýkur í upphafi sjöunda áratugar-
ins.
í frétt útgefanda segir m.a.:
„Það gætir margra grasa í þessari
bók. Hún hefst með stuttu ágripi
úr flugsögunni. Síðan eru rifjuð
upp frumbýlingsár millilanda-
flugs íslendinga og ævintýralegar
flugleiðir í Skymaster-flugvélum á
fyrsta áratugi millilandaflugs með
innflytjendur frá Miðjarðarhafs-
löndum til Suður-Ameríku. Þá er
greint frá upphafi Heklugossins
árið 1947 og fyrsta fluginu til
gosstöðvanna, samferð með eftir-
minnilegum mönnum, þ.á m. stór-
söngvaranum Jussa Björling og
Jóhannesi Kjarval listmálara.
Sagðar eru spaugilegar sögur af
flutningi ýmissa dýrategunda í
farþegaflugvélum fyrr á árum og
atviki þegar farþegi tók völdin í
annarri Viscount-flugvél flugfé-
lagsins.
Að lokum er greint frá lendingu
á hafísnum, næstum miðja vegu
milli íslands og Grænlands, fyrstu
kynnum af Austur-Grænlandi og
flugi Katalina-flugbátanna á þær
slóðir, svo nokkuð sé nefnt."
Bókin er 342 blaðsíður, kafla-
heiti 36 og myndir 119, þ.m. lit-
myndir frá Grænlandi. Prent-
smiðjan Oddi hf. annaðist setn-
Friðrik teflir
fjöltefli í dag
FRIÐRIK Ólafsson, stórmeistari í
skák, mun tefla fjöltefli í dag
kl.14. Er búist við að um 40
skákmenn taki þátt í fjölteflinu,
sem fer fram í félagsheimili Tafl-
félags Reykjavíkur við Grensás-
veg.
Jóhannes Snorrason
ingu, prentun og bókband. Auglýs-
ingastofa Gísla B. Björnssonar
gerði bókarkápu og Snæljós sf.,
Garðabæ gefur bókina út.
Oli G. Jó-
hannsson
sýnir í
Sjallanum
Akurejri, 11. nóvember.
ÓLI J. Jóhannsson, listmálari á
Akureyri, efnir til málverkasýn-
ingar í Sjallanum nú á sunnudag-
inn og stendur sýningin aðeins
þennan eina dag og verður opnuð
kl. 15 og lýkur kl. 1 eftir mið-
nætti. Oli sýnir þarna ca. 40
myndir, sem allar eru málaðar og
teiknaðar á þessu ári og því síð-
asta. Er þama um að rsða ýmsar
hugmyndir sem listamaðurinn
hefur fest á blað auk margra
mynda frá sjávarsíðunni.
Tilefni þessarar sýningar
óla er, að einmitt þennan dag
eru liðin 10 ár frá því hann
sýndi í fyrsta sinn, sem var í
Landsbankasalnum á Akur-
eyri.
Meðfylgjandi mynd er af
listamanninum með eitt þeirra
verka, sem á sýningunni verða.
Ljósm: Mbl. GBerg.
Úr einu atriði íslensku revíunnar.
Revíuleikhúsið:
Islenska
Revían á
Hótel Borg
Revíuleikhúsið tekur nú upp
þráðinn þar sem hann slitnaði í vor
og hefjast sýningar á fslensku reví-
unni eftir Geirharð Markgreifa á
föstudag. Samningar hafa tekist
við Hótel Borg um að hafa sýn-
ingarnar á revíunni í Gyllta sal
hótelsins, en sem kunnugt er
missti Revíuleikhúsið húsnæði sitt
á miðju leikári í fyrra er Hafnarbíó
var rifið. Hótel Borg mun bjóða
revíugestum upp á mat og drykk
og hefur verið útbúin sérstakur
revíumatseðill. Gestir munu sitja
undir borðum á meðan á sýningu
stendur og komast rúmlega hundr-
að á hverja sýningu.
Leikstjóri fslensku revíunnar
er Gísli Rúnar Jónsson, leikend-
ur eru Þórhallur Sigurðsson
(Laddi), Guðrún Alfreðsdóttir,
Guðrún Þórðardóttir, Saga
Jónsdóttir, Pálmi Gestsson,
Kjartan Bjargmundsson og Örn
Árnason. Leikmynd gerði Stein-
þór Sigurðsson og lýsingu ann-
ast Ingvar Björnsson.
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ, um tillögu ríkisstjórnarinnar:
Tökum því vel að ákvæð-
ið sé numið úr gildi
Feginn því aö ríkisstjórnin hefur séð aö sér, segir Björn Þórhallsson, varforseti ASI
„VIÐ höfum í grundvallaratriðum
verið á móti banni við samningum
og afnámi samningsréttar og þess
vegna hljótum við að taka því vel að
þetta ákvæði bráðabirgðalaganna sé
numið úr gildi,“ sagði Magnús
Gunnarsson, framkvæmdastjóri VSÍ
í samtali við blm. Morgunblaðsins,
en hann var spurður álits á þeirri
tillögu ríkisstjórnarinnar, að tak-
Unnið af kappi fyrir sýninguna.
Hveragerði:
Sölusýning vistmanna í Ási
HveragerAi, 9. nóvember.
VISTMENN á dvalarheimilinu Ási í
Hveragerði halda á morgun, sunnudag,
hasar og sölusýningu á munum sem
þau hafa búið til. Verður basarinn
haldinn að Bröttuhlíð 20 og hefst kl.
14.00.
Fréttaritari Mbl. leit nýlega inn í
föndurstofuna í Ási og var vistfólkið
þá í óða önn að Ijúka við frágang á
mörgum fögrum munum fyrir sýn-
inguna. Mikið var af góðum ullarföt-
um, bæði á börn og fullorðna, svo og
mörgum fallegum útsaumsmunum,
dúkum, púðum, veggmyndum og
jólaföndri.
Daglega er sala opin að Bröttuhlíð
20 á milli kl. 13.30 og 17.00, fimm
daga vikunnar. Kennarar í Ási eru
þær Unnur Benediktsdóttir og Ólöf
Harðardóttir. Að sögn Unnar hefur
allt efni til þessarar vinnu hækkað
afskaplega mikið. Kemur það sér illa
fyrir þennan starfshóp sem ekki hef-
ur úr háum launum að spila, en
hannyrðavörur eru í háum tolla-
flokki og mætti gjarnan endurskoða
þau mál.
Ég óska vistfólkinu í Ási til ham-
ingju með sölusýninguna sem ég veit
að verður þeim til sóma.
Sigrún
mörkun á samningsrétti verði felld
niður úr bráðabirgðalögum ríkis-
stjórnarinnar frá því í vor.
„Við viljum ítreka það, svo virð-
ist sem árangur hafi náðst í bar-
áttunni við verðbólguna, en það á
eftir að sýna sig betur hvernig
þessi mál þróast,“ sagði Magnús.
Magnús gat þess að nauðsynlegt
væri að allir legðust á eitt með að
tryggja það að árangur næðist í
baráttunni við verðbólguna. Hins
vegar ítrekaði Magnús að ljóst
væri að möguleikar til hefðbund-
inna kjarabóta væru ekki fyrir
hendi, við þær aðstæður sem ríktu
í þjóðfélaginu nú.
„Ég er því feginn að ríkisstjórn-
in hefur séð að sér og ætlar að
fella úr bráðabirgðalögunum það
meginákvæði sem skerðir samn-
ingsréttinn," sagði Björn Þór-
hallsson, varaforseti ÁSÍ, þegar
Mbl. leitaði álits hans á þessu
máli. Að öðru leyti vildi hann ekki
tjá sig um það.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASf, tók undir orð Björns og fagn-
aði þeim áfanga sem nú væri í
sjónmáli varðandi samningsrétt
verkalýðshreyfingarinnar. Lagði
Ásmundur áherslu á að ákvörðun
ríkisstjórnarinnar væri árangur
andófs verkalýðssamtakanna
gagnvart lögunum og þeim víð-
tæka stuðningi sem fram hefði
komið við afstöðu samtakanna.
Jafnframt væri ljóst af yfirlýsing-
um forsætisráðherra að um væri
að ræða viðurkenningu ríkis-
stjórnarinnar á því að nánast úti-
lokað sé að takast á við vanda
þjóðfélagsins í efnahagsmálum án
samráðs við verkalýðssamtökin.
Segja mætti að yfirlýsingar nokk-
urra þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins hefðu leitt í ljós að ekki
væri meirihlutastuðningur við
lagaákvæðið á Alþingi. Ásmundur
sagði rétt að minna á að samn-
ingsréttur væri enn skertur, því
ekki væri heimilt samkvæmt
hugmynd ríkisstjórnarinnar að
semja um vísitölubindingu launa
og ljóst væri að ef semja ætti til
einhvers tíma, yrði að tryggja
kaupmátt með einhverjum hætti á
samningstímanum.
Þá sagði Ásmundur að felldar
væru niður launahækkanir sem
einstakir hópar hefðu samið um
til lengri tíma en almennu samn-
ingarnir giltu og þeir hefðu átt í
vændum þegar lögbindingu lyki.
Því hefði verið mótmælt í ályktun
miðstjórnar ASÍ, að sögn Ás-
mundar.
Hann sagði að meginþungi yrði
lagður á að ríkisstjórnin yrði að
gera meira en að gefa heimild til
samninga, hún yrði að virða þá
samninga sem gerðir yrðu.
LAUGARDAGUR
omimto-4
EIÐISTORG/11
Vdrumarkaturinn hf.