Morgunblaðið - 12.11.1983, Síða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1983
>7É.g Keld vit'i r\án&, Vw/ox Kirm blái
S'oWcurinn þinn «r."
ásí er ...
... að leyfa henni að
skreyta húsið að eigin
vild.
TM Rm U.S. Pat. Off.—all rights reserved
® 1980 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
305
Vk) skulum kom. okkur drengur Afsakið É ^ dáHtjð
minn. Hun móðir þin er að laga til.
Finnst ég eiga
von á kærum vini
V.T. skrifar:
„Velvakandi góður!
Mig langar til að senda þér
nokkrar línur, en tilefnið er út-
varpið okkar góða, sem ég er
ánægð með að flestu leyti.
Fyrst ætla ég að minnast á það,
sem betur mætti fara. Það fyrsta
eru fimmtudagarnir. Þá er ekkert
sjónvarp og fyndist mér, að þá
ætti að vanda sérstaklega til
dagskrár. En það er nú eitthvað
annað upp á teningnum, því að
þeir eru yfirleitt langleiðinlegast-
ir, ekkert bitastætt að hafa nema
veður og fréttir og stundum góð
leikrit.
Ekki líst mér vel á hugmyndir
nýja leiklistarstjórans, að hafa
leikrit aðeins tvisvar í mánuði og
taka þá viðameiri leikrit fyrir og
hafa fleiri leikara. Það er alveg
fráleitt: því fleiri leikarar sem
fram koma, því verr kemst stykkið
til skila. Það sýndi sig t.d. í Nas-
hyrningunum. Þó ég væri búin að
sjá leikritið, var þetta óskapnaður
sem maður botnaði ekkert í, ein-
mitt vegna fjölmennisins. Ég trúði
því varla, að þetta væri sama leik-
ritið; ekki fyrir það að leikararnir
værú lélegir, því að þetta voru úr-
valsleikarar, heldur einungis fyrir
það að útvarp þolir ekki fjölmenni,
ef komast á til skila það sem flutt
er.
Eins finnst mér ófært að blanda
um of saman talmáli og hljómlist.
Sérstaklega er það slæmt fyrir þá
sem hafa skerta heyrn. Þá er það
rangt að slíta sundur talað mál
með hljómlist. Ég vorkenni engum
að tala (eða hlusta) í 20—30 mín-
útur án hvíldar. Að minnsta kosti
kemst Jónas Árnason vel frá því.
Það gerðu líka þeir ágætu út-
varpsmenn okkar hér áður fyrr og
það léttilega. En þetta virðist vera
í tísku nú að slíta í sundur talað
mál í tíma og ótíma og koma að
músík.
Ég er ekki á móti tónlist, nema
síður sé, en vil halda henni fyrir
mig.
Fiirugerði 1.
Efndir verði
uppfylltar
Þorsteinn Jóhannsson skrif-
ar 10. nóv.:
„Kæri Velvakandi.
Aldraðan leiguliða í Furu-
gerði langar til að beina
skeytum sínum til Davíðs
Oddssonar og borgarstjórnar
Reykjavíkur.
Svoleiðis er að okkur hefur
verið lofað, að við fengjum
aðra lyftu i húsið, Furugerði
1, en lítið orðið úr fram-
kvæmdum. Það er lyfta í hús-
inu, bæði lítil og iðulega í bil-
un (síðast í dag).
Það er ekki forsvaranlegt,
því að íbúar hússins eru ein-
göngu háaldraðir og ekki fær-
ir um að ganga átta stiga, en
húsið er átta hæðir og íbúar
90 manns.
Vil ég vona, að við verðum
virt þess, að efndir verði upp-
fylltar.
Virðingarfyllst."
Ég vil geta þess, að ég sakna
mikið þátta Arnþrúðar Karlsdótt-
ur, Dropa, og Syrpu Páls Þor-
steinssonar. Þetta voru afbragðs-
góðir þættir.
Jæja, þá er best að snúa sér að
því sem vel er gert og fengið hefur
að halda velli í vetrardagskrá.
Fyrst er að nefna hina frábæru
þætti Jónasar Jónassonar. Það
virðist vera alveg sama, hvað
hann gerir fyrir okkur útvarps-
hlustendur. Og það er alveg stór-
kostlegt, hvað honum gengur vel
að fá fólk til að spjalla um allt
milli himins og jarðar, rétt eins og
það sé að rabba við góðan vin eða
kunningja. Þó er þetta oft fólk,
sem hann hefur aldrei hitt. Ég
segi fyrir mig, að mér finnst ég
eiga von á kærum vini, þegar hans
er von í útvarpinu.
Þá er það ar.nar útvarpsmaður
sem ég missi aldrei af. Það er Þrá-
inn Bertelsson, með stutta spjall-
þætti sína um allt og ekkert. Þeir
eru svo vel fram settir, að unun er
á að hlýða.
Ekki má gleyma Hermanni
Gunnarssyni, sem er svo fullur af
lífi og kímni, að ég get aldrei setið
kyrr þegar ég hlusta á hann. Hann
lyftir manni hátt upp úr drunga
hversdagsins.
Þá eru það þulirnir okkar, allir
með tölu. Þó geri ég svolítinn mun
á þeim. Tveir skera sig úr, Pétur
Pétursson og Jóhannes Arason.
En allir eru ágætir.
Þá eru það fréttamennirnir.
Kristinn R. ólafsson á Spáni og
Atli Rúnar Halldórsson í Noregi
skera sig úr með frábærri
frammistöðu sinni; einnig Helgi
Pétursson sem er mjög ánægju-
legt að vera búið að fá heim. í
hans stað vestra kom Stefán Jón
Hafstein, mjög góður útvarpsmað-
ur, og veit ég að hans verður sakn-
að hér heima.
Ekki má gleyma Útvarp Akur-
eyri. Það hefur farið vel af stað,
langt fram úr mínum björtustu
vonum, starfsfólk þess létt og
ferskt.
Um sjónvarpið mætti margt
segja, en mest af því yrði nei-
kvætt. Þó að þar finnist innan um
gott eíni, er það svo lítið að mér
þykir ekki taka því að nefna það.
Og því fer mjög aftur, hvað sem
veldur. Ef það er júlíopnunin eða
fjármagnsskortur af öðrum
„Ekki má gleyma Hermanni Gunn-
arssyni, sem er svo fullur af lífi og
kímni, að ég get aldrei setið kyrr,
þegar ég hlusta á hann. Hann lyftir
manni hátt upp úr drunga hvers-
dagsins.“
ástæðum, en ekki kæruleysi í efn-
isvali, þá fyrir alla lifandi muni
fækkið útsendingardögum og
vandið til þess efnis sem sent er
út. Ég er viss um, að hægt er að
gera betur en gert er og spara ein-
hvers staðar án þess að það komi
niður á dagskránni."
„Miskunnsemi þrái
ég — en ekki fórn“
Tómas Björnsson skrifar:
„Velvakandi.
Varðandi bréf Árelíusar um
Kvennabréf nr. 1 árið 1983: Hvers
konar karlremba er þessi Árelíus?
Er það ekki karlmaðurinn sem á að
vernda konuna, og það sérstaklega
fyrir sjálfum sér og sinni taumlausu
lostagirni? Skyldi hann ekki fremur
gæta þess af kostgæfni, að barni
yrði ekki til?
Eða hvað er það þá sem veldur því
að kornungar stúlkur verða þungað-
ar? Er það kristnum manni sæm-
andi aö haga sér eins og hani í
hænsnakofa og yfirgefa svo konu og
ófætt barn hennar? Til þess að
miskunnarlaust karlaveldið geti síð-
an ásakað hana fyrir að vilja granda
barni sínu?
Þvílíkt og annað eins þjóðfélag
sem við búum í. Og af hverju taka
ekki farísearnir að sér þessar ekkjur
og föðurleysingja, sýna þeim kær-
leika og rétta þeim hjálparhönd í
þrengingum þeirra, í stað þess að
fordæma og útskúfa fórnarlömbum
karlrembunnar?
í Mattheusi 23, 4 segir: „Þeir
binda þungar byrðar og leggja
mönnum á herðar, en sjálfir vilja
þeir ekki snerta þær einum fingri."
Hvaða einstæð móðir með tvö
börn getur framfleytt sér og börn-
unum á 12 þúsund krónum á mán-
uði, þegar 6 þúsund krónur af því
fara í barnagæslu? ísland allsnægt-
anna?
Hversu langt viljið þið ganga í að
refsa konu og barni (eða börnum)
fyrir misgjörðir ykkar? Eins lengi
og til eru í okkar „kristna" samfé-
lagi eigingjarnir, óábyrgir og kæru-
lausir karlar, sem vanvirða og
smána konur, þá verða einnig til
ófrískar einstæðar mæður, sem
stundum telja sig neyddar til að
gangast undir fóstureyðingu.
„Miskunnsemi þrái ég en ekki
fórn,“ stendur skrifað. Miskunnsemi
með þeim sem fyrir ofríki verða.
„Hrein og flekklaus guðrækni
fyrir Guði og föður er þetta: Að
vitja munaðarlausra og ekkna í
þrengingu þeirra og varðveita sjálf-
an sig óflekkaðan af heiminum."
Jakobsbréf 1, 27 og Jesaja 1, 16—17.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
ingu.“
Jónas Jónasson. „Þad virðist vera
alveg sama, hvað hann gerir fyrir
okkur útvarpshlustendur. Og það er
alveg stórkostlegt hvað honum geng-
ur vel að fá fólk til að spjalla um allt
milli himins og jarðar, rétt eins og
það sé að rabba við góðan vin eða
kunningja. Þó er þetta oft fólk sem
hann hefur aldrei hitt.“