Morgunblaðið - 13.11.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983
3
Menntamálaráðherra á fundi með námsmönnum:
Allar líkur á að fjárþörf Lána-
sjóðs í desember verði fullnægt
Frá fundinum um lánamál stúdenta. Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra er í ræðustól. MorpinbiaAM Köe
Allar líkur eru á að það fé
fáist, sem Lánasjóð íslenzkra
námsmanna vantar, til að
geta staðið við skuldbind-
ingar sínar við námsmenn í
desembermánuði. Þetta kom
m.a. fram í ræðu Ragnhildar
Helgadóttur menntamálaráð-
herra á fundi með náms-
mönnum í hátíðarsal Háskól-
ans í fyrradag.
Auk ráðherrans fluttu fulltrúar
þingflokkanna, stúdentaráðs og
Lánasjóðs framsöguerindi á fund-
inum, sem var mjög fjölsóttur.
Síðan voru almennar umræður
þar sem stúdentar mótmæltu
harðlega hugmyndum um skerð-
ingu námslána. Einnig var
menntamálaráðherra afhent skjal
með undirskriftum 13—1400
námsmanna úr 15 sérskólum þar
að lútandi.
Menntamálaráðherra sagði að
fjárhagsvandræði Lánasjóðs
mætti að miklu leyti rekja til
óraunhæfra fjárlaga síðustu ríkis-
stjórnar fyrir þetta ár þar sem
gert hefði verði ráð fyrir 42%
verðbólgu. Raunin hafi hins vegar
orðið sú að verðbólgan varð miklu
meiri. Þó væru 95% líkur á að
fjármagn fengist til að Lánasjóð-
urinn gæti veitt námsmönnum
námslán í desembermánuði í sam-
ræmi við lög. Hér væri um að
ræða 22 og hálfa milljón kr., en
menntamálaráðherra kvaðst ekki
á þessu stigi geta upplýst hvernig
fjárins yrði aflað.
Ennfremur kom fram i máli
ráðherra að lögin um Lánsjóðinn
væru flókin og losaraleg svo að
gera þyrfti breytingar á þeim til
að skýra þau. Þá lýsti mennta-
málaráðherra yfir þeirri skoðun
sinni að fresta ætti um eitt ár því
ákvæði laganna um að veita náms-
mönnum 100% lán á næsta ári
vegna hins bága efnahagsástands.
Það væri unnt að gera með tvenn-
um hætti: Annars vegar að breyta
lögunum og hins vegar reikna
framfærslukostnað út öðru vísi en
nú er gert.
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir frá Kvennalistanum kvaðst vera
á móti öllum breytinum sem fælu
í sér skerðingu námslána. Hér
skyti skökku við að fjármagn virt-
ist vera fyrir hendi til að reisa
flugstöð, en námsmenn þyrftu að
taka á sig kjaraskerðingu. Ragnar
Arnalds frá Alþýðubandalginu tók
í sama streng og kvað það laga-
lega skyldu ríkisstjórnarinnar að
veita full námslán, annað væri
lögbrot. Friðrik Sophusson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði að finna þyrfti
sanngjarna lausn á málefnum
Lánasjóðsins. Ef breytingar á lög-
um hans væru til bóta mundi hann
styðja þær. Þá sagði Friðrik að
þeir aðiljar sem hefðu með lána-
málin að gera hefðu lagt ólrkar
forsendur til grundvallar við út-
reikning námslána á árinu 1984.
Kvað hann það rangt sem kom
fram í máli Sigríðar Dúnu að 500
millj. vantaði til að fjárþörf Lána-
sjóðsins yrði fullnægt á næsta ári.
Hér væri um að ræða 200 millj. ef
ríkisstjórnin næði settum mark-
miðum í efnahagsmálum. Páll
Pétursson frá Framsóknarflokki
lagði áherslu á jafnan rétt til
náms án tillits til efnahags hvern-
ig sem áraði. Hins vegar þyrftu
námsmenn að taka á sig byrðar
eins og aðrar þjóðfélagsstéttir
þegar efnahagsástandið væri svo
slæmt sem raun bæri vitni. í ræðu
Stefáns Benediktssonar, fulltrúa
Bandalags Jafnaðarmanna, kom
fram m.a. fram að ekki væri deilt
um hvort menntun væri nauðsyn-
leg, en námsmenn sjálfir þyrftu að
koma með skýrar tillögur um
lánamálin til að tryggja að tekið
yrði tillit til þeirra.
í skíðaferð með
Cttsýn
Á skíðum skemmtu þér
Vörusv0'09 _
KaviPs'e'nU r*
\Z\ösK\p^erö'
LECH, FINKENBERG OG MAYERHOFEN
Beint leiguflug með Flugleiöum, 2 vikna feröir.
Brottfarardagar: Jólaferö 20. desember, 22. janúar, 5. og 9. febrúar, 4. mars.
Verð frá kr. 18.030.
SVISS:
Skíðaferðir Útsýnar veturinn .
1983—1984 til Austurríkis og
Sviss, þar sem hver staður-
inn er öðrum betri.
AUSTURRÍKI:
Odýrar
helgarferöir
KAUPMANNAHÖFN
Brottför laugardaga.
Verö frá kr. 8.915.
EDINBORG
Brottför föstudaga.
Verð frá kr. 8.208.
GLASGOW
Brottför föstudaga.
Verö frá kr. 8.202.
LUXEMBORG
Brottför föstudaga.
Verö frá kr. 10.273.
LONDON
Brottför fimmtudaga.
Verð frá kr. 8.275.
AMSTERDAM
Brottför föstudaga.
Verö frá kr. 9.950.
PARÍS
Brottför föstudaga.
Verö frá kr. 12.754.
HELSINKI
Brottför föstudaga.
Verö frá kr. 10.918.
KAÍU:
Brottfarardagar í leiguflugi: 14.
des., 4. jan., 25. jan., 15. febr., 7.
mars, 28. mars, 18. apr., 9. maí.
Brottfarardagar í áætlunarflugi:
Vikulega frá og meö 2. nóvem-
ber. Verö frá kr. 19.159.
ANZERE
Beint leiguflug meö Arnarflugi, 2 vikna feröir.
Brottfarardagar: 20. desember, 3., 17. og 31. janúar, 14. og 28. febrúar, 13. og
27. mars, 10. apríl. Verð frá kr. 16.600.
Feröaskrífstofan
0TSÝN
Costa del Sol
Þar sem sólin skín allan ársins hring. Á Costa del
Sol er alltaf mikiö líf og fjör. Brottfarardagar: 16.
og 30. desember, 6. og 13. janúar, 3., 10., 17. og
24. febrúar. 9., 16., 23. og 30. mars. Verö frá
aðeins kr. 14.800 í 2 vikur. Hægt aö framlengja
dvölina í London.
Austurstræti 17, sími 26611. Akureyri: Hafnarstræti 98, sími 22911.