Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 2
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 „Vonlaust að ætla tveim körlum einn kvenmann“ endurbótunum á safninu er að Ijúka, nú og svo höfum við dýr- in hérna hvort eð er. Þannig að það er alveg eins gott að opna núna eins og að láta þetta vera mannlaust fram á næsta vor, einungis vegna þess að það sé skemmtilegra að opna á vori.“ Jón býðst nú til að fara með okkur og sýna okkur safnið. Hann kveikir í pípunni sinni og við höldum af stað út í snjóinn. „Þarna uppfrá eru strákarnir að ljúka viðgerð á apa- og ljónahúsinu. Það eru óhemju- miklir peningar sem hafa farið í þessar endurbætur. Ætli það hafi ekki verið fjárfest fyrir svona fimm milljónir undan- farna mánuði. Nýja húsið er um 400 fermetrar að stærð. Svo þurftum við að gera við allar girðingar og gangstíga, sem voru illa farnir. Þar sem fisk- arnir voru áður, þ.e í Fiskahús- inu svonefnda, er búið að koma upp fóðuraðstöðu og aðstöðu til að útbúa mat fyrir dýrin. Þetta er svo gífurlega margbreytilegt fæði, sem þarf að útbúa." Inni í apa- og ljónahúsinu voru um 10 manns önnum kafn- ir við viðgerðir. Sumir lóðuðu saman rimla og aðrir unnu við viðgerð á gólfinu. Allir voru þeir önnum kafnir og virtust ákveðnir í að ljúka verkinu á tilsettum tíma. Vonlaust að ætla sér að hafa einn kvenmann fyrir tvo karla „Þetta er simpansapar," segir Jón og bendir á tvo apa sem héngu í rimlunum og virtu komumenn fyrir sér. „Þau eru ung ennþá. Bara rétt komin á gelgjuskeiðið og eru nýfarin að gera sér grein fyrir að þau eru ekki af sama kyni. Við erum að vona að einn góðan veðurdag fjölgi þau sér. I dýragörðum er best að hafa pör saman í búri, því parinu semur yfirleitt vel. Það er í lagi að hafa tvö kven- kynsdýr og eitt karlkyns sam- an, en það er alveg vonlaust mál að ætla sér að hafa bara einn kvenmann fyrir tvo eða fleiri karla. Þá berjast karlarn- ir nefnilega um konuna og geta meitt hvern annan eða jafnvel drepið. Úr apa- og ljónahúsinu lá leið okkar fram hjá föngulegum fuglahópi. „H érna eru peking- endur og gæsir," fræðir Jón okkur. „Þær virðast una sér best utandyra og fara ekkert inn í kofana sem voru smíðaðir Jón Gunnarsson sýnir okkur angórukanínur. Þær eru geysifallegar, mjúkar, loðnar og gæfar ... Menn voru önnum kafnir við viðgerðir og gerðu það sem í þeirra valdi stóð til að hægt yrði að opna Sædýrasafnið á tilsettum tíma. Og það tókst... A þessari mynd má sjá mennina við störf í apa- og Ijónahúsinu. Konungur dýranna hefur Ijón- ið verið kallað. Sennilega hefur þetta tignarlega dýr ekki hlotið titilinn að ástæðulaustu, eða hvað fínnst ykkur? handa þeim. Oft koma gestir í heimsókn til þeirra. Það eru þá fuglar, sem fljúga framhjá og finnst tilvalið að skella sér í tjörnina í leiðinni. Sumar þeirra hafa líka sest að hérna hjá okkur." Þrjú sæljón komin og hvalir á leiðinni „Við erum með þrjú sæljón hérna. Mér finnst sæljón ein skemmtilegustu dýragarðsdýr sem til eru. Við erum með þrjá karla, en þeim semur ekki nægilega vel, þannig að við verðum að hafa einn aðskilinn frá hinum tveim. Svo eigum við von á hvölum nú á næstu dög- um. í fyrra var þak byggt yfir hvalalaugina. Fiskarnir verða í gömlu ísbjarnalauginni, en fólkið horfir á þá neðan úr kjallara og sér þá í gegnum gler. ísbirnirnir eru núna í gryfju fyrir ofan apa- og ljóna- húsið. Það er geysifallegt og skemmtilegt ísbjarnapar. Við förum stundum í veiðitúra með bátum og veiðum fiska til að hafa í safninu en einnig færa góðir bátamenn okkur stundum fiska. Svo stundum við háhyrn- ingsveiðar og seljum háhyrn- ingana til dýragarða erlendis. Þessar veiðar hafa satt að segja haldið okkur uppi.“ Nú, þegar Sædýrasafnið opnar, verða til sýnis fleiri dýr en minnst hefur verið á í grein- inni. Sem dæmi má nefna snæ- uglur, hrafna, kindur, kanínur og kengúrur. Stærri hluti safnsins verður undir þaki en áður var. Salernisaðstaða hefur verið bætt og því verður ekki neitað að öll aðstaða og útlit er langtum betri en áður var. „Það er eitt, sem mig langar til að segja að lokum," sagði Jón, er komumenn bjuggu sig til brottfarar. „Tilvera safnsins byggist að öllu leyti jákvæðum undirtektum Iandsmanna. Það er skilyrði fyrir því að hægt verði að starfrækja safnið, að fólk taki starfseminni vel og taki á þann hátt þátt í framför- um og framtíð Sædýrasafns- ins.“ btom. Isbirnirnir tveir eru í gríðarlega stórri gryfju sem óneitanlega er ofurlítið ógnvekjandi, en varla er annað við hæfí hjá dýrum eins og ísbjörnum.... Á þessari mynd sést annar björninn teygja sig í átt til Jóns, sem veifaði vasaklút til að vekja athygli bjarnarins. Og sjá! Peking-endur og gæsir vappa fyrir framan tjörnina sína. í bakgrunni sést „kofínn" þeirra, sem þær fara sjaldan inn í. Marg- ur mundi nú ekki kalla húsakynni þeirra kofa, heldur hið fínasta ein- býlishús. En hvað um það ... fugl- arnir kunna greinilega ekki gott að meta ...

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.