Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 6
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 Hér sést hluti nýkjörinnar stjórnar LH, frá vinstri talid: Stefán Pálsson, formaður, Egill Bjarnason, meðstjórnandi, Gísli B. Björnsson, gjaldkeri, Sigurður Haraldsson, ritari, Kristján Guðmundsson, varaformaður. Á myndina vantar Skúla Kristjónsson og Guðrúnu Gunnarsdóttur. Ljósm. V.K. Undirbúningur og framkvemd þingsins meddi að mestu leyti á þeim Sigurði Ragnarssyni, framkvæmdastjóra LH (til vinstri), og Guðmundi Sigurðssyni, formanni Faxa. * Alit 34. ársþings LH á upprekstrarmálum: Bann við upprekstri hrossa skaðar uppeldi ungviða Eins og áður hefur komið fram í fréttum Morgunblaðsins var 34. ársþing l.andsambands hestamannafélaga haldið dagana 28.-29. október síðastlið- inn. Eins og oft vill verða spyrja menn bæði sjálfan sig og aðra hvort þingið hafi verið góð eður ei. Að öllu jöfnu telja flestir að þetta og hitt þingin hafi verið nokkuð gott þótt alltaf greini menn á hversu góð þau eru. Fullyrða má að það besta við þessi þing sé að þau séu yfirleitt haldin, svo nauðsynleg sem þau eru. Er þá ekki eingöngu átt við afgreiðslu misjafnlega nauðsynlegra mála heldur og hitt að þau þjóna mikilvægum tilgangi í almennum samskipt- um hestamanna víðsvegar um landið. I*essar samkomur stuðla að auknum kynnum hestamanna meira en margan grunar. Svo ekki sé nú talað um alla þá hestaverslun eða upphaf að hestaverslun, sem átt hefur sér stað á þeim þingum sem haldin hafa verið í gegnum tíðina. Lagabreytinjíar mál málanna Að öðrum málaflokkum ólöstuð- um var það samþykkt nýrra og endurskoðaðra laga sem mest mun skilja eftir sig frá þessu þingi. Tæpast er hægt að geta um allar breytingar sem samþykktar voru á lögunum, en hér skal drepið á það helsta. Fjölgað var í stjórn samtak- anna, þannig að nú telst varafor- maður fullgildur stjórnarmaður auk þess sem einum var bætt við. Framvegis eru 75 félagar í ein- stökum félögum að baki hverjum þingfulltrúa, en var áður 60 og hefur þetta í för með sér smávægi- lega fækkun þingfulltrúa. Var ekki vanþörf á, því það eru fáir staðir á landinu sem geta orðið hýst þing af þeirri stærðargráðu sem þau eru orðin. Vildu sumir ganga enn lengra en gert var en segja má að menn hafi mæst á miðri leið og samþykkt 75. í 12. grein nýju laganna segir meðal annars: „Árgjald fyrir hvern skráðan félagsmann skal ákveðið á ársþingi. Gjalddagar árgjalda skulu vera tveir. Fyrri helming skal greiða 15. maí og síð- ari helming 15. ágúst. Dráttar- vextir reiknast 30 dögum eftir gjalddaga." Hingað til hafa ár- gjöld verið greidd seinni part árs- ins, en með þessu verður jafnara peningastreymi í sjóði LH og með um leið minni rýrnun vegna verð- bólgu. Áður en skilið er við nýju lögin má geta einnar breytingar- tillögu sem samþykkt var, en í henni segir að senda verði inn all- ar tillögur sem bera á upp á árs- þingum minnst sex vikum fyrir ársþing. Öðrum kosti verði þær ekki teknar gildar. Verður fróð- legt að sjá hvernig tekst að fram- fylgja þessu ákvæði því hingað til hefur gengið illa að fá tillögur sendar inn á tilsettum tíma, þótt mörkin hafi verið rýmri fram að þessu. bingfor.setar voru þeir Leifur Jóhannesson til vinstri og Árni Guðmundsson. Svo ekki valdi raisskilningi skal það tekið fram að kassinn góði var notaður undir atkvæði í kosningum og eru þeir félagar væntanlega að telja þau. verið, kynningu á starfsemi hesta- manna í fjölmiðlum. Einnig beindi þingið þeim tilmælum til stjórnar- innar að hún hafi forgöngu um að tekin verði upp notkun ljósataflna við birtingu dóma og dómar verði unnir í tölvu. I samþykktinni sagði einnig að mál þetta ætti að vera komið á þann rekspöl að hægt verði að nota þetta fyrirkomulag á næsta fjórðungsmóti. Frá Félagi tamningamanna kom tillaga um að stjórn LH beitti sér fyrir að veitt verði undanþága frá gildandi aldursákvæðum varðandi há- marksaldur hrossa sem fara á Evrópumót. Var þetta samþykkt samhljóða. Einnig var samþykkt tillaga um að hafa ekki fleiri en fjóra hesta í hverjum riðli í skeiði á kappreiðum óháð hversu breið brautin er. Beitarmál og hrossafjöldi Kynbótanefnd þingsins sendi frá sér álit sem samþykkt var. Fjallar þetta álit um fjölda hrossa og beitarmál og þykir rétt að birta það hér því mikil umræða hefur skapast um þessi mál á undan- förnum mánuðum: „Kynbótanefnd vekur athygli á því að sú stefna sem verið hefur ráðandi að undan- förnu að banna upprekstur hrossa geti haft skaðleg áhrif á uppeldi ungviðanna. Séreinkenni íslenska hestsins, m.a. vöðvabygging, fjölhæfni í hreyfingum, fótvissa og lífsgleði að þessar reglur væru sniðgengn- ar, m.a. á fjórðungsmótinu á Mel- gerðismelum. Var samþykkt að breyta þessu aftur í fyrra form, þannig að nú verður einungis dæmt brokk, tölt og skeið, en feti og stökki sleppt. Var þessi breyt- ing samþykkt með meginþorra at- kvæða gegn tveimur. Viljaprófun sem ávallt hefur verið umdeild fékk sína umfjöllun sem lyktaði með því að hún var afnumin. Voru 92 meðmæltir því að leggja hana niður en 2 á móti. Athyglisverð tillaga kom frá Gusti sem kveður á um breytingar á reglum um gæðingakeppni. Rétt þykir að birta hana orðrétta svo góð sem hún er: „Reglum þessum (þá er átt við reglur um gæðingakeppni) má Eilífar breytingar á gæðingakeppni Hin seinni ár hefur reglum um gæðingakeppni verið breytt á hverju einasta þingi og svo var einnig nú. I fyrra var samþykkt að breyta úrslitakeppninni þannig að allar gangtegundir sem dæmdar voru í forkeppni skildu dæmdar í úrslitum. Þetta mæltist illa fyrir síðastliðið sumar og dæmi til þess Margar nefndir eru settar i laggirnar i hverju þingi og mi hér sji hluta af laganefndarmönnum en þeir eru, fri vinstri talið: Þorleifur Pilsson, formað- ur nefndarinnar, Stefin Pálsson, formaður LH, Ólafur Kristjinsson, Sverrir Hallgrímsson, Ragnar Tómasson og Guðmundur Jónsson. ekki breyta, nema að undangengn- um tilraunum á keppnisvelli. Samþykki ársþing LH breytingar á keppnisatriðum í gæðinga- keppni, skal þeim vísað til gæð- inga- og unglinganefndar, sem prófar þær og skilar umsögn um þær til næsta þings sem þá tekur tillögurnar til endanlegrar af- greiðslu." Þessi tillaga var sam- þykkt með miklum meirihluta. Með samþykkt þessara tiilögu geta menn nú gert sér vonir um að gæðingareglurnar fái að vera að mestu í friði fyrir stöðugum breytingum frá ári til árs. Aðrar samþykktir Þingið skoraði á stjón LH að fela framkvæmdastjóra að annast í mun ríkari mæli en gert hefur byggist á því að hrossin alast upp í frjálsræði við mikla hreyfingu og á misjöfnu landi. Athuganir hafa sýnt að undrafljótt breytist vefja- bygging lifi hrossin hóglífi við litla hreyfingu. Það yrði ómetan- legt tjón ef íslenski hesturinn tap- aði þeim eiginleikum sem að fram- an getur." Ennfremur segir: „Varðandi fjölda hrossa gildir hið sama og með annað búfé að óraunhæft er að ala hross sem engan arð gefa. I ásetningi verður að taka tillit til þessa. Þó er rétt að vekja athygli á því að peninga- legur mælikvarði einn getur ekki verið þar algildur mælikvarði. Því er ekki sanngjarnt að miða við það eitt hver hundraðshluti hrossa- afurðir eru af heildarframleiðslu landbúnaðarafurða." Með þessari samþykkt má segja að þingið hafi tekið undir orð Þorkels Bjarnasonar en hann ávarpaði þingið fyrri daginn og kom meðal annars inn á óhóflega hrossaeign landsmanna. En hann hefur lýst þeirri skoðun sinni í fjölmiðlum að fækka beri hrossum stórlega. Fyrir þessa skoðun sína hafa sumir hestaeigendur talið hann svíkjast undan merkjum. í framhaldi af þessu mætti spyrja hvort ekki sé auðveldara að fá hross rekin á afrétt ef þau væru færri. í umræðum um þessi mál kom sú hugmynd fram hjá einum ræðumanni hvort ekki væri rétt að leyfa eingöngu ættbókafærðum hryssum aðgang að afréttum landsins og vakti hún hrifningu margra þingfulltrúa. Tveimur athyglisverðum tillög- um var vísað til stjórnar LH, ann- arsvegar tillaga um reglugerð fyrir aganefnd og tillaga frá Faxa um að aðeins skuli haldið eitt fjórðungsmót ár hvert milli lands- móta. Eins og málum er háttað í dag eru fjögur fjórðungsmót á þrem árum, þannig að halda verð- ur tvö mót á einu af þessum þrem- ur árum. Var talið að gera þyrfti könnun á því hver vilji hesta- manna væri. Hvað agareglum víð- víkur kom í ljós að framkomin til- laga frá aganefnd LH var mjög ófullkomin. Var þessu vísað til frekari skoðunar en greinilega eru menn sammála um að setja þarf strangar agareglur. Næsta þing í Hafnarfirði Eins og venja er til var tilkynnt í lok þingsins hvar næsta þing verðir haldið og varð Hafnarfjörð-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.