Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
Hin nýja glæsilega Toyota er sigraði 4500 km langt Ivory Coast-rallið.
HM í rallakstri — Fílabeinsströndinni:
Villisvín hrelldi keppendur
Áhorfandi að keppn-
inni lét lífið
SVÍINN Björn Waldegard sigraði í
Ivory Coast-rallinu, sem fram fór
fyrir stuttu síðan og er liður í heims-
meistarakeppninni í rallakstri. Ók
hann Toyota Celica Twincam Turbo,
keppnisbíl sem tiltölulega nýlokið er
að hanna. Samskonar bíll lenti einn-
ig í þriðja sæti undir stjórn Svíans
Per Eklund. Finninn Hannu Mikk-
ola tryggði sér heimsmeistaratitil
ökumanna með því að ná öðru sæti á
Audi Quattro. Einni keppni er ólokið
í heimsmeistarakeppninni, en aðeins
bjóðverjinn Walter Röhrl getur náð
Mikkola að stigum, en Röhrl tekur
ekki þátt í síðasta rallinu, sem fram
fer í Englandi um miðjan mánuö.
Keppnin á Ivory Coast, Fíla-
beinsströndinni, lá um 4500 km
langa illfæra leið, og var ekið í
fimm daga. Keppnin varð strax
einvígi milli Toyota Waldegard og
Quattro Mikkola, sem hafði for-
ystu eftir fyrsta hlutann. Eklund
var þriðji á undan viðgerðarmanni
Mikkola, sem ók Quattro! Fyrir
rallið var Ijóst að ekki næðist lág-
marksfjöldi þátttakenda (50 bílar)
til að réttlæta að rallið gilti til
heimsmeistaratitils. Fóru því for-
ráðamenn rallsins þess á leit við
nokkra viðgerðarmen að þeir
skráðu bíla sína í keppni, þó ekki
væri nema til að aka gegnum
rásmarkið! Lasse Lampi stóð sig
hinsvegar mjög vel eftir fyrsta
hlutann og héít því einfaldlega
áfram!
Á öðrum hluta rallsins þurfti að
ljúka tæplega 1200 km akstri.
Mikkola slapp við allt ryk, þar sem
hann hafði forystu, en Mikkola
slapp við allt ryk, þar sem hann
hafði forystu, en Waldegard tap-
aði dýrmætum tíma fyrir aftan
Morgunblaöiö/Martin Holmes
Audi Quattro Hannu Mikkola var orðið ansi veikburóa í lok keppninnar eftir
mörg óhöpp, hér sést hann á lokaleiðinni.
hann, því langir rykmekkir eftir
Quattro Mikkola byrgðu oft sýn.
Fyrir eina sérleiðina slitnaði
viftureim í Toyota Eklunds og það
varð honum til happs, því hann
stöðvaði og lét gera við bilunina.
En forystubílarnir tveir héldu
áfram á fullri ferð. Inn á leiðina
stóð trjádrumbur á miðjum vegi
og skall Quattro Mikkola harka-
lega á honum, kastaðist í loft upp
og lenti á framhlutanum. Fór
stýrið úr sambandi, afturfjöðrin
brotnaði og sprakk á tveimur
dekkjum. Viðgerðarlið Mikkola
kom á vettvang og hófst þegar
handa við að gera við, en í millitíð-
inni ók Waldegard Toyota sínum á
drumbinn, en slapp betur. Ók
hann framhjá Mikkola og náði
forystu.
í rásmarki þriðja dags var ljóst
að Waldegard hafði náð 30 mín-
útna forskoti á Mikkola daginn
áður vegna óhappsins, en keppnis-
stjóri Audi kærði leiðina, sem
trjádrumburinn umtalaði var á,
og forráðamenn rallsins athuguðu
málið. Kom í ljós að drumburinn
var vörn innfæddra gegn veiði-
þjófum, sem eru algengir á þess-
um slóðum! Var niðurstaðan sú að
MorgunblaðiA/Martin Holmes
Sigurvegarinn Björn Waldegard, í
fullu fjöri á fertugsaldrinum.
Mikkola hefði átt að gæta að sér,
því rallið var haldið á opnum veg-
um.
Á einni sérleið dagsins líkaði
villisvíni einu ekki lætin í rallbíl-
unum og eftir að hafa reynt að
hrella forystubílana, stangaði
svínið Toyota Samir Assef á fullri
ferð og endaði þar með lifdaga
sína, en ekki þó án þess að hafa
stórskemmt framfjaðrir bílsins.
í lok sömu leiðar varð hörmu-
legt slys. Afturhjól losnaði undan
Toyota Waldegard í endamarkinu
og flaug inn í hóp áhorfenda. Varð
lítil stúlka fyrir hjólinu og lést af
meðslum er af því hlutust
skömmu síðar.
Waldegard hélt áfram keppni,
en tapaði forystunni til Mikkola,
sem ætlaði greinilega að tryggja
sér heimsmeistaratitilinn.
Á fjórða degi hélt Mikkola for-
ystu þó Waldegard ynni sex mín-
útur á hann, Eklund var enn þriðji
og Assef fjórði eftir viðgerð á
skemmdum eftir villisvínið.
Á lokadeginum varð Mikkola
illilega á í messunni. Hann mis-
skildi leiðbeiningar aðstoðar-
manns síns í einni beygjunni og
Quattro-bíllinn flaug út af. Aft-
urhlutinn skekktist, en Mikkola
náði að hökta áfram, en Toyota
Waldegard þeysti framúr. Walde-
gard hafði fyrir útafakstur Mikk-
ola náð að vinna fjórar mínútur á
hann. Eftir viðgerðarhlé fyrir síð-
ustu leiðirnar hélt keppnin áfram,
og hélt Waldegard öruggri forystu
til loka.
Lokastaðan varð þessi. Björn
Waldegard, Toyota, 5,18 klukku-
stundir í refsingu, Hannu Mikk-
ola, Audi Quattro, 5,29, Per Ek-
lund, Toyota, 6,58, Samir Assef,
12,09, Ambrozino, Peugeot 505,
14,22 klst. Aðeins átta bílar af
fimmtíu luku keppni.
Martin Holmes/G.R.
59
<x
ALFA-LAVAL
VARMA
SKIPEIR
LANDSSMIÐJAN vekur
athygli á ALFA-LAVAL
varmaskiptum til notkun-
ar við upphitun á vatni til
neyslu og fyrir miðstöðv-
arkerfi. ALFA-LAVAL er
sænsk gæðavara. Um
þaö eru allir sammála
sem reynt hafa.
r ^
Helstu kosti ALFA-LAVAL
varmaskipta teljum vió vera:
X Þeireru virkirog einfaldir
X Plöturnar úr ryófrfu stáli
sem tærast ekki við öll
venjuleg skilyröi
X Hreinsun auóveld
X Þrýstiþol mikið
X Breytingar auðveldar
X Þeirtaka Iftiö pláss
X Nýtingin mjög góó
LANDSSMIÐJAN hefur
einkaumboð fyrir ALFA-
LAVAL á íslandi, og get-
ur vottað um að áratuga
löng reynsla á hitaveitu-
svæðum um allt land
hefur sannað ágæti
þessara varmaskipta.
Við veitum allar tækni-
legar upplýsingar, svo
og hvers konar upplýs-
ingar aðrar um ALFA-
LAVAL varmaskiptana.
LANDSSMIZUAN
20-6 80