Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 77 VELVAKANDI ~ SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Get lýst fullum stuðn- ingi við frumvarpið Jón Magnússon hdl. skrifar 15. nóv.: „Velvakandi. Þann 19. nóvember sl. bað Arn- ar Jónsson mig undirritaðan um það að skýra hvernig á því stæði að ekkert hefði heyrst í Neytenda- samtökunum vegna frumvarps- flutnings nokkurra þingmanna um að gefa frjálsan innflutning á grænmeti. Neytendasamtökin hafa barist fyrir því að tollar verði felldir niður af grænmeti. Þá hafa þau einnig barist fyrir því að innflutn- ingur á grænmeti verði gefinn frjáls og áttu í viðræðum við fyrrverandi landbúnaðarráðherra ' ásamt fleiri samtökum í því skyni að þoka málinu áleiðis. Um þessar mundir standa einmitt yfir funda- höld fulltrúa Neytendasamtak- Þessir hringdu . . . Tilmæli til lista- og skemmtideildar sjónvarpsins Margrét Sigurðardóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að beina orðum mínum til forráðamanna lista- og skemmtideildar sjónvarpsins. Ég bið þá um að taka meira tillit til okkar, sem þurfum að vakna snemma á morgnana, þegar þeir raða kvikmyndum niður í dag- skrána. Þær eru nú það seint, að fólk sem þarf að mæta upp úr sjö í vinnu, getur ekki beðið eftir þeim. Ekki heldur gamalt fólk, sem gjarna fer snemma til hvílu. T.d. var danska myndin í gærkvöldi (mánudagskvöld) allt of seint á ferðinni. Þó hefði verið í lófa lagið að hafa íþróttirnar á eftir mynd- inni, ekki síst með tilliti til þeirra fjöimennu áhorfendahópa sem ég nefndi áður og e.t.v. hafa ekki áhuga á íþróttum. Það hlýtur að vera hægt að hliðra til fyrir þá notendur sem verða að fara snemma að sofa, en langar samt til að sjá kvikmyndirnar, sem sjónvarpið býður upp á. Furugerði 1; Lyftan verður komin upp í maí á næsta ári Davíð Oddsson borgarstjóri skrifar 15. nóv.: „Til Velvakanda. í dálkum þínum á dögunum var að því vikið, hv^rt ekki væri ætlunin að standa við loforð um að bæta við auka- lyftu í Furugerði 1, leiguhús- næði aldraðra þar. Því er til að svara, að auð- vitað er ætlunin að standa við það loforð. Þessi lyfta hefur þegar verið boðin út og tilboði tekið. Afgreiðslufrestur er 24 vikur á lyftunni, þannig að hún verður komin upp eigi síð- ar en í maímánuði á næsta ári. Þætti vænt um, ef þessu yrði komið á framfæri í dálk- um þínum." anna og fleiri aðila vegna þessa máls. Af framangreindum ástæðum get ég persónulega og vegna Neyt- endasamtakanna lýst fullum stuðningi við það frumvarp sem Arnar Jónsson minnist á í spurn- ingu sinni og er stuðningur við það og afnám þeirrar einokunarsölu sem gildir á grænmeti í samræmi við önnur baráttumál Neytenda- samtakanna. Það hefur jafnan komið fram í málflutningi okkar að við teljum nauðsynlegt að innlend gæðavara verði seld áður en komi til inn- flutnings á grænmeti. Arnar Jónsson og vafalaust margir fleiri geta spurt fjöl- margra spurninga um það hvers vegna Neytendasamtökin beiti sér ekki í þessu máli eða öðrum mál- um. Svarið er ofur einfalt. Neyt- endasamtökin hafa yfir of litlum mannafla og fjármagni að ráða til þess að geta beitt sér að mjög mörgum verkefnum í einu. Það er því ástæða til þess að brýna fyrir Arnari Jónssyni og fleirum sem bera neytendamál fyrir brjósti að snúa sér til sam- takanna og vinna ásamt okkur að því að vekja athygli á þeim málum sem um er að ræða hverju sinni, í því skyni að koma þeim fram og gera Neytendasamtökin virkari.“ Svo brast þolinmæðin Fjórir óánægðir drengir skrifa: „Velvakandi. Við ætlum hér með að lýsa óánægju okkar með hvað fólk í búðum er oft dónalegt við okkur krakkana. Eitt sinn, er við fórum í sjoppu í Hafnarfirði, fengum við hlý- lega móttökur eða hitt þó heldur. Maður, sem kom inn á eftir okkur, var afgreiddur á undan okkur strákunum. Og konan, sem afgreiddi i sjoppunni, var nú ekkert þolinmóð. Hún rak á eftir okkur með þeim afleiðingum, að við vorum helmingi lengur að ákveða, hvað við ætluðum að kaupa. Svo brast þolinmæðin hjá henni og hún rak okkur út. Við gætum nefnt fleiri svipuð dæmi um það, hvernig af- greiðslufólk hagar sér við okkur krakkana. En við ætlum að hafa þessa grein stutta og gerum það í von um að fólk, sem afgreiðir í búðum og sjoppum og ýmsum fleiri verslunum, bæti sig og líti sömu augum á okkur krakkana og fullorðið fólk.“ Abending til bæjar- og sveitarstjórna — vegna fréttar um hækkun fasteignamats 1977—0567 skrifar: „Hversu oft hefur almenningur ekki heyrt þessi fleygu orð frá hinu opinbera? Til stendur að stofnað verði hagsmunafélag skattborgara, sem hefur það á stefnuskrá sinni að snúa vörn í sókn vegna skattagrimmdar stjórnvalda þessa, lands. Vegna nýjustu aðgerða um hækkun fast- eignamats, sem á að vera í þágu almennings, en er í raun illa dulbúin aðferð til að hækka fast- eignaskatta. Vill væntanlegt hags- munafélag hvetja stjórnendur bæjar- og sveitarfélaga til að stilla kröfum sínum svo í hóf, að þeir drepi ekki kýrnar í fjósinu. Þeir telja sig vera í algerri fjár- þröng. En hvað um almenning? Það stendur að vísu í helgri bók, að beri að gjalda keisaranum það sem keisarans er, en þegar keisar- inn er kominn upp í rúm hjá al- menningi, er mál að stjaka honum framúr. Þegar lög eru orðin að ólögum ber okkur þegnunum að berjast á móti þeim, því að ailir vita, að ólög eyða. Gott hefði verið að geta leitað réttar síns til hins háa Alþingis, en þaðan er varla mikið að vænta. (Eru þeir ekki eitthvað að tala um hættu af reykingum? En er nokk- uð verra að deyja úr reykeitrun en hor?) Ef af hækkun fasteignaskatts verður gæti fyrsta aðgerð vænt- anlegs hagsmunafélags orðið sam- tök um að segja sig til sveitar." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Afstaða þeirra til hvors annars er óbreytt. Rétt væri: Afstaða þeirra hvors til annars er óbreytt. Eða: Þeir hafa óbreytta afstöðu hvor til annars. S2P SIGGA V/öGA £ VLVlRAU TOYOTA-VARAHLUTAUMBOÐIÐ ÁRMÚLA 23 — SÍMi 81733 KYNNTU ÞER VERÐIÐ Á GROHE! Nýju hitastýritæhin frá GROHE eru komin. í '84 tegundunum er nýr heili hannaður meö isienskar aöstaaður i huga. ★ Enn betri stjórn á mismunaþrýstingi. * Enn betri aölögun aö islensku hitaveituvatni. Þegar þú velur hitastýrö blöndunartæki, þarftu aö hafa i huga: A Fullkomiö brunaöryggi. Ef kalda vatniö fer óvænt af, þarf tækiö aö loka. ♦ Barnaöryggislæsing viö 38°C. ♦ Rennslið í gegnum sturutækiö þarf aö vera minnst 20 Itr. á minutu. GROHE nr. 34633. skilar 26 Itr. á mmutu. A Rennsliö i gegnum baökarstækiö þarf aö vera minnst 30 Itr. á minútu. GROHE nr. 34465, skilar 36 Itr. á minútu. A Tækiö þarf aö vera hannaö fyrir islenskar aöstæöur Viöa á islandi er hitaveituvatniö sérstætt varöandi hitastig og kisilinmhald. Tækiö veröur aö taka tillit til þessara eiginleika ★ Fullkomin viögeröar- og varahlutaþjónusta þarf aö vera til staöar. A Ræddu máliö viö fagmanninn, hann mæiir meö GROHE. BYGGINGAVÚRUVERSLUN KÓPAVOGS SF. SÍMI 41000 Metsö/ubiaö á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.