Morgunblaðið - 17.11.1983, Page 10

Morgunblaðið - 17.11.1983, Page 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 Við sem ólumst upp í þeirri trú, að Islendingar væru ein mesta bókmenntaþjóð heims, og að hin almenna þekking væri óvíða meiri en hér á landi, hðfum orðið fyrir gífurlegum vonbrigðum með at- vinnuuppbygginguna í landinu á undanförnum áratugum og stefnumörkun stjórnvalda og sjóðakerfis á þessu sviði. Er það hreint undrunarefni hvað illa hefur til tekist varðandi iðnaðaruppbygginguna hjá okkur með hliðsjón af þróuninni í ná- grannalöndunum, jafnvel að Fær- eyingum ekki undanskildum. Jafnframt því sem það er haft á orði, að við þurfum fleiri atvinnu- tækifæri, vegna aukins fólksfjölda þá hefur það færst hratt í aukana, að útlendingar baki fyrir okkur brauðin og kexið, búi til sælgætið, hrota mikils skipainnflutnings. Var það aðllega innflutningur á 140—150 brl. stálskipum frá Nor- egi, ætluðum til síldveiða. Þessi ár notuðu Norðmenn tækifærið og breyttu tréskipastöðvum í stál- skipastöðvar. Þessi alda skipainnflutnings hjaðnaði er á leið (sjöunda) ára- tuginn með útrýmingu íslenska síldarstofnsins. Og sú smíði stál- báta, sem hér var hafin á áratugn- um dróst verulega saman. Upp úr 1970 tóku íslensk stjórn- völd togaratrú sjálfsagt í fram- haldi af stækkun landhelginnar, og um leið hófst stanslaus niður- skurður á fjölda umsókna um smíði minni fiskibáta, og þannig hefur það gengið til síðan, með óverulegum undantekningum. Þetta kom hart niður á verkefna- Þorbergur Olafsson Það versta sem fyrir gæti komið er það, að ef svo færi að fækka þyrfti þjálfuðu starfsliði í stöðv- unum frá því sem nú er, vegna lítilla verkefna, minnkuðu enn möguleikar á því að endurbyggja flotann hér heima, fjórða hol- skefla skipainnflutnings mundi dynja yfir okkur. Samkvæmt könnun á aldri fiski- flotans, er stór hluti hans þegar kominn á endurnýjunaraldur, og eftir fá ár þarf að endurnýja hann allan. Endurnýjunarþörf flotans Hæfilegt aldurshámark á öðr- um skipastærðum en togurum er talið vera 25 ár, en meðalaldur fyrir að hlaupa með til útlanda. Svo miklum fjárhæðum hefur ver- ið varið til að styrkja og efla land- búnað og sjávarútveg, að nú hlýt- ur að vera komið að því að rétt- mætt sé að verja fé í sama mæli til eflingar tækni og iðnaði, er veita mun um 5.000 manns atvinnu um- fram landbúnað og sjávarútveg samanlagt, svo að þessi atvinnu- grein verði samkeppnisfær við iðnað í nágrannalöndunum. Sam-., kvæmt fjárhagsáætlun fyrir næsta ár, er gert ráð fyrir að iðn- aðurinn fái ríkisframlag, sem er aðeins um eða innan við þriðja- part á við það sem landbúnaður og sjávarútvegur fá hver fyrir sig. Ætla má að það skipti sköpum varðandi samkeppniaðstöðu og iðnaðaruppbyggingu, ef fjármagni yrði ekki svo misskipt. Vinda þarf Framtak íslensks skípaiðn- aðar hindrað frá stíðslokum — Avarp Þorbergs Olafssonar á Iðnþingi smíði skápa, rúm og stóla og inn- flutt íbúðarhús. Iðnaðaruppbygg- ing hefur ekki verið áhugamál ráðamanna. Sýnir það best hinn mikli fiskiskipafloti okkar, sem að langmestum hluta er erlendur iðn- aður, líkt og að hætti vanþróaðra ríkja með lélega tækniþekkingu, er flytja inn þróaðan iðnað, en byggja afkomu sína á hráefnisöfl- un. Stærsti skipamarkaður í heimi miðað við þjóðarstærð Við, sem byrjuðum á skipaiðn- aði á stríðsárunum, vonuðum að innan fárra ára yrði okkar stóri fiskiskipafloti innlend smíði, þar sem að auki miklir flutningar að og frá landinu kalla á stóran skipaflota af ýmsum stærðum og mun nú okkar innlendi skipa- markaður vera sá stærsti í heimi miðað við þjóðarstærð. En þessi von hefur brugðist, þessi stóra iðngrein, skipaiðnaður- inn, hefur að lagmestum hluta verið í höndum útlendinga, sam- anber að af um 100 togurum eru um 90 togarar smíðaðir erlendis, en aðeins eilítið betra er ástandið varðandi aðrar stærðir og gerðir flotans, en þó hefur langmest ver- ið smíðað erlendis. Hér á öldum áður, í okkar snauða bændaþjóðfélagi, voru all- ir fiskibátar smíðaðir innanlands, að vísu sem opnir bátar, en eftir að hafa komist í kynni við erlenda tækni m.a. með skólanámi erlend- is þá hverfur þessi iðngrein að mestu út úr landinu. Mundi slíkt og annað eins geta skeð í nokkru öðru landi? Skýringin er auðsæ. Á undanförnum árátugum, og allt til þessa dags, hefur stjórnlist okkar gengið út á það, að verja sáralitlu fé til eflingar iðnaðar í hlutfalli við fjármagnsstreymi skattborgara til landbúnaðar og útgerðar. Ég tók svo eftir, að fram kom í erindi Þórðar Friðjónssonar, efna- hagsfulltrúa forsætisráðherra, um efnahagsstefnur ríkisstjórna, að þar væri minnst á samdrátt á at- vinnusviðinu á árunum ’48—’52 eða þeim árum sem mest gætti áhrifa frá hinum mikla skipa- innflutningi frá Svíþjóð eftir seinni heimsstyrjöldina. Hrun innlcnds skipaiðnaðar Innlend skipasmíði, sem hér óx ört á stríðsárunum, brotnaði svo til alveg niður í mörg ár á fimmta áratugnum. Fækkun í iðninni nam um 40% á sama tíma og skipasmíðar efld- ust á hinum norðurlöndunum. Um og upp úr 1960, hófst önnur stöðu þeirra stöðva, sem höfðu að- hæft sig smíði minni fiskibáta. Verkefnastaða hjá þeim sem smíðuðu togara, var að sjálfsögðu mun betri, en þó ekki það góð, að til greina kæmi hlutasmíði í minni stöðvunum, eins og rætt var um. Þegar alda togarainnflutnings- ins reis sem hæst, var talið að á einu ári hafi innflutt skip náðum 12.500 brúttólestum en innlend smíði 1.500 lestum. Svarta skýrslan 1972, um ofveiði fiskistofnanna var höfð að engu, nema sem bremsa á smíði báta í minni stöðvunum, undir 100 rúm- lestum, en voru eftirsóttir, og nauðsynleg vinnujöfnun með við- gerðum. Varð því verkefnastaðan mjög slæm á áttunda áratugnum og hindraði eðlilega og tæknilega uppbyggingu. Var talið af samtökum okkar að fækkun starfsmanna í iðninni hafi orðið á árunum frá ’71 til ’75 266 menn. Með örfáum orðum vil ég nefna dæmi um þetta sem ég gjör- þekki. Á árinu ’73, eða 25 árum eftir stofnun Bátalóns, hafði verið lokið við nýsmíði 420 báta af ýms- um gerðum, úr tré og stáli, þeir stærstu voru stálbátar 70 rúmlest- ir. Um 70 menn störfuðu þá hjá fyrirtækinu, og að sögn skattstof- unnar, var Bátalón og Raftækja- verksmiðjan þá stærstu iðnfyrir- tækin í Hafnarfirði. Á sl. ári ar öllum nýsmíðasamningum fyrir- tækisins um smfði báta af stærð- inni 30—100 rúmlestir synjað, 10 að tölu, og nú starfa í Bátalóni aðeins 25—30 manns. Ég nefni þetta sem dæmi um það alvarlega ástand í iðngreininni sem skapast þegar þjálfaður mannskapur hættir í starfinu, en framundan eru stór verkefni, að endurbyggja okkar aidna flota. Þrátt fyrir, að kennt var um of stórum flota, kom okkur þessi af- staða til innlends skipaiðnaðar nokkuð á óvart, enda þótt fjárfest- ingarstofnanir virtust að mestu þrotnar að fé, til annars en til skipakaupa erlendis frá. Það hefur líka veikt mjög verk- efnastöðuna hvað mörg fiskiskip hafa farið til útlanda til viðgerða og breytinga á undanförnum ár- um. Oft hafa skipseigendur verið félitlir og átt í erfiðleikum með að greiða sitt framlag, sem ekki hef- ur fengist lán fyrir, að hefur það tafið framkvæmdir, en þegar skip hafa farið úr landi, hafa íslenskir bankar tekið á sig greiðsluábyrgð fyrir öllu verkinu, sem hefur þýtt það, að erlendu stöðvarnar hafa getað fengið greiðslur jafnt og verkinu hefur miðað áfram. „Iðnaðurinn verður að fá fjármagnsfyrir- greiðslu í jöfnu hlutfalli við landbúnað og sjávar- útveg. Forkastanlegt er, ef þjóðin þarf að kaupa erlent vinnuafl til skipa- smíða með innistæðu- lausum ávísunum á er- lendan gjaldeyri, sem næstu kynslóðir verða að borga.“ Þörf fyrir iðnaðar- «PPbyggingu Um það er rætt, og ekki að ástæðulausu, að nú þurfi að bæta við atvinnutækifærum vegna fjölgunar fólks á vinnumarkaði á næstu árum. Horfur eru á, að hvorki landbúnaður eða sjávarút- vegur bæti nú við sig fólki, svo að nokkru nemi. Það er því augljóst að aukin at- vinnutækifæri verður að skapa með auknum iðnaði. Margir beina huganum að stóriðju. En sá hæng- ur virðist þar á, að vatnsorkan er það dýr hjá okkur, að lítil eða eng- in von er til þess að stóriðjan borgi það fyrir orkuna, sem kostar að framleiða hana og greiða upp áfallnar skuldir, í sambandi við virkjanirnar. Athyglisvert er, að í bátum og skipum í höfnum, er ódýrara í mörgum tilfellum að nota olíu en rafmagn úr landi. En vonandi er að rætist úr þessum vanda. Staða atvinnuveganna virðist þannig í dag, að með öllum ráðum þurfi að efla sem flestar tegundir iðnaðar.-Ástæða er þvf til að beina athygli að skipaiðnaðinum og þeim iðnaði sem honum er sam- fara. Ekki er ástæða til annars en ætla, að það megi takast, því að sögn tæknimanna sem starfað hafa í erlendum stöðvum, höfum við yfirleitt duglegri starfsmenn, og vissulega ódýrari vinnukraft en í nágrannalöndunum. Iðnaðurinn verður að fá fjár- magnsfyrirgreiðslu í jöfnum hlutföllum við landbúnað og sjáv- arútveg. Forkastanlegt er, ef þjóð- in þarf að kaupa erlent vinnuafl til skipasmíða með innistæðulaus- um ávísunum á erlendan gjald- eyri, sem næstu kynslóðir verða að borga. þessara skipa er nú nærri 19 ár, svo að 6 ár vantar nú upp á há- marksaldur þeirra. Hámarksaldur togara er talinn vera 17 ár, en meðalaldur þeirra er nú 9—10 ár, eða 7 ár vantar upp á að togara- flotinn hafi náð meðaltals há- marksaldri. Skip geta vissulega orðið eldri, en eftir að skip hafa náð umrædd- um hámarksaldri er talið að við- haldskostnaður verði mjög hár miðað við kröfur Siglingamál- stofnunar. Heildarrúmlestatala fiskiflot- ans, samkvæmt upplýsingum Sigl- ingamálastofnunar, var við síð- ustu áramót 111.800 brl. Væri þá öll vinna við endursmíði þessarar flotastærðar 18—19.000 ársverk miðað við það sem nú virðast vera meðalafköst við smíði á mismun- andi skipstærðum frá 15 til 500 rúmlestir, eða ca. 6 brl. ársverkið. Mundu þessi ársverk þ.e. vinna við stál, vélar og tæki, innréttingar og raflögn, deilast niður á það tíma- bil sem endurnýjunin tæki. Hugmyndir hafa komið fram um að minnka heildarstærð fiski- flotans um 25%, en líkur eru til þess að minni bátar muni nokkuð stækka að rúmlestatölu, vegna þess að kröfur aukast um meiri þægindi skipshafna, svo og meira rými fyrir búnað sem þarf til betri nýtingar á afla en verið hefur. Nú eru horfur á, að næsta skref- ið í útgerðarmálum verði rekstur minni skipa en togara. Rétt er að hafa í huga, að fleiri og minni skip, þýða miklu fleiri atvinnu- tækifæri fyrir sjómenn, miðað við óbreytta flotastærð og mun betri nýtingu á afla, að áliti margra reyndra útgerðarmanna. Engu að síður er augljóst að útgerð togara hlýtur jafnan að vera stór þáttur útgerðar á íslandi. Þá er athug- andi að stærstu stöðvarnar hyggi að því, að efla enn tæknina, og endurbyggi strandferða- og milli- landaskip í náinni framtíð. Framlög til iðnaðar stórheft Allar horfur eru á að verðmun- ur á innlendri og erlendri nýsmíði geti lækkað, bæði hvað við kemur fjármagnskostnaði og smíði, ef þannig yrði á málum haldið með aukinni og samfelldri vinnu við nýsmíði og viðgerðir, að fram- leiðslan yrði miðuð við stærð flot- ans og aldur, eða að sömu grund- vallarreglur gildi eins og í öðrum atvinnugreinum, svo sem land- búnaði og útgerð, sem ekki liggur bráðan bug að því að kanna hvort skipaiðnaður okkar, sem og annar iðnaður, stæði ekki fyllilega jafn- fætis á almennum markaði og inn- fluttur iðnaður, ef hann nyti fjár- magnsaðstoðar á borð við land- búnað og sjávarútveg, á meðan hann þarfnast tæknilegrar upp- byggingar, sem ekki hefur tekist til þessa, vegna verkefna- og fjár- sveltis. Svo að dæmi sé nefnt þyrfti skipiðnaðurinn að fara sem mest fram inni í húsi, miðað við íslenska veðráttu, sem minnst úti í frosti, stormi, snjó eða regni, og að skip séu staðsett við viðlegukanta stutt frá verkstæði. Verkefna- svelti hindrar tækjakost og tækni- lega uppbyggingu. Ýmsu verður að breyta, svo sem fjármagnskostn- aði, þar til samkeppnisaðstaða við niðurgreiddan útlendan iðnað hef- ur náðst. Áhersla á smíði lítilla fiskibáta Fregnin í Dagblaðinu og Vísi 25. okt. sl. um að á næsta ári eigi að lækka lántökur til skipasmíða inn- anlands úr 200 milljónum í 150 milljónir, en hækka lántökur til erlendrar smíði ur 190 milljónum á árinu '83 í 530 milljónir á árinu ’84, finnst mér kóróna vitleysuna á tímum nauðsynlegrar aukningar atvinnutækifæra og þá fyrst og fremst við að endurbyggja okkar stóra flota. Með tilliti til aldurs fiskiflotans og háskalegrar stöðu skipaiðnað- arins, þá legg ég á það áherslu að horfið verði strax að því að leyfð verði smíði nokkurra lítilla fiski- báta af stærð sem væri um og inn- an við 100 rúmlestir. Nokkrir bát- ar af þessari stærð, mundu lítið auka heildarrúmlestatölu flotans, og falla vel inn í þær hugmyndir ýmissa útgerðarmanna í dag, að útgerð þeirra muni standa mikið nær því að geta borið sig en útgerð togara. Smíði nokkurra báta, ef dreift yrði niður á stöðvarnar, mun gera stórkostlegt gagn nú þegar og í náinni framtíð. Það mundi stöðva fólksflótta úr stöðvunum, og þannig verða til þess að halda þjálfuðum mönnum í starfi, og með því yrðum við langtum betur í stakk búnir til þess að taka við stórum verkefnum í skipaiðnaði á næstu árum, og minnka stórlega flóðbylgju mikils skipainnflutn- ings. Mikið reynir nú á samtök okkar, að þeim takist að snúa við þróun undanfarandi ára og áratuga og að árangur náist sem fyrst undir kjörorði þessa iðnþings, „Efling iðnaðar, ný sókn í atvinnumálum". ltorbergur Ólafsson er stjórnarfor- maður Bátalóns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.