Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
79
poppfréttir |
Óhagganleg staðreynd: %>
Þungarokkið
er vinsælt!
Illar tungur halda því oft fram,
aö unnendur þungarokks séu mikl-
um mun færri en menn vilja vera
láta. í nýjasta fréttablaöi Steina
hf., Dúndrinu, er hins vegar staö-
festing á hinu gagnstæöa. Þar seg-
ir m.a.:
„Þungarokkstónlistin er svo
sannarlega í hávegum höfö.
Rokkskífurnar fjúka út jafnharöan
og þær koma í verslanir hér á
landi. Þrátt fyrir tímabundinn sam-
drátt í plötusölu hér heima hefur
þungarokksgeggjurum ekki þótt
viö hæfi aö draga neitt í land."
Því til stuönings bendir blaöiö á,
aö plöturnar með AC/DC, Y&T og
Krokus hafa hreinlega rokiö úr
verslununum og svipaöa sögu er
hægt aö segja af ýmsum öörum
skífum.
Segi menn svo, að þungarokkið
(bárujárnsrokk vil ég nú heldur
nefna þaö, innsk. -SSv.) sé ekki
vinsælt. Járnsíöan tekur undir um-
mæli Dúndursins og blæs á skoö-
anir annars efnis.
Angus Young og Brian Johnson f
AC/DC.
Sex ungar sveitir og
Tappi Tíkarrass að auki
— Músíktilraunir SATT og
Tónabæjar hefjast í kvöld
Músíktilraunir SATT og Tóna-
bæjar hefjast í kvöld, fimmtudag,
kl. 20 í Tónabæ, eins og reyndar
hefur ítrekað verið skýrt frá á
Járnsíöunni. Þær sveitir, sem
koma fram í kvöld, hafa þegar ver-
iö valdar.
Fyrst er aö nefna hljómsveitina
Rit, þá flokkinn %, Tidon, Þarma-
gustana, 69 á salerninu og Afsak-
iö. Sex hljómsveitir, sem allar eiga
þaö samnefnt aö vera lítt þekktar,
nema ef vera skyldi Afsakiö.
Sérstakur gestur kvöldsins
veröur hljómsveitin Tappi Tíkar-
rass og fer nú hver að veröa síö-
astur aö berja þau fjögur augum
því ef marka má oröróm og blaöa-
skrif er stutt í aö Tappi Tíkarrass
deyi drottni sínum. Hljómsveitin
mun m.a. kynna lög af rétt óút-
kominni plötu sinni, Miranda.
Aö sögn Ólafs Jónssonar, for-
stööumanns Tónabæjar, er lögö á
þaö rík áhersla, aö áhorfendur séu
virkír þátttakendur í þessum Mús-
íktilraunakvöldum. Þeir gefa hverri
sveit atkvæöi í samræmi
frammistööuna og tvær
hæstu sveitirnar á hverju
komast áfram í úrslitakeppnina 9
desember.
viö
stiga-
kvöldi
Kynnir á þessum kvöldum verö-
ur útvarpsmaöurinn góökunni
Ásgeir Tómasson. Ásgeir er
greindur og geðþekkur Gaflari eins
og mörgum mun e.t.v. kunnugt.
Þess skal loks getiö hér, aö
ákveöiö hefur veriö aö BARA-
Flokkurinn komi fram næsta
fimmtudag. Hann mun þá jafn-
framt kynna lög af nýrri plötu sinni,
sem er væntanleg innan skamms.
Með nöktum
í Safari
i frétt á síöustu Járnsíöu um
tónleikaherferö Pax Vobis og
Sonus Futurae var skýrt frá
því, aö flokkarnir myndu koma
fram í Safari þann 24. nóvem-
ber.
Halldór Lárusson, trommari
sveitarinnar Með nöktum,
haföi samband viö Járnsíöuna
vegna þessa og sagöi þetta
ekki rétt. Meö nöktum ættu aö
spila í Safari þetta kvöld, en
vegna misskilnings heföi veriö
tvíbókaö á þetta kvöld.
Kikk ræður
trommara
Þótt hljómsveitin Kikk sé
ekki gömul hafa þegar verið
geröar tvær breytingar á skip-
an hennar. Sú fyrri varö er
Gunnar Rafnsson gekk í Egó
og Nikulás Róbertsson tók
sæti hans og sú síöari átti sér
staö i síöustu viku. Þá gekk
trymbillinn úr sveitinni en hans
sæti tekur Jón nokkur Björg-
vinsson.
Jón þessi sat áöur á bak viö
trommusettiö hjá hljómsveit-
inni KOS (Choice?) og skilaöi
hlutverki sínu þar meö mikilli
prýöi. Er ekki aö efa aö hann á
eftir aö reynast Kikk góöur
liösauki þegar fram líöa stund-
ir. Þessa dagana mun hann
vera aö koma sór inn í pró-
grammið hjá sveitinni.
Tónleikar í
Flensborg
Þrjár hljómsveitir efna til
tónleika í Flensborgarskólan-
um í Hafnarfiröi á föstudags-
kvöld, 18. nóvember. Eru þaö
Singultus, Omicron og nýr
flokkur manna, sem nefnir sig
Hýjaglívur & hýjalín.
Tónleikar þessir hefjast kl.
21 að staðartíma og verö aö-
göngumiöa er kr. 100. Tilvaliö
tækifæri fyrir Gaflara aö kynna
sér hvaö er aö gerast í rööum
yngri poppara landsins.
Heiðursgestur kvöldsins: Tappi Tíkarrass.
CPM-áætlanir2
MARKMIÐ:
Tilgangur námskeiðsins er að kynna frekari notkunarmöguleika CPM-
áætlana við gerð framkvæmdaáætlana, m.a. varðandi kostnaðar- og
framkvæmdaeftirlit.
EFNI:
- Upprifjun á CPM-áætlanagerð frá fyrra námskeiði, örvarit, tímaút-
reikningar, kostnaðarmat.
- Presidence örvarit.
- Kostnaðareftirlit og greiðsluáætlanir.
- Lykilatriði í framkvæmdaeftirliti.
- Raunverkefni og tölvuvinnsla.
ÞÁTTTAKENDUR:
Námskeiðið er ætlað stjórnendum, skipuleggjendum og eftirlitsmönnum
meiriháttar verka. Undirstöðuþekking í CPM-áætlanagerð nauðsynleg.
LEIÐBEINANDI:
Eiríkur Briem rekstrarhag-
fræðingur. Lauk prófi í rekstr-
arhagfræði frá Háskólanum í
Linköping, Svíþjóð. Starfar nú
sem fjármálastjóri Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.
TÍMI:
24.-25. nóvember 1983 kl. 14—19,26. nóvember kl. 09-12 og 14-18, samt.
17 klst. Síðumúli 23, 3. hæð.
TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU
í SÍMA 82930
ATH: Starfsmenntunarsjóður Starfsmannafélags ríkis-
stofnanna greiðir þátttökugjald fyrir félaga sína á þessu
námskeiði og skal sækja um það til skrifstofu SFR.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSIANDS Ims^23
Kraftmikil (1000 watta) motor gef-
ur hámarks sogkraft.
Tvöfaldur rykpoki sem tekur 7
lítra.
+ allt annaö.
GLÓEY HF.
Ármúla 28 - 105 Reykjavík - Sími 81620