Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 1
96 SIÐUR STOFNAÐ 1913 267. tbl. 70. árg. SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 Prentsmiðja Morgunblaðsins Milljón manns á mótmælafundi Santiago, 19. nóvember. AP. EINN leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Chile, Enrique Silva ('imma sagði á útifundi, sem talinn er sá fjölmennasti í sögu landsins, í Santiago í gærkvöld, að Augusto Pinochet, forseti, ætti að segja af sér tafarlaust og að koma yrði á lýðræði í landinu svo fljótt sem auðið væri. Talið er að um ein milljón manna hafi verið saman komin á útifundinum í gærkvöld, sem hefur verið lýst sem „sögu- legum" og „einstæðum". Tölur þessar eru byggðar á upplýsing- um frá þeim aðilum er efndu til fundarins, en lögregla neitaði að gefa upp áætlaðan fjölda þátt- takenda. Hrópuð voru vígorð á fundin- um í gær eins og „frelsi" og „stjórnin mun falla“. Fundurinn fór friðsamlega fram, andstætt mörgum fundum sem efnt hefur verið til að undanförnu. Þar hafa átök verið tíð og um 70 manns látið lífið, en lögregla fylgdist aðeins með mannfjöldanum í gær. Þó bar það við, að 18 ára piltur féll örendur í götuna er hann var, að því er virtist, að flýja lögregluna að fundinum loknum. Óánægja með stjórn Pinochet, sem verið hefur við völd í áratug, Umdeildur dómur í nauðgunarmáli: Fangels- un eða vönun Andcrson. Suóur-Karólínu, 18. nóvember. AP. DÓMARI í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum kvað upp óvenjulegan og umdeildan dóm yfir þremur ungum mönnum sem gerst höfðu sekir um grófa líkamsárás og nauðgun á 23 ára gamallri stúlku. Dómurinn: 30 ára fangelsi eða gelding. Dómarinn, Victor Pyle, sagði málið vera eitthvert það ógeðfelldasta sem hann hefði heyrt um eða fengist við, og því þætti sér refsingin vera við hæfi. Einn af verjendum sakborninganna, lögfræðing- urinn Theo Mitchell, sagðist hins vegar vart eiga aukatekið orð og sagði dóminn bera vott um mannvonsku. Mikið var um dóminn rætt í blöðum í Suður-Karólínu í gær og skoð- anir skiptar. Mennirnir þrír, 19, 21 og 27 ára gamlir, viðurkenndu að hafa af yfirlögðu og úthugs- uðu máli neytt stúlkuna með sér inn á hótelherbergi, þar sem þeir nauðguðu henni allir, auk þess sem þeir börðu hana til óbóta og skildu hana eftir rætiulausa í blóði sínu. Dóm- arinn sagði það gilda einu hvort að geldingin færi fram með skurðaðgerð eða með lyfjatöku. hefur farið stigvaxandi að und- anförnu. Mótmælafundurinn í gær þykir marka viss tímamót í andstöðu fólksins við stjórn- völda, ekki hvað síst í ljósi þátt- tökunnar, sem var geysilega góð, þrátt fyrir viðvörun stjórnvalda. Rússar neita allri tilslökun Moskvu, 19. nóvember. AP. SOVÉTRÍKIN neituðu því í morgun, að þau væru reiðubúin til tilslakana í viðræðum stór- veldanna í Genf, eins og skýrt var frá í gær. Þar sagði, að Sov- étmenn væru reiðubúnir að sleppa þeirri kröfu sinni, að eld- flaugar Frakka og Breta yrðu taldar með eldflaugum Banda- ríkjamanna. Áð sögn bandarískra emb- ættismanna í gær gaf Yuli Kvitsinsky, formaður sovésku sendinefndarinnar í Genf, ótvírætt til kynna á óformleg- an hátt, að sovésk stjórnvöld væru reiðubúin til að skera fjölda eldflauga sinna í Evrópu niður um helming. Sömu heimildir herma, að Kvitsinsky hafi í sömu andrá tilkynnt, að Sovétmenn væru reiðubúnir að halda viðræðum áfram á þeim grundvelli, að flaugar Breta og Frakka yrðu ekki teknar með í reikninginn. Amal-syeitirnar hóta hryöjuverkum: „Frakkar og ísraelar hafa opnað reikning Trípólí ojj Balbeek, 19. nóvember. AP. TALSMAÐUR studningsmanna Arafats greindi frá því í gær, að þeir héldu sínu í Baddawi-flóttamannabúöunum. Fyrir misskilning hefði sú frétt borist út, að stuðningsmenn Arafats heföu gert mikla gagnsókn til að ná búöunum. Sagði talsmaðurinn hið sanna vera, að þeir hefðu einUngis haldið velli í suðurhluta búðanna. Sjö félagar í Fatah-hreyfingu Arafats voru í gær reknir fyrir að standa að samsæri gegn leiðtogan- um. Var þeim gefið að sök að hafa haft samband við uppreisnarmenn PLO, sem berjast í Trípólí. Enn- fremur að hafa safnað saman pal- estínskum skólapiltum í Kuwait og sent þá á átakasvæðið við Trí- pólí. Umræddir félagar í Fatah voru allir háttsettir og vel metnir. Friðargæslusveitirnar í Líbanon voru í viðbragðsstöðu í gær sem endranær, en þó ekki síst vegna ummæla Husseins Musawi, leið- toga Amal-fylkingar shíta, sem hefur aðsetur í Bekaa-dal ásamt „Fylkingu Guðs“, sem eru önnur samtök ofstækismanna undir verndarvæng írana. Grunur hefur leikið á því að Amal-fylkingin beri ábyrgð á fjöldamorðunum á frið- argæsluliðunum á dögunum. Muswai sagði, að Frakkar og ísraelar „hefðu opnað reikning" hjá Amal-fylkingunni og Fylkingu Guðs, reikning, sem „yrði sannar- lega lagt inn á í náinni framtíð og um langan aldur". Endurtók Mus- awi það, sem áður var sagt, að fjöldi „sjálfsmorðsmanna í lík- klæðum úr sprengjum" myndi elta þá myrkranna á milli. „Þeir vita hvert hlutverk þeirra er og það þarf engar fyrirskipanir," sagði Amal-leiðtoginn. Loks sagði Musawi að það væri hneisa að ísraelar og Frakkar skyldu ráðast á minnimáttar með þeim hætti sem þeir gerðu án þess að hafa sannanir fyrir því að Ám- al hefði staðið á bak við spreng- ingarnar á dögunum. „Við komum hvergi nærri, þeir sem stóðu að sprengingunum voru ungir menn sem misstu heimili sín og fjöl- skyldur í fjöldamorðunum í Sabra- og Chatilla-flóttamanna- búðunum á síðasta ári,“ sagði Musawi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.