Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 39 Washington-pistill: Að eiga sér draum — eftir Margréti Þorvaldsdóttur Það var í ágúst árið 1963, að Martin Luther King jr. stóð á þrepum Lincoln-minnisvarðans og flutti landsmönnum sínum ræðu, sem lengi mun minnst meðal þess- arar þjóðar. Slíkur var máttur ræðunnar. Með þróttmikilli röddu sagði King: „Ég segi ykkur í dag, vinir mín- ir, er við horfumst í augu við erfið- leika dagsins í dag og dagsins á morgun, þá á ég mér ennþá draum. Mig dreymir að sá dagur komi, að þessi þjóð rísi upp og læri að lifa samkvæmt sönnu siðgæði kristilegs samfélags. „Við teljum þann sannleik augljósan að allir menn séu skapaðir jafnir““... Þessi ræða kom óvænt. King hafði lokið flutningi ræðu sinnar þegar Mahilía Jackson sem stóð þar nærri kallaði til hans „Martin, segðu okkur draum þinn“. King leit upp og hóf mál sitt. „Ég segi ykkur í dag“ ... Hann talaði blaðalaust. Frá upphafi hafði hann óskipta athygli fjöldans er hlustaði sem töfrum sleginn á þessa kynngimögnuðu ræðu. Er sagt, að þá hafi verið sem víðir vellir Lincoln-minnisvarðans væru horfnir undir þak lítillar Baptistakirkju í Alabama. Þar talaði klerkur til safnaðar síns og söfnuðurinn, mannfjöldinn allur (200 þús.), tók undir með ræðu- manni orðum hans til áherslu. Þetta varð ógleymanleg stund þeim sem viðstaddir voru. Fáar ræður hafa haft jafn víð- tæk áhrif og þessi ræða Kings. Hún var hvatning til dáða lang- hrjáðu og undirokuðu þjóðarbroti, þeldökkum, sem á þeim tíma bjó ekki við almenn mannréttindi nema í hluta landsins, og þar virt- ist engin breyting framundan. Þá var ákveðin ganga til Washington undir forystu dr. Kings. Það var árið 1963. Tilgangurinn var að knýja fram kosningarétt fyrir þeldökka í suðurríkjunum jafn- framt öðrum sjálfsögðum mann- réttindum. Við sem bjuggum í norðurríkj- unum á þessum tíma áttum erfitt með að skilja þann aðskilnað kyn- þátta sem viðhafður var í suður- ríkjunum. Það eru ekki nema rúm 20 ár síðan, að jafnvel hér í höfuð- borginni sjálfri, Washington, urðu þeldökkir að sitja aftast í almenn- ingsvögnum. Þeim var einnig meinaður aðgangur að mörgum hótelum, veitingastöðum, drykkj- arbrunnum og almennum salern- um. King hafði tekist að opna suma þessara staða 1963, en jafnréttis- lögin sem samþykkt voru 1964 opnuðu þá endanlega. Lögin áttu einnig að tryggja jafnan rétt til starfa og tækifæri til mennta fyrir alla. Þó að þeir þættir hafi þótt tak- ast misjafnlega, þá hefur orðið hér mikil breyting síðustu 20 árin. Þeldökkir sem áður fyrr fengu ekki aðgang að stofnunum stór- borga, sitja þar í dag í æðstu stöð- um. Þeir eiga borgarstjóra í Atl- anta, Washington, Chicago, De- troit og víðar. 20 eru þingmenn ríkisþingsins, fjöldi starfar við fjölmiðla, eru kennarar o.fl. Nú er einnig rætt um framboð Jesse Jackson til forseta. Ekki hafa allir verið ánægðir með framgang mála, því var ákveðið að efna til göngu í Washington í annað sinn, 27. ág- úst síðastliðinn, og nú undir kjör- orðunum störf, friður, frelsi. Þessi ganga hafði annan blæ en sú sem farin var 1963. Þá samein- uðust allir um eitt baráttumál sem var kosningarétturinn, en að þessu sinni voru baráttumálin mörg og óskyld. Því voru ekki allir leiðtogar og talsmenn samtaka þeldökkra á eitt sáttir um hvort ganga skyldi. Þeir sem stóðu að göngu '83 mynduðu samtök sem þeir nefndu „Hin nýja sameining fyrir rétt- læti“, undir forystu Corettu Scott King. Markmiðið var að vinna að lög- boði hátíðisdags í minningu Mart- in Luther Kings Jr. og að vinna að breytingu á jafnréttislögunum. Þau áttu að koma í veg fyrir hlutdrægni við starfsveitingar vegna kynferðis, litarháttar eða uppruna, en þeim hefur ekki verið framfylgt. Énnfremur að veita stuðning baráttu kvenna til jafn- réttis við karla, til trygginga, skatta, eftirlauna o.fl. I sambandi við utanríkismál þá studdu samtökin þau lög sem draga eiga úr fjármagni til varn- armála — banna sölu kjarna- kleyfra efna og tækni til Suður- Afríku svo og fjárfestingu banda- rískra fyrirtækja þar í landi. Þau stóðu að kröfu um skilyrðislausar friðarumleitanir og varanlega lausn á átökunum f E1 Salvador o.fl. í göngunni tóku þátt fjölmargir hópar fólks, þar á meðal 110 manna hópur friðarsinna frá Skandinavíu, m.a. íslandi. Þau sýndu einstaka hreysti við að ganga frá New York hingað suður eftir á þessum heitasta tíma árs- ins. Gangan sem gengin var 1963 var skipulögð af manni að nafni Rust- in, en hann neitaði að vera þátt- takandi í göngu ’83. Skýringu á því gaf hann í sjónvarpsviðtali. Hann sagði að þeim fjármunum, sem til göngunnar væri varið, væri illa eytt og kæmi þeim ekki til góða sem aðstoðar þyrftu við. Hann benti á að mikil breyting hefði orðið á aðstöðu þeldökkra síðustu 20 árin. Kosningarétt hefðu allir í dag og peningum hefði verið bétur varið til að hjálpa fólki að komast á kjörskrá svo það geti notað rétt sinn og þannig haft áhrif á líf sitt. Hann sagði ennfremur að brýn nauðsyn væri að byggja upp með einstakl- ingnum trúna á eiginn mátt og styrk og það þyrfti að leggja aukna áherslu á menntun og þjálf- un nútímaþjóðfélags. Tímar eru breyttir, bætti hann við, frá því er minnihlutahópar eins og íranir, Pólverjar og ítalir gátu unnið sig áfram í krafti vöðva sinna. í dag eru aðstæður gjörbreyttar, þeldökkir koma inn á vinnumarkaðinn þegar ný tækniöld er að ganga í garð, sem er sjálfvirkni í iðnaði. Þá þróun verða menn að horfast í augu við í dag, sagði hann að lokum. Meðal viðmælenda voru Meaner og Williams (blaðamenn). Þeir deildu á leiðtogana vegna afstöðu þeirra til menntamála. Þeir kváðu þá hafa lagst gegn eðlilegum kröf- um af hendi nemenda svo og próf- um í skólum. Það sögðu þeir vera orsök fyrir því að þeirra börn koma verr menntuð út í lífið en aðrir. Lágmarkslaun sagði Williams halda unglingunum frá því að fá vinnu og þar bæru leiðtogar sök- ina. í dag búa þeldökkir við mun meiri fátækt en aðrir (36%). Fé- lagsfræðingar benda á að í kjöl- farið komi stöðugt vaxandi félags- leg vandmál. Mun meira er um eiturlyfja- notkun meðal þeldökkra en hvítra, — það er meira um glæpi — fleiri lenda í geðsjúkrahúsum og fleiri fremja sjálfsmorð. Fyrir 20 árum voru 15% einstæðra mæðra þel- dökkar, en nú eru þær 50%. Talsmenn segja að eitt sé sam- eiginlegt þessu unga fólki, en það er eigið vanmat. Það skortir sjálfstraust og trú á hæfileika sína til að ná árangri. Það hafi' beinlínis gefist upp í lífsbarátt- unni. Nýkjörinn formaður NEA sem eru önnur stærstu kennarasamtök hér í landi, Mary Tutrell (þeldökk) hvetur til róttækra breytinga í skólamálum. Hún kveðst því mót- fallin að nemendur fái að fara milli bekkja iila læsir og skrifandi — vegna félagslegra aðstæðna. Þróun síðustu ára með lægri kröf- ur til minnihlutahópa en annarra segir hún hafa verið stórkostleg mistök. „Það sem við hefðum átt að gera,“ sagði hún, „var að „lyfta“ nemendum svo að þeir næðu að standast kröfurnar." Hún kvaðst einnig samþykkt prófum svo lengi sem nemendum hefði verið kennt það efni sem prófa ætti. Þarna þykir hafa orðið breyting á stefnu. Því að á síðasta áratug hefur NEA barist mjög gegn samræmdum prófum og grundvallarþekk- ingarprófi sem lokaprófi úr menntaskóla. Keðjuverkun, afleiðing van- rækts grunnskóla ætti að verða okkur Islendingum íhugunarefni. Gangan í Washington og sú um- ræða sem fylgt hefur í kjölfarið, hefur án efa verið mjög jákvæð. Hún hefur rifjað upp fyrir fólki ástandið eins og það var fyrir 20 árum og einnig þróun síðustu 20 ára. Umræðan hefur dregið fram ólíkar skoðanir og viðhorf til vandamála sem ráða þarf bót á. Það sem mikilvægast er, er að hún hefur gefið ábendingar um leiðir til að búa ungu fólki framtíð og hamingju. Bent hefur verið á, að aukin grunnmenntun eyði vanmati og efli sjálfstraust, sem gera mun einstaklingnum auðveldara að afla sér menntunar til starfs. Það muni leiða til öryggis og lífsfyll- ingar í þjóðfélagi þar sem ein- staklingurinn finnur sig virkan þátttakanda. Það er draumur hvers og eins að vera virtur þegn þjóðar sinnar fyrir því barðist dr. King. Því munu framtíðarkynslóðir ætíð finna hvatningu í hinni frá- bæru ræðu dr. Martin Luther Kings jr. „Ég á mér draum í dag.“ Bók um mann- líf á jörðu BÓKAKLIJBBUR Almenna bókafé- lagsins hefur sent frá sér bókina Mannlíf á jörðu í þýðingu Björns Jónssonar. í frétt frá útgefenda segir um bókina: „Hér er um að ræða geysimikla landafræði og þjóðfræði- bók sem spannar allan hnöttinn og lýsir þjóðum hans og þjóðflokkum, að- stæðum þeirra, lifnaðarháttum, þjóð- trú og sérkennum og þeim breyting- um sem nútíminn veldur víðast hvar. Bókin er með miklum fjölda vandaðra mynda og korta lesendum til glöggv- unar. Mannlíf á jörðu er rituð af mörg- um sérfræðingum víðsvegar um heim, en menn á vegum tímaritsins LIFE hafa séð um ritstjórn og san^ ræmingu. Einnig er myndum safia| að úr söfnum víðsvegar um hnötG* inn. Bókin er kynnt þannig á bókar- kápu: „Mannlíf á jörðu fjallar um mannkynið — fjölskyldu þjóðanna, upphaf hennar og menningarsögu, streymi þjóðanna um hnöttinn, ein- kenni þeirra og aðlögunarhæfni við umhverfið. Bókin er unnin af fær- ustu sérfræðingum víðsvegar að úr heiminum. Hún greinist í tvo hluta: Ylfirsýn um alla jörð og þjóðir heims Hinn fyrri fjallar um upphaf mannkyns, sameiginleg einkenni, sjálfsbjargarviðleitni og þróun, hinn síðari um sérkenni einstakra þjóða og hvernig fólki tekst eða tekst ekki að lifa saman í sátt. Með könnun hins almenna og hins sér- stæða ieitast bókin við að skýra og MANNLÍF ÁJÖRÐU skilja þau reginöfl sem móta og endurmóta veröldina á liðandi stund. Mannlíf á jörðu er í mjög stóru broti, 24x34 sm, Hún er með ræki- legum nafna- og efnisorðaskrám alls 208 bls. að stærð. Annað bindi Dalalífs ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér skáldsöguna Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi, 2. bindi. Þetta er 2. útgáfa bókarinnar. Dalalíf kom út í fyrstu útgáfu í 5 bindum 1946—1950. Útgáfa Al- menna bókafélagsins verður í 3 bindum og kemur lokabindið út næsta ár. Um þetta 2. bindi skáldsögunn- ar segir í kynningartexta á bók- arkápu: Áfram er haldið að rekja örlög fólksins á Nautaflötum og ná- granna þess. Gömul kynslóð hverfur, ný kynslóð tekur við, sem ber sum einkenni eldri kynslóðar, sum af öðrum toga ... Samspil fjölskrúðugs mannlífs í fábrotnu umhverfi, hörð lífsbar- Guðrún frá Lundi. ástamál. Úr slíku samspili myií ast sú sérkennilega snenr bækur Guðrúnar frá þekktar fyrir.. Þetta miðbindi Dah bls. að stærð og unni^í Prentstc G. Benediktssonar og Félagsbé bandinu. 3oa £ sr er

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.