Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 5 Útvarp/sunnud. kl. 15.15: Armstrong í dægurlandi Louis Armstrong, hinn heimsfrægi tónlistarmaður, flytur jazz ásamt félögum sínum í útvarpinu í dag kl. 15.15 í þættinum „í dægur- landi“, sem Svavar Gests sér um. Judith Blegen Heimsfræg söngkona frá Metrópólitan-óperunni syngur í Háskólabíói Judith Blegen med Placido Domingo í hlutverki Júlíu í óperunni „Romeo et Juliette" eftir Gounod í Metropolitan-óperunni í New York. í TILEFNI af 25 ára afmæli Fulbright-stofnunarinnar á íslandi hefur Fulbright-stofnun í samvinnu við Háskóla íslands afráðió að efna til tónleika, þar sem hin heimsfræga sópransöngkona, Judith Blegen, frá Metropolitan-óperunni í New York, kemur fram. Að sögn Franks Ponzi, nefnd- arformanns Menningarsjóðs Fulbright, og Guðmundar Magn- ússonar, háskólarektors og formanns Fulbright-stofnunar- innar, kemur söngkonan sér- staklega til íslands vegna þess- ara tímamóta. Enda þótt söng- konan sé bókuð langt fram í tím- ann, allt til ársins 1985, tókst að fá hana hingað í tilefni afmæl- ishátíðarinnar. Umræddir tón- leikar verða haldnir í Háskóla- bíói þriðjudaginn 29. nóvember kl. 20.30 og verða ekki endur- teknir. Sæti verða númeruð og miðasala hefst mánudaginn 21. nóvember á skrifstofu Happ- drættis Háskóla íslands, Tjarn- argötu 4. Judith Blegen er fædd í Mont- ana í Bandaríkjunum og er af norskum ættum. íslendingum er hún vel kunn, bæði af hljómplöt- um í Ríkisútvarpinu og einnig fyrir söng hennar á opnunarhá- tíð „Scandinavia Today", en þáttur þaðan var sýndur hér í sjónvarpinu ekki alls fyrir löngu. Snemma á listaferli sínum hlaut Judith Blegen Fulbright- styrk til söngnáms á ftalíu. Rétt rúmlega tvítug að aldri kom hún fyrst fram í Metropolitan- óperunni í „Töfraflautu" Moz- arts. Þar hefur hún síðan sungið ótal hlutverk, t.d. í „Le Nozze di Figaro“, „Fidelio", „Werther", „Un Ballo in Maschera", „Rigol- etto“, „Hansel und Gretel", „Der Rosenkavalier", „Romeo et Juli- ette“, þar sem hún söng á móti Placido Domingo, og „L’Elisir d’amore" með Luciano Pavarotti. Rödd hennar heyrist í helztu óperuhúsum heimsins eins og Royal Opera, Covent Garden í London, Vínaróperunni, Bolshoi í Moskvu, Parísaróperunni, Hamborgaróperunni og víðar. Einnig hefur hún komið fram á mörgum listahátíðum, t.d. í Salzburg, Edinborg, Bergen og Spoleto. Fyrir söng sinn á hljómpiötum hefur söngkonan unnið til ótal verðlauna, m.a. Grammy-verð- launanna fyrir „La Boheme" og „Carmina Burana" og Grand Prix du Disque fyrir frábæran söng á aríum eftir Mozart. Píanóleikarinn Douglas Fish- er frá New York leikur með söngkonunni á hljómleikunum, sem hefjast kl. 20.30 þriðjudag- inn 29. nóvember í Háskólabíói. Teiknimynd um gamla þvottavél, sem úr sér er gengin, verður medal annars í Stundinni okkar í dag. Tannfræðsla og Gúmmí Tarsan „Við höfum verið með fræðslu um tennurnar, verndun þeirra og hirð- ingu, síðustu tvær „Stundir" og í dag verða þær Inga og Halldóra með síðasta tannfræðsluþáttinn,** sagði Ása H. Ragnarsdóttir, er hún var spurð um efni barnatímans í dag. Inga B. Árnadóttir tannlæknir og Halldóra Bergmann tannfræðingur sem sjá um tannsfræðsluna. „Brúðuapinn kemur nú með sína frábæru mynd, en hann er sein- heppinn, greyið, og ýmislegt fer úrskeiðis hjá honum. Svo förum við í heimsókn í Leikfélag Kópa- vogs og sjáum atriði úr Gúmmí- Tarsan, sem þar er sýndur. Lítil teiknimynd um gamla þvottavél, sem er úr sér gengin, verður einn- ig á dagskránni. Kínversku fjöllistamennirnir, sem komu til fslands í haust, sýna okkur nokkur skemmtileg atriði. Nú, Smjattpattarnir verða að sjálfsögðu á sínum stað og rúsínan í pylsuendanum verður þríhjóla- keppni, sem var haldin á lóð Aust- urbæjarskólans í haust. Krakkar af barnaheimilinu Ösp í Breiðholti tóku þátt í keppninni og lærðu um umferðarreglurnar í leiðinni. Við vitum til dæmis öll að það er stranglega bannað að aka um á þríhjólum á götunum," sagði Ása H. Ragnarsdóttir að lokum. V _____ ad bóka I Sl 'MARl insix f yrjuð HOLLANDI m * Óbreytt verð frá 1983 ★ S-L ferðaveltan dreifir greiðslum á yfir 20 mánuði Nú fylgjum við glæsilegu sumri í hollensku sumarhúsunum eftir og hefjum strax sölu á sumarferðunum 1984, - og það á óbreyttu verði frá árinu 1983. í sumar var uppselt f allar ferðir, biðlistar mynduðust og margir urðu frá að hverfa. Við gengum því strax frá samningunum fyrir næsta sumar og opnum þannig öllum fyrirhyggjusömum fjölskyldum leið til þess að tryggja sér heppilegustu ferðina tímanlega og hefja strax reglubundinn spamað með Eemhof Sumarhúsaþorpið sem sló svo rækilega í gegn á sl. sumri. Frábær gisting, hitabeltissundlaugin, fjölbreytt íþrótta-, leikja- og útivistaraðstaða, veitingahús, verslanir, bowling, diskótek, tennis, mini-golf, sjóbretti o.fl. o.fl. o.fl. Endalaus ævintýri allrar fjölskyldunnar. Vetrarsalan opnar þér greiðfæra leið Vetrarsala Samvinnuferða-Landsýnar á hollensku sumarhúsunum er okkar aðlerð þess að opna sem allra flestum við^wúega og greiðlaera leið f gott sumarin með alla fiölskvlduna. í eriiðu efnahagsástandi er órnemnlegt að geta trygg. sérharreúu ferðma með góðum fyrirvara og notfært sér óbreytt verð frá árinu 1983, SL-ferðaveltuna og SL-kjörin til þess að létta á kostnaði og dreifa greiðslubyrðinni á sem allra lengstan tlma. ★ Eemhof-Kempervennen stóraukið sætaframboð ★ Fjölskylduferðir í algjörum sérflokki SL-ferðaveltunni. í henni er unnt að spara í allt að 10 mánuði og endurgreiða lán jafnhátt sparnaðinum á 12 mánuðum eftir heimkomu. Þannig má dreifa greiðslum á yfir 20 mánuði og gera fjármögnun ferðalagsins mikium mun auðveldari en ella. Og enn munum við bjóða SL-kjörin. Með þeim má festa verð ferðarinnar gagnvart gengisbreytingum og verjast þannig öllum óvæntum hækkunum. Þetta er okkar leið til þess að gera Hollandsævintýrið 1984 að veruleika hjá sem allra flestum fjölskyldum. Kempervennen Nýtt þorp, byggt upp í kjölfar reynslunnar í Eemhof og af sömu eigendum. Öll aðstaða er sú sama og í Eemhof og í Kempervennen er síðan bætt um betur og aukið enn frekar við stærð sundlaugarinnar, veitingastaðanna og sameiginlegrar þjónustu auk þess sem bryddað er upp á ýmsum spennandi nýjungum fyrir bömin. Fyrirhyggja í ferðamálum - einföid leid til lægri kostnaðar og léttari greiðslubyröi Nýr Hollandsbæklingur á skrifstofunni oghjá umboðsmönnum um allt land Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.