Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 41 Andlát Helga á Lambastöðum kom ekki á óvart. Allir sem til þekktu vissu að hverju dró, en undruðust jafnframt þá viljafestu og karlmennsku er hann sýndi fram á síðustu stundu. Æðruleysi var einn af þeim kostum sem prýddu Helga og með æðruleysi tók hann mótlætinu og sorginni sem til hans kom í ríkum mæli, en aldrei varð ég þess var að hann flíkaði tilfinningum sínum, er svo stóð á. Ég kynntist Helga fyrst ár- ið 1960 og allar götur síðan höfum við verið góðir vinir og af þeirri vináttu hef ég notið margs. Það var Helga eðlislægt að vera veit- andi og aldrei var hann glaðari en þegar hann veitti fjölmenni af þeirri rausn er honum var lagið. Alla tíð stóð Katrín Magnúsdóttir við hlið hans með sérstakri reisn og tryggð. Til Helga sóttu margir góð ráð, því fáa menn hefi ég þekkt sem eins gott var að leita til þegar eitthvað bjátaði á. Hann leysti hvers manns vanda og horfði þá hvorki í kostnað né fyrirhöfn. í æsku kynntist Helgi fátækt og þeirri reynslu gleymdi hann aldrei og hún mótaði mjög hans lífsskoð- un og því skipaði hann sér ævin- lega þar í sveit er hann gat veitt lítilmagnanum. Glaðværð Helga og félags- hyggja leiddu til þess að hann tók verulegan þátt í félagsmálum og var allsstaðar þarfur og dugandi en vildi ógjarnan láta á sér bera. Ég kynntist félagsstarfsemi Heiga best innan Kiwanis-hreyf- ingarinnar, en einkunnarorð hennar eru: „Við byggjum". Þetta átti vel við Helga. Hann var bygg- ingarmeistari að lífsstarfi og skil- aði því vel sem öðru er hann kom nærri en honum nægði ekki að byggja úr sandi og sementi, hann vildi líka byggja upp á andlega vísu og það gerði hann svikalaust með glaðværð sinni og sönghneigð, en þó fyrst og fremst með mann- elsku sinni. Ég mun sakna Helga, en vel get ég unnt honum hvíldarinnar, sér- staklega þar sem ég veit hvílík kvöl honum var að vera ekki full- komlega sjálfbjarga. Blessuð sé minning góðs drengs. Að lokum votta ég Katrínu og öðrum ástvinum Helga innileg- ustu samúð mína og fjölskyldu minnar og þakka þeim allar liðnar stundir. Páll Guðmundsson. Kveðja frá Karlakór Reykjavíkur. Undirritaður minnist þess æ, er hann og hinn látni heiðursmaður hófu störf í Karlakór Reykjavíkur árið 1951. Þá, ekki síður en svo margoft áiðar, voru umbrot í kórn- um; stefnt hátt og unnið mikið að stórum verkefnum. Nýjum með- limum kórsins var vel fagnað og þeim fljótlega falin störf, er þeim virtist henta og gagnast kórnum vel. Einn þessara nýliða var Helgi Kristjánsson, sem átti oft eftir að sýna dugnað og fórnfýsi á mörg- um sviðum. Honum var hægt að treysta þegar mikið lá við. Eink- um voru það umsvifamiklar utan- ferðir kórsins og þá ekki alltaf gengið í gilda sjóði til að fjár- magna eitt eða annað. Það var árið 1956, að Helga fannst kórfélögum ekki lánast vel að leysa vandamál vegna einnar utanfararinnar, og þótti þeir ekki nógu jákvæðir við úrlausnina. Tók Helgi þá upp tékkheftið og skrif- aði út ávísun, er jafngilti bílverði, og sagðist ekki nenna karpi og þetta væri hægt að greiða þegar fjármála-planinu væri lokið og uppgjör lægi fyrir! Helgi var alltaf jákvæður og hann átti ekki síst þátt í því, að kórinn eignaðist eigið húsnæði. Þar kom sér vel bjartsýni hans og útsjónarsemi. Hann var fylginn sér; baráttumaður, og ef hann Systir Elíse - Kveðjuorð Fædd 21. október 1902. Dáin 12. nóvember 1983. Kveðjuorð frá augndeild Landakotsspítala í fjölda ára var Systir Elíse eina hjúkrunarkonan á augnskurðstofu Landakotsspítala, alltaf til taks, traust og létt í lund. Um sjötugt fékk hún fyrst aðstoðarmann á skurðstofuna. Þá höfðu umsvifin aukist með fjölgun augnlækna á deildinni. Enn er í minnum haft hve vel hún meðhöndlaði hin viðkvæm- ustu skurðáhöld. Þau fáu skifti, sem hún varð hvassyrt hafði henni þótt verkfærum misboðið. Systir Elíse var minnug og fylgdist vel með því sem gerðist í þjóðfélaginu. Hún hætti ekki að hafa áhuga á gamla vinnustaðnum þó hún léti af störfum og heimsótti okkur síð- ast fáum dögum fyrir andlátið. Þökk sé henni fyrir hjálp og góðar stundir. Hörður Þorleifsson, augnlæknir. Lokaö frá kl. 2 eftir hádegi mánudaginn 21. nóvember vegna jaröarfarar HELGA KRISTJÁNSSONAR, bygg- ingameistara, Lambastööum. Efnissalan hf., Smiöjuvegi 9, Kópavogi. Lokað Skrifstofur vorar og vörugeymslur veröa lokaöar frá kl. 2 mánudaginn 21. nóv. vegna jaröarfarar HELGA KRISTJÁNSSONAR, húsasmíöameistara. Björninn hf., Skúlatúni 4. trúði á málstaðinn eða verkefnið, þá var hann harður í horn að taka og sannfærandi. M.a. þess vegna var húsnæðið að Freyjugötu 14 keypt fyrir starfsemi kórsins. Bet- ur væri að oftar hefði verið fylgt ráðum hans og áhuga fyrir ýmsum málefnum. Tveir bræður Helga voru fyrir í kórnum, er hann kom þangað; þeir Kristjón og Kristinn. Allir voru bræðurnir heiðursfélagar kórsins fyrir langt og óeigingjarnt starf. Helgi var um árabil varafor- maður kórsins; söng af hjartans lyst djúpan bassa og var ætíð hrókur alls fagnaðar á samkomum kórsins, sem á öðrum mannamót- um. t Innilegar þakkir tyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát cg jaröarför BENEDIKTS JÓHANNESSONAR, Saurum. Steinunn Gunnarsdóttir, Melkorka Benediktsdóttir, Sigurbjörn Sigurðsson, Jóhannes Benediktsson, Vilborg Eggertsdóttir, Jófríöur Benediktsdóttir, Hafliöi Aöalsteinsson, og barnabörn. Hann var þó alvörumaður á milli. A Grieg-hátíðinni í Bergen í Noregi, 1956, söng Karlakór Reykjavikur lag Schuberts við 23. sálm Davíðs í Gamla Testament- inu, er hefst þannig: „Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta." Hann felldi þá tár fyrir framan undirritaðan eftir hljómleikana og sagði: „Við komum við hjörtu áheyrenda, — fannstu viðbrögðin og heyrðirðu klappið?" Hann bætti við: „Er það furða, við svo fallegt lag og ljóð.“ Helgi söng einnig í kirkjukór Neskirkju í Reykjavik og þar fékk hann líka að túlka fegurð sálma og söngs. Þaðan verður og útför hans gerð mánudaginn 21. nóvember nk. Karlakór Reykjavíkur flytur eftirlifandi konu hans, Katrínu, börnum og fjölskyldum, innilegar samúðarkveðjur við fráfall Helga, og þakkar Katínu og látnum eig- inmanni allar ánægjustundirnar á lífsleiðinni. Ragnar Ingólfsson + Þökkum hjartanlega auösýnda samúö viö andlót og útför KRISTJÁNS LOFTSSONAR, fyrrverandi bónda aö Haukadal og Felli, Biskupstungum. Þakkir færum viö læknum og starfsfólki spítala sem önnuöust hann af alúö í veikindum hans. Börn, tengdabörn og barnabörn. Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö viö andlát og útför foreldra minna, tengdaforeldra, afa og ömmu, GÍSLA STEFÁNS SIGURÐSSONAR OG JÓHÖNNU SIGRÍÐAR SÖLVADÓTTUR, Aðalgötu 27, Sauöárkróki. Siguröur Gíslason, Erna Magnúsdóttir, Gísli Sigurösson, Karólína Thorarensen, Erna Gísladóttir. EICENDUR SPARiD BENSIN LÁTID STILLA OC YFIR- RARA BÍUNN FYRIR VETURINN ÞJONUSTA 1. 2. 3. 5. 6. 7. 10. 11. 12. 13. Vélarþvpttur. Ath. bensín, vatns- og olluleka. Ath. hleöslu, rafgeymi og geymissambönd. Stilla ventla. Mæla loft I hjólbörðum. Stilla rúöusprautur. Frostþol mælt. Ath. þurrkublöö og vökva á rúöu- sprautu. Athuga loftsíu. Skipta um kerti og platinur. Tfmastilla kveikju. Stilla blöndung. Ath. viftureim. 14. 15. 16. 17. 18. 19. Ath. slag ( kúplingu og bremsu- pedala. Smyrja huröalamir. Setja silikon á þéttikanta. Ljósastilling. Vélarstilling meö nákvæmum stillitækjum. Skiptum benslnslu. Verö með söluskatti kr. 1.770.00 Innifalið i verói; Platlnur, kerti, ventla- lokspakkning og frostvari á rúöusprautu. Þér fáiö vandaöa og örugga þjónustu hjá sérþjálfuðum fagmönnum MAZDA verkstæðisins. Pantiö tlma i simum: 81225 og 81299. B/LABORG HF Smiöshöföa 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.