Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983
35
Tækniskóli
íslands
hyggur á
breytingar
„NEFND, sem menntamálaráðherra
skipaði, vinnur nú að athugun á
stöðu Tækniskóla fslands í mennta-
kerfinu og áætlun um framtíðarþörf
fyrir margs konar tæknimenntun og
hvernig henni verði best fyrir kom-
ið,“ segir í frétt, sem Mbl. hefur
borist.
í sömu frétt segir, að umrædd
nefnd muni fjalia um tengsl skól-
ans við aðrar menntastofnanir,
nýjar námsbrautir í skólanum og
fjölbreyttara nám svo og verkefni
skólans á sviði endurmenntunar. í
fréttinni segir ennfremur að
fyrrverandi nemendur Tækniskóla
íslands, vinnuveitendur þeirra og
aðrir, sem áhuga hafa á málefninu
séu beðnir að senda athugasemdir
og tillögur varðandi verkefni sitt,
þ.á m. varðandi alla menntun, sem
nú er veitt í skólanum, til rektors
skólans.
Æviminninga-
bók Menning-
ar- og minninga-
sjóðs kvenna
STJÓRN Menningar- og minn-
ingasjóðs kvenna hefur ákveðið að
gefa út 5. hefti æviminninga þess
fólks, er sjóðnura hafa borist minn-
ingagjafir um. Miðað er við að bókin
komi út á miðju ári 1984.
Fram til 31. janúar 1984 er fólki
gefinn kostur á að koma með
greinar í bókina.
Allar upplýsingar fást á skrif-
stofu sjóðsins og KRFÍ á Hallveig-
arstöðum, mánudaga, þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga frá
kl. 14.00-17.00. Sími 18156. Þar
verður einnig hægt að gerast
áskrifandi að bókinni og kaupa 2.,
3. og 4. hefti æviminningabók-
anna.
Kveiktu
á perunni
— 50 vísnagátur
ÚT ER komin önnur bók af vísna-
gátum Ólafs Gíslasonar á Neðra-Bæ
í Arnarfirði, Kveiktu á Perunni.
Bókin hefur að geyma 50 vísna-
gátur. Eins og við fyrri útgáfuna
fá þeir, sem flestar réttar ráðn-
ingar senda inn verðlaun og sá
efsti hlýtur auk þess skrautritað
heiðursskjal í bundnu og óbundnu
máli. Annarri bók fylgja ráðn-
ingar á gátum fyrstu bókar og
nafnalisti yfir tíu „hæstráðendur".
Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni
Odda.
^Vskriftar-
síminn er 83033
ÞESSAR stöllur eiga heima í Garðabæ, en þar efndu þær til hlutaveltu til
ágóða fyrir Þjónustumiðstöð aldraðra þar í bænum og söfnuðu þær 965
krónum. Dömurnar heita: Magnea Guðrún Karlsdóttir, Helga Hrönn Þórs-
dóttir, Kristín Agnarsdóttir og Sigurlaug Þorsteinsdóttir.
Nýr bókaflokkur í MH:
Hamraskáld
BÓKSALA Menntaskólans við Hamrahlíð hefur gefið út sína fyrstu bók,
og er það Ijóðabókin Hanastél hugsana minna eftir Þór Sandholt, nítján
ára Reykvíking sem stundar nám í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
f formála bókarinnar segir að
Hanastél hugsana minna sé fyrsta
bókin í flokki skáldverka nemenda
Menntaskólans við Hamrahlíð, og
hefur flokkur þessi hlotið nafnið
Hamraskáld. Tilgangurinn með
bókaflokknum er að koma ritverk-
um nemenda á framfæri og örva
skáldskaparlist innan skólans,
þannig að ritsnjallir menn þar
geti átt sér eitthvert markmið
með skrifum sínum, eins og segir í
fréttatilkynningu frá Bóksölu MH
um fyrstu bókina.
Hanastél hugsana minna er
fyrsta bók Þórs Sandholt, en eftir
hann hafa birst mörg ljóð í skóla-
blaði MH, Beneventum. Bókin er
48 síður að stærð og í henni eru
alls 33 ljóð. Hún er myndskreytt
af Guðmundi Pálssyni, en prentun
og band annaðist Prisma sf.,
Hafnarfirði.
Við bíðum eftir
hrikalegri
verölækkun
Kæru mömmur og pabbar það er engin bílasala hjá
okkur í augnablikinu, bílar eru orðnir svo dýrir, en
á næstu dögum eigum við von á hrikalegri verð-
lækkun. f tilefni af því, svona til þess að gera eitt-
hvað, bjóðum við til
stórkostlegrar
barnaskemmtunar
í dag, sunnudag kl. 15—17 hér í sýn-
ingarsalnum hjá okkur. Þar verður ýmislegt gert
sér til skemmtunar og góðir gestir koma í heim-
sókn.
Þetta verður einhvern veginn svona:
1. Halli og Laddi
2. Jón Spæjó
3. Þórður
4. Risa vínarbrauð frá Nýja Kökuhúsinu
5. Gosdrykkir frá Coke
6. Hljómsveitin The Icelandic Seafunk Corporation
7. Kannski fá einhverjir eitthvað
8. K1 17 flugeldasýning
9. Allt búið
Allir krakkar eru velkomnir og svo kaupa mamma
og pabbi nýja bílinn seinna, það borgar sig.
Sjáumst!