Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.11.1983, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1983 H0LLUW00D Opiö öll KVÖId VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Vatnsrenni- brautir í Laugar- dalslaugina? HUGMYNDIK eru uppi um það f íþróttaráði Keykjavfkur að setja upp vatnsrennibrautir í sundlaugunum í Laugardal. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Stefáni Kristjáns- syni, íþróttafulltrúa Reykjavíkur- borgar, er íþróttaráð áhugasamt um að setja upp fyrrgreindar renni- brautir, en hins vegar hefði engin samþykkt hefði verið gerð í málinu, en unnið væri að upplýsingaöflun. Rennibrautir eins og hér um ræð- ir tiðkast víða í sundlaugum erlend- is. Daggjöld sjúkrahúsa hafa hækkað um 44,2% frá áramótum DAGGJÖLD sjúkrahúsa fyrir tímabil- ið 1. október til 1. desember hækkuðu nýlega, og hafa þá daggjöldin hækkað um 44,2% frá síðustu áramótum sam- kvæmt hækkun vísitölu sjúkrahús- kostnaðar, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk í heilbrigðis- ráðuneytinu í gær. Hér er átt við hækkun rekstrar- daggjalds, en hæsta rekstrardag- gjaldið er hjá Borgarspítalanum í Fossvogi í Reykjavík, en þar er rekstrardaggjaldið kr. 4.212, en heildardaggjald er 5.253 kr. Daggjöld sjúkrahúsa hækka sam- kvæmt vísitölu sjúkrahúskostnað- ar, en hún er samsett úr tólf liðum. Næsta breyting á daggjöldum sjúk- rahúsa verður 1. desember næst- komandi, en ekki er búist við mikl- um breytingum þá vegna þess að laun hækka ekki á tímabilinu, en launakostnaður vegur um 70% í daggjöldum sjúkrahúsa. Loðnuaflinn um 20 þús- und lestir HEILDARAFLINN á loðnuveríðinni var í gær rétt um 20 þúsund tonn. í fyrrinótt var bræla á miðunum, en skip voru að veiðum fram eftir nóttu. Scxtán skip tilkynntu afla til loðnu- veiðar, um 5400 tonn. Aflann fengu þau austur af Kolbeinsey og lönduðu í Siglufirði, Krossanesi og á Kaufar- höfn. I>au skip sem tilkynntu loðnu- nefnd afla eru: Hilmir II 400, Hákon 500, Þórðurl Jónasson 350, Albert 500, Gullberg 180, ísleifur 480, Þórshamar 450, Svanur 300, Rauðsey 270, Helga II 270, Fífill 350, Örn 250, Keflvíking- ur 300, Grindvíkingur 600, Skarðs- vík 130, Magnús 50 og Gísli Árni. Sex skip höfðu tilkynnt loðnu- nefnd um afla um miðjan dag á föstudag, samtals 2.930. Flest skip- anna héldu með aflann til Krossa- ness. Skírnir fór með 430 lestir til Krossaness, Húnaröst 650 til Siglu- fjarðar, Hrafn 650 til Krossaness, Kap II 600 til Krossaness, Víkur- berg 520 til Krossaness og Sæbjörg 80 lestir til Neskaupstaðar. Loðn- una fengu skipin á Kolbeinseyjar- svæðinu. 1.100 Reykvíkingar bíða eftir síma: 5.000 ný símanúmer í notk- un á næsta ári í Reykjavík sex stafa númer í næsta mánuði EITT þúsund ný símanúmer verða tekin í notkun í Reykjavík í næsta mánuði og verða þau öll sex tölustafir. Er tímar líða verða öll símanúmer á Reykjavíkursvæðinu sex stafa, að sögn Hafsteins Þorsteinssonar, símstjóra í Reykjavík. Fyrir árslok 1984 mun símanúmerum á höfuðborgarsvæðinu hafa fjölgað um 5000. Um ellefu hundruð manns bíða nú eftir síma í Reykjavík. Um 500 þeirra eru á svæði Múiastöðvar- innar en hinir í miðborginni. Múlastöðin fær í næsta mánuði nýja símstöð, svokallaða „digit- al“-stöð, eða talnarafeindavals- stöð, sem býður upp á margfalt meiri möguleika en venjulegar stöðvar. Þar með verða tekin í notkun eitt þúsund ný númer, sem byrja munu á tölunni 6, en auk þess verður tvö þúsund núm- erum skipt út, númer á bilinu 85000—86999; þau númer fá einn- ig töluna 6 framan við gildandi númer og verða sex stafa. Hafsteinn sagði að í mars eða apríl á næsta ári yrðu tekin í notkun 2.000 ný númer á miðbæj- arsvæðinu og yrði það í tveimur áföngum. Einnig yrði fjölgað um 500 númer í Breiðholti, um önnur fimm hundruð í Kópavogi og um enn önnur fimm hundruð í Hafn- arfirði. Allt yrðu þetta sex stafa númer. „Það hefur valdið mörg- um miklum erfiðleikum að geta ekki fengið síma," sagði Haf- steinn, „ekki aðeins notendum heldur okkur líka. Fjárveitinga- valdið hefur hins vegar ekki leyft meiri fjárfestingu en svo, að þetta margir eru nú á biðlista. Á næsta ári er fyrirsjáanleg mikil bót á ástandinu, líklega verður númerafjölgunin í allt um 5.000 númer, eða yfir 9% af númera- fjöldanum, eins og hann er í dag. Nú orðið pöntum við ekkert ann- að en „digital“-stöðvar, en af- greiðslufrestur á þeim er allt frá einu ári og upp í eitt og hálft.“ Ýmsir möguleikar opnast með nýju símstöðvunum. Framvegis verður t.d. ekki þörf á að láta Landssímann hringja í morg- unsvæfa, verði þeir sér úti um viðeigandi símtól geta þeir sjálfir stimplað inn tímasetningu og númer og látið vekja sig, svo einn möguleiki sé nefndur. En til þeirrar þjónustu duga ekki venju- legir skífusímar, að sögn Haf- steins Þorsteinssonar. Sjaldséðir stórþorskar Á tímum aflaleysis og minnkandi þorskstofna er sjaldgæf sjón að sjá stórþorska eins og þá sem eru á myndinni. Þorskarnir komu allir í sama halinu í rannsóknarferð Bjarna Sæmundssonar undan Austur- landi. Þess má geta, að í þriggja vikna rannsóknarferð fengust aðeins Morgunblaðið/ Rafn Ólafsson. tveir aðrir þorskar af sama stærðarflokki. Rannsóknarmenn eru þarna við vinnu sína og lengst til vinstri er Einar Jóhannesson, bryti, að fá sér einn vænan í soðið. Skoðanakönnun Hagvangs hf.: 63,5% vilja leyfa sölu áfengs öls hjá ÁTVR Mikill munur á afstöðu eftir aldri í SKOÐANAKÖNNUN þeirri, sem Hagvangur hf. framkvæmdi fyrir skömmu voru þátttakendur spurðir um það, hvort þeir vildu leyfa sölu áfengs öls í verzlunum ÁTVR. Niðurstaðan varð sú, að 63,5% þeirra, sem spurðir voru, svöruöu þeirri spurningu játandi en 33,7% neitandi. Aðeins 2,8% tóku ekki af- stöðu. Verulegur munur var á afstöðu fólks eftir aldri. Milli 60—80% þátttakenda á aldrinum 19—49 ára vildu leyfa sölu áfengs öls en stuðningur við það minnkaði mjög meðal eldra fólks og einungis 26,8% þeirra, sem eru 70 ára og eldri svöruðu spurningunni ját- andi. Mun fleiri þátttakendur á höf- uðborgarsvæðinu svöruðu spurn- ingunni játandi en á landsbyggð- inni. Þannig sögðu 68,3% já á höf- uðborgarsvæðinu en 58,5% í þéttbýli á landsbyggðinni og 48,8% í dreifbýli. Skoðanakönnun Hagvangs hf. náði til landsins alls og voru 1.300 þátttakendur fimmtán ára og eldri valdir af handahófi úr þjóð- skrá af Reiknistofnun Háskóla ís- lands að undangengnu leyfi Hag- stofu íslands og tölvunefndar. Svarprósenta af brúttóúrtaki var 76,9% en af nettóúrtaki 85,7%. Könnunin fór fram í gegnum síma og stóð yfir frá 28. október sl. til 6. nóv. sl. Sjá nánari greinargerð um skoðanakönnun Hag- vangs hf. á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.